Morgunblaðið - 28.11.1962, Síða 1
24 síður
49. árgangur
267. tbl. — Miðvikudagur 28. nóvember 1962
Prentsmiðja Morgunblaðsins
97 FARASTIFLUGSLYSI
Boeing 707 hrapar —
Mun vera 8. mesta flugslys frá
þvi fart>egaflug hófst — Slysið
varð v/ð Lima i Perú
Lima, Ferú, 27. nóvember
— AP-NTB.
FULLVÍST er nú, að 97
manns hafa látið lífið, er
Boeing 707 farþegaþota frá
brazilíska flugfélaginu „Var-
ig“, fórst, skammt frá höfuð-
borginni í Perú, Lima.
Hittast í
desember
Washington, London,
27. nóvember — AP.
ÞAÐ var tilkynnt í Was-
hington og London í dag, að
þeir Kennedy, forseti, og
Macmillan, forsætisráðhera,
muni koma saman til fund-
ar í Nassau á Bahamaeyjum
í desember.
Fundurinn mun hefjast
19. desember og standa í tvo
daga. Verða alþjóðamál til
umræðu, og er hér um að
ræða framhaldsfund, að því
er segir í fréttatilkynning-
um. Verður þetta 6. fund-
ur þessara ráðamanna.
Flugvélin var á leiðinni frá
Rio de Janeiro til Los Angel-
es. Var hennar von til við-
komu í Lima um kl. 9,30 í
morgun, eftir staðartíma.
Skömmu áður en vélarinnar
var von, rofnaði allt samband
við hana. Er komið var fram
yfir áætlaðan komutima henn
ar, var hafin víðtæk leit. Átta
klukkustundum síðar sást
úr lofti flak, rúma 100 km
frá Lima.
Síðar í dag, var tilkynnt,
í Perú, að allir, sem um borð
voru, 80 farþegar og 17 manna
áhöfn hefðu týnt lífinu.
Þetta er fimmta meirilháttar
flugslysið á finnm dögum. Hafa
iþá alls 181 látið lífið.
Eins og áður hefur verið skýrt
frá í fréttum, þá urðu þrjú flug-
slys sl. fimmtudag. Þá fórst
portúgölsk flugvél á leið til
Lissabon, bandarísk Viscount
flugvél hrapaði til jaxðar í Mary-
landfylki og ungversk skrúfu-
þota hrapaði til jarðar við Le
Bourget flugvöllin í París. Alls
fórust 57 í þessurn þrem slysum.
í gær, mánudag, fórust svo
27 manns, er brazilísk farþega-
flugvél rakst á einkaflugvél yfir
Sao Paulo í Brazilíu.
Mun þetta vera 8. mesta flug-
slys frá því farþegaflug hófst.
Coty jarðsettur
í DAG fór fram í Le Havre út-
för Rene Coty, fyrrum Frakk-
landsforseta. Coty lézt sl. fimmtu
dag af hjartabilun.
Viðstaddur útförina var m. a.
DeGaulle, forseti. Mörg hundruð
manna söfnuðust saman til að
vera viðstaddir, þrátt fyrir vont
veður.
Hermenn stóðu heiðursvörð.
Rændu TVi
milljón
London, 27. nóvember — AP
GRÍMUKLÆDDIR ræningj-
ar stálu í dag 62.500 sterl-
ingspundum (u. þ. b. sjö og
hálfri milljón ísl. króna) frá
skrifstofum brezka flugfé-
lagsins BOAC, á Lundúna-
flugvelli.
Þetta voru laun starfs-
manna félagsins og voru
geymd í stálkössum. Ræn-
Framh. á bls. 2
Adenauer
Adenauer hætti
— i
siðasta lagi næsta sumar —
einróma ólyktun þingflokks Kristi-
legra demokrata
Bonn, 27. nóvember — AP.
KRISTILEGI demokrataflokkur-
inn í V-Þýzkalandi, flokkur Aden
auers, kanzlara, hefur tjáð hon-
um ,að hann verði að segja af sér
embætti snemma næsta árs, eða
Kirkjuþingshlé
lengt
Vatikan, 27. nóvember — AP.
ÞAÐ var tilkynnt hér í dag, að
Jóhannes páfi hefði ákveðið, að
hlé það, sem gert verður á fund-
um Kirkjuþingsins eftir 11 daga,
ekuli standa fjórum mánuðum
lengur en áður var ákveðið. Kem-
ur það því ekki saman aftur,
fyrr en í september á næsta ári.
Ekkert hefur verið látið uppi
um það, hvað valdi.
r>
Notið lygi til að sverta
sovézka kommúnista"
„Izvestia" minnist „frelsisafmælis" Albaniu
• MosTcvu og Peking, 27. nóv.
— (NTB) —
S V O virðist nú, sem átökin
milli Kína og Sovétríkjanna
séu að komast á nýtt stig. I
dag birtir Moskvublaðið
„Izvestia“ grein, sem kveður
harðar á um óafsakanlega
framkomu ráðamanna Al-
baníu, en nokkru sinni áður
hefur verið gert.
Samtímis birta valdhafarn-
ir í Peking boðskap sinn til
Albana, þar sem þeir eru
hylltir og taldir bræður Kín-
verja í „fjölskyldu sósíalista“.
í grein þeirri, sem birtist í
„Izvestia“ segir, að Sovétrík-
in geti ekki lengur látið það
viðgangast afskiptalaust,
hvert stefni fyrir alþýðu
manna í Albaníu. Þar séu
ævintýramenn að steypa
árangri sósíalismans í hættu
með öfgakenndri þjóðernis-
sinnastefnu.
Eins og kunnugt er, þá hafa
Albanir gerzt talsmenn stefnu
Framhald á bls. 23
í síðasta lagi næsta sumar.
Skýrt hefur verið frá þvi, að
þingflokkur kristilegra demo-
krata hafi tekið þessa ákvörð-
im á lokuðum fundi í dag. Var
ákvörðunin samhljóða.
Þær fregnir hafa borizt af
fundinum, að Adenauer hafi setið
þögull, þegar rætt var um málið.
Mun hann ekki hafa látið nein
þau orð falla, sem gefið geta vís-
bendingu um, hvort hann ætli
sér að fara að óskum flokks-
bræðra sinna.
Þeirrar skoðunar hefur löngum
gætt innan Kristilega demokrata-.
flokksins, að Adenauer hafi ekki
lengur næga stjórn á málefnum
flokksins.
Þegar flokkurinn missti meiri-
hluta sinn í þingkosningunum í
fyrra, þá kenndu margir því um,
að Adenauer hafði sig svo mjög
í frammi. Er stjórn var mynduð
með Frjálsum demokrötum, þá
vildu þeir fyrst ekki fallazt á,
að Adenauer yrði kanzlari. Er
Framhald á bls. 23
Rússar eiga nú um
477 kafbáia
London, 27.
— AP-NTB.
SOVÉTRÍKIN eiga
nóvember.
12 kjarn-
Hætta vísvitandi á undirokun Islands
Á FORSÍÐU Tímans f gær
er réttilega komizt að
þeirri niðurstöðu, að komm
únistar hér á landi væru
líklegir til að nota vald sitt
eins og í „Tékkóslóvakíu,
Ungverjalandi og víðar til
að brjóta andstæðinga sína
á bak aftur og tryggja full
yfirráð Rússa“ ' ef þeir
gætu. Framsóknarmenn
hafa þannig lýst því yfir,
að þeim sé það fullljóst, að
bandamenn þeirra hér á
landi séu í engu frábrugðn
ir kommúnistum annars
staðar, sem nota sérhvert
tækifæri til.að svíkja þjóð
sína undir erlend yfirráð.
Þrátt fyrir þessa yfirlýs
ingu halda Framsóknar-
menn áfram fullum stuðn
ingi við kommúnista og
herða jafnvel dag frá degi
„þjóðfylkingarbaráttuna“
sem miðar að samstjórn
þessara tvcggja flokka, ef
þeir fengju meirihlutavald
og myndun stjórnar, sem
„yrði að vera alþýðustjórn
eða þróast upp í það“.
Framangreinda játningu
Tímans er að finna í grein,
sem virðist hafa verið í
tíu daga í undirbúningi, því
að í henni er f jallað um við
tal, sem Morgunblaðið átti
við Áka Jakobsson, fyrr-
verandi ráðherra, og birti
fyrra sunnudag. En út af
fyrir sig er ef til vill skilj-
anlegt, að undirbúningur-
inn hafi tekið dálítið lang-
an tíma, því að lagt er út
af orðum Áka Jakobsson-
ar á allt annan veg en
þau eru sögð og birt.
Um þetta mál er fjallað
í ritstjórnargrein blaðsins
í dag.
orkuknúna kafbáta, segir í tíma
riti brezka flotans, „Jane“, sem
út kom í dag. Auk þess eru þau
talin eiga um 465 kafbáta, sem
knúðir eru venjulegu vélarafli.
Þá er fullyrt í tímaritinu, að
30 kafbátanna séu þannig út-
búnir, að frá þeim megi skjóta
eldflaugum. Álitið er, að draegni
eldflauganna sé um 350 milur.
Hins vegar er talið, að unnið sé
nú að því að auka drægni flaug-
anna.
í tímaritinu segir einnig, að
Bandaríkin eigi aðeins 176 kaf-
báta, af þeim séu 26 kjarnorku-
knúnir. Þó er gert ráð fyrir, að
Bandaríkin muni hafa eignazt 81
kjarnorkuknúinn kafbát fyrir
1967.
Greint er einnig frá þvi, að
„togarar“ Rússa séu búnir betri
útvarps- og radartækjum, en
eðlilegt geti talizt um venjuleg
fiskiskip. Er meginihlutverk
þessa „fiskiflota" talið vera að
senda upplýsingar um skipaferð
ir víðs vegar í heiminum,