Morgunblaðið - 05.05.1963, Qupperneq 1
24 siður og Lesbók
50. árgangur
100. tbl. — Sunnudagur 5. maí 1963
Prentsmiðja Morgunbiaðsins
Harðorð ntótmæli vegna fram-
ferðis Hunts skipherra
íslendiugar krefjast framsals
Smiths skipstjóra og bóta
af hertdi brezku stjórnarinnar
MBL. BARST í gær fréttatilkynning frá utanríkisráðuneyt-
inu, þar sem skýrt er frá því, að ríkisstjórn íslands hafi
ítrekað við brezku stjórnina mótmæli vegna Milvvood-
málsins.
Guðmundur í.-Guðmundsson, utanríkisráðherra, kvaddi
í gærmorgun á sinn fund E. B. Boothby, ambassador Breta
liér á landi, og afhenti honum mótmælaorðsendingu. í orð-
sendingunni er þess m. a. krafizt, að brezka stjórnin sjái
svo um, að Smitb, skipstjóri á Milwood, verði framseldur,
og látinn standa fyrir máli sínu fyrir rétti liér á landi. Jafn-
framt verði komið fram viðeigandi refsingu gegn þeim, er
ábyrgir eru í málinu, og bætt á allan hátt fyrir það brot,
sem framið hefur verið gegn íslenzkum yfirvöldum í máli
þessu. Fer fréttatilkynningin hér á eftir:
r „Utanríkisráðherra, Guð-
mundur í. Guðmundsson,
kvaddi í dag brezka ambassa-
dorinn, E. B. Boothby, á sinn
fund og afhenti honum orð-
sendingu, þar sem enn á ný
var krafizt framsals brezku
stjórnarinnar á Smith, skip-
stjóra á brezka togaranum
Milwood, sem varðskipið Óð-
inn stóð að veiðum í land-
helgi fyrir sunnan land, eins
fylgir blaðinu í dag og er efni
hennar sem hér segir:
Bls. ✓ '
1 Sören Aabye Kierkegaard,
150 ára afmæli, eftir Jón
Kr. Isfeld.
2 Svipmynd: Nadine Gordi-
mer.
3 Afturgangan, smásaga eft-
ir Riehard Hughes.
Mér er sagþ ljóð eftir Jón
Kára.
4 Hruni, fjórði hluti byggða-
sögu Brunasands, eftir sr.
Gísla Brynjólfsson.
5 Bókmcnntir: Frá Kierke-
gaard til Sartres, eftir
Poul Henning Jörgensen.
Rabb, eftir SAM.
7 Lesbók æskunnar.
8 Mannskaðinn í Bolungar-
vík 1905, eftir Valdimar
B. Valdimarsson frá Hnífs-
dal.
Hvernig ferskvatnsdýr lifa
af heimskautsveturinn, eft-
ir dr. James Green.
9 Landið, sem flaut í mjólk
og hunangi.
Öryggisbelti.
10 Fjaðrafok.
11 —
15 Krossgáta.
16 Rafeindirnar í þjónustu
umferðarinnar.
Allt fyrir kvenfólkið í
nýju bílunum: Sveiflu-
stýri, málunartæki og
barnapelar.
og kunnugt er af fréttum.
Ráðherrann tók fram við
ambassadorinn, að ríkisstjóm
íslands liti mjög alvarlegum
augum á mál þetta, og ítrek-
aði, að það væri skýlaus
krafa af íslands hálfu, að
Askenozy tll
Moskvu?
Londion, 4. maí — NTN
SKÝRT hefur verið frá því
í London, að fiKharmoniu-
hljómisveitin í Moskvu hafi
boðið Vladimir Askenazy, sov
ézka píanistanum, í hljómleika
för til Moskvu, i júná.
Askenazy hefur enn ekki
gefið neitt svar. Hann bað
uim dvalarleyfi fyrir sig og
komu sína, í>órunni Jóhanns-
dóttur, í Bretlandi, fyrir
skömrnu, svo sem skýrt hefur
veirið frá í fréttum.
skipstjórinn mætti fyrir ís-
lenzkum rétti, til þess að
standa fy^ir máli sínu.
Þá var enn fremur tekið
fram í orðsendingunni, að sú
ákvörðun, af hálfu íslenzkra
stjórnarvalda, að beita ekki
löglegu valdi, fyrr en í ítr-
ustu lög, til þess að forða lífi
og eignum brezkra borgara,
hefði verið misnotuð af Hunt,
skipherra á Palliser, til þess
að skjóta hinum meinta lög-
brjót undan íslenzkri lög-
sögu, og að brezka stjórnin
yrði að bæta íslandi að fullu
þetta augljósa og grófa brot,
og koma fram viðeigandi refs-
ingu gegn þeim,. sem á því
bæru ábyrgð“.
Tíminn ræðst á
ermann Jénasson
HELDUR ERU Tímanum mis-
lagðar hendur, þegar hann ger
ir. nú daglega tilraun til að
ráðast að Bjarna Benedikts-
syni, dómsmálaráðherra, fyr-
ir það að hann skyldi ekki fyr-
irskipa að skjóta á brezka tog-
arann Milwood. Sannleikurinn
er sem sagt sá, að föstu skoti
hefur einungis þrisVar verið
skotið á erlenda togara og
aldrei í sjálfu „þorskastríð-
inu“, þegar átökin voru þó al-
varlegust.
Nú er þess að gæta, að í
vinstri stjórninni var dóms-
málaráðherrann, æðsti yfir-
maður landhelgisgæzlunnar,
enginn annar en þáverandi for
maður Framsóknarflokksins,
Hermann Jónasson. Hann
lagði fyrir landhelgisgæzluna
að forðast álvarlega árekstra.
Hann gekk meira að segja svo
langt, að einu sinni skipaði
hann landhelgisgæzlunni að
láta lausan togara, sem hún
hafði tékið og hafði á valdi
sínu.
Það var 25. september 1958,
þegar Óðinn og María Júlía
höfðu togarann Paynter á
valdi sínu og höfðu' sett 14
menn um borð í hann, en var
fyrirskipað að yfirgefa hann.
Engu slíku var til að dreifa
að því er varðaði togarann
Milwood nú. Þar var engum
rétti afsalað. Hinsvegar tókst
með svikum, sem landhelgis-
gæzlan fékk ekki við ráðið, að
koma skipstjóranum undan.
Bjami Benediktsson, dóms-
málaráðherra, - þarf ekki að
óttast dóm þjóðarinnar, hvorki
um stjórn hans á utanríkismál
um né landhelgisgæzlu. Hins
vegar hefur Tíminn kveðið
upp dóm yfir Hermanni Jónas
syni.
39 láta lífið í flug-
slysi í Brazilíu
Um 330 hafa farizt i 70 flugslysum
i Braziíiu á rúmum tveimur árum
Sao Paulo, Brazilíu, 4. maí NTB
TALIÐ er, að a.m.k. 39 hafi
látið lífið, er Convair flugvél
frá brazilíska flugfélaginu „Cruz
eiro de Sul“ féll til jarðar á í-
búðarhús í Sao Paulo í gærkvöldi
Með flugvélinni voru 44 far-
þegar og 5 manna áhöfn. 35
þeirra, sem með flugvélinni voru
létu þegar lífið. Aðrir liggja í
sjúkrahúsi, sumir lifshættulega
særðir.
4 létu lífið, er brunaliðsbifreið
ar, er voru á leiðinni á slysstað-
inn, lentu í árekstri.
Alls hafa þá um 330 manns
farizt í flugslysum í Braziliu
frá því í febrúar 1960.
í þeim mánuði létu 61 lífið,
er tvær flugvélar rákust á yf-
ir flugvellinum við Rio de Jan-
eiro. í júní sama ár létu 53
lífið, er flugvél' féll til jarðar
við Rio de Janeiro. í nóvemiber
1961 féll flugvél til jarðar við
Recife, og þá fórust 45. 24 fórust
10. mai 1962, eir farþegaflugvéd
frá „Cruzeiro de Sul“ féll til
j arðar við borgina Vitorio. 31.
j'úlí sama ár létu 10 lífið, er>
herflugvél féll til jarðar við Rio
de Janeiro. 26. nóvemiber í fyrra
rálkust tvær flugvélar á nærri
Río, og þá fórust 26. 14. desember
létu 47 lífið, er flugvéi hrapaði
í Amazon-fljót. 15. janúar sl. fórst
flugvél frá „Cruzeiro de Sul“ oig
þá fórust 13. Sú flugvél féll einn-
ig niður í íbúðarhverfi .
Kozlov sagður
mikið veikur
Moskva, 4. maí — NTB: —
Opinber tilkynning hefur verið
gefin út í Moskvu, þar sem
greint er frá veikindum Frol
Kozlov, sem lengi hefur verið
talinn einn af nánustu sam-
starfsmönnum Krúsjeffs, for-
sætisráðherra. Kozlov hefur
einnig verið talinn liklegasti
arftaki Krúsjeffs.
Tilkynningin segir, að Kozl-
ov liafi ekki getað tekið þátt
í 1. maí-hátiðahöldunum,
vegna veikinda.
Brezka útvarpið skýrði frá
því í gær, að Kozlov væri tal
inn hafa fengið heilablóðfall,
og væri hann lamaður að
nokkru leyti.
Fréttamenn í Moskvu herma
að Kozlov hafi el^ki sézt op-
inberlega um nokkurra vikna
skeið. Tekið var fram í frétt
um brezka útvarpsins, að til-
kynnt hefði verið um veikindi
Kozlovs með nokkuð öðrum
hætti, en venja væri til í slík-
um tilfellum.
Kozlov er 55 ára að aldri.
i