Morgunblaðið - 12.07.1962, Qupperneq 17
Fimmtudagur 12. júlí 1962.
MORGVNBLAÐIÐ
17
Jóhann Benediksson
JÓHANNI kynntiat ég fyrst fyrir I
14 árum og vann undir hans
verkstjórn í rúm 13 ár. Kynni
okkar urðu því all náin, sem
yerkstjóri var hartn sí leiðbein-
andi um verkin sem vinna þurfti
og gaf sér aldrei' fráviik frá því
sem honum var trúað fyrir. En
í frístundum var gott að sitja
móti Jóhanni því þá greip hann
ætíð til frásagnarinnar, og svo
gott minni hafði hann að af bar
Fjölmargir atburðir liðinna daga
stigu fram ljóslifandi. Hann var
orðhagur og orðgjöfull og óf í
frásögnina gamansömum ljóðbrot
um og litum frá ungdómsórum
á sinn sérstæða listræna hátt.
Ekki átti Jóhann lykil lang-
skólamanna, sem gáfur hans gátu
þó risið undir, en lífsbókina las
Ihann þannig allt frá æskudögum
að hann tileinkaði sér það sem
til þroska horfði. Enda snemma
sjálfkjörinn til mannaforráða.
Jóhann fluttist til Fteykjavíkur
i haustdögum 1910, þá öllum
ókunnugur hér. Hann komst
fljótt í fiskivinnu og réðist sem
verkstjóri að Melshúsum á Sel-
tjarnarnesi strax í vertíðarbyrj-
un 1911. Við fiskverkun gilti að
rísa árla úr rekkju og varð það
Jóhanni lífsvenja að taka daginn
snemrna.
Jóhann var faeddur á Kirkju-
bóli í Skutulsfirði 6. janúar 1886.
Hann var af önfirskum aettum
og Breiðfirskum. Með foreldrum
6inum fluttist hann til Bolungar-
víkur eins árs gamall og þar
missti hann föður sinn Benedikt
Jóhannsson 7 árum seinna.
Var hann þá tekinn í fóstur
inná Skógarströnd af náfrænda
sínum; en missti hann eftir 3 ár
og var það honum annar mestur
lífsskaðinn í barnæsku, en hann
unni mjög þessum frænda sínum
— og átti þar von til mennta.
Eftir það réðist hann sem
smali að Neðri-Hjarðardal í Dýra
firði til Mósesar sem þar bjó og
bar Jóhann ætíð sérstakan hlý-
hug til hans. Þar var hann svo
fram um tvítugt, vann að búi
fóstra síns; sem hann kallaði og
stundaði jafnhliða sjóinn og á
sumrin vann hann þar á Hval-
stöðinni.
Þegar til Reykjavikur kom
stundaði Jóhann verkstjérn, svo
til óslitið. Fyrst í Meishúsum og
siðan hjá Allianoe við fiskverk-
un, en þar var hann í 20 ár. Sex
ár var hann hjá Vita- og Hafnar-
gerð og svo hjá Hitaveitu Reykja
víkur frá 1939, þar til fyrir ári
að hann þætti þar störfum
og hafði þá stundað verkstjórn í
Reykjavík í fulla hálfa öld. Síð-
asta árið sitt var Jóhann oft las-
burða og lézt miðvilkudaginn 4.
júlí síðastliðinn, eftir þungt veik
indaáfall.
Móðir Jóhanns var Ólafía Guð-
mundsdóttir, en eins og fyrr seg-
ir fluttist hún með manni sinum
til Bolungarvíkur á fyrsta aldurs
ári Jöhanns og þar bjó hún ætíð
síðan, eða þar til hún lézt 93
ára gömul. Móður sinni lýsti Jó-
hann þannig að vitnaði um djúpa
ást og virðingu, og þó hún neydd
ist til að láta Jóhann frá sér
íbúð óskast til kaups
Vönduð 5 herb. íbúð í Hlíðunum eða Háaleitishverfi
óskast til kaups nú þegar. 1 herb. þyrfti að vera með
sér inngangi.
JÓN Ó. HJÖRLJEIFSSON, viðskiptafræðingur,
Báta- og skipasala. — Tryggvagötu 8. 3. hæð.
Sími 20610 k'l. 11—12 f.h. og kl. 5—7 e.h. —
Heimasími 32869.
Fiskibátur til sölu
Sem nýr 1. flokks 75 tonna ganggóður fiskibátur, smíð-
aður úr eik, með góðri 400 ha. vél og skiptiskrúfu, er til
sölu og afhendingar nú þegar. Báturinn er tilbúinn til
síldveiða. — Báturinn er búinn kraftblökk og selst með
2 síldamótum fyrir sumar- og haustsíldveiðar. — í
bátnum er nýjasta gerð af Asdic tæki, góð ratsjá og
sjálfstýristæki og önnur siglingatæki af fullkomnustu
gerð. — Vinsamlegast leytið nánari uppl. hjá undirrit-
uðum:
JÓN Ó. HJÖRLEIFSSON, viðskiptafræðingur,
Fasteignasala — Umboðssala, Tryggvagötu 8.
3. h. Sími 20610 frá kl. 5—7. Heimas. 32869.
Nemi í útvarpsvirkjun
Vegna forfaila, getur nemi komizt að á radíoverkstæði
í Reykjavík. Umsækjandi þarf að hafa umráð yfir
nokkurri peningaupphæð, þar sem hann þarf að geta
leyst út hlut fyrirrennara síns 1 rekstursfé verkstæð-
isins. — Umsækjendur sendi nöfn sín og heimilisföng,
ásamt upplýsingum um nám, störf og peningaráð, til
afgr. Mbl., merkt: „0tvarpsvirkjun — 7403“.
fara 8 ára, — en börnin voru
fleiri, — þá sleppti hún aldrei
af honum hendinni. Enda var
ást Jóhanns til hennar fölsíkva-
laus, og sagði hann mér oft frá
móðurumhyggjunni, sem hvorki
lætur hamla sér veglaus fjöll né
illvæð vatnsföll.
Daginn áður en Jóhann var
fermdur var hann að mala korn
í bæjardyrunum. Akaft vonaðist
hann eftir móður sinni og hljóp
oft út frá Kvörninni, en seint
um daginn sá hann hilla undir
manneskju á hæð alllangt frá
bænum, beið hann þá ekki boð-
anna en hljóp allt hvað aftók til
móts við vegfarandann, sem
reyndist verá móðir hans og urðu
þar fagnaðarfuridir. En þegar
hún opnaði pokann sinn um
kvöldið, kom upp úr hon*im al-
klæðnaður yst og innst og í vest-
isvasanum var stórt vasaúr og
falleg festi við, og eftir ferming-
una félck presturinn gullspesíu,
engu var gleymt.
Slíkar voru minningctr Jó-
hanns.
Minningar sem halda áfram að
ylja, og kólna aldrei.
Tryggvi Emilsson.
Húseigandaféiag Reykjavíkur
vHELGflSON/_ A ^
SdÐRRVOC 20 1*11 V» /\ IX ll
EKKI YFlRHIAPA
RAFKERFIP!
leqsíeinaK oq
J plotur ö
Bila & búvélasalan
Corvair ’60.
Chevrolet ’57.
Morris ’55.
Chevrolet ’55 sendibíll
lengri gerð.
Jeppar.
Ford ’55, sendibíll.
Vörubílar.
Ford ’54.
Chevroet ’59—’61.
Mercedes-Benz ’55—’61.
Volvo ’55—’57.
Ford ’47.
Bila & búvélasalan
Eskihlíð B
Sími 2-31-36.
IMýtt
fyrár húsmæður
Steiktur laukur
í pökkum.
BRISKY sparar tíma
og fyrirhöfn.
BRISKY er Ijúffeng-
ur.
Biðjið um BRISKY.
Heildsölubirgðir:
Niðursuðuverksmiðjan OR4
Símar: 17996 — 22633.
Finnskar
lakkhúðaðar
þilplotur
Stærð 4x6 fet.
Margir litir
77/ sölu
Fokheld ibúðarhæð í Kópavogi. Hagstætt verð og
greiðsluskilmálar.
JÓN Ó. HJÖRLEIFSSON, viðskiptafræðingur,
Fasteignasala — Umboðssala, Tryggvagötu 8.
3. h. Sími 20610 frá kl. 5—7. Heimas. 32669.
SVTH
Silungsveiði í
Höfðavatni, Skagafirði
og Reyðarvatni á Uxahryggjum. — Veiði-
leyfi seld á skrifstofu
Stangaveiðifélags Reykjavíkur.
Bergstaðastræti 12B — Sími 19525
Fiskibátur til sölu
Nýlegur 75 tonna ganggóður fiskibátur, smíðaður úr
stáli, með nýupptekinni og góðri véi af þekktri gerð,.
er til sölu og afhendingar nú þegar. Bátnum fylgja
línuspil og trollspil. Línuveiðarfæri gætu einnig fylgt.
Báturinn er búinn öllum nýjustu siglingatækjum, rat-
sjá og Asdic tæki. — Vinsamlegast leitið nánari uppl.
hjá undirrituðum:
JÓN Ó. HJÖRLEIFSftSON, viðskiptafræðingur,
Báta- og skipasala. — Tryggvagötu 8. 3. hæð.
Sími 20610 kl. 11—12 f.h. og kl. 5—7 e.h. —
Heimasími 32369.