Morgunblaðið - 04.07.1962, Síða 17

Morgunblaðið - 04.07.1962, Síða 17
Miðvikudagur 4. júlí 1962 MORGIJTSBL AÐIÐ 17 Frú Steinunn Briern •y/QqiVVWIfílglt&föföfBi r-'i'n'O'*-' 'PT'^iw»-n'~op»pw*wíw»t"M^»»«flíonowwwp»W«-'o*' «v -■*■•'«*«•'' twr >'-'«-> FRÚ Steinunn Briem, ekkja séra Vilhjálms Briems, andað- ist á heimili sínu, Suðurgötu 16, hér í bæ, að morgni 31. maí sl., 92 ára að aldri. Jarðárför hennar fór fram frá Dómkirkj- unni 6. júní. Frú Steinunn var fædd í Valadal í Skagafirði 10. marz 1870. Voru foreldrar hennar Pétur Pálmason, bóndi þar, og Jórunn Hannesdóttir, kona hans. Þeim Valadalshjónum varð 11 barna auðið, og komust 8 þeirra til fullorðinsára. Þau voru Halldóra (1853—1937), sem átti fyrst Þorstein Eggertsson, síðar ólaf Briem, alþingismann á Álfgeirsvöllum; Hannes (1857 -—1900) á Skíðastöðum, átti Ingibjörgu Jónsdóttur; Pálmi (1859—1936) kaupmaður á Sauðárkróki, átti Helgu Guð- jónsdóttur; Pétur (1862—1919) á Bollastöðum, átti Sigurbjörgu' Guðmundsdóttur; Ingibjörg (1865—1925) ógift; Jón (1867— 1946) á Nautabúi og í Eyhild- arholti, átti Sólveigu Eggerts- dóttur; Steinunn og Herdís (1871—1927) gift Hálfdáni Guð- jónssyni, vígslubiskupi. Meðal hinna fjölmörgu af- komenda þessara systkina má nefna þjóðkunna menn, eins og Þorstein próf ast og ráðherra Briem, Pálma rektor Hannes- son og Hannes Pétursson skáld, bróðurson hans, Eggert Jóns- son, útgerðarmann frá Nauta- búi, og Helga Hálfdánarson skáld. Valadalssystkinin voru með af- brigðum myndarleg og mennt- uð, flest hagorð og öll höfðu þau yndi af hestum. Frú Stein- unn átti jafnan úrval hesta, sem hún tarndi sjálf, allt fram 6 efri ár. Enda þótt Valadalur sé af- skekkt býli, þá þótti það í tíð þeirra Jórunnar og Péturs íiggja um þjóðbraut þvera, enda mikið bú og rausnarlegt. En mest var þó um það vert, hversu langt þau voru undan sínum tíma og kom það m.a. fram í því, hvílikt kapp þau lögðu á menntun barna sinna. Frú Steinunn var t.a.m. send suður til Reykjavíkur og var þar vetur í Kvennaskólanum. Á sumardaginn fyrsta (19. apríl 1894) giftist hún Vil- hjálmi, yngsta syni Eggerts Hfinaiiiig sýslumanns Briem í Skagafirði, og Ingibjargar Eiríksdóttur Sverrissonar. Þau áttu því sjaldgæfa láni að fagna að lifa saman í unaðslegu hjónabandi í 65 ár, en 3 ár eru nú síðan hún missti mann sinn. Rétt eft- ir brúðkaupsdaginn vígðist séra Vilhjálmur til Goðdala í Skaga- firði. Þar eignuðust þau óðara fjölda rina, enda sagði mér gömul kona þar í sveit, að ungu hjónin hefðu heimsótt hvert einasta heimiii í sókn- Steinunn P. Briem. inni til þess að kynnast fólk- inu og högum þess. Það gerðist árið 1895 á Reykjum í Tungusveit — næsta prestakalli við Goðdali — að ung og glæsileg hjón, er þar bjuggu, féllu frá með fárra vikna millibili og létu eftir sig fimm unga syni. Þangað sóttu prestshjónin yngsta soninn tvæ- vetran og ólu hann upp sem sitt eigið barn. Þessi drengur var Sigurður Birkis, síðar söngmálastjóri. Séra Vilhjálmur hafði átt við vanheilsu að stríða frá unga aldri og varð hann árið 1899 að láta af prestskap til þess að leita sér lækninga. Þau urðu að koma ungum syni sínum og fóstursyni í umsjá vina og ættingja, en halda sjálf til Danmerkur. Nokkru síðar skild ust þar leiðir um stundarsakir, því að séra Vilhjálmur fór á heilsuhæli í Skotlandi, en frú Steinunn varð um kyrrt í Dan- mörku. Þau dvöldust utanlands hálft annað ár, en þá hafði sr. Vilhjálmur hlotið svo góða bót, að hann treystist til að taka til starfa á ný. Þau komu heim aftur haustið 1900. Vorið 1901 fékk sr. Vilhjálm- ur veitingu fyrir Staðastað á Snæfellsnesi. í sambandi við prestskjör þar, sendu íbúar Goðdalasóknar Staðsveitungum bréf, þar sem þeir fóru hinum lofsamlegustu orðum um um- sækjandann. Á Staðastað bún- aðist þeim vel og litu þau æ síðan á starfið þar sem blóma- skeið ævi sinnar. En eftir 10 ára dvöl á Snæfellsnesi, var heilsu prestsins enn svo komið, að hann varð að biðja um lausn, enda hafði hann þá ver- ið vetrarlangt á Vífilsstaða- hæli. Sóknarmenn Staðastaðar- og Búðasókna sendu presti sín- um skrifleg tilmæli. og áskorun um að hverfa ekki á brott, en við það varð ekki ráðið. Á meðan sr. Vilhjálmur varð að hlífa sér við vinnu, réðst frú Steinunn í að reka kven- fataverzlun og saumastofu, fyrst á Hverfisgötunni og síðar í húsi því, sem hún keypti, Laugavegi 18. Þennan rekstur annaðist hún um 15 ára skeið af miklum skörungsskap. Árið 1912 gekk séra Vilhjálm ur í þjónustu Landsbanka ís- lands og starfaði þar í nær 40 ár. Jafnframt starfaði hann í Söfnunarsjóði íslands frá sama tíma og var af Alþingi kjörinn forstjóri hans árin 1924—1955. Árið 1918, þegar spænska veikin geisaði hér í bæ, tóku þau hjón aftur fósturbarn, 4' ára telpu, Kristínu Jónsdóttur, sem misst hafði móður sína. Hana misstu þau árið 1932, 16 ára að aldri, og söknuðu henn- ar mikið. Rúman síðasta aldarfjórðung samvistarára sinna áttu þau heima í húsi sínu, Suðurgötu 16, á sjaldgæflega rausnarlegu og myndarlegu heimili, og þar þótti ættingjum þeirra og vin- Á myndinni eru fremst Valadalshjónin Pálmi Pétursson og Jórunn Hannesdóttir, og talið frá vinstri: Ingibjörg, Hali- dóra, Steinunn og Herdís og fyrir aftan þær: Pétur, Pálmi, Jón og Hannes. um mikil unun að koma, því að svo samrýmd og samhent voru hin öldíuðu hjón, að heimilisbragur allur var afar ástúðlegur og menningarlegur. En fegurst allra hátíða á heim- ili þeirra var jafnan sumardag- urinn fyrsti, brúðkaupsdagur þeirra. Þeim varð þriggja barna auð- ið og lifa öll foreldrana: Eggert vélaverkfræðingur, bú settur í Bandaríkjunum, átti Catherine f. Hall (d. 195'4); Gunnlaug, forstjóri Söfnunar- sjóðs fsland, gift Bjarna Guð- mundssyni, blaðafulltrúa, eiga þrjár dætur; og Unnur teikni- kennari. Vinir heimilisins og ætt- menni samhryggjast hinum nánustu við . fráfall þessarar merku konu. En minning henn- ar mun lengi lifa meðal þeirra, sem hana þekktu bezt. Jórunn Hannesdóttir. Garðyrkjuritið 1962 komið út GARÐYRKJURITIÐ 1962 er ný- , lega komið út, fjölbreytt að efni Hafliði Jónsson, garðyrkjustjóri' ritaði um vísi áð grasgarði í Laugardalnum í Reykjavík. Óli Valur Hanson, garðyrkjuráðu- nautur sikrifar um trjákend- ar klifurplöntur, dísarunna (sýr enur) — og segir garðyrkjufrétt ir Björn Sigurbjörnsson og Ingvi Þorsteinsson birta niðurstöður rannsóknar á áburðargildi Skarna í kartöflugarfta. Sveinn Indriðason ræðir um blómasölu og um meðferð afskorinna blóma. Þá eru lýsingar á fyrstu verulegu ætisvepparækt á ís- landi. Ritstj. Ingólfur Davíðsson ritar um hollustu grænmetis, kartöfluakra í Bornafirði, grös á Látraströnd við Eyjafjörð, jurtasjúkdóma og fleira Einar I. Sigurgeirsson birtir fróð lega skrá yfir garðyrkjurit, út- gefin 1770— 1961. Fleiri greinar eru ritinu t.d. um gullregnin miklu -- hans Egils Hallgríimsson ar, Bárugötu 3 í Reykjavík. Einnig ,Staldrað við í Stafangri* o.fl. greinar Garðyrkjufélag fslands vinn- ur mikið fræðslustarf og allt i sjálfboðavinnu, því að starfsfé skortir algerlega. Matjurtabókin sem félagið gaf út árið 1958, er langveigamesta fræðslurit um garðyrkju á íslandi og að því leyti arftaki „Hvanna“ Einars Helgasonar í matjurtabókinni er lýst ræktun allra helztu mat- jurta, kryddjurta og berjarunna þar eru hagnýtar upplýsingar um gerð vermireita og ræktun í þeim. Sömuleiðis um áburðar- tegundir og áburðarnotkun, val garðstæða o.s.frv. Garðyrkjuritið var stofnað af Sohierbeck landlækn; árið 1895 og hefur komið út í þremur á- föngum. EIINIR LANDSÞ2HTU CEAT> VÖRUBIFRCIÐA- HJÓLSÆRDAR KOMNIR AFTUR StÓrÍSkkðö VGfÖ^ 825x20 12 laga NYLON kr. 4580,50 900x20 12 laga NYLON — 5334,70 1000x20 14 laga NYLON — 7115,10 1100x20 14 íaga NYLON — 8094,00 Tryggir gæðin Fólksbifreiða hjólbarðar. Flestar stærð'r. Til dæmis 560x15 kr. 768,35; 640x13 kr. ooif,40 Postsendum hvert á land sem er Simi 35260 -M'jMauHniP Laugavegi 178 Sími 35260

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.