Morgunblaðið - 16.12.1962, Qupperneq 5
r"7 Sunnudagur 16. des. 1962
MORGUNBLAÐIÐ
5
8. JÓLASVEINNINN
SKYRGÁMUR
SKYRGÁMUR er teiknað-
ur af 9 ára stúlku úr Mela-
skólanum Magneu Jóhönnu
Matthíasdóttur, til heimilis
Reynimel 51.
— Hvað finnst þér mest gam
an að teikna?
— Mér finnst ógurlega gam
an að teikna allt, líka jóla-
sveina og dúkkulísur. Það er
miklu skemmtilegra að teikna
en að lita.
— Hvað finnst þér annars
skemmtilegt annað en að
teikna?
— Mér finnst langmest
gaman að lesa, ég geri helzt
ekki annað þegar ég á frí.
Það er ekkert gaman að fara
út og leika sér.
— Ertu þá ekki dugleg í
skólanum?
— Eg get nú varla sagt
það, en það er samt gaman
í skólanum.
— Hefurðu teiknað nokk-
uð fleira fyrir jólin?
— Ég er búin að teikna
jólakort til þess að senda
öllum krökkunum í bekkn-
um. Það er miklu skemmti-
legra að senda svona kort
heldur en að kaupa þau í búð.
60 ára er í dag 16. desember
(Þarbjörg Björnsdóttir. Hún
dvelst í dag að Þorfinnsgötu 1.
13. þ.m. opinberuðu trúlofun
sína Jódiís Steinunn Þorsteins-
dóttir, Melahúsi 17 v/Hjarðar-
haga og Jón Níelsson, sjómaður,
Hraunteig 10.
Sjötug er í dag frú Þuríður
Káradóttir, Kvisthaga 11, ekkja
PáLs heitins Sveinssonar, yfir-
kennara við Menntaskólann í
Reykjavík. Þuríður dvelst um
þessar mundir hjá syni sínum,
séra Páli Pálssyni í Vík í Mýrdal.
Tekið á móti
tilkynningum
frá kl. 10-12 f.h.
Sextugur er á morgun Þórar-
inn V. Magnússon frá Steina-
túni, nú til heimilis í starfs-
mannahúsinu við Sæból í Kópa-
vogi. Hann verður staddur að
Fossvogsbletti 2A á afmælisdag-
inn.
MENN 06
= mLEFN/=
Hinn 4. desember 1962 gaf
dóms- og kirkjumálaráðu-
neytið út leyfisbréf handa
Jósefi Ólafssyni, laekni, tii
þess að mega starfa sem sér-
fræðingur í lyflækninigum.
Hinn . október 1962 var
Gaston Thorn skipaður til
þess að vera aðalræðismaður
Xslandis í Luxemborg. Heim-
i'lisfang aðalræðismannsskrif-
stofunnar er 76, Grandrue,
Luxembourg.
Hinn 8. nóvember 1962 var
Gunnar Björnssyni veitt viður
kenning sem ræðismaður ís-
landis í Kaupmannahofn.
Hinn 20. ágúst sl. voru Hall
varður Einvarðsson, Jón Thors
og Bragi Steinarsson, lögfræð
ingar, skipaðir fulltrúar sask-
sóknara ríkisins frá 1. sept-
ember 1962 að telja og Baldur
Steingrímsson skdpaður skirif-
stofustjóri saksóknara frá
sama tíma.
Hjólreiðnr
Zulumunna
ÞEIR eru roggnir, hálf-
vöxnu negramir á meðfylgj-
andi mynd. Hún er tekin ná-
lægt þorpi þeirra í Dal hinna
þúsund hæða í Natal í Suð-
ur-Afríku. Hérað þeirra er ó-
snortið af hinni svokölluðu
menningu, og tilvera hinna
innfæddu hefur ekkert
breytzt frá því hvítir menn
tóku að streyma inn í Afríku
Zuluættflokkurinn er her-
skáastur allra innfæddra ætt-
flokka í Suður-Afríku, og
þegar hvítir menn komu til
sögunnar höfðu þeir lagt und-
ir sig flesta ættflokka í ná-
grenninu. Þeir eru kraftajötn
ar miklir og hefur það án efa
átt drjúgan þátt í sigrum
þeirra, en það hefur einnig
haft mikið að segja hversu
miklir hagleiksmenn þeir eru.
Þeir herða járn, tálga spjót
og önnur vopn betur en nábú
ar þeirra hafa verið fæirir
um hingað til.
Hjólin, sem sjást á mynd-
inni, eru smíðuð af handverks
mönnum ættflokksins, sem
enn tálga spjót með eldgöml-
um aðferðum.
Hafnarfjörður
Vorboðakonur
Sjálfstæðiskvennafélagið Vorboði heldur jólafund
í Sjálfstæðishúsinu mánud. 17. des. kl. 8,30 stund-
víslega. — Sýndur verður tiibúningur á ýmsum
jólaréttum ásamt borðskreytingum,
Flutt verður jólahugleiðing, að lokum kaffidrykkja.
Vorboðakonur fjölmennið og takið með ykur gesti.
STJÖRNIN.
M.S. Gullfoss
fer frá Reykjavík mánudaginn 17. þ. m. ld. 8 síð-
degis til Akureyrar. Skipið kemur við á ísafirði og
Siglufirði vegna farþega.
H.F. EIMSKIPAFÉLAG ÍSLANDS.
Vélstjórar
Aðalfundur Vélstjórafélag íslands verður haldinn
að Bárugötu 11 þriðjud. 18. þ. m. kl. 20.
Dagskrá:
Venjuleg aðalfundarstörf.
Önnur mál.
STJÓRNIN.
Járnsmiðir
Til sölu höggpressa 25 tonna, Atlas rennibekkur
og borvél. — Uppl. eftir kl. 7, sími 12668.
Kvenkuldaskór nýkomnir
Góð
Góð
jólugjöf!
bílustæði!
Skóhúsið
Hverfisgötu 82
Sími 11-7-88.
VESTUR-ÞÝZK
Drengjaföt
á 1 — 2 ára. ..
Austurstræti 12.