Morgunblaðið - 16.12.1962, Qupperneq 3

Morgunblaðið - 16.12.1962, Qupperneq 3
< Sunnu'dagur 16. des. 1962 3 ” MORGVNBLAÐIÐ ÍKLUKKAN 9,30 í gærmorgan fcomu hingað til landis með flugvél Loftleiða rússnesiki píanóleiikarinn Vladimir Asjk enazd og kona hans Þórunn Jóihannsdóttir. Þau voru einu farþegarnir, sem úr vélinni stigiu í Reykjavik, en þó var höpur manna saman kominn tii þess að fagna þeim. Asjk- enazí mun halda 3 hljómleika hér. Verða þeir fyrstu á mánu dagskvöld í Þ j ó ðleikhúsinu. Hann hlaut Tsj akowsky-verð- laun á þessu ári og hefur að undanförnu ferðazt um Banda ríki» og fengið frábæra dóma. Þórunni kynntist hann 1953, er fyrsta Tsjakoweki sam- keppnin var haldin og gift- Vladimir Asjkenazí Þórunn Jóhannsdóttir Átti tvö íslenzk frímerki áöur en hann hitti Þörunni uist þau 1961. Þau eiga einn son, sem nú er í Moskvu. Asjkenazí kemur hinigað á vegum Péturss Péturissonar, og þegar hjónin stíga út úr fluig- vélinni færir Pétur Þórunni blámrvönd og býður þau vel- koxnin. Einnig eru viðstaddir 4 starfsmenn rússneska sendi- ráðsins og fréttamenn. Þegar tollskoðun er lokið, ganga menn út í bílana og aka áleiðis til Hótel Sögu, þar sem hjómunum er ætlað að búa. Fréttamaður Mbl. verð- ur samferða Missura, sendi- fulltrúa Rússa. — Asjkenazá er mjöjg suð- rænn í útiiti. Er hann nokk uð skyldur Mikojan? spyr fréttamaður. — Já, já. — Eru þeir mikið skyldir? — Þeir eru báðir rússneskir ríkisborgarar. Þegar komið er á Sögu fara hjónin með farangurinn upp á herbergi sitt en aðrir setjast að kaffiborði á 8. hæð. —Hvað verða þau lemgi hérna? spyr fréttamaður. — Þau fara 24. desember, segir Pétur. — Hver segir það? spyr Missura. — Ég veit það ekki, segir Pétur, en þau ætla að vera í London hjá foreldrum Þór- unnar_ yfir jólin. — Bg efast nú um að þau geti farið þann 24. segir Miss ura. Nú koma Þórunn og Asj- kenazí og setjast við borðið hjá okkur. — Afsakið að ég er órak- aður segir Asjkenazí. — Nú langar mig í maltöl og Opal, segir Þórunn. Við reykj'um ekki og drekkum ekki, en ég borða gotterí og drekk maltöl. Ég hef ekki femgið maltöl í 4 áir. — Hvað hafið þér verið lengi í hljómleikaförinni um Ameríku? — 2 mánuði. Ég hélt 22 konserta í Bandarikjunum og Kanada. — Þetta er orðið alveg hroðalegt — mig langar svo til að sjá barnið. Ég var í London í áigúst og septemiber og fór svo tiil Ameriku, segir Þórunn. Nú kemur þjónninn með maltöl og ópal og setur á borð ið fyrir framan Þórunni. — Hvað er á efnisskrá hljómleikanna hér? — Ætli það verði ekki sama efnisskrá og í Ameríku. Það er Þórunn sem verður fyrir svörum, því að Missura, fréttamaður Þjóðviljans og Asjkenazí eru í hrókasam- ræðum. — Þau eru tvö: Á fyrri er sónata í d-dúr eftir Mozar.t, 6. sónata Prokofiefif og etydur op. 25 eftir Chopin Á síðari efnisskránni er són- ata í b-diúr eftir Mozart, syn- fónískir etydur eftir Schum- ann, kóral-préludia og fúga eftir Ovöhinikoff, 26 ára rúss neskan listamann, sem einnig hefúr verið í hljómleikaferð um Bandaríkin að undanförnu Ondine og Le Gibet eftir Rav el og Mefisto-Wals eftir Lizt. — Vissuð þér nokkuð um ísland áður en þér kynntuist Þórunni? spyr fréttamaðuj Asjkenazí. — Jlá, já. Ég safnaðd frí- merkjum, þegar étg var strák ur og átti eitt eða tvö, frá íslandi. — Hvar fenguð þér þau? — Ég keypti þau, óg mai ekki hvar það var. ★ — Hvar get ég æft mig? spyr Asjkenazí. — Við finnum einhvers. staðar hljóðfæri, segir Pétur — Hann æfir sig ekki í dag, segir Missura. — Nú verðum við að fara að komast af steð til öommu, segir Þórunn. Ég vildi helzt búa þar. Ég vona að við kom urhst fyrir hjá henni. Méi lízt mjöig vel á Sögu, en við erum orðin svo hræðilega leið á hótelum. — Um leið og fréttamaðui kveður hjónin, spyr hann hvað þau búist við að verða lengi á íslandi? — Ég veit það ekki, svar- ar Þórunn. Við ætlum að vera hjá pabba og mömmu í Lond- on um jólin, en kannske verð um við hér þá og förum tií þeirra um nýárið í staðinn — Ö. Aðalfundur Fulltrúaráðs Sjálfstæðisfél. ■ Kópavogi AÐALFUNDUR Fulltrúaráðs Sjálfstæðisfélaganna í Kópavogi var haldinn 9. þ.m. í Sjálfstæðis- húsinu í Kópavogi. Fundurinn hófst á erindi Ólafs Thors, forsætisráðherra, um »tj órnmála viðhorf ið. — Erindinu var vel fagnað og urðu um það fjörugar umræður og svaraði forsætisráðherra ýmsum fyrir- spurnum fulltrúanna. Því næst flutti fráfarandi for- maður fulltrúaráðsins, Kristinn G. Wíum, skýrslu um störf stjórnarinnar á starfsárinu. — Nokkrar umræður urðu um skýrsluna og voru formanni þökkuð störf hans. Að lokum fór fram stjórnar- kjör, en á aðalfundi eru kjörnir tveir í aðalstjórn og tveir í vara- stjórn fulltrúaráðsins. f aðal- stjórn hlutu kosningu: Sveinn S. Einarsson, verkfræðingur, og Guðmundur Gíslason, bókbind- ari. í varastjórn: Eggert Stein- sen, verkfræðingur og Sigurður Þorkelsson, pípulagningameist- ari. Auk þeirra eru sjálfkjörnir í stjórnina formenn Sjálfstæðis- félaganna í Kópavogi. Það eru Gísli Þorkelsson, formaður Sjálf- stæðisfélags Kópavogs, Aðalheið- ur Guðmundsdóttir, formaður Sj álfstæðiskvennafélagsins Eddu, og Herbert Guðmundsson, for- maður Týs, félags ungra Sjálf- stæðismanna. í varastjórn eru varaformennirnir sjálfkjörnir, taldir í sömu röð: Bjarni Bragi Jónsson, Margrét Guðmundsdótt- ir og Jóhanna Axelsdóttir. Stjórn fulltrúaráðsins hefur skipt þannig með sér verkum, að formaður er Sveinn S. Ein- arsson, varaformaður Gísli Þor- kelsson og ritecj Herbert Guð- mundsson. Sr. Jónas Gíslason: Hneykslast þú? 3. sunnudagur í jólaföstu: HNEYKSLAST I»Ú? ,,En er Jóhannes heyrði í fang- elsinu um verk Krists, gjörði hann honum orðsending með lærisvein- um sínum og lét segja við hann: Ert þú sá, sem koma á, eða eigum vér að vænta annars? Og Jesús svaraði og sagði við þá: Farið, og kunngjörið Jóhannesi það, sem þið heyrið og sjáið. Blind- ir fá sýn, og haltir ganga, lík- þráir hreinsast, og daufir heyra, og dauðir upprísa, og fátækum er boðað fagnaðarerindið. Og sæll er sá, sem ekki hneykslast á mér. — En er þeir voru farnir, tók Jesús að tala til mannfjöldans um Jóhannes: Hvað fóruð þér út í óbyggðina að sjá? Reyr af vindi skekinn? Eða hvað fóruð þér út að sjá? Mann mjúkklæddan? Sjá þeir, sem bera mjúk klæði, eru í höllum konunganna. Eða til hvers fóruð þér út? Til að sjá spá- mann? Já, ég segi yður, jafnvel meira en spámann. Hann er sá, sem um er ritað? Sjá, ég sendi sendiboða minn á undan þér, er greiða mun veg þinn fyrir þér.“ Matt. 11, 2-10 i. „Sæll er sá, sem ekki hneyksl- ast á mér“. Slík er kveðjan, sem Jesús sendir Jóhannesi skírara í fang- elsið, þegar efasemdirnar fóru að sækja að honum. Jóhannes hafði verið útvalinn til að boða komu Krists. Hann fór út í óbyggðina til að búa sig undir það starf. Síðan kom hann fram og fór að prédika: „Gjörið iðrun, því að himnaríki er nálægt. — öxin er þegar reidd að rótum trjánna. Sá er mér máttkari, sem kemur á eftir mér, og er ég ekki verður að bera skó hans“. Raust Jóhannesar náði eyrum fólksins. í nokkrar aldir hafði enginn spámaður risið upp meðal þjóðarinnar. Nú hafði Guð loks vitjað aftur lýðs síns. Og mann- fjöldinn þyrptist til hans. Þegar Jesús kemur til fundar við Jóhannes, þekk-ir Jóhannes strax, að þar er hinn fyrirheitni kominn. Og hann bendir á Jesúm og segir: „Sjá, Guðs lambið, sem ber synd heimsins!" Og hann bendir jafnvel sínum eigin læri- sveinum á að fylgja honum. „Hann á að vaxa, en ég að minnka“. Jóhannes skildi, að hlutverki hans sjálfs var brátt lokið. Loks situr hann í myrkrastof- unni. Raust hans var þögul. Nú leituðu menn beint til Jesú. En þá vakna efasemdirnar. Var Jesús ekki allt öðru vísi en hann hafði búizt við? Fréttirnar, sem hann fékk í fangelsið, virt- ust benda til þess. Gat honum hafa skjátlazt? ^ Jóhannes verður að vita vissu sína. Þess vegna sendir hann lærisveina sína til Jesú: „Ert þú sá, sem koma á, eða eigum vér að vænta annars?" Við finnum sársaukann bak við orðin. Guðspjallið í dag flytur okkur svar Jesú. Hann bendir á verk sín. Þau nægja. Og svo bætir hann við: „Sæll er sá, sem ekki hneykslast á mér“. Hann ásakar Jóhannes ekki. Hann veit, að þetta svar nægir. Hann þekkti Jóhannes. Því gat hann sagt um hann: „Eigi hefur fram komið meðal þeirra, er af konum eru fæddir, meiri maður en Jóhannes skírari. En hinn minnsti í himna- ríki er honum meiri“. II. Við mennirnir stöndum oft í sporum Jóhannesar í fangelsinu. öðru vísi en við hefðum hugsað Okkur finnst Jesús oft vera annan veg, en við hefðum óskað. Stundum finnst okkur e.t.v. Guð hafa brugðizt. Þá vakna efa- semdir, og vantrúin sækir á. Við erum minnt á, hvernig leyst var úr efasemdum Jóhann- esar. Við eigum að fara að dæmi hans. Við eigum að leita til Jesú Krists með erfiðleika okkar. Þeir stafa ekki af því, að Guð hafi brugðizt. Hann stend- ur við orð sín. Þeir stafa af hinu, að við sjáum oft svo skammt. Jóhannesi hafði enn ekki skil- izt, að Jesús hafði tekið á sig þjónsmyndina. Hann lítillækkaði sig til að geta, upphafið okkur. Við eigum oft erfitt með að skilja þetta. Nú stendur yfir að- ventutíminn. Við búum okkur undir komu hinnar helgu hátíð- ar. Við búum okkur undir að ganga að jötu litla barnsins og tjá því lotningu okkar sem kon- ungi himins og jarðar. Er ekki erfitt að trúa því, að Guð hafi sjálfur komið til okkar mannanna í litla barninu? Hér erum við komin að einni aðal- hneykslunarhellu fjölda manna. Þeir neita holdtekju Guðs í Jesú Kristi. Það samrýmist ekki mannlegri skynsemL Farísearnir höfnuðu Jesú af sömu ástæðum. Þess • vegna létu þeir lífláta hann. Þá rættust bók- staflega orðin, sem Símeon sagði í musterinu, er hann hélt Jesú- barninu í faðmi sér: „Þessi er settur til falls og til viðreisnar mörgum £ fsrael, og til tákns, sem móti verður mælt“. Okkur mönnunum gengur svo ótrúlega erfiðlega að skilja, að það er Guð, sem skapaði okkur, en ekki við, sem sköpuðum Guð. Þess vegna getum við ekki lagað hann eftir okkar vilja. Það erum við, sem hljótum að laga okkur eftir vilja hans. III. Gleymum þessu ekki nú á að- ventutímanum. Þegar erfiðleikar mæta og vit okkar og skynsemi freistast til að segja: Nú skil ég ekki lengur, skulum við minnast Jóhannesar skírara. Hann leitaði til Jesú Krists með efasemdir sínar. Gjörum slíkt hið sama. Leyfum Guði að varpa ljósi yfir vandamálin. Leyfum honum að ljúka upp hugskoti okkar, svo að við getum skilið meira af leynd- ardómum hans. Þá mun hann sýna okkur Jes- úm Krist eins og hann er. Um leið mun hann sýna okkur þörf okkar á náð hans og miskunn. Við heyrum sömu orðin og Jó- hannes fékk forðum: „Sæll er sá, sem ekki hneykslast á mér“. Jesús ásakar okkur aldrei, er við komum til hans með efa- spurningar. Hann skilur efa- semdirnar og baráttuna, sem þær geta valdið. Hann lifði sjálf- ur á þessari jörð í mannlegu holdi eins og við. Látum aldrei efasemdir og á- hyggjur verða til að draga okkur burt frá Guði. Það gerist svo margt í mannlegu lífi, sem vit okkar fær ekki til fulls skilið. Vegir Guðs eru okkur órekjan- legir. Og þá er spurningin sú, hvort við trúum á Guð, treyst- um honum og náð hans. Trúin er fólgin í að beygja sig undir Guðs vilja, jafnvel þegar við eigum erfitt með að skilja. Hneykslast þú á Guði? Eða hefur þú lært að beygja þig und- ir vilja hans, leggja líf þitt í hönd hans? Notum aðventutímann til sj álfsprófunar. Þá getum við átt blessaða fagnaðarhátíð til minn- ingar um fæðingu Guðs á þessa jörð í mannlegu holdi. Jónas Gíslason.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.