Morgunblaðið - 16.12.1962, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 16.12.1962, Blaðsíða 8
8 MORGVNBLAÐIÐ Sunnudagur 16. des. 1962 BÓKAFORLAGSBÆKUR BÓKAFORLAG ODDS BJÖRNSSONAR Gráskinna hin meiri komin út Auglýsing frá Póst- og símomála- stjórninni um jóla- og nýárskort Þar sem vart hefur orðið misskilnings hjá ýmsum um hvaða skilyrði prentuð jólakort þurfa að upp- fylla, til þess að þau megi sendast sem prentað mál, vill póst- og símamálastjórnin taka fram, að til þess að jóla- og nýárskort verði send sem prentað mál samkvæmt alþjóðareglum, þurfa þau í fyrsta lagi að að vera í opnu umslagi og í öðru lagi má ekki handskrifa á þau meira en fimm orð, er séu algengar óskir eða kurteisiskveðjur auk nafnas sendanda og viðtakanda. Kort, sem meira er handskrifað á en fimm orð skoðast því bréf, og skiptir í því efni engu máli þótt umslagið sé opið. Sama er að segja, ef áðurnefnd fimm orð eru ekki algengar óskir eða kurteisiskveðjur. Póst- og símamálastjórnin, 15. des. 1962. Nýjasta bókin er ÓLI OG MAGGI Kr. 80.00 Öddubækurnar eru tilvald- ar handa börnum, sem eru að byrja að lesa. ADDA OG LITLI BRÖÐIR Kr. 160.00 eftir JENNU og HREIÐAR STEFÁNSSON Kr. 80.00 Tvær nýjar Helga- fellsbækur FRA Helgafelli hafa blaðinu bor- izt í dag tvær athyglisverðar bækur. Ný Ijóðabók, „Rústir", eftir Kristján Árnason, mennta- skólakennara. Kristján, sem er sonur Árna Kristjánssonar píanó- leikara, hefur verið kynntur, sem ljóðskáld í útvarpinu, af konu sinni, Önnu Stínu Þórarinsdótt- ur. Bókakápa er eftir Tómas Tómasson. Hin bókin kallast „Marsinn til Kreml“ og er eftir Þórberg Þórð- arson og er það ádeila á skáld- skap Hannesar Féturssonar, einkum kvæði hans, Undarleg ósköp að deyja. Ádeila Þórbergs er í ljóðum, en formáli og eftir- máli fylgir. Bókarkápa er eftir Kjartan Guðjónsson, málara. Frumsamin Ijóð og þýdtl TVÆR nýjar Ijóðabækur eru komnar út hjá bókaforlaginu Máli og menningu. Er önnur Fullveldisfap;ii- aður í Hannover HINN nýskipaði ræðismaður fs- lands í Hannover, dr. Werner Blunck og kona hans, höfðu boð inni í tilefni af fullveldisdegin- um, 1. des. s.l. Var þar margt gesta saman komið, þar á meðal forsætisráðherra Neðra Saxlands, dr. Diedriohs, forseti sameinaðs þings, Olfers, ráðherrarnir Graaff og von Nottbeck, nokkrir full- trúar erlendra ríkja, svo og fs- lendingar í Hannover, sem nú eru 8 að tölu. Ræðismaðurinn ávarpaði hinn fjölmenna gestahóp og flutti á- grip af sögu íslands og sjálf- stæðisbaráttu. Hóf þetta var hald ið í fundarsölum fyrirtækisins „Feinkost Appel“, sem dr. Blunck veitir forstöðu. Fór það vel fram og voru veitingar hinar rausn- arlegustu. — G. S. frumsamin, Óljóð eftir Jóhannes úr Kötlum, en hin, Tuttugu er- lend kvæði og einu betur er þýdd og stæld eins og Jón Helga- son orðar það sjálfur. Bók Jóhannesar úr Kötlum virðist vera orkt sem samfelld heild, bókin skiptist í fjóra Ijóð- flokka ásamt formála og eftir- mála sem settir eru fram í ljóðaformi. Bókin er 124 bls. að stærð og er prentuð í Prentsmiðjunni Hólum. Kvæðaþýðingar Jóns Helga- sonar, 21 að tölu, eru valdar frá ýmsum tímum og ýmsum lönd- um. Nokkrar þessara þýðinga las Jón í útvarpinu hér í vetur sem leið, og virtust þær þá hljóta góðar undirtektir. Framan við hvert kvæði er rakin saga þess og höfundarins í hnotskurn. Bók þessi er 66 blaðsíður að stærð og eins og hin fyrri prentuð í Hólum. Jólasöngvar í Neskirkju SUNNUDAGINN 16. desember verður í stað venjulegrar messu haldin helgistund í Neskirkju kl. 2 e.h. Barnakór úr Melaskóla syngur undir stjórn Daníels Jónassonar söngkennara og tveir ungir pilt- ar úr Hagaskóla leiká saman á orgel og trompet. Nemendur þessir komu fyrst opinberlega fram í Neskirkju á æskulýðs- helgistund, sem þar var haldii* sl. vetur og vakti mikla athygli, Loks verður almennur safnað- arsöngur og sungnir jólasálmar með aðstoð kirkjukórsins og ritn- ingalestur og jólahugleiðing, sem leikmenn annast. Markmið jólasöngvanna er að sameina unga og aldna 1 að búa sig undir komu jólanna. — Þetta er þriðja árið sem Bræðrafélag Neskirkju gengst fyrir jólasöngv um sem þessum og hafa þeir jafnan verið mjög vel sóttir og vakið almenna ánægju kirkju- 1 gesta. ÓLAFUR JÓNSSON: -m im Sm Zm ■ 'íi— ■m IHIti ■ ■»—*■> Síðara bindi Hörkuspennandi og vel skrif uð skáldsaga eftir hinn finnska skáldsagnameistara. FCRU- SVEINNINN II eftir MIKA WALTARI ÁRMANN KR. EINARSSON: Allir krakkar vilja eignast bækur Ármanns Kr. Ein- arssonar. ÚT ER komin hjá bókaútgáf- unni Þjóðsögu, Gráskinna hin meiri. þjóðsögur og sögur um furðulega hluti, sem Sigurður Nordal, prófessor og Þórbergur Þórðarson, rithöfundur hafa safnað og búið til prentunnar. Sumar sögurnar hafa þeir skráð eftir frásögnum, en aðrar hafa þeim borizt sem handrit . Gráskinna hin meiri er í tveimur bindum. í fyrra bind- Sigurður Nordal inu eru óbreytt þau 4 hefti Grá- skinnu, sem út komu á árunum 1928, 1929, 1931 og 1936. Sögurn ar i síðari bindunum koma nú í fyrsta skipti fyrir almenningssjón ir, en eins og Sigurður Nordal, prófessor, segir í formála „Grá- skinnu hinnar meiri“, áttu þeir Þórbergur Þórðarson sitt af hverju í fórum sínum, þeg- ar síðasta hefti „Gráskinnu“ kom út 1936 og enn fleira hefur borið á rekana síðan. ★ Auk þessa segir Sigurður Nor- dal prófessor m.a. í formálanum „Það var samt ekki fyrr en Hafsteinn prentsmiðjustjóri Guð mundsson bauð okkur að láta endurprenta Gráskinnu sem við fórum að athuga þetta betur. Sáum við þá, að efni það, sem Við áttum óprentað og vildum halda til haga, mundi nema hér um bil eins miklu og eldra safn ið og væri ekki seinna vænna að koma því á framfæri um leið. En vegna þessa hlutfalls milli gamals og nýs hefði það verið villandi að tala hér ein- ungis um „aðra útgáfu aukna.“ Varð það því að ráði að kalla bókina „Gráskinnu hina meiri“ að dœmi fornra sagnaheita (t.a. m. Ólafs saga Tryggvasonar hin meiri), þar sem íaukar og við bætur eru ekki minni fyrirferð- ar en hin upphaflega saga.“ Formáli Gráskinnu, sem kom út 1936 er prentaður í fyrra bindi Gráskinnu hinnar meiri. Þar segir Sigurður Nordal, pró- fessor, m.a. um efni Gráskinnu: „Gráskinna á sammerkt við flest íslenzk þjóðsagnasöfn í því, að þar ægir saman margvíslegum og mislitum sögum. Sumar eru ekki annað en gamal.1 alþýðu- skáldskapur, eins og ævintýrin, sem flestöll eru að einhverju leyti af erlendum toga spunnin og aldrei hefur verið trúnaður á lagður. Sumar eru um atburði sem hafa gerzt eða menn halda, að hafi gerzt, en hafa síðan gengizt í minni og munni margra sögumanna og tekið ýmsum breytingum. Enn aðrar eru um atvik, sem komið hafa fyrir sögumennina sjálfa eða hafa gengið svo fárra á milli, að erf- itt er að bera brigður á, að rétt sé með farið, þó að deila megi um skilning og skýringar þeirra atriða, sem dularfull eru kölluð." HNATTFERÐ í MYND QG MÁLI DYNGJUFJÖLL OG ASKJA Með 30 ljósmyndum og teikningum. Handhæg vinargjöf til vina erlendis. Kr. 78,00 Um tildrög safnsins, segir Sig urður Nordal, prófessor í formála Gráskinnu 1936: „Um tildrög þessa safns þarf ekki mörgum orðum að eyða. Þegar við Þór- bergur Þórðarson komum okkur saman um að fara að gefa það út, höfðum við báðir, hvor í sínu lagi, skrásett sögur í mörg ár, án þess að hugsa um, hvað við myndum gera við þær. Voru skoðanir okkar á tilgangi þjóð- sagnasöfnunar og aðferðum við hana mjög svipaðar, enda hefur samvinna orðið hin ánægjuleg- asta.“ Gráskinna hin meiri er 750 blaðsíður og fæst bæði í skinn- bandi og óinnbundin. í fyrra bindinu eru 132 frásagnir og 186 í hinu síðara. Eru frásagn- irnar úr nær öllum landshlut- um og margar nýlegar. Nafna- skrá er í bókinni, samin af Þor- móði Halldórssyni, póstmanni. Bóikin er prentuð í prentsmiðj- unni Hólum h.f. Þórbergur Þórðarson Ég er kominn upp á það — allra þakka verðast —, að sitja kyrr á sama Stað og samt að vera að ferðast. 261 ljósmynd 47 litmyndasíður Kr. 380,00

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.