Morgunblaðið - 09.02.1963, Qupperneq 24
■ri, IHI
BUÐIKTGAR
33. tbl. — Laugardagur 9. febrúar 1983
Telpa skarsf
illa í aadliti
þar sem ekki var öryggjsgler í bílglugga
Á TÍUNDA tímanum í gaer-
kvöldi varð það slys að 11 ára
telpa, Þórdís Þórðardóttir, Skipa
sundi 15, sem var á hjóli inni
við Múla, lenti í árekstri við bíl
á Suðurlandsbraut með þeim af-
leiðingum að telpan skarst illa í
andliti og liggur nú í sjúkrahúsi.
Ceyl javík kaap-
ir nýjnr
malbikunarvé’ar
BORGARRÁÐ hefur samþykkt
að heimila borgarverkfræðingi
að semja um kaup á nýjum vél-
um til malbikunar. Hafa að und
aníförnu verið athugaðar ýmsar
gerðir slíkra véla og væntanlega
verður fyrir valinu dönsk véla-
samstæða, sem þykir mjög full-
komin.
Sú vél afkastar tíu sinnum
meira en þær vélar, sem notaðar
eru til malbikunargerðar hér í
dag og á að geta fullnægt þörf
Reykjavíkur og nágrennis um
næstu framtíð.
Vélin verður vænfanlega til-
búin til notkunar í vor.
Viðskipti íslands
og Kúbu
VIÐSKIPTI milli íslands og
Kúbu hafa nú lagzt niður að
heita má. Stafar það aðallega af
greiðsluvandræðum Kúbumanna.
Talsverður saltfisksútflutning-
ur til Kúbu hefur átt sér stað
allt frá því í lok heimsstyrjald-
arinnar. Keyptu íslendingar í
staðinn sykur og romm. Segja
má, að hér hafi verið um vöru-
skiptaverzlun að ræða. Á árinu
1962 tók alveg fyrir útflutning
héðan til Kúbu vegna gjaldeyr-
isskorts á Kúbu. Hins vegar voru
vörur, upprunnar frá Kúbu, flutt-
ar hingað fyrir 4.092.000 kr. Þar
af sykur fyrir um 3,5 millj. kr.
Engin íslenzk skip sigldu til
Kúbu á sl. ári.
1
Ekki semst
um Viðey
Á FUNDI borgarstjórnar s.l.
fimmtudag skýrði borgarstjóri
frá viðræðum, er fram hafa
farið við eiganda Viðeyjar
um hugsanleg kaup Reykja-
víkur á eyjunni. Þær viðræð-
ur hafa ekki borið árangur
ennþá. Borgarstjóri tók fram,
að viðræðum væri ekki slitið
og enn væri leitað eftir því,
hvort samkomulag næðist um í
kaupin. I
Þórdís virðist hafa hjólað beint
út á Suðurlandsbrautina við
strætisvagnabiðskýlið við Múla.
Lenti hún þá framarlega á hlið
lítils bíls, sem ekið var austur
Suðurlandsbraut, og er talið að
hún hafi kastast á rúðu í fram-
hurð bílsins, sem brotnaði. —
Skarst Þórdís mikið í andliti,
var flutt í slysavarðstofuna og
síðan í Landsspítalann.
Þess má geta að í glugganum
var ekki öryggisgler, heldur -6
millimetra rúðugler, og mun
það fyrst og fremst hafa valdið
því, hve telpan skarst illa.
Fólkið að Látrum veltir trénu á „skrúftóg“
ið gengu menn á það og veltu á undan sér.
upp sjávarkambinn, en þegar þangað er kom-
(Ljósm. Mbl. Þórður)
Hafísinn færði
stort tré að iandi
Allt fólkið á Látrum fékk sér göngu-
túr til Jbess oð bjarga jbví
Látrum 6. febrúar.
S Á N Ú orðið sjaldgæfi at-
burður gerðist hér í dag, að
á fjörur rak stórtré, tvö fet
í þvermál, og um tuttugu að
lengd, en slíkt hefir ekki gerzt
í um tuttugu ár, eða ekki síð-
an að hafís hætti að koma hér
að landi, en með þeim forna
fjanda kom oftast einhver
Ein hlið trésins var þakin stórum „helsingjanefjum" eins
og gerist á trjám, sem lengi eru í hafi. Sjálfskeiðungurinn
sem stendur í trénu er 25 cm. langur og gefur nokkra
hugmynd um stærð þess.
reki, stundum hvalreki. Nú
er háfís hér skammt undan
landi. og mun þetta tré send-
ing frá honum sem norðan-
áttin hefir komið til skila.
Hér hefir hafís ekki orðið
landfastur síðan á stríðsárun-
um síðari, þá varð hann hér
landfastur og sá ekki útyfir
hann af hæstu fjöllum hér í
kring, til vesturs og norðurs,
en suður fyrir Bjargtanga fór
samfelldur ís yfirleitt ekki
neitt að ráði.
f þetta umrædda skipti kom
ísinn að landinu hér á mikilli
ferð og öllum að óvörum, mun
aði minnstu að togarinn Vörð-
ur frá Patreksfirði yrði hon-
um að bráð. Hann var að næt
urlagi að koma út frá Pat-
reksfirði og ætlaði suður úr.
Þegar komið var suður á
Breiðavík, sáu þeir er á verði
voru, eitthvað bera við hafs-
brún, en myrkur var, og eng-
in skip með ljós. Nálgaðist
þetta óðum og þótti þeim í
svip líklegast að þar færi
skipalest, en þótti hún þó all
fyrirferðarmikil. Skipstjórinn
var þc fljótur að átta sig á
því, að hér væri um samfelld-
an hafís að ræða sem ræki að
landinu með miklum hraða,
og múndi koma jafn snemma
að Blakk og Bjargtöngum,
fylla hvern vog og vík, og
kreista í sundur skip hans ef
honum tækist ekki að forða
því. Þar sem styttra var í
Blakkinn valdi hann þá leið-
ina, og slapp rétt inn fyrir
Blakkinn, áður en ísinn rakst
á landið með braki og brest-
um, og því afli að molað hefði
hvert skip sem milli hans og
lands hefði verið.
Mörg tré komu þá rúeð ísn-
um. Voru þá fleiri karlmenn
hér á Látrum til að bjarga,
en voru í dag, en söm var
aðferðin, velt á „skrúftóg".
sem er mjög auðvelt, jafnvel
þótt tré væri nokkur tonn, ef
fjaran er slétt. Allt fólkið,
ungt og gamalt hér á Látrum,
fékk sér göngutúr í dag til
að bjarga trénu, mun það ekki
hafa hent hér fyrr, að hús-
freyjur gengu almennt til
þeirra starfa, en lukkulegar
voru þær við starfið.
— Þórður.
TVEIR menn slösuðust við vinnu
sína í Reykjavík í gær. Annað
slysið varð við nýbygginguna að
Meistaravöllum 23—27. Voru þar
tveir menn að vinna á palli utan
á húsinu á þriðju hæð. Hlóðu
mennirnir stoðum undan loftum
á pallinn, en skyndilega brotn-
aði hann undan þunganum. Náði
annar maðurinn að bjarga sér
inn í húsið, en hinn féll til jarð-
ar. Mun hann hafa meiðzt á
höfði og í baki. Heitir maðurinn
Sævar Hannesson, til heimilis að
Suðurbraut 3, Kópavogi.
Hitt slysið varð í Slökkvistöð-
inni. Var trésmiður, Bergsveinn
Guðmundsson, að vinna þar á
stáltröppu sem gliðnaði með
þeim afleiðingum að Bergsveinn
féll í gólfið. Var hann fluttur
í Slysavarðstofuna og mun hafa
meiðzt í baki.
Siýórxsarhför jr ItBúr-
araíéltsffi Rvíkur í
dag og á morgasa
Listi lýðræðissijina er A-ðistinn
STJORNARKOSNING fer fram 1 Múrarafélagi Reykjavíkur nú
um helgina. Kosið er í skrifstofu félagsins, Freyjugötu 27 og hefst
kosningin í dag kl. 1 e.h. og stendur til kl. 9 síðd. Kosningin held-
ur áfram á morgun (sunnudag) og hefst kl. 1 e. h. og stendur
til kl. 10 síðd. og er þá lokið.
Tveir listar eru í kjöri: A-listi i Einarsson og Sigurður G. Sig-
Stjórnar og trúnaðarráðs, sem
skipaöur er og studdur af lýð-
ræðissinnum og B-listi kommún-
ista, — Listi lýðræðissinna 'er
þannig skipaður: Einar Jónsson,
form., Hilmar Guðlaugsson, vara
form., JÖrundur Guðlaugsson,
ritari, Jón V. Tryggvason, gjald-
keri félagssjóðs og Svavar Hösk-
uldsson, gjaldkeri styrktarsjóðs.
-— Varastjórn: Helgi S. Karls-
son, Kristján Haraldsson og
Snæbjörn Þ. Snæbjörnsson. —
Trúnaðarmannaráð: Jón G. S.
Jónsson, Jóhannes Ögmundsson,
Jón R. Guðjónsson, Sigurjón
Sveinsson, Tryggvi Halldórsson
og Þórir Guðnason. —Til vara:
Hilmar Guðjónsson, Þorsteinn
urðsson.
Múrarar! Vinnið Ötullega fyr-
ir A-listann og tryggið lýðræðis-
sinnum með því glæsilegan sig-
ur. —i
Akranes
MUNIÐ spilakvöldið a» Hótel
Akranes sunnudagskvöldið 10.
febrúar kl. 8,30 e.h.
SJÁLFSTÆÐISFÉLÖGIN
Varðarkafíi
werður ekki
í dag