Morgunblaðið - 28.11.1962, Page 23

Morgunblaðið - 28.11.1962, Page 23
MiðviKuaagur zs. nóvember 1962 MORGUNBLAÐIÐ 23 Skemmduiverk í Kdpavogi SKEMMDARVBRK var unnið á bifreið, sem stóð fyrir utan Fé- lagsheimilið í Kópavogi aðfara- nótt mánudags. Hafði verið brot- izt inn í bílinn með því að mölva vinstri framrúðu, en síðan var sú hægri brotin innan frá, senni- lega í bræði vegna þess, að ekkert fémætt var í bílnum, eða að hon- um varð ekki komið í gang. Málið er í rannsókn, en atburður þessi átti sér stað milli kl. 12 á mið- nætti og 2. Árekstur á Akranesi AKRANEISI, 27. nóv. — Laust fyrir hádegi varð árekstur á horni Kirkjubrautar og Háholts milli fólksbílanna Z 183 og E 494. Aurbretti og höggvamir skemmd ust hjá báðum, en engin meidd- ist. ☆ // Stjórnpallurinn á Mansfeld frá Rauðstokki. skógur ratsjáa, miðunar og mælitækja eins sovézkum og austurþýzkum togurum. Á þaki hans sést og venjulega á Óheppið veiðiskip Austur-þýzk* togarinn Mans feld, Rostock 209, kom til Reykjavíkur á þriðjudag í fyrri viku með bil- aða vél. Togarinn er ný- málaður ofan þilja og neðan, enda nýkominn úr klöissun. Sett hafði verið í hann ný- uppgerð vél, en eftir því, sem skipsmenn segja, bilaði hún um leið og komið var undir ísland. Hér hefur farið fram bráðabirgðaviðgerð, svo að hann komizt aftur til Austur- Þýzkalands, þar sem nýja véi verður líklega að setja í hann. Þegar komið var um borð í skipið, voru engin veiðar- færi sjáanleg nema hlerar í gálgum og bobbingar. Enginn afli var í skipinu. Segja kunn ugir, að þetta sé einn af 4-5 austur-þýzkum togurum, sem annað veifið verði vart við í námunda við ísland, en aldrei hafi nokkur orðið var við, að þeir veiddu neitt. Virðist þeir yfirleitt alls ekki útbún ir til veiða, þótt þeir hafi stundum einhverja veiðar- færaihluta ofan þilja. Hafa þess vegna margir velt því fyrir sér, hvers konar veið- ar þeir stundi eiginlega við landið. Mikoyan ræðir við Kennedy á fimmtudag Mun dveljast tvo daga i Wasington Washington, 27. nóv. — (AP-NTB) — TILKYNNT var í Hvíta hús- inu í kvöld, að Mikoyan, vara íorsætisráðherra Sovétríkj- anna, og Kennedy, Banda- ríkjaforseti, muni hittast n.k. fimmtudag til að ræða Kúbu- málið. Jafnframt var sagt, að Mikoyan muni dveljast tvo daga í Washington, þ. e. fimmtudag og föstudag. Talsmaður Hvíta hússins, Malcolm Kilduff, skýrði frá því, að viðræðurnar færu fram að beiðni beggja aðila. Fyrsti fundur þeirra Mikoy- ans og Kennedys verður á fimmtudagskvöld. Mikoyan hefur sent kúbönsk- tim leiðtogum boðskap, þar sem tiann segir, að Sovétríkin heiti fullum stuðningi við Kúbu. Var orðsendingin færð þeim Osvaldo Dorticos, forseta Kúbu, og Fidel Castro, forsætisráðherra. Mikoyan leggur áherzlu á það, I boðskap sínum til þessara leið- toga, að vinskapur Sovétríkj- anna og Kúbu sé mikill- og ein- lægur, og þakkar Mikoyan sér- etaklega þá gestrisni, sem hon- tim hafi verið sýnd á Kúbu. í orðsendingu Kúbustjóri r til Bameinuðu þjóðanna, sem birt var í New York í dag, segir, eð Kúbumenn áskilji sér rétt til að hervæðast á hvern þann hátt, sem nauðsynlegur kunni að reynast, til að mæta árás af hálfu Bandaríkjanna. f>ar er lögð áherzla á það, að Kútoa sé á móti alþjóðlegu eftir liti með afvopnun á Kúbu, en hins vegar er viðurkennt, að nauðsynlegt sé að gefa ákveðnar tryggingar til þess, að hægt sé að komast að samkomulagi, er allir aðilar geti fellt sig við. Bílvelta á Akureyri Akureyri, 27. nóvember. UNDANFARIÐ hefur verið mjög mikil hálka á götum Akur eyrar, og af þeim ástæðum hafa orsaikazt nokkrir bílaárekstrar. Slys hafa þó ekki orðið á mönn- um. S.l. laugardag hvolfdi jeppa bil nálægt Gróðrarstöðinni á Ak- ureyri, og var það eingöngu vegna hálku. í bílnum var mað ur ásamt tveimur börnum, og sakaði engan. Bílnum hvolfdi á veginium, en valt síðan austur af honum, og er talin mildi, að ekki skyldi verða þarna stórslys. — „Notið lýgi — Framh. af bls. 1 Kínverja innan kommúnista- ríkjanna. Greinin í „Izvestia" er skrifuð af V. Gawkic, í tilefni 18. ára af- mælis þess, að Albanía fékk frelsi að lokinni heimsstyrjöld- inni. Að undanförnu hafa Sovétrík- í margsinnis ráðizt að Albaníu ræðu og riti. Albanir hafa tek- ið höndum saman við Kínverja um að gagnrýna stefnu Sovét- ríkjanna í Kúbumálinu. Greinin er skrifuð þannig, að þar kemur fram mikill vináttu- vilji í garð albanskrar alþýðu, og er þar vikið að þeirri aðstoð, sem Sovétríkin hafi veitt A1 baníu eftir síðari heimsstyrjöld- ina. — Sökinni er hins vegar skellt á albanska leiðtoga, „sem hafi að undanförnu vikið- til hliðar hags- munum alþýðunnar, til þess að fá framgengt eigin óskum.“ Því er haldið fram, að altoansk ir leiðtogar reyni á „allan hugs- anlegan ihátt að eitra hugi með- lima kommúnistaflokksins og meginþorra alþýðu með rangri þjóðernissinnastefnu". Reyni þeir á allan hátt að skapa andúð á Sovétríkjunum, sovézka komm únistaflokknum og öðrum vina löndum. Segir ennfremur f greininni að þessir leiðtogar svífist ein- skis í þessum tilgangi, — noti jafnvel og taki upp andkommún iskan áróður og alls konar lygi til að sverta sovézka kommún- istaflokksinnn. Viðtorögð Kínverja á þessum degi voru á þann veg, að hylla leiðtoga Albaníu, og sérstaklega er vikið að leiðtoga albanskra kommúnista, Enver Hoxha, í því sambandi. í boðskap sínum segja kín versku leiðtogarnir, að albanski kommúnistaflokkurinn hafi alltaf fylgt réttri stefnu — ekki stefnu undanlátssemi. Eru færð ar fram þakkir fyrir það, >g það jafnframt sagt, að Albanía hafi haft miklu hlutverki að pegna í því að varðveita Marx-Lenin isma. Boðskapur Kínverjanna var undirritaður m.a af Mao-Tse tung, formanni kínverska komm únistaflokksins. - Ásgrimur Jónsson Frarnh. af bls. 6. sannfæringarkrafti, að sagnanna slíkum svo er sem heimur verði raunveruleiki.----Marg- ar fyrri myndir Ásgríms voru málaðar mildum litum, hann not aði þá (og notar reyndar enn), mikið vatnsliti. f þessum verk- um er íslenzkri veðráttu, birtu og loftslagi lýst með þeim trú- verðugleika og bersögli, an naum ast mun verða betur gert. Við- fangsefni hans eru margvisleg, öræfi landsins, ber fjöll og auðn ir, jöklarnir, hæðardrögin, árnar, húsin litlu undir fjalli eða við sjó, í alls konar birtu og veðri. En kærustu viðfangsefni hans eru þó gróðurblettir landsins. Hinum einkennilegu bugðum í stormbitnum stofnum birkisins okkar hefur hann lýst með líf- rænum krafti. Leikur Ijóssins laufi trjánna, skuggar sem koma og fara, lifandi blætorigði birtunnar á fjöllum og á himni, allt þetta hefur Ásgrímur séð og málað með vissu og dirfsku meistarans. Meðal síðustu verka hans — en það eru aðallega myndir úr Húsafellsskógi — eru sum einkennilegustu málverkin, er hann hefur gert, kröftugri í lit en flest það, sem hann hef- ur málað áður. Iðandi hreyfing skógarins 1 stormi, sterk ljós- brigði og magnaðir litir, er ný hlið á list hans------ Um þjóðsagnaefnið í myndlist Ásgríms hefur Einar Ólafur Sveinsson birt mjög góða ritgerð í „Þjóðsagnabók Ásgríms“, sem Bókaútgáfia Menningarsjóðs gaf út 1959, og er sú bók að öllu leyti hin vandaðasta, Ásgrímur réði sjálfur myndavalinu. Nýja Ásgrímsbókin er sem sé ekki einstakt verk, hún er að- eins síðasta og stærsta og full- komnasta bókmennta- og mynd- listarverkið sem enn hefur ver- ið gefið út um þennan göfuga listamann, sem öll þjóðin virðist elska og dá. bókarinnar ritar Ragnar Jónsson, í formála útgefandinn, eftirfarandi: „Ásgrímur Jónsson Sakaður um nýósnir í Sovétríkgunum Brezkur verzlunarmaður handtekinn Moskva, 27. nóvember. — AP-NTB. UTANRÍKISRÁÐUNEYTI Sovét rikjanna tilkynnti í Moskvu í dag, að 45 ára gamall brezkur verzlunarm., Greville Wynne, hefði játað að hafa rekið njósn- ir fyrir Vesturveldin. Wynne var handtekinn í Buda- pest 2. nóvember, og framseldur Sovétríkjunum. Áður hafði Wynne verið á ferðalagi í Sovétríkjunum. H.F.T. Smith, starfsmanni brezka sendiráðsins, var tilkynnt þetta í dag. Segir í orðsendingu þeirri, sem hann fékk frá utanríkisráðu neytinu sovézka, að Wynne muni verða látinn svara til saka fyrir athæfi sitt. Verði farið með mál hans að þarlendum lögum Ekki er ljóst, hvaða njósnir Wynne eru gefnar að sök. — Adenauer Framhald af bls. 1 Adenauer lýsti því þá yfir, að hann myndi draga sig í hlé áður en gengið yrði til kosninga á nýj an leik 1965, féllust þeir á stjórn- armyndun með Kristilegum demo krötum. Fundur sá, sem haldinn var í dag, var boðaður vegna núver- andi stjórnarkreppu, sem leiddi af „Spiegel-málinu“ svokallaða, en eins og kunnugt er, þá hafa 5 ráðherrar frjálsra demokrata lagt fram lausnarbeiðnir sínar. - Bréf frá N. Y. Framhald af bls. 13. drýpur. Hann er þægilegur í persónulegum viðræðum, talar fremur lágt og við borð liggur að hann virðist feiminn. Á herðum þessa hægláta og yfirlætislausa Asíubúa hvílir mikið starf og þung ábyrgð. Það er mál þeirra, er gerst þekkja til að hann hafi rækt það með sæmd það eina ár, sem hann hef ur verið framkvæmdastjóri. Allt er enn á huldu um það, hvont samikomulag tekst um end urráðningu hans þegar kjörtíma bil hans rennur út snemma á næsta ári. En líklegt er að hinar vestrænu lýðræðirþjóðir muni 'honum fylgjandi, ásamt flestum þjóðum Asíu og Afríkiu. S.Bj. er emn „hinna þriggja stóru“ í sögu ís- lenzkrar nútímalistar, tímamóta maður og brautryðjandi. Hann er málari á heimsvísu, stórbrot- inn og kunnáttusamur, en jafn- framt sjaldgæflega þjóðlegur, í list hans speglast hið innra líf lands og þjóðar, oft séð úr dul- arheimum og ýmist í náinni sam búð eða öndverðum leik. Hið sterka landslag í mörgurn mynd- um hans er nánast málfar þess- ara verka, sjálfur raunveruleiki þeirra er hin ævarandi baráttu- saga íslenzkrar náttúru". Það er einmitt það. þarna er sannleikurinn um Ásgrím. Því fer mjög fjarri, að ég sem þsssar línur skrifa, telji mig al- menningi dómtoærari um mynd- list eða kæri mig yfirleitt nokk uð um að koma mínum mynd- listarsmekk á framfæri við fólk- ið í landinu. Engum hneykslun- ■um ætti því að valda þó ég játi það hér frammi fyrir hinni nýju Ásgrímsbók Helgafells, að það sem ég sé fyrst og síðast í öll- uim myndunum er ebki lands- lag ,hús eða fólk, heldur blasir það við augum draumurinn og ævintýrið í aál listamannsins: ótti, beygur, gleði, uppljómandi hrifni. Skáldskapur í algleymi — jarðleitinn og himinhrópandi í senn. Því meir sem Ásgrímur nálg- ast likamlegan dauða sínn, því nær kemst hann í list sinni hinni lifandi og ódauðlegu sál lands- ins og þjóðarinnar, — og deyr að lokum inn í hana, eins og Þórólfur inn í sitt Helgafell. Og sameinast landvættunum. Guðmundur Daníelsson. Nú er hátt verð á góðum málverkum. Látið vita sem fyrst um málverk, sem þér ætlið að selja á næsta málverkauppboði. Listmunauppboð SIGURÐAR BENEDIKTSSONAR Austurstræti 12. — Sími 13715.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.