Morgunblaðið - 16.12.1962, Qupperneq 23

Morgunblaðið - 16.12.1962, Qupperneq 23
r Sunnudagur 16. des. 1962 MORGVNBLAÐIÐ 23 Valdimar Örnólfsson einn af beztu skiðamönnum ÍR í svigi 99 Ljúfa vor 44 bernskuminningar og eyfirskar frásagnir KOMIN er út bókin „Ljúfa vor — bernskuminningar og eyfirzk- ar frásagnir", eftir Magnús Hólm Árnason, fyrrum bónda á Krónu- stöðum. Endurminningar hans eru frá bernsku- og aeskuárunum. Skipt- ist bókin í þrjá meginþætti: „Endurminningar", „Frásögu- þætti úr Eyjafirði" og „Úr vísna- syrpu“. í hinum eyfirzku þáttum skrá- ir höfundur margvíslegan fróð- leik, sem ekki er annars staðar að finna, og vísurnar, sem ýmsar eru frumlegar og smellnar, munu fæstar hafa komið á prent áður. Það er Prentsmiðja Björns Jónssonar hf., sem gefur bókina út og telur hana jafnt við hæfi ungra sem roskinna. Slétthlíðingar bygcjja nýtt naust Bæ, Höfðaströnd, 13. des. í STÓRBRIMI í nóvember 1961 tók sjórinn þrjár sjóbúðir, sem staðið höfðu á Lónkotsmöl í Sléttuhlíð síðan menn fyrst muna, einnig fiskskúr úr timbri. Lending og uppsátur eyðilagðist svo að þeir, sem á sjó þurftu, voru þrjá tíma að koma litlum báti í öruggt naust, enda þýddi ekki fyrir Malarmenn að líta til sjávar nema í ládeyðu. Nú hafa Slétthlíðingar með ýtu, dráttarvélum og handafli sínu, gert þarna mikið mann- virki. Þeir hafa brúað svokall- að Lón með ca 30 m löngum grjótgarði og um 8 m breiðum, allir kantar eru vel fláandi og vel hlaðnir úr grjóti en inn í fyllt með möl. Á miðjum þessum Skíöakennsla við ÍR-skála SKIÐADEILD IR efnir til skíða- námskeiða í hinu glæsilega skiða landi sínu í Hamragili og verð- ur dvalið í hinum nýja skála Æélagsins dagana 27.—30 desem- ber. Tveir góðkunnir skíðamenn annast kennslu alla dagana. Þá verða einnig haldnar kvöldvökur og fleira til skemmtunar. Þessa daga verður tekin í notk un skíðalyfta í fyrsta skipti við skálann og brekkurnar allar verða flóðlýstar eftir að skyggja tekur. Séð verður fyrir fæði og gistingu af þess er óskað, en auk | Þátttakendaskírteini verða seld þess verða ferðir kvölds og í verzlun L. H. Múllers fyrir há- morgna til og frá Reykjavík og degi frá og með miðvikudegi 19. annast Kjarban og Ingimar þær. | þ.m. til 1. desember. Enska knattspyrnan Dæmdur fyrir smygl Moskvu, (NTB). KVÖLDBLAÐ eitt í Moskvu skýrði frá því í dag, að knatt-1 spyrnumaðurinn Vjatsjeslav Ambartsumjan, sem er 22 ára gamall, hafi verið sakaður1 um að kaupa dollara á svört- um markaði, til þess að geta( keypt ullarpeysur og kulda- skó handa vinkonu sinni. Ambartsumjan keypti dollar- ana af tveimur ungum mönn- um í Moskvu og hafa þeir báðir verið handteknir. Ætl- aði knattspyrnumaðurinn að kaupa gjafirnar handa vin- } konu sinni næst er hann færi \í keppnisferð til Vesturlanda. Blaðið skýrði frá því, að ör- lyggislögregian myndi ekki } stefna knattspyrnumanninum jfyrir rétt, en sennilegt væri, að vinir hans í Komsomol 1 (sambandi ungkommúnista) I tækju hart á afbroti hans. 22. umferð ensku deildarkeppninnar fór fram í gær og urðu úrslit þessi: 1. deild Arsenal — Leyton O.............. 2-0 Ðirmingiiam — Tottenham 0-2 Blaokburn — Ipswich .......... 0-1 Blaokpool — Liverpool ......... 1-2 Bolton — Sheffield W. frestað. Everton — Burnley ............. 3-1 Leicester — Fulham ............ 2-3 Manchester City — Wolverhampton 3-3 Sheffield U. — N. Forest ...... 3-1 W.B.A. — Manchester U.......... 3-0 West Ham — Aston Villa ....... 1-1 2. deild Chelsea — Botherham ........ 3-0 Derby — Huddersfield .......... 2-1 Grimsby — Plymouth ............ 1-1 Leeds — Stoke ................. 3-1 Luton — Bury .................. 2-1 Middlesbrough — Sunderland .... 3-3 Newcastle — Cardiff ......... 2-1 Norwich — Preston ........... 1-1 Southampton — Scunthorpe ...... 1-1 Swansea — Charlton ............ 2-1 Walsall — Portsmouth .......... 3-5 í Skotlandi urðu úrslit m.a. þessi: Clyde — St. Mirren ............ 2-0 Dundee — Motherwell ......... 2-2 Rangers — Raith .............. 4-2 Staðan er nú þessi: 1. deild (efstu og neðstu liðin) Everton ......... 22 14-5-3 50:24 33 Tottenham ...... 22 13-4-5 62:30 30 Burnley ........ 22 12-5-5 44:33 29 Ipswich Fulham Leyton O. .., ..... 22 5-6-11 33:43 16 .... 22 5-5-12 24:45 15 15 22 4-4-14 22:45 12 2. deild (efstu og neðstu liðin) Chelsea ..... 22 15-3-4 50:18 33 — Sunderland _.... 22 12-5-5 49:29 29 — Charlton Luton ..., Grimsby 22 6-3-13 35:56 15 21 4-6-11 30:42 14 ■ 22 4-5-13 34:43 13 ■ Islandsmót I deild- ar hefst kl. 2 í dag fSLANDSMÓTIÐ í band'knatt- leik 1963 hefst í dag að Háloga- landi þ.e.a.s. keppni 1. deildar. Eins og áður hefur verið frá skýrt er nú tekin upp sú nýjung að tvöföld umferð er leikin í 1. deild og hefst fyrri umferðin nú. Keppni í öðrum flokkum hefst eftir áramót. Fleiri nýjungar eru í sambandi við mótið nú allar til hagræð- is áhorfendum. M.a. er nú allir leikir tímasettir þannig að leik- irnir byrja á ákveðnum tíma svo fóllk þarf ekki að bíða eftir að leikur sem það vill helst sjá hefjist. í dag fara fram þrír leikir en dagskráin er þannig : K1 2 mótið sett af Ásbirni Sig- urjónssyni form. HSÍ. Kl. 2,05 keppa IR og KR dómari er Daníel Benjamínsson. Kl. 3,15 keppa FH og Þróttur og dæmir Axel Sigurðsson. Kl. 4,25 leika Fram og Víking- ur og dæmir Valur Renediktsson þann leik. Fagur minjagnpur AKUREYRINGAR hafa látið gera mjög fagran bollabakka með nákvæmri eftirprentun af 100 ára gömlu málverki, sem sýnir bæ- inn og höfnina eins og hún þá var. Bakkinn er seldur til ágóða fyrir Byggðasafnið á Akureyri, og fæst í Blómabúð K.E.A. og Járn- og glervörudeild K.E.A. í Reykjavík fæst bakkinn hjá S.Í.S. í Austurstræti 10, Húsbún- aði Laugaveg 26 og Smiðjubúð- inni við Háteigsveg. garði er um 3 m breitt op með öflugri brú á. Allt virðist þetta mannvirki vera vandað og traustlegt, og er sýnilega ólíkt betri aðstaða til uppsáturs en áður. Sjálf lendingin er stórgrýtt og vond en gæti þó áreiðanlega batnað ef steyptur yrði garður norðan við lendinguna. B. Leiðrétting í Morgunblaðinu í dag (13 des. 1962) er grein eftir Þorstein M. Jónsson um bókina íslenzkar ljósmæður. í upphafi greinarinnar er til- færð vísa eftir undirritaðan, sem ekki er alveg rétt með farin (það vantar í hana tvö orð) og þess vegna er vinsamlegast beðið um leiðréttingu. Vísan er rétt svona: Hún var þá glöðust, ef hún gat veitt bót og hjálpað, er þjakaði raunin, og hún var svo óvenju handviss og fljót — og hugsaði aldrei um launin. Með fyrirfram þökk. Jón Sigtryggsson frá Framnesi. Ósk Jósefsdóttir Vesturgötu 22 NU ER hún horfin sjónum þús- undanna er hún seldi ódýran kost í áratugi. Hún var drottning í húsi sínu. Hún stjórnaði af skörungsskap matsölunni og veitti daglega hundrað manns mat árum saman á Vesturgötu 22. Hún var svipmikil aðsópskona. Dugnaður hennar, á'kefð og skap hiti setti allt á hreyfingu í kring- um hana. Hún var góð og gjöful. Mörgum rétti hún hjálparhönd, því að hjartað var hlýtt og ekta. Þessvegna kveðja hana hinir mörgu með þökk fyrir allt. 1 Kunningi. — Ofyrirgefanlegt Framhald af bls. 24. um. Nauðsynlegt er því að þess- ar rannsóknir haldi áfram, svo að unnt sé að friða hrygningar- svæðin. ÞORNA UPP Guðlaugur Gíslason (S) þakk- aði ráðherra svörin. Hins vegar benti hann á, að fiskifræðingar telja, að um helmingur þess fisks, sem á hrygningarsvæðin kemur, sé veiddur, meðan á hrygningu stendur, en hinn helm ingur stofnsins á að hrygna i friði. Kvað hann þessar skoðan- ir fiskifræðinganna stangast á við skoðanir þeirra manna, er lengst hafa stundað þessar veið- ar. En þeir óttast, að það ónæði, sem veiðarfæri valda á hrygn- ingarsvæðum yfir þann tíma, sem fiskurinn er þar, beinlínis flæmi hann burt og hann komi e.t.v. ekki aftur. Þess eru dæmi, að ákveðin svæði, sem talin hafa verið hrygningarsvæði, hafa eyðzt af ókunnum orsökum. „Þetta hefur átt sér stað og það er einmitt þetta, sem ég tel að leggja eigi höfuðáherzlu á að rannsaka, hvaða orsakir liggja til þess, að hrygningarsvæði og ákveðin veiðisvæði þorna upp, eins og sagt er, og fiskur sækir þangað ekki aftur, kannske um áratugabil, eftir að veitt hefur verið þar bæði með netum og öðrum veiðarfærum — / Ijósi .... Framhald af bls. 14. gale. Þar hefur hún á efri árum miðlað litlum sjúklingum af þeim arfi, sem hún fékk í föður- garði á norðlenzka prestsheimil- inu, mótuðu af menningu og mannúð. Leiftur hefur gefið út bók frú Sigríðar, en Bókfell lætur frá sér fara nýja og vandaða bók í flokknum „Merkir íslendingar*1, sem er orðið fróðlegt og fýsilegt safn stuttra ævisagna. Þar kenn- ir ólíkra grasa, því að hér eru á ferð níu höfundar með tólf sögu- hetjur og snemma laft af stað, því að byrjað er á Skafta Þór- oddssyni lögsögumanni, einum merkasta þingleiðtoga, sem fs- lendingar hafa átt, og endað á Magnúsi Guðmundssyni ráð- herra. Ekki snýst þó bókin um stjórnmálamenn eingöngu, því þar eru líka menn svo ólíkra at- hafna sem Björn Jórsalafari, kaupmaður og pílagrímur, Jón Árnason, biskup og harðstjóri, Snorri á Húsafelli, prestur og kraftakarl, J ón Borgf irðingur, lögregluþjónn og fræðimaður, Pétur Havsteen, óstýrilátur amt- maður. Merkilegasti þátturinn, að mér þykir, er þó þáttur Páls Eggerts ólafssonar um Þorleif Repp, hinn ljóngáfaða málvís- indamann, sem var svo ástríðu- þrunginn disputator og andófs- maður, að hann hraktist af verð- skulduðum ferli frægðar og frama, bæði í Daomörku og á Bretlandi, en hló af sér doktors- titil og hlaut í staðinn þann ein- stæða titil frá Hafnarháskóla að vera útnefndur fífl af sjálfum rektor við hátíðlega athöfn. Bók þessi er búin til prentunar af síra Jóni Guðnasyni af hans alkunnu vandvirkni og er að öllu hin eigulegasta.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.