Morgunblaðið - 16.12.1962, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 16.12.1962, Blaðsíða 2
2 MORGVNBLAÐIÐ Sunnudagur 16. des. 1962 | NA /5 hnútar [ */ SV 5 Ö hnútar X Snjókoma P OSi 17 Shúrir E Þrumur KuUoM ZS Hifttkif H Hmt L-ÍSlL Vinnustofa og verzlun ör- yrkja sfarfrœkf á ísafirði Öflugt starf félaga öryrkja vestra Ragnar Kjartansson með samsettan vasa úr hraunkeramik. Ragnar Kjartansson sýnir hraunkeramik ísafirði, 9. 12. í GÆRKVÖLDI kl. 6,30 e. h. voru fréttamenn blaða hér í bæ boðaðir til fundar í húsakynni félaganna Berklavarnar og Sjálfs bjargar að Mjallargötu 7, en fé- lögin höfðu þá fyrr um daginn opnað nýja verzlun í húsakynn- um sínum. Maríus Helgason, umdæmis- stjóri pósts og síma, formaður Berklavarnar, bauð fréttamenn velkomna, og rakti hann við þetta tækifæri í stuttu máli fram vindu mála öryrkja í landinu á liðnum árum. Benti Maríus á að fyrst hafi ekki verulega farið að rætast úr vandamálum öryrkja fyrr en með tilkomu SÍBS, sem þó mið- aðist eingöngu í fyrstu við berklasjúklinga, en seinna hefðu svo komið félög lamaðra og fatlaðra eða sjálfsbjargarfélögin, eins og þau heita flest, og önnur félög, sem starfa á ýmsum svið- um. Maríus gat þess að það sem auðveldaði og létti störf öryrkja- félaganna væri hve þessi mál ættu mikinn hljómgrunn hjá þjóðinni allri og bæri að þakka það. Einnig benti hann á hve mikils virði væri stuðningur blaðanna í landinu við þessi mál- efni og bæri einnig að þakka hann. Einnig benti Maríus á að það væri ósk margra þeirra manna, sem forystu hefðu í mál- um öryrkja, að hinum ýmsu fé- lögum þeirra bæri að standa bet- ur saman að lausn ýmissa sam- eiginlegra hagsmunamála ör- yrkja í landinu. Það væri af þeim rótum runn- ið samstarf félaganna Berkla- varnar og Sjálfsbjargar hér á fsafirði. Er félögin hófu á síðastliðnu sumri að huga að húsnæði fyrir væntanlega vinnustofu, gátu þau fengið keypt húsið númer 5—7 við Mjallargötu, er var eign Útvegsbanka íslands. Húsið er um 200 fermetrar að flatarmáli og er tvær hæðir. því fylgja stórt geymsluhús og bílskúr og lóð, sem er um 830 fermetrar. Fyrir sérstakan velvilja og lipurð Útvegsbankans tókst fé- lögunum. að kaupa umgetnar eignir fyrir 570 þúsund krónur, sem má telja mjög hagstætt verð. Félögin Berklavörn og Sjálfs- björg stofnuðu svo nýlega sam- eignarfélag undir nafninu Vinnu- ver og er stjórn þess félags skip- uð sex mönnum, þrem frá hvoru félagi. Þau, sem eru í stjórn eru: Frá Berklavörn: Júlíus Helgason, rafvirkjam., hann er formaður félagsins, frú Bergþóra Eggerts- dóttir og Guðni Ásmundsson, og frá Sjálfsbjörg: Ingibjörg Magn- úsdóttir, hún er ritari félagsins, Bjarni Guðmundsson og Guðm. H. Guðmundsson. — Sigurður J. Jóhannsson, skrifstofumaður, hefur verið ráðinn forstöðumað- ur vinnustofunnar og verzlunar- innar. Verzlunin er ekki mjög stór. Henni er komið fyrir í suður- enda hússins; öllu er þar hagan- lega fyrirkomið og annaðist Rúrik Sumarliðason smíði á inn- réttingu, Guðmundur E. Sæ- mundsson og synir sáu um máln- ingu og Neisti hf. um raflagnir. Verzluninni er nær eingöngu ætlað að selja vörur frá Reykja- lundi og Múlalundi, svo og vör- ur frá eigin vinnustofu. Þær vör- ur, sem þar kunna að verða unnar. Einnig mun umboð Vöruhappdrættis SÍBS verða flutt þangað snemma á næsta ári. Markmiðið með verzluninni er fyrst og fremst að létta undir rekstri vinnustofunnar. Þess má geta, að Sjálfsbjörg hefur frá haustinu 1959 starf- rækt vinnustofu, en þar var ein- göngu unnin prjónavara. Ekki er enn að fullu ráðið hvað unnið verður í vinnustofu félaganna, en það er nú í athugun. Vinnu- stofan verður niðri í norður- enda hússins, þar sem eru þrjár rúmgóðar stofur og eldhús. Á efri hæð er svo gert ráð fyrir að verði skrifstofa fyrir hvort félag og íbúð fyrir forstöðumann. Þess var að lokum getið við fréttamenn, að vegna góðrar fyrirgreiðslu af hálfu Lands- banka íslands hefði verið hægt að breyta húsinu í það horf sem nú er og vinna ýmsar aðrar breytingar í náinni framtíð. Norræn menning- armiðstöð í Tanganyika Dar es Salaam, Tanganyika, 15 des. (NTB). KJELD Phiiip, iðnaðarmálaráð- herra Danmerkur, undirritaði í dag fyrir hönd ríkisstjórna Norð urlandanna samning við ríkis- stjórn Tanganyika um byggingu norrænnar menningarmiðstöðvar um 40 km fyrir vestan Dar es Salaam. í miðstöð þessari verð- ur landlbúnaðarstofnun, mennta- skóli og heilsuverndarstöð. í DAG verða til sýnis í glugga Morgunblaðsins óvenjulegir kera mikvasar, sem Ragnar Kjartans- son í Glit h.f. hefur smíðað. — Keramikvasarnir voru stilltir út í gær og verða teknir niður í kvöld. Þetta er í þriðja sinn, sem Ragn ar sýnir á vegum Listkynningar Morgunblaðsins. Hann hefur auk þess haldið eina sjálfstæða sýn- ingu í Ásmundarsal árið 1959 og tekið þátt í fjölda samsýninga. Á erlendum vettvangi hefur hann sýnt á alþjóðasýningu í Wash- ington, hélt sjálfstæða sýningu í Heal’s Gallery í London í haust og gripir hans voru í íslenzku deildinni á vörusýningunni í Frankfurt í haust. Hann er einn af nemendum Guðmundar frá Miðdal en stundaði framhalds- nám í Svíþjóð; ennfremur stund aði hann nám í myndhöggvara- skóla Ásmundar Sveinssonar. Ragnar Kjartansson sagði f stuttu samtali við blaðamann Morgunblaðsins í gær, að keramik sú, sem hann sýndi, væri allfrá- brugðin venjulegri keramik. t fyrsta lagi notaði hann blágrýt- ishraun, sem bundið væri með plastískum hveraleir frá Laugar- vatni. í öðru lagi væru þeir mót- aðir í höndunum eins og högg- myndir, en ekki renndir á renni skífu. Eðlislitir hraunsins væru að mestu látnir halda sér og að- aláherzlan lögð á formið. Sagði Ragnar, að þessi gerð af keramik hefði ekki sézt áður hér á landi né erlendis, honum vitanlega, og þeir hraunkeramikvasair, sem hann hefði sent á erlendar sýning ar fyrr á árinu hefðu vakið mikla athygli. Jólaglaðningur fyrir Hrafnistu-búa AKURNESINGAR! Munið spila kvöldið í kvöld (sunnudag 16. desember) í Hótel Akranesi. — Dansað á eftir. — Sjálfstæöisfé- lögin á Akranesi. ÁGÓÐI af hálf sjö sýningu 1 Laugarásbíói í dag rennur til jólaglaðnings fyrir vistfólkið á Hrafnistu. Á undanförnum árum hafa sjómannakonur selt kaffi á sjó- mannadaginn og keypt fyrir á- góðan af kaffisölunni jólaglaðn- ing fyrir vistfólkið, en á þessu ári bættust svo margir vistmenn við, að ágóðinn af kaffisölunni hrökk ekki til. Því hafa forráða- menn Laugarásbíós ákveðið að styrkja þessa starfsemi sjómanna kvennanna eins og að ofan grein- ir. Sýnd verður kvikmyndin: „Það skeði um sumar“. Lægðin fyrir sunnan land var hörkumikil og djúp, enda voru komin 12 vindstig á veð urskipinu Indía suður af land inu kl. 8 í gærmorgun, og um leið hafði vindur snúizt þar til norðvesturs, sem vænta mátti vegna hreyfingar lægðarinnar í austur. Hér á landi var þó ekkert ofsaveður, mest austan 6 vindstig og snjókoma á Fag urhólsmýri, sem var einna næst áhrifasvæði lægðarinnar. Kaldast á landinu var þá á Grímsstöðum, 16 gráðu frost. Jólatré í Silfur túni í DAG kl. 17 verður kveikt á stóru jólatré í Silfurtúni, en það er Framfarafélag Silfurtúns, sem annast uppsetningu þess. Karla- kórinn Þrestir syngur, og sveitar stjórinn, Ólafur Einarsson, flyt- ur ávarp. - Atrek USA Framhald af bls. 1. um sínum í Bandaríkjunum til hamingju með sigurinn. Bandarískir vísindamenn segja að sendingarnar frá Mariner II. hafi verið mjög skýrar, þótt flaugin hafi verið í nærri 58 milljón kílómetra fjarlægð frá jörðu, og verði upplýsingsfrnar því auðunnar. Vonast þeir til þess að geta nú fengið svör við einhverjum af eftirfarandi spurn ingum: Er yfirborð Venusar ein eyði- mörk, eins og sumir halda, eða eru þar vötn og frumskógar, þar sem líf finnst í einhverri mynd. Er skýjahjúpurinn, sem um- lykur Venus, ein samfelld heild? Er geislunarbelti umhverfis Venus, svipað og jörðina? ÞESSI bíll frá gróðrarstöð-1 inni Alaska er hlaðinn alis- lenzkum jólatrjám. Þetta eru grenitré, sem spruttu í Hvera- gerði, en voru siðan flutt austan yfir fjall í framhalds- ræktun inni í Breiðholti. (Ljósm. Sv. Þ.). Stór skáldsaga Stefáns Jónssonar STEFÁN Jónsson, rithöfundur, hefur sent frá sér hjá Bókaút- gáfunni Máli og Menningu mikla skáldsögu, sem hann hefur haft í smíðum síðan 1958. Ber skáld- saga þessi nafnið Vegurinn að brúnni. Upphaflega var ætlunin að bókin yrði gefin út í þremur bindum, enda er henni skipt í þrjár bækur. Bókin er mikil að vöxtum, 583 blaðsíður þéttprent- aðar. Bók þessi er meðal jólabóka Máls og Menningar, og kemur einnig út sem ein bók í afmælis- útgáfu bókafélagsins. Minningar Stefáns frá Hvítadal MEÐAXi bóka í afmælisútgáfu Máls og Menningar er lítil bók, í Unuhúsi, en þar skráir Þor- bergur Þórðarson minningar Stefáns frá Hvítadal úr því skáldaiheimili reyfcvískra skálda í upphafi þessarar aldar. Minningarnar skráði Þorberg- ur 1923, og greinir hann frá íbú- um í Unuhúsi á árunum sem Stefán frá Hvítadal bjó þar fyrir 1910. Bókin er ekki mikil að vöxtum, aðeins 83 blaðsiður að stærð, en lýsir í nítján köflum fjölmörgum mönnum og konum sem settu svip sinn á hús Unu um lengri eða skemmri tíma. Bókin er prentuð í Prentsmiðj- unni Hólum, og önnur útgáfa hennar er ein af jólabókum Heimskringlu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.