Morgunblaðið - 16.12.1962, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 16.12.1962, Qupperneq 1
I 48 síður (I og II) '«í Ráðherrafundi NATO lokið Kínverjar vilja „toppfund" til að ræða deilur innan kommúnistaflokkanna vakíu og Italíu að undanförnu. Einnig varar blaðið lesendur sína við að láta ógnanir heims- valdasinna um kjarnork-ustyrjöld skelfa sig. Moskvublaðið Pravda birtir í dag lofgrein um „raunhæfa, vit- urlega og friðelskandi stefnu" Sovétstjórnarinnar í Kúbudeil- unni. Hinsvegar segir blaðið að til séu öfl, sem bersýnilega hafi glatað trúnni á sigur kommún- ismans öðruvísi en með styrjöld. í því sambandi nefnir blaðið Albani, og þá,. „sem standa að 'baki Albönum.“ Pravda minnist á landamærastyrjöld Indverja og Kínverja og skorar á „bræðra þjóðina“ Kína og vinaríkið Ind- land að reyna að semja um lausn deilunnar, sem valdi Rúss- um miklum áhyggjum. I forustugrein Evrópuútgáfu dagblaðsins New York Times í dag segir að utanríkismálaræða Krúsjeffs forsætisráðherra á fundi Æðstaráðsins í Kreml nú í vikunni, hafi enn aukið líkurn- ar fyrir samvinnuslitum Kína Og Sovétríkj anna. Segir blaðið að kjarninn í ræðu Krúsjeffs hafi verið sá að í Kína séu öflugar öfgaklíkur, sem Mao Tse-tung sé mjög háður, og sem gjarnan hefðu viljað hætta á kjarnorku- styrjöld vegna Kúbudeilunnar. Segir blaðið að Kínverjar líti á ræðu Krúsjeffs sem tilboð um samvinnu við Bandaríkin gegn Kína. Porunn Jöhannsðóttir og Vladimir Asjkenazí við komu þei: jjlL til Reykjavíkur í gærmorgun. — Sjá blaðsíðu 3. London og Moskvu, 15. des. (NTB). MÁI.GÖGN kommúnistaflokk- anna í Sovétríkjunum og Kína birtu í dag harðorðar árásir hvort á annað. „Málgagn þjóðar- innar“ í Peking tók upp hanzk- ann fyrir flðkkinn í Kína og mótmælir þeirri gagnrýni, sem fram hefur komið erlendis. Legg ur blaðið til að haldinn verði „toppfundur“ kommúnista til að fyrirbyggja að ágreiningur flokk anna aukist enn. I ritstjórnargrein kínverska blaðsins er rætt um árásir þær og gagnrýni á kínverska komm- únistaflokkinn, sem fram hafa komið á flokksþingunum í Búlg- aríu, Ungverjalandi, Tékkósló- París, 15. des. (NTB). RAÐHERRAFUNDI Atlantshafs- bandalagsins lauk í París i dag. í fundarlok var gefin út sameig- inleg yfirlýsing utanríkis- og vamarmálaráðherranna, er fund inn sátu. Segir þar að fundar- ntenn hafi kynnt sér störf banda- lagsins varðandi hinar ýmsu til- lögur um samrýmingu og upp- byggingu varna NATO og rann- sé’knir á hugsanlegri útvegun kjarnorkuvopna fyrir NATO-her inn. Um Kúbudeiluna segir í yfir- lýsingunni að með festu sinni hafi Bandaríkin bægt frá hætt- tinni á nýrri heimsstyrjöld, og hafi þar hjálpað eindreginn stuðn ingur NATO ríkjanna og ann- arra vestrænna landa. Ráðherr- arnir segja að höfuð tilgangur bandalgsins sé að tryggja frið, frelsi og öryggi í heiminum. En — segir í yfirlýsingunni — NATO mun svara sérhverri ógn- un við frelsi og öryggi aðildar- ríkjanna með þeim aðgerðum, sem nauðsynleg kunna að reyn- ast Ráðherrafundurinn ítrekaði fyrri ákvarðanir um að NATO vildi vernda og tryggja frelsi Vestur Berjfnar og íbúa borgar- innar. I yfirlýsingunni er lögð áherzla á þýðingu þess að ráðherrar að- ildarríkjanna hafi náið samband sín á milli, og er gert ráð fyrir tíðari ráðherrafundum banda- lagsins í franitíðinni. Ráðherrafundurinn leggur enn fremur áherzlu á að efla beri varnir samtakanna. Segir í yfir- lýsingunni að til að geta mætt öllum árásum sé nauðsynlegt fyrir her NATO að fá kjarn- orkuvopn til umráða. Kveíkt ó notska jóla- trénu í dag í DAG kl. 16 verður kveikt á jólatré því, sem óslóborg hefur sent Reykvíkingum að gjöf og reist hefur verið á Austurvelli. Lúðrasveit Reykjavíkur mun leika á Austurvelli stundarfjórð- ung áður, ef veður leyfir. — Ambassador Norðmanna, Johan Cappelen, mun afhenda tréð, en Geir Hallgrímsson, borgarstjóri, veita því viðtöku fyrir hönd borgarbúa. Dómkórinn, undir stjórn Páls ísólfssonar, mun syngja. Auk þessa trés sendi Sbgnekommune borginni að gjöf átta metra hátt grenitré, og hef- ur það verið reist á Hlemmi. Unnið úr upplýsíngum frá Mariner II. Afrek bandarískra vísindamanna fagnað víða um heim Washington, 15. des. AFREK bandarískra vísinda- manna í sambandi við Venus- flaugina Mariner II., hefur vakið verðskuldaða athygli vísindamanna um allan heim. Mariner II. fór framhjá Ven- usi í gærkvöldi í 33.600 kíló- metra fjarlægð, og sendi upp- lýsingar um plánetuna til jarðar. Segja talsmenn geim- vísindastofnunarinnar banda- rísku (NASA), að upplýsing- ar þessar geti svipt hulunni af Venusi og leyst úr ýmsum þeím spumingum, sem vís- indamenn hafa glímt við í margar aldir. James Webb, framkvæmda- stjóri NASA, sagði í dag að ver- ið væri að vinna úr upplýsingum þeim, er Mariner II. sendi til jarðar, en það verk geti tekið marga daga og jafnvel vikur. Þegar því er lokið, verður vís- indamönnum um allan heim gef- inn kostur á að kynna sér niður- stöðurnar. Sir Bernard Lovell, forstöðu- maður Jodrell Bank rannsóknar- stöðvarinnar brezku, segir að „stefnumótið“ við Venus sé at- hyglisverðasta vísindaafrek ald- arinnar. Óskaði hann starfsbræðr Framhald á bls. 2. Á miðvikudag varð námu- slys í Suður-Afríku. Jarðhrun ,arð undir þriggja hæða húsi við námuna West Driefontein skammt frá Jóhannesarborg, og húsið hvarf ofan í stóran gíg, sem myndaðist við hrun- ið. Mynd þessi sýnir gíginn, sem seinna fylltist af vatni frá sprunginni vatnsleiðslu. — 34 námumenn fórust í slysinu 150 létusi s.l. viku í USA af völdum veðurs IVIesti kuldi í Florida i 70 ár _ London, 16, des. NTB-Reuter SÍÐUSTU daga hefur veður ver- ið kalt og gengið á með snjó- komu í miklum hluta Evrópu og víða í Bandaríkjunum. I Florida hefur kuldinn komizt allt niður í mdnus 15 gráður á Celsíus, og er það mesti kuldi sem þar hefur komið síðustu sjö- tiu árin. Fólk hefur unnið við að reyna að bjarga ávaxtaupp- skerunni, en líkur benda til þess að mikið tjón verði af völdum kuldans. Síðustu vikuna hafa 150 manns lótizt í Bandaríkjunum 1 af völdum veðursins, og snjór og frost eru talin hafa valdið tjóni sem nemur milljónum dala. Frá Evrópu berast víða fregn- ir af slysum og óþægindum vegna veðursins. Nokkrir menn létu lífið í snjóskriðu á landamærum Júgóslavíu og Austurríkis. I ná- grenni Parísar og í borginni sjálfri hafa orðið fjölmargir á- rekstrar og slys vegna veðurs- ins og hundruð bifreiða sitja fastar á þjóðvegunum. Líkar fregnir berast frá Spáni, þar sem hvassviðri hefur rifið tré upp með rótum og snjókoma er um allt land.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.