Morgunblaðið - 01.03.1963, Side 1

Morgunblaðið - 01.03.1963, Side 1
24 síður 50. árgangfur 50. tbl. — Föstudagur 1. marz 1963 Prentsmiðja Morgunblaðsins KATAIMGAMENIM ÁHYGGJIIFULLIR vegna óeirða í Elisabetville Her sambandsstjórnarinnar talinn bera ábyrgðina A Eins og skýrt hefur verið frá í fréttum rákust tvö olíuflutningaskip á í mynni Schelde-fljóts á mánudag með þeim afleiðingum að kviknaði í þeim báðum. Á myndinni sést annað skip- anna „Miraflores" frá Panama í björtu báli. Áhöfn skipsins, sjö menn, týndi lifi. Áhöfn hins skipsins, sem í árekstrinum lenti, komst öll lífs af. Það skip var brezkt. IMJósnararn- ir fara með fyrstu ferð Morgunblaðinu barst í gær eftirfarandi frétta tilkynning frá utan- ríkisráðuneytinu: „AMBASSADOR Sovét- ríkjanna, hr. Alexander M. Alexandrov, gekk á fund utanríkisráðherra í dag og kvaðst vilja endurtaka mótmæli sín um að ásak- anirnar gegn tveim sendi- ráðsstarfsmönnum sínum væru rangar og tilhæfu- lausar, en engu að síður mimdu sendiráðsstarfs- mennirnir Lev Kisselev og Lev Dimitriyev, fara frá íslandi þegar á morgun flugleiðis yfir Danmörku, ef nauðsynlegar vegabréfs- áritanir fengjust fyrir þann tíma, annars mundu þeir fara með næstu ferðum þar á eftir. Utanríkisráðherra full- vissaði 'ambassadorinn um, að íslenzka ríkisstjórnin hefði öruggar og fullkomn- ar sannanir fyrir öllum á- kæruatriðunum gegn þeim Kisselev og Dimitryev“. Elísalbetlhville,, 28. febr. (NTB) Hersveitir Saméinuðu þjóð anna í Katanga urðu að grípa til aðgerða í dag til þess að koma á röð og reglu í Elisa- bethville, eftir að komið hafði til átaka milli hermanna sambandshers Kongo og lög- reglu Katangamanna. Tveir lögreglumenn létu lífið í á- tökunum og einn særðist lífs- hættulega. Óeirðimar urðu náiægt Kara- via-toúðunum í borginni, en þar hafa hermenn sambandsihersins bæikis'töðvar. Lögreglan í Elisa- bethville skýrði frá því í dag, að tveir hermenn sambandshersins hefðu verið handteknir vegna ó- eirðanna. Ófursti í herliði SÞ í Eiisabetíh ville hefur skýrt frá því að- sl. þriðjudaigskvöld hafi herliðið orð ið að beita skriðdrékum til þess að hindra að hermenn samibands- stjómarinnar réðust á henmenn Katangahers. Utanríkisráðherra Katanga, Evariste Kimiba, hefur sent full- trúa samlbandsstjórnarinnar í Katanga," Joseph Heo, skrifleg mótmæli gegn því, sem hann kall ar marga óheillavænlega atburði, vegna veru hers sambandsstjórn- arinnar. Fréttamaður brezka útvarps- ins í Elisabethville sagði í dag, að ólga hafi verið í Katanga allt frá þvi að herlið sambandsstjóm arinnar kom þangað. Væru menn áhyggjufullir vegna þess og ótt- uðust að til frekari óeirða kæmi á næstunnd, ekki sízt vegna þess að innan skamms verður fækkað í liði SÞ í Katanga. -jfc- Bunche til Sanaa. Beiruth, 28. febr. (NTB) Ralph Bunohe, aðstoðarfram kvæmdastjóri Sameinuðu þjóð anna, hélt í dag frá Líbanon áleiðis til Sanaa, höfuðborgar Jemen. Bunch mun dveljast í Jemen nokkurn tíma og kynna sér ástandið í landinu og erjur íbúa þess við nágrannalöndin. Ríkisstjórnin Skorar á Kjararáð að hefja eðlilegar samningaviðræður Leggur fram breytingar á fyrri tillögum Morgunblaðinu barst í gær- kvöldi eftirfarandi frétt frá r í kisstj órninni: HINN 7. febr. sl. voru tillögur ríkisstjórnarinnar að kjarasamn- ingi ríkisstarfsmanna lagðar fyr- ir Kjararáð BSRB. Ríkisstjórnin ætlaðist til þess að þá þegar hæf- ust viðræður samninganefndar rikisins og Kjararáðs um tillög- urnar og þar á meðal um niður- röðun starfsmanna í launaflokka með það fyrir augum að reyna að brúa bilið milli tillagna ríkis- stjórnarinnar um 25 launaflokka og kröfu Kjararáðs um 31 flokk. Var þá að sjálfsögðu haft í huga, að í þeim viðræðum yrðu gerð- ar ýmsar breytingar á tillögum ríkisstjórnarinnar eins og venju- legt er í samfiingaviðræðum. En Kjararáð hafnaði því á fundi 9. febr. sl. að ræða skipun starfs- manna í launaflokka og hefur þannig komið í veg fyrir samn- ingaumræður um það mál. Samkvæmt lögunum um kjara- samninga eiga kjaramálin að ganga nú 1. marz til Kjaradóms, en lögin heimila fjármálaráð- herra að breyta því tímamarki. Ríkisstjórnin vill nú, þrátt fyr- ir afstöðu Kjararáðs, freista þess enn að ná samkomulagi og legg- ur því fram ýmsar breytingar á fyrri tillögum, sem miða að því að ganga til móts við óskir ým- issa starfsmanna og starfsmanna- hópa, sem hafa komið þeim ósk- um á framfæri við ríkisstjórnina og samninganefnd ríkisins. Jafnframt hefur fjármálaráð- herra ákveðið að fresta því til 15. marz'nk. að málið gangi til Kjaradóms til' þess að tveggja vikna frestur fáist til athugunar á og umræðna um hinar nýju tillögur, og væntir ríkisstjórnin þess fastlega, að Kjararáð hefji nú samningaviðræður með eðli- legum hætti. Reykjavík, 28. febrúar 1963. TILKYNNING FRÁ KJARARÁÐI BSRB Seint í gærkvöldi bart Mbl. eftirfarandi fréttatilkynning frá Kjararáði BSRB: „EINS og kunnugt er, hafa að undanförnu farið fram viðræður aðila um kjaramál opinberra starfsmanna, samkvæmt lögum nr. 55 1962. Ekkert hefur ennþá miðað í samkomulagsátt og því horfur á, að Kjaradómur fengi málið í heild til meðferðar. Ákvað því Kjararáð á fundi sínum í dag að reyna að ná sam- komulagi um fjölda launaflokka, ef það mætti leiða til þess, að samningar tækjust. Var þetta tilkynnt samninganefnd ríkis- stjórnarinnar á sáttafundi í dag. Framhald á bls. 2. Bandarilijastjórn gegn fargjaldalækkun IATA Einkaskeyti til Mbl. frá AF. Montreal, Kanada 28. febr. Bandaríkjastjórn hefur neitað að veita IATA (Alþjóðasambandi flugfélaga) heimild til þess að hækka fargjöld á le'ðum yfir Atlantsihaf og Kyrrahaf um 5%. Aðildaiyíélög IATA samþykktu þessa fargjaldahækkun á fundi sínum í Chandler, Arizona, sl. haust, en auk aðildarfélaga IATA verða ríkisstjórnir viðkomandi rikja að samþykkja hana. Jalsmaður IATA í Montreal í Kanada sagði í dag, að flug- málastjórn Bandaríkjaima telji að fargjaldahækkunin mus> draga úr farþegaflutningd og sam drátturinn eiga sér stað skömmu eftir að hún komi til fram- kværúda. Því munl hækkunin eklki auka tekjur flugfélaganna. sina, og áikvörðun Bandaríkja- anna heldur fast við skoðun sína, og ákvörðun Bandaríkj- stjórnar verður ekki hagigað, þá verðum við að taka málið til ná- kvæmrar íhugunar áður en við ákveðum hvað gera skuli“, sagði talsmaðurinn. Hann bætti því v'ð að þeir, sem hefðu keypt farmiða á nýja verðinu er hefði átt að ganga í gildi 1. a.príl n.k., fengju firnm prósentin endurgrekid. Að loíkum sagði talsmaðurinn, að einstök flugfélög hefðu sent flug miálastjórn Bandaríkjamna harð- orð mótmæli og skorað á hana að leyfa fargjaldahækkunina. Argoud ofursti Nýtt sam- særi OAS upplýst Líkur benda til þess að Argoud hafi verið rænt í Munchen París, Munchen, 28. febrúar (NTB-AP). FRANSKA lögreglan skýrði frá þvi í dag, að komizt hefði upp um enn eina s^.nsæris- tilraun OAS hreyfingarinnar í Frakklandi. Samsæri þetta beindist ekki gegn de Gaulle forseta heldur forsætisráð- herra Frakklands, Georges Pompidou, og Roger Frey innanríkisráðherra. Var ætl- unin að ráða þá af dögum sl. sumar. Ekki komst upp um samsæri þetta fyrr ' en fyrir skömmu, þegar lögreglan í París gerði leit hjá mörgum, sem grunaðir voru um sam- starf við OAS. SI. föstudag fann lögreglan mikið af vopn- um og skjöl, sem skýrðu frá samsæristilrauninni sl. sumar, í fórum sjóliðsforingjans Ge- orges Busica og bróður hans Gilles Busica, en þeir hafa báðir tekið þátt í starfseml OAS. Auk þeirra voru sjö aðrir handteknir sakaðir um þátttöku í samsæristilraun- inni gegn Pompidou og Frey. Lögreglan telur, að Busica sjóliðsforingi hafi verið nán- asti samstarfsmaður Rene Sergents fyrrv. höfuðsmanns, en talið er að hann muni taka við forystu OAS í Frakk landi nú þegar Argoud ofursti z hefur verið handtekinn. I Lögreglan segir sjóliðsfor- ingjann hafa játað, að hafa skipulagt samsæri gegn ráð- herrunum. Segir hann, að Sergent og Argoud hafi gefið honum skipanir um að ráða Pompidou af dögum sunnu- dag éinn sl. sumar, er hann var á leið frá kirkju. Eins og skýrt hefur verið frá var Argoud ofursti hand- tekinn í París sl. þriðjudag, eftir að maður, sem ekki vildi láta nafns síns getið, hafði I hringt til lögreglunnar og sagt I henni að OAS foringinn lægi meðvitundarlaus í bifreið í nágrenni lögreglustöðvarinn- ár. Lögreglan fann Argoud Framlh. á bls. 2

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.