Morgunblaðið - 16.12.1962, Side 14

Morgunblaðið - 16.12.1962, Side 14
14 MORGVNBLAÐIÐ Sunnudagur 16. des. 1962 Páll Kolka skrifar: í Ijdsi mínninganna Umhverfis jörðina í 260 myndum FORTfÐINNI, eins og hún kem- ur fyrir sjónir, má líkja við kín- verskt málverk, prentað á silki. Myndin hefur breidd og hæð, en hana vantar dýptarhlutföllin, perspektívið, svo að fjöllin í bak- grunninum sýnast eins nálæg og fólkið neðst á henni. Fyrir þá, sem vel eru lesnir í Sturlungu, getur víg Snorra Sturlusonar meira að segja sýnzt nær og kom- ið miklu skýrar fram heldur en liflát Jóns Arasonar, þótt fullar þrjár aldir skilji þessa atburði að, en það sem gerir þá báða lif- andi er þó fyrst og fremst smá- atvikin, sem einhver viðstaddur hefur haldið til haga, svo sem til- svörin „eigi skal höggva" og „veit ég það, Sveinki“, en þau segja meira en mærðarfull lýs- ing um skapgerð þessara tveggja höfðingja sögunnar. Fyrir alla þá, sem fæddir eru ura miðbik þessarar líðandi ald- ar, er lífið í landinu, eins og því var lifað um síðustu aldamót, hvort sem var í sveit eða í fiski- þorpinu Reykjavík, að verða eins fjarlægur og framandlegur virkileiki og Sturlungaöldin eða siðaskiptatíminn. Svo mjög hafa breytzt allar ytri aðstæður og líka hugsunarháttur fólksins. Það sem getur þurrkað mistrið af hugmyndum unga fólksins um þessa fortíð, er fyrst og fremst frásögnin um ýmis smáatvik hins daglega lífs, sem hafa rist sig í endurminningu okkar, sem þá vorum að feta hin fyrstu stig ævinnar, og gleymast ekki, þótt við göngum veg allrar veraldar, af því að sumir okkar kynslóðar hafa fært þau í letur. Nú er það að vísu svo, að kynstrin öll af slíkum endurminningum hafa komið út á síðari árum, en flest- ar eiga þær sammerkt í því að lýsa skortinum og harðneskj- unni, sem varð hlutskipti margra barna og unglinga fyrir 50—100 árum. Allt öðru málí gegnir um bók frú Sigríðar Björnsdóttur frá Miklabæ: „f ljósi minninganna**, því að þar er lýst einu af þeim heimilum, sem framar öðrum voru öldum saman gróðrar- stöðvar mannúðar og menningar, stóru og mannmörgu prests- heimilin í þjóðbraut, þar sem börnin skorti hvorki það atlæti, sem þeim er hentugt til þroska, né ytri aðbúnað þótt gæta yrði sparsemi og hófs. Margar þessar myndir frá æskuheimili frú Sig- ríðar eru ekki stórfenglegar, en dregnar af kvenlegum þokka og fínleika, eins og saumaðar með smágerðu krossspori — petit point. Á bak eygir maður þó alvöru lífsins og ýmsa ógn- þrungna atburði, og ekki hefui- þessi gáfaða og félagslynda kona farið varhluta af erfiðleikum lífs- ins, svo sem þegar hún giftist ung einum af samstúdentum mínum, gáfuðum, framsæknum en fátækum pilti, flytur með honum sem húsfreyja á annað prestsetur í öðrum landsfjórð- ungi með tvö smábörn og ber- andi hið þriðja undir belti sínu, en hittir svo á, að hún verður að vera með þessa fjölskyldu sína fyrsta veturinn í einu af þeim illa byggðu steinhúsum, sem voru einkenni fyrstu áratuga aldarinnar, og þetta er frostavet- urinn mikli, 1917—18, með 30 stiga gaddi. Þessi gáfaða kona blæs þó ekki í kaun, og hún fer fljótt yfir sögu um þau ár, þegar þau hjónin eru að koma upp barna- hópi sínum, en dvelur í síðari hluta bókarinnar við ýmsa sól- skinsbletti, svo sem ferðir sínar til útlanda sem þátttakandi og fulltrúi í ýmsum félagssamtök- um kvenna. Hún berst hvergi á og getur á hispurslausan hátt þess starfs, sem hún hefur eink- um haft á síðari árum, en það er kennsla sjúkra barna, sem dvelj- ast langdvölum í spítölum. Mað- ur eygir hana aðeins þar sem „konuna með Iampann", svo að notað sé það orðatiltæki, sem haft var um Florence Nightin- Framh. á bls. 23. BÓKAFOR.LAG Odds Björnsson ar á Akureyri hefur sent frá sér mjög skrautlega bók, er nefn- ist: „Hnattferð í mynd og máli.“ í bókinni er 261 Ijósmynd, þar af 77 síðumyndir í eðlilegum ldt- um. Fmmútgiáfa bókar þessa-rar er þýzk og hét hún á þýzku: „Die Welt in Bild und Wort“. Texti bennar er eftir Werner Lenz og Werner Ludwig. C. Ber- telsmann Verlag gaf bókina út í Giidensloh árið 1959 og er það eigandi höfundaréttar. Það er í sambandí við þýzka fyrirtæikið Mohn & Co, sem þessi íslenzka útgáfa er gerð. Það lagði ti'l pappirinn myndprentaðan að öllu, svo og bókaspjöldin. Is- lenzka textann gerði Björn O. Björnsson, ýmist þýddan úr út- gáfunná þýzku eða frumsaminn. Prentun textans og innheftingu bókarinnar gerði Prentverk Odds Björnsisonar h.f. á Akureyri og útgefandi Bótkaforlag Odds Björnssonar. í skýringum efnisyfirlits segir: „Ég er kominn upp á það -— allrar þakkar verðast — að sitja kyrr á sama stað og samt að vera að ferðast.“ Svo kvað Jónas forðum og átti að aldrei kost á ferðalögum sínum að sjá með svo frábærum líflitum sem þeim, er mieð þess- ari bók eru lesendum upp í hend Hópferöarbilar allar stærðir. " Sími 32716 og 34307. Gjafavörur Króm, stál, plast og feeramik gjafavörur í mifelu úrvali. ÞORSTEINN BERGMANN Gjafavörubúðin Laufásvegi 14, sími 17-7-71. ur lagðar, staðina sem hann kom á með hjálp þess tíma bóka. Hér verður fyrst farið til heim- skautasvæðanna, þá um Norður- lönd og suður um Evrópu og Afríku, allt til suðurodda þess- arar álfu. Þá um Asíu frá vestri til austurs, um Ástralíu, Nýja Sjáland og Kyrrahafseyjar, tii Alastka um Norður- og Mið- Ameríku til Suður-Ameríiku, en ferðalok í Chile. Bók þessi er 192 síður að stærð í stóru broti og mjög vönduð að öll’Um frágangi. — Reykjavikurbréf Framhald áf bls. 13. um það til geðs að sitja hjá. Þó að enginn fengist til þess með Einari Olgeirssyni, Geir Gunnars syni og Lúðvík Jósefssyni að leggja beina blessun yfir mútu- tilboð tékkneska njósnarans. Jólagjöf Tímans Fátið, sem Tímann hefur gripið, er afsökun þess, að blaðið ruglast í merkingu venjulegra orðasam- banda, sbr. setninguna: „Það hef- ur ekki ósjaldan skeð . . .“, sem það auðsjáanlega notar í þveröf- ugri merkingu. Látum leiðarahöf undinn um að ráða þá þraut. Út yfir tekur þegar Tíminn seg ir: „Aðeins einu sinni hefur verið reynt að kryfja það til mergjar, hvort Sósíalistaflokkurinn meinti það alvarlega að hann væri fáan legur til samstarfs um umbóta- mál. Þetta gerðist á árinu 1943“. Hvað þá um vinstri stjórnina 1956? Var alls ekki til hennar efnt til „samstarfs um umbótamál"? Morgunblaðið hefur ætið haldið því fram, að til hennar hafi verið efnt af litlum heilindum, en á því var sízt von, að Tíminn taeki svo berlega undir þau sannindi og hann gerir með þessum orðum. Sú játning er sannarlegur hval- reki á fjörur Morguniblaðsins, Eftir er að sjá, bvort þessi jóla- gjöf Tímans kemur af hugulsemi og óvæntri löngun til að, segja satt eða algeru óðagoti yfir að sjá, hvert verið er að leiða FramsÓkn með þjóðfylkingar- bröltinu. Hjartkær sonur okkar VIÐAR sem andaðist í Bæjarspítalanum 10. þ. m. verður jarð- sunginn frá Dómkirkjunni miðvikudaginn 19. þ. m. kl. 10,30 f. h. Blóm vinsamlegast afþökkuð, en þeim sem vildu minnast hans er bent á Styrktarfélag vangefinna. Þuríður Björnsdóttir, Andrés Kr. Hansson, Skeggjagötu 25. GUNNAR SIGURÐSSON frá Selalæk, sem andaðist í sjúkrahúsi Hvítabandsins 13. þ. m. verður jarðsunginn frá Oddakirkju þriðjud. 18. des. kl. 2 e. h. Kveðjuathöfn fer fram í Dómkirkjunni kl. 10 samdægurs. Börnin. Af alhug þökkum við samúð og hluttekningu við and- lát og jarðarför föður okkar, tengdaföður, bróður og afa BJÖRNS HELGASONAR, skipstjóra. , Sérstaklega þökkum við forstjóra og starfsfólki Sólvangs í Hafnarfirði frábæra aðhlynningu í langvarandi veikind- um. Adolf Björnsson, Sólveig Björnsdóttir, Dagbjört Bjömsdóttir, Eygerður Björnsdóttir María Björnsson, og bamaböm. Gyða Björnsdóttir, Ásgeir G. Stefánsson, Tryggvi Stefánsson, Páll Sæmundsson, Helgi Helgason, Hjartkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi GUÐJÓN ÞORBERGSSON Sogavegi 124, verður jarðsunginn frá Fríkirkjunni, þriðjudaginn 18. desember kl. 10,30 f.h. Blóm og kransar vinsamlegast af- þakkað. Athöfninni í kirkjunni verður útvarpað. Fyrir hönd barna og tengdabarna. Eggertsína Eggertsdóttir. Jarðarför mannsins míns MAGNÚSAR STEFÁNSSONAR kaupmanns, Rauðagerði 16, sem andaðist 11. þ.m. fer fram frá Fríkirkjunni, þriðju- daginn 18. desember kl. 1,30. Blóm vinsamlegast af- þökkuð. Jóna Árnadóttir. Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinsemd við andlát og útför STEINGRÍMS ÞORSTEINSSONAR frá Lundi. Tómasína Tómasdóttir, böm og tengdaböm. Eiginmaður minn og faðir okkar GARÐAR S. GÍSLASON kaupmaður, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju, þriðjudaginn 18. þ. m. kl. 10,30 f. h. — Blóm vinsamlegast afbeðin. Matthildur Guðmundsdóttir, Guðm. H. Garðarsson, Valdis Garðarsdóttir, Vildís Garðarsdóttir, Vigdís R. Garðarsdóttir, Gísli M. Garðarsson. Útför bróður okkar EYJÓLFS GUÐNA ÍSÓLFSSONAR fer fram mánudaginn 17. desember kl. 13,30 frá Foss- vogskirkju. Systkinin. Tvær starlsstúlkur óskast til aðstoðar í eldhúsi frá 5. janúar. MÖTUNEYTI SKÓLANNA, Laugarvatni. Upplýsingar í síma 9, Laugarvatni.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.