Morgunblaðið - 16.12.1962, Side 20

Morgunblaðið - 16.12.1962, Side 20
20 M o n n n \ rt r a ð i ð Sunnu'dagur 16. des. 1962 Marilyn Monroe eftir Maurice Zolotov d kvölum, og þurrkaði svitann a<f enni hennar þegar hún byilti sér. Það tók fjórar klukkustundir að koma henni í sjúkrahúsið. Henni var gefið eitthvað kvalastillandi og flutt í skurðstofuna. Þetta var illkynjuð tegund fósturláts, og hefði lengri bið orðið á, hefði það kostað hana lífið. Miller beið þarna allan tím- ann, sem hún var á skurðar- borðinu og ást hans magnaðist um allan helming við hræðsl- una um að missa hana. Hann vildi sýna þessa ást sína í verk- inu, og það var á þessum kvala- og kvíðastundum, sem hann ákvað að gefa henni það bezta, sem leikritahöfundur getur gefið konunni, sem hann elskar. Hann ætlaði að semja kvikmyndaleik- rit handa henni. Áður hafði hann aðeins samið eitt slíkt; það var ,,The Story of G. I. Joe“, árið 1943. Meðan hann og Marilyn voru í Englandi, hafði hann samið stutta sögu, „The Misfits", sem hafði nýlega verið tekin til útgáfu í „Esquire", og átti að koma út í októberheftinu 1957. Sagan snýst á viðkvæman hátt um þrjá menn. sem eru utan við samfélagið, sem þeir lifa í, og gera örvæntingarfullar tilraunir til að bæta þörf sína fyrir það frelsi og sjálfstæði, sem þeir þrá. Þessar þrjár persónur, sem sagan snýst um, eru Guido Raconelli, flugmaður á fornfá- legri smáflugvél, Gay Langland, 46 ára gamall kúreki, fráskilinn konu sinni og Pence Höwland 22 ára, ungur listreiðmaður. Rosa- lyn, kona Langlands er látin vera stúlka frá Austurríkjunum — hlý, blíðlynd og lauslát. Hún kemur ekki beinlínis fram í sög- unni í tímaritinu. Sagan snýst um mennina þrjá og tilraunir þeirra til að handsama villta hesta í Nevada-fjöllunum Þeir selj hrossin mönnum, sem fást við niðursuðu á hundamat. Sag- an gerist á vorum dögum. Stíll- inn hefur á sér blæ töfrandi lýs- ingar og óljóss þunglyndis, sem Ihefur ekki komið jafnskýrt fram í neinu verki Miller, að undan- teknu „Sölumaður deyr“. Að baki liggur þjóðfélagsgremja — ákaflyndir menn, sem eru snar- aðir af þjóðfélaginu, svipað og villtu hestarnir, eru svo að segja hakkaðir niður og gerðir að nið- ursuðu handa hundum — og þarna er líka léttilega vikið að þessari nýung hjá Miller — ástar-vandamálinu — þar sem gefið er óljóst í skyn sambandið með þrfhyrningnum Langland, konu hans Og Pence hins unga, eem virðist standa í ástarsam- bandi við Rosalyn. I Það var þá þessi saga, sem (Miller tók að vinna að þegar hann fór aftur heim með konu sína til Amagansett. Hún lá þar í sólinni og hresstist og hann skrifaði á morgnana og las svo fyrir hana það sem hann hafði skrifað, síðdegis. Persóna Rosa- lyn var stækkuð. Nú varð hún persónan, sem sagan snerist um, sem áhyggjur mannanna þriggja snerust um. í þessari útgáfu sög- unnar átti hún ekki að vera kona Langlands. Hún átti að vera kona frá Austurríkjunum eins og áður, — sem hafði komið til Reno til að fá skilnað frá mann- inum sínum, en hafði dagað uppi í Nevada. Einmana, ráð- villt mannvera. Fyrir Monroe yrði þetta hlutverk hin lang- mesta fullnæging óska hennar, og mundi reyna langmest á list- ræna hæfileika hennar. Að und- antekinni roskinni trúnaðarkonu, Isabellu, sem Thelma Ritter lék, var Monroe eina könan í allri myndinni. Og karlmennirnir voru allir ástfangnir af henni, ihver á sinn sérstaka hátt, og hver um sig reyndi að fá sinni sérstöku þrá svalað. Þar sem Rosalyn var, hafði Miller skapað í fyrsta sinn verulega eftirtekt- arverða og kvenlega konu. Höf- uðþátturinn í innræti hennar var feikna lífsfjör Og kapp og aðal- driffjöðrin hjá henni var áköf vorkunnsemi. Rosalyn hafði, eins og Marilyn sjálf, meðaumkunn- arkenndina fyrir aðalþátt ástar sinnar. Hún bregzt með með- aumkun við hinum ýmislegu viðkvæmu sárum þessara þriggja karlmanna, og á sama hátt og Scobie majór 1 „The Heart of the Matter“ velur hún að lokum þann manninn, sem lífið hefur sært mest. En þessi yfirgengilega meðaumkun nær lengra en til ástar á karlmönnum. Hún er al- tekin þessari „lotningu fyrir líf- inu“, sem Albert Schweitzer hef- ur skrifað um. Það, sem var öll upplhaflega tímaritssagan — elt- ingaleikurinn við villihestana og handsömun þeirra, sem endar á því, að hestarnir liggja yfirgefn- ir og bundnir — verður hátind- urinn í kvikmyndinni, þegar Rosalyn berst gegn þessu heimskulega hrossadrápi, og Gay Langland, foringi hópsins, berst gegn Rösalyn. Hvað snertir efnisbreidd og fagurt mál, var þessi mynd full- komlega sambærileg við beztu verk Millers þangað til, og bórið saman við mörg kvikmynda- handrit var hún meistaraverk. í júní 1956 las Miller handritið fyrir Frank Taylor, vin sinn, sem hafði verið kvikmyndastjóri í Hollywood í sjö ár, en var nú ritstjóri hjá Vasabókaútgáfu Dell Books. Taylor var hrifinn af handritinu og sagði, að ákjós- anlegasti leikstjóri fyrir það væri Jahn Huston. Hann þekkti Huston og sendi honum handrit- ið. Huston féllst á að stjórna myndinni og nokkru síðar fékk Miller Taylor til að sjá um upp- töku hennar. Clark Gable var fenginn til að leika Langland, Montgomery Clift Howland Og Eli Wallah Ranuonelli. Fyrir Marilyn mundi þessi mynd hafa þá þýðingu, að hún gæti treyst ýms gömul sambönd. Fyrst var nú þessi virðing, sem hún bar fyrir Huston. Hún hafði aldrei getað gleymt því, að það var hann, sem hafði kömið auga á dýpt listgáfu hennar og hjálp- að henni með fyrstu verulega góðu frammistöðu hennar. Enda iþótt hlutverk Angelu væri lítið fyrirferðar, sagði Monroe oft, að Huston vseri sinn bezti leikstjóri og hennar uppáhaldshlutverk væri það ,sem hún lék í „The Asphalt Jungle“. Það er algengt, að leikkona leggi allt annan dóm á tiltekna frammistöðu sína en leikdómararnir. Að hennar eigin áliti var bezti dramatíski leikur hennar I síðasta atriðinu móti Calhern í „The Asphalt Jungle“ og svo atriðið þar sem hún fellur saman í „Don’t Bother to Knoék“. Allt það, sem síðar kom taldi hún ekki líkt því eins full- komið og þessi tvö atriði. Til dæmis í „Bus Stop“ fannst henni, að bezti leikur hennar, þar sem hún ræðir fyrra líf sitt við Hope Lange í áætlunarbíln- um, hefði verið illa útgefinn af Josh Logan. Þvi var þetta: að leika gott hlutverk undir stjórn Hustons, eins og uppfylling tíu ára óskadrauma hennar. Lengi hafði hana langað til að leika móti Gable, því að ekki aðeins leit hún upp til hans, sem meist- ara kvikmyndaleiks, heldur fannst henni, að þegar persónur þeirra tveggja kærnu saman, gæti það örðið stórkostlegur leikur í myndinni. Wallach var að vísu bezti vinur hennar frá leikskól- anum, og hún dáðist að skop- gáfu hans. Clift var líka orðinn góður, persónulegur vinur henn- ar. Á sama hátt og góðmennska Wallohs framkallaði góðlyndis- legt fjör hjá Marilyn, á sama hátt hafði önugleikinn hjá Clift heppileg áhrif á hina þunglynd- ari eðlisþætti hennar. Það bar oft við, þegar eiginmaður henn- ar gat ekki farið með henni á frumsýningar og Clift var í borginni, var það hann, sem fór með Monroe. — Fyrst ekki eru fleiri sjúklingar, þá lokum við. En umfram allt var þó þessi vinna hennar með myndina sama sem innileg samvinna við manninn, sem hún elskaði og rit- höfundinn sem hún tignaði. Hún myndi veita ást þeirra aukna dýpt og var þó hjónabandssæla hennar meiri en hún hafði nokkurntíma getað gert sér vonir um. Miller Skrifaði því handritið upp aftur og aftur, Og lagaði það til eftir persónuleika hennar og leikstíl. Ástin hafði breytt rit- höfundinum, sem fyrir aðeins einu ári hafði lýst því yfir, að hann gæti ekki samið „með til- liti til tiltekins leikara eða leik- kOnu“. Hagsmunalega séð mundi þessi mynd verða mesta gróðafyrir- tæki, sem hún hefði haft af að segja. Hún átti að fá fyrirfram- greiðslu að upphæð 750 þúsund dali, upp í 15% af brúttóágóðan- um af myndinni. Myndina átti alla að taka á útisvæði í Reno, sumarið 1960. En áður átti hún að leika í tveimur myndum. Eftir að Monroe slapp úr sjúkrahúsinu, árið • 1957, varð hún altekin þunglyndi, sem hún gat með engu móti hrist af sér. Miller datt í hug, að hún gæti haft gott af að koma fram fyrir myndavél og það heldur fyrr en síðar. Billy Wilder hafði skrif- að henni um myndarefni, sem hann væri að fást við. Sagan gerist á bannárunum, og hún átti að leika gítarleikandi konu, sem stjórnar kvennahljómsveit. En Wilder sagði, að hann vildi helzt ekki gera úr þessu kvik- mynd, nema hún vildi leika Sugar Kane, sem er gamansöm söngkona með hljómsveitinni. Miller sagði, að hún mætti taka þetta að sér — það mundi dreifa huganum frá áfallinu, sem hún hafði orðið fyrir. Og Wilder væri treystandi til að gera úr þessu góða mynd. Svo hefði hún ekki nema gott af að fá eina mynd, sem gæfi eitthvað af sér, eftir vonbrigðin með „Prins- inn“. En hvorugt þeirra Wilders gerði sér í hugarlund, hversu vel heppnuð mynd „Some Like It Hot“ ýrði. jy. SAGA BERLINAR Á flokksþinginu í október féll Krúsjeff frá kröfu sinni um, að geng- ið yrði til samninga um Berlín 1961, en til þess að undirstrika mikilvægi málsins — skömmu áður en Adenau- er, sem endurkjörinn hafði verið kanzlari, bjóst til að hitta Kennedy — vöktu Moskvumenn undrun og skelf- ingu heimsins með því að beita Finn- land alvarlegum þvingunaraðgerðum, vegna „yfirvofandi hættu á stríði frá V-Þjóðverjum“. Síðan léttu Rússar á þessari þvingun, en létu alltaf að því liggja með alls konar árásum, að Berlínardeiluna yrði að leysa — ann- ars.... í Berlín stóðu rússneskir og banda- rískir skriðdrekar augliti til auglits með aðeins nokkra faðma milli sín, meðan Ulbricht styrkti múrinn sinn •— hvers vegna? Nýtt umferðarbann? Heimurinn beið í ofvæni eftir svari. XXXI. „Some Like It Hot“. Handritið var samið af Wilder Og I. A. L. Diamond, og var að ýmsu leyti mjög hæpið. Til þess að lífga upp efnið eru Tony Curtis og Jack Lemmon . látnir íklæðast kvenfötum — en það réttlætist af þeirri staðreynd, að setið er um líf þeirra. Þeir tala með kvenmannsrómi, og þessi fata-kynskipti eru tekin úr mörg um eldri gamanleikum, hverra 3|tltvarpiö Sunnudagur 16. desember 8.00 Létt morgunlög. 9.20 Morgunhugleiðlng um músíkt Úr bréfabók Karls Straubes (Ámi Kristjánsson). 9.36 Morguntónleikar: a) Dr. Páll ís*« ólfsson leikur franska barokik** tónlist á orgel Dómkirkjunnar. b) Mexíkanski madrigalakórinn syngur lög eftir 16. aldar tón- skáld; Luis Sandi stjórnar. c) Fiðlukonsert í a-m<Sl eftir Bacli 10.30 Vígð Kópavogskirkja: Biskup ís lands framkvæmir vígsluna. Sóknarpresturinn, séra Gunnar Árnason, prédikar. Kór safnað- arins syngur. Organleikari: Guð mundur Matthíasson. 12.15 Hádegisútvarp. 13.15 Tækni og verkmenning; VIII. erindi: Fiskiðnaður (Dr. Jakob Sigurðsson). 14.00 Miðdegistónleikar: Óperan „Mad- ame Butterfly“ eftir Puccini 15.30 Kaffitíminn: Jónas Dagbjarts- son og félagar hans leika. 16.00 Veðurfregnir. — Á bókamark- aðnum (Vilhjálmur Þ. Gísla- son útvarpsstjóri). 17.30 Barnatími (Anna Snorradóttir). 16.40 Tilkynningar. 19.30 Fréttir og íþróttaspjall. 20.00 Eyjar við ísland; XIX. erindij Hrappsey (Friðjón Júlíusson skólastjóri). 20.20 „Komdu, komdu kiðlingur": Gömlu lögin sungin og leikin. 20.55 í Grímsey: Dagskrá úr sum- arferð Stefáns Jónssonar og Jóns Sigurb j ömssonar. 22.00 Fréttir og veðurfregnir. 22.10 Danslög. 23.30 Dagskrárlok. Mánudagur 17. desember 8.00 Morgunútvarp. 12.00 Hádegisútvarp. 13.16 Búnaðarþáttur: Jón Guðmunds- son bóndi á Reykjum talar uiu varphænurnar. 13.35 „Við vinnuna“: Tónleikar. 14.40 „Við, sem heima sitjum“: Ævar R. Kvaran les söguna „Jóla- nótt“ eftir Nikolaj Gogol, í þýð- ingn Steinunnar Gísladóttur (1) 16.00 Síðdegisútvarp. 17.05 Stund fyrir stofutónlist (Guð- mundur W. Vilhjálmsson). 16.00 Þjóðlegt efni fyrir unga hlust- endur (Stefán Jónsson rithöf- undur). 18.20 Veðurfregnir. 18.30 Þingfréttir. 18.50 Tilikynningar. 19.30 Fréttir. 20.00 Um daginn og veginn (Harald- ur Hamar blaðamaður). 20.20 Tónleikar í útvarpssal: Gösta Jahn frá Svíþjóð leikur þrjú frumsamin píanólög, „Vorleys- ingar“, ,3aknaðarljóð“ og „Alpa ljóð“. 20.35 Spurningakeppni skólanemenda J (4): Gagnfræðaskóli Vesturbæj- ar og Gagnfræðaskólinn við Von arstræti keppa. Stjómendurj Ámi Böðvarsson cand mag. og Margrét Indriðadóttir. 21.30 Útvarpssagan: „Felix Krull“ effc ir Thomas Mann; XV. (Krist- ján Ámason.). 22.00 Fréttir og veðurfregnir. 22.10 Hljómplötusafinið (Gunnar Guð- mundsson). 23.00 Skákþáttur (Sveinn Kristinssou) 23.35 Dagskrárlok.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.