Morgunblaðið - 05.05.1963, Side 2
2
MORCV N BT. 4 Ð1Ð
Sunnudagur 5. maí 1963
Skrílsháttur
í strætisvðgnum
SVR hefur gefizt upp á viðhaldi
biðskýla
EIRlKUR Ásjeirsson, forstjóri
Strætisvagna Rvíkur, skýrði
Morgunblaðinu svo frá í gær, að
fyrirtækið stæði ráðþrota vegna
skemmdarverka, sem framin
væru bæði í strætisvögnum og
biðskýlum. Á þremur dögum
bafa 11 sæti í 2 vögnum, sem
báðir ganga um Bústaðahverfi,
verið eyðilögð. Eru göt ýmist
skorin eða stungin á áklæði og
Akureyringar og
Keflvíkingar
keppa í dag
BÆJAKEPPNI í knattspyrnu
milli Akureyringa og Keflvík-
inga fer fram í Keflavík kl. 1.30
í dag. Þetta verður fyrsti leikur
Akureyringa á þessu keppnis-
tímabili og mun án efa marga
fýsa að sjá getu þeirra. Akur-
eyringar eru í vandræðum með
leiki að vorinu til og leita nú
hingað suður til að reyna sig.
Vantar vitni
KL. 10 í morgun var tilkynnt til
rannsóknarlögreglunnar, að ekið
hefði verið á bíl á bílastæði hjá
Egilskjöri. Bifreiðin, sem ekið
var a er fólksbíll af Renault
gerð, og var sýnilegt á um-
merkjum, að þetta muni hafa
gerzt seinni partinn í nótt eða
morgun.
Vörubifreiðastjórar, sem hafa
verið þarna á ferð um þetta
leyti eru beðnir að gefa sig
fram til rannsóknarlögreglunn-
ar, svo og vitni, sem' kunna að
geta gefið upplýsirugar.
Hafnarfjörður
NÆSXKOMANDI mánudags-
kvöld kl. 8,30 heldur Sjálfstæðis-
kvennafélagið Vorboðinn í Hafn-
arfirði fund I Sjálfstæðishúsinu.
Ræðu flytur Auður Auðuns alþm.
og síðan verða frjálsar umræður.
— Kaffi verður framreitt á fund-
inum. Félagskonur eru hvattal
til að f jölmenna.
Samkomni
Kvöldsamkomur
í Fríkirkjunni
Þær síðustu að þessu sinni,
sunnud. 5. og mánud. 6. maí.
Vannebo syngur.
Erling Moe.
Fíladelfía
Brotning Brauðsins kl. 4.
Almenn samkoma í kvöld
kL 8.30. Guðm. Markússon og
Arni Eiríksson tala.
Bræðraborgarstígur 34
Sunnudagaskóli kl. 1.00.
Almenn samkoma kl. 8.30.
Allir velkomnir.
Hjálpræðisherinn
Sunnudag kl. 11: Helgunar-
samkoma. Kaft. Otterstad tal-
ar. Kl. 2: Sunnudagaskóli.
Kl. 4: Útisamkoma. Kl. 8.30:
Hjálpræðissamkoma. — Frú
Auður Eir Vilhjálmsdóttir
cand. teol. talar.
Allir velkomnir.
það síðan rifið upp. Eirikur
'kvað furðu sæta, að farþegar
skuli ekki tilkynna vagnstjór-
unum, hvað fram fari aftur í
vögnunum, því útilokað sé, að
ekki séu vitni að einhverjum
þessara skemmdarverka.
10 biðskýli hafa verið reist í
Raykjavík og eru flest þeirra í
úthverfunum. Svo hefur farið,
að allar rúður eru brotnar í skýl-
unum svo að segja jafnóðum og
þær eru settar í og sagði Eirík-
ur að fyrirtækið sæi sér ekki
fært að halda þeim við lengur,
enda væri það aðeins sóun verð-
mæta að stilla upp rúðum, sem
skotmarki fyrir götustráka.
Fréttamaður Mbl. skoðaði í
gær 7 biðskýli og eru á hverju
þeirra 4 glugigar, en í öllum skýl-
unum voru aðeins 3 rúður ó-
brotnar. SVR fjarlægði um stund
arsakir eitt biðskýlanna, sem
einna harðast hafði orðið úti, en
þegar það var fært á sinn stað
aftur fór allt í sama horfið. íbú-
ar hverfisins höfðu þó lengi bar-
izt fyrir því að fá biðskýlið.
Tveir nýir strætisvagnar verða
teknir í notkun einhvern næstu
daga og auk þess eru 7 vagnar
komnir til landsins og er verið
að byggja yfir þá í Bílasmiðj-
unni. Þeir verða teknir I notkun
með haustinu. 52 vagnar eru nú
í eigu fyrrtækisins.
Sýning IHyndlistarskólans
VORSÝNING Myndlistasfcólans
verkum nemenda stendur nú
yfir og eru sýnd verk úr öllum
deildum skólans, málverk, högg-
myndir, teikningar ' úr fullorð-
insdeildum. Úr barnadeildum leir
vinna, föndur og teikningar.
Skólinn starfaði í 4 kvölddeild
um fyrir fullorðna. Kennarar
voru Ásmundur Svélnsson, Haf-
steinn Austmann, Hringur Jóhana
esson, Ragnar Kjartansson: Þrjú
námskeið voru haldin í bama-
deildum og 3 deildir í hverju
námskeiði. Kennari var Krist-
björg Jónsdóttir. Skólann sóttu
um 200 nemendur á vetrinum. —
Sýningin er opin kl. 2 til 10
laugardag og sunnudag.
Saksóknari krefst halds togarans
Milwood meðan máliö er í rannsókn
Eigendur bjóða bankatryggingu
fyrir værttanlegum sektum
f GÆR var haldið áfram rann-
sókn landhelgismáls skozka togar
ans Milwood í dómþingi Reykja-
víkur undir stjóm Loga Einars-
sonar yfirsakadómara.
Hallvarður Einvarðsson mætti
í dómþingi sem fulltrúi Saksókn-
ara ríkisins. Að ósk hans var les-
in upp —í dóminum bókun um
kröfu eigenda togarans frá því í
fyrradág um að togarinn verði af
hentur umboðsmanni eigenda,
Geir Zoega, Vesturgötu 10.
Hallvarður Einvarðsson óskaði
eftirfarandi bókað af hálfu Sak-
sóknara ríkisins:
„Þar sem að rannsókn málsins
stendur enn yfir og skipið er að
lögveði fyrir væntanlegri sekt og
afli ög veiðarfæri kunna að verða
Hitaveituframkvæmdir
fyrir 70-80 millj. á þessu ári
Unnib oð verkefnum um allan bæ
A F O R M eru um að hitaveitá
verði komin í öll hús í skipu-
lögðum hverfum í Reykjavík ár-
ið 1965, sem kunnugt er. Eru
þegar mikiar framkvæmdir í
gangi og áætlað að kostnaður við
framkvæmdirnar á yfirstandandi
ári verði 70—80 millj. kr. Jó-
hannes Zoega, hitaveitustjóri,
veitti í gær blaðamönnum upp-
lýsingar um þau verkefni, sem
unnið er að, en öll verkin eru
boðin út.
Lokið á þessu ári
Verkefnin sem ljúka á fyrir
næstu áramót eru:
1. Laugarneshverfi, 2. og 3. á-
fangi. Búið er með 2. áfanga,
sem nær upp að Dalbraut,
nema örfá hús, og verið að
ljúka tengingu 3. áfanga ofan
Dalbrautar.
2. Tengiæð í Borgartúni milli
Laugarneshverfis og eldra
hverfis. Þetta verkefni er nær
búið nema seinasti spottinn
á Snorrabrautinni.
3. Hlíðarhverfi, 4. og 5. áfangi.
í fyrrnefnda áfanganum er
lokið götulögn og verið að
tengja, en í 5. áfanga er unn-
ið í götulögnum. Á að vera
hægt að tengja í nýju húsin
við Hjálmholt, Vatnsholt, Ból-
staðahlíð, Stigahlíð og aust-
urenda Skipholts áður en
flutt er inn í þau.
4. Mýrarhverfi og nýtt hverfi
austan Háaleitisbrautar. —
Götulagningu er að mestu
lokið í Mýrarhverfi og byrjuð
tenging austan Kringiumýr-
arbrautar og norðan Miklu-
brautar. Á að ljúka þessu í
ágúst. Hið nýja hverfi aust-
an Háaleitisbrautar á að
tengjast við Mýra.rhverfið.
5. Aðalæð frá Kringlumýrar-
braut að Hlíðardælustöð og
dælustöð í Fornhaga. Þetta
eru aðfærsluæðar frá aðalæð
að hverfisdælustöðvunum. Er
löghinni að Eskitorgi lokið,
en eftir lögnin vestur með
Hringbrautinni hjá Háskól-
anum að Fornhaga.
6. Dælustöð í Vesturbænum við
Fornhaga, sem þegar er byrj-
að á.
7. Hagahverfi, vesturhluti. —
Verið er að ganga frá samn-
ingum um þetta verk, en ætl-
unin er að ljúka vesturhlut-
anum, vestan Fornhaga, í
sumar.
8. Jarðboranir í Reykjavík. Er
áætlað að nægilegt vatn fáist
með fyrirhuguðum borunum
á árinu til að ljúka þeim. —
Hitaveitustjóri sagði að önn-
ur og þriðja hver hola reynd-
ist við boranir góð, þ. e. a. s.
gefa yfir 15—20 sek. 1. Vatns-
magnið í bænum að óvirkjuð-
um holum meðtöldum, er nú
230 sek. 1. af 125 stiga heitu
vatni, en frá Reykjum koma
280—320 sek. L af 86 stiga
heitu vatni.
Hafið á þessu ári
Ýmis önnur verk verða hafin
á þessu ári, og efu þau öll í und-
irbúningi:
1. Byggð verður dælustöð við
Grensásveg, á gatnamótum
Suðurlandsbrautar og verður
hún fyrir öll austurhverfin.
2. Aðalæð að dælustöð við
Grensásveg og liggur hún
meðfram Suðurlandsbraut.
3. Götulagnir í Hálogalands-
hverfi, þ. e. a. s. Heimana og
hluta af Vogum. Það verk
verður boðið út bráðlega.
4. Hluti af Múlahverfi, sunnan
Suðurlandsbrautar.
5. Noklcur önnur verkefni eftir
því sem vinnumarkaður leyf-
ir, t. d. virkjun á borholum,
breytingar á keríi í gamla
bænum til að bæta úr þrýst-
ingi o. fl.
Hitaveitustjóri sagði, að vegna
þess að frost og snjóar á vetrum
gerðu oft erfitt fyrir um fram-
kvæmdir, væri aðalvinnutíminn
hjá hitaveitunni frá apríl og
fram í október-nóvember. — Þá
bættist einnig skólafólk á vinnu-
markaðinn. Ekki yrði starfsfólk
hitaveitunnar mjög vart við
skort á vinnuafli, enda væru
öll verkefni boðin út núna.
Tilboð hafa borizt frá 6 aðil-
um á rúmu ári en fjórir bjóða
stöðugt í verkefnin. Standast yf-
irleitt áætlanir verktakanna og
fara þær ekki mikið fram yfir
fyrirhugaðan tíma.
Þeir sem hafa verk á hendi
fyrir hitaveituna nú eru Vél-
tækni hf., Verk hf., Almenna
byggingarfélagið og Sandver sf.
Þá sjá tveir byggingarmeistarar
um dælustöð Vesturbæjar. Verk-
legar framkvæmdir hafa eigi
tekið að sér verk fyrir hitaveit-
una. —•
gerð upptæk er fram kominnl
kröfu -af hálfu eigenda togarans
um afhendingu hans mótmælt og
þess krafizt að rannsókn málsina
verði haldið áfram“.
Þá óskaði Gísli G. ísleifsson,
hrl. sem mættur var af hálfu eig
enda, eftirfarandi bókáð:
„Þar sem ráð virðist vera gert
fyrir því skv. 172. gr. laga nr.
82 1961, að úrskurður sé kveðinn
upp um hald á munum, er þess
krafizt að úrskurður verði kveð-
inn upp um atriðið. Jafnframt er
það tekið fram, að eigendur tog-
arans Milwood A-472 eru reiðu-
búnir til þess að setja bankatrygg
ingu eftir mati dómsins fyrir öll
um þeim greiðslum er hugsanlega
kynnu að verða dæmdar á hend-
ur John Smith skipstjóra á togar
anum Milwood A-472 gegn af-
hendingu togarans".
Eftir réttarhlé var lesin bókun
dómsins þar sem rakin er í stuttu
máli gangúr töku togarans og bók
að að togaranum verði haldið hér
meðan rannsókn fer fram þar til
öðru vísi verði ákveðið. Var i
þessu sambandi vitnað til með-
ferðar opinberra mála í bókun
dómsins.
Þessu næst óskaði Gísli G. ís-
leifsson að gerð væri eftirfarandi
bókun:
„Því er lýst yfir af hálfu eig-
enda togarans Milwood A-472 að
ekki verði kærð til Hæstáréttar
bókun dómsins um hald á togar
anum, sem gerð var í Sakadómi
Reykjavíkur í dag. Jafnframt er
þess óskað að dómurinn taki svo
fljótt, sem unnt er ákvörðun um
það, hvort eigendum togarana
verði leyft að setja bankatrygg-
ingu gegn afhendingu togarana
sbr. bókun í þinghaldi í dag“.
Er þessu hafði fram farið var
kvaddur fyrir dóminn Robert
Duff háseti af togaranum. Gaf
hann skýrslu sína, er ekki hafði
inni að halda annað nýtt en hann
hafði verið kvaddur til að vera
kyrr í togaranum að ósk Hunts
skipherra á Palliser er skipshöfn-
in yfirgaf hann. Hann vissi ekki
hvert báturinn frá Palliser hefði
farið með skipstjóra hans John
Smith. Hann ásamt Georga
Stephen háseta voru einu menn-
irnir, sem voru í Milwood allan
tímann, sem aðförin að skipinu
stóð.
Kl. 2,15 síðdegis í gær kom
George Stephen fyrir dóminn og
var skýrslu hans ekki lokið er
blaðið fór í prentun.
Samkvæmt upplýsingum Land-
helgisgæzlunnar var í athugun
í gær að skipa upp afla þeim, sem
er í lestum Milwood, en það eru
talin 13—15 tonn af fiski. Afl-
inn liggur undir skemmdum, ef
hann er látinn v^g lengur í lest-
unum.