Morgunblaðið - 05.05.1963, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 05.05.1963, Blaðsíða 12
Í2 1 M O R C rnv R r 4 Ð I Ð SunnudagnT 5. maf 1963 IttroginttMafrtfe tJtgefandi: Hf. Arvakur, Reykjavík. Framkvæmdastjóri: Sigfús Jónsson. Ritstjórar: Sigurður Bjarnason frá Vigi Matthías johannessen, Eyjólfur Konráð Jónsson. Auglýsingar: Arni Garðar Kristmsson. Útbreiðslustjóri: Sverrir Þórðarson. Ritstjórn: Aðalstræti 6. Auglýsingar og afgreiðsla: Aðalstræti 6. Sími 22480. Askriftargjald kr. 65.00 á mánuði innanlands. í lausasölu kr. 4.00 eintakió. „KOMPLEXAR “ EÐA STJÓRNMÁL Fólk Framsóknarmenn hafa val- * ið þann kost að halda á- fram þeirri stefnu, að íslend- ingum beri að rifta land- helgissamkomulaginu við Breta, og hyggjast þeir heyja þingkosningamar, sem fram- undan eru, með þessa stefnu óbreytta. Morgunblaðið benti flokksþingi Framsóknar- flokksins á, að það hefði tæki- færi til að breyta þessari stefnu. Þingið taldi ekki á- stæðu til þess, heldur skyldi hún óbreytt standa, og ber málafylgja Tímans þess glöggt merki. Hvað er það þá, sem felst í þessari stefnu? — Það er hvorki meira né minna en það, að á ný á að stofna til algerrar óvissu í landhelgis- málinu. Það á að rjúfa milli- ríkjasamning og gera íslend- inga þannig ómerka orða sinna og lítilsvirt meðal sið- aðra þjóða. Það á að stofna í voða öllu því, sem áunnizt hefur, þar á meðal viðurkenn ingu Breta á hinum þýðing- armiklu nýju grunnlínum. Þetta á að gera, þótt hinar lítilfjörlegu undanþágur Breta til veiða innan 12 míln- anná renni út eftir nokkra mánuði. Ekki getur slík stefna byggzt á því, að formælend- ur hennar telji þetta þjóðinni fyrir beztu, og naúmast í- mynda foringjar Framsóknar- flokksins sér, heldur, að þetta sé líklegt til ávinnings í kosn- ingunum. Þá er ekki önnur skýring eftir en sú, að um sé að ræða hreina „komplexa“. Allir þeir, sem lesið hafa Tímann síðustu árin, vita, að hann umhverfist í hvert skipti sem minnzt er á er- lenda menn og samskipti ís- lendinga við þá. Morgunblað- ið man ekki eftir neinni und- antekningu frá þeirri reglu nema lýsingu Þórarins Þórar- inssonar á ánægjulegri dvöl sinni í Austur-Berlín. Stöðugt er látið að því liggja, að út- lendingar sitji á svikráðum við íslendinga og hafi mestan hug á að koma sjálfstæði okk ar fyrir kattamef. Hafa Dan- ir jafnvel verið taldir í hópi slíkra undirróðursmanna. Menn með slíkt hugarfar era að sjálfsögðu ekki færir _um að stýra málefnum lands- ins, hvorki inn á við né út á við. Við höfum treyst sjálf- stæði okkar með skynsam- legri og traustri stjórn utan- ríkismála. Illt væri vissu- lega, ef breyting yrði á stjóm innanlandsmála, jafn vel og nú miðar fram á veg inn, en hitt er þó meginatrið ið, að það má aldrei henda ai' breytt verði stefnunni í ut- anríkismálum og óábyrgum mönnum falin forysta þeirra mikilvægu málefna. HUNT OG SVIKIN F'ins og Morgunblaðið skýrð: frá í gær kemur þac glöggt í ljós í skýrslu Þórar- ins Bjömssonar, skipherra, að brezki skipherrann, Nic- olas Hunt, hefur gengið á bak orða sinna, þegar hann aðstoðaði Smith skipstjóra á togaranum Milwood við að komast undan yfir í Palliser. Þessi framkoma skipherr- ans á Palliser er auðvitað al- gjörlega fordæmanleg, óg jafnvel þótt ekki hefði verið um brigðmælgi að ræða af hans hálfu er bæði hann og brezka stjómin ábyrg fyrir gerðum hans. Að vísu er ekki hægt að fullyrða, að Hunt skipherra hafi gert sér grein fyrir þvít að með því framferði að taka Smith skipstjóra um borð í Palliser veitti hann honum þá vemd brezkra laga að gegn mótmælum hans mun erfiðara um vik að fram- selja hann, en það breytir engu tun ábyrgð hans og yfir- boðara hans, brezkra stjcrn- arvalda. Það er þess vegna, sem ís- lendingar munu halda til streitu ábyrgð brezku stjórn- arinnar og krefjast aðgerða af hennar hálfu í samræmi við lög og rétt. Morgunblaðlð hefur áður lýst því yfir, að það vilji ekki að óreyndu ætla brezk- um stjórnarvóldum það, að þau aðhafist ekkert í málinu. Nú er komiö í ljós, að Hunt skipherra beitti einnig svik- um, og er þelm mun meiri á- stæða til að árétta kröfu urú aðgerðir gegn honum. Það er nú á ábyrgð brezkra stjórnarvalda, hvort mál þetta á að leiða til vandræðá í samskiptum Islendinga og Breta eða ekki. íslendingar hafa í einu og öllu staðið við samninga sína, og það er brezkra yfirvalda að sjá til þess að hægt sé að koma lög- um yfir þá, sem brotlegir hafa gerzt. RÉTT AÐ FARIÐ ¥jað leikur ekki á tveim * tungum, að rétt var að farið, þegar í lengstu lög var hlífzt við að skjóta á brezka Nelson Rockefeller er nú kom- inn í giftingarhugleiðingar og fregnir herma að hann hyggist ganga í hjónaband í næsta mán- uði. Frá því hann skildi við konu sína fyrir rúmu ári eftir þrjátíu ára hjónaband hefur hann verið orðaður við fleiri en eina, og á tímabili héldu menn hann myndi kvænast kvikmyndaleikkonunni Grawford. En Rookefeller er snar í sún- ingum. Sá orðrómur gengur að hann sé í þann veginn að kvæn- ast fráskildri konu, Margaretta Fitley Murphy, sem er 35 ára gömul og fjögurra barna móðir. Sjálfur á Rockefeller fimm börn. Frú Murphy skildi við mann sinn í marz-mánuði s.l., eftir 11 ára hjúskap. Rockefeller hefur ekkert gefið upp um hjúskaparfyrirætianir sínar, aðeins brosað breiðu brosi, þegar fréttamenn hafa spurt hann um þær. — Og nú velta menn því fyrir sér vestra, hvort gifting hans verði til þess að ~ fréttunum hann á að fagna hjá bandarisku þjóðinni. hann verði ekki í næsta forseta- kjöri, en eins og sakir standa er hann líklegasta forsetaefni repúblikana í kosningunum 1964. Menn spáðu honum ó- farnaði, þegar hann skiidi við konu sína, en sá atburður hefur ekki skert þær vinsældir, sem Sonur Birgittu Svíaprinsessu og Jóhanns Georgs, prins af Hoih- enzollem, var ársgamall nú á dögunum. f>au hjónin dvelja nú í Monaco, þar sem Jóhann Georg er að fullnuma sig í arkitektúr. Drengur þeirra, Kristján, er mesti tápdrengur og mikiljl1 fyrir sér. Á afmælisdaginn fékk hann gríðarstóra afmæiistertu með einu kerti. Hann sýndi tertunni engan áhuga og grét, þegar hann átti að fara að borða þana. En allt í einu, áður en nokkur fékik rönd við reist, rak hann hönd- ina á kaf í tertuna og makaði rjómanum framan í sig. Þá breytt ist gráturinn í hlátur. Meðfylgj- andi mynd er tekin aí Kristjani meðan hann snæðir afmælistert- Og þá er það Eddi Fisher, hinn kokkálaði eiginmaður Elísa- betar .Taylors. Það hefur verið heldur hljótt um hann síðustu mánuðina, eða frá þvi hann og Liz slitu samvisitum. Upp á síðkastið hefur hann grunsamlega oft sézt á skemmti- stöðum með ungri sænskri leik- konu, Ann Margret, sem vakti athygli fyrir leik sinn í kvik- myndinni „Bye, bye, bird“. Þau voru á dansleik í Beverly Hills fyrir nokkrum dögum og þá var þessi inynd tékin. Þá ljóstruðú þau því upp, að þau hefðu fund- ið „stóru“ ástina. ★ 22 taugaóstyrkir unglingar tóku próf við konunglega leik- húsið ' í Kaupmannahöfn seint í apríl. Aðeins þrír, þeirra náðu prófi, meðal þeirra var Lena Tiemroth, sem er 19 ára göm- ul. Tiemroth-nafnið kemur okkur íslendingum kunnuglega fyrir sjónir. Lena Tiemroth er dóttir Edvin Tiemroth, eins þekktasta leikstjóra Dana, en hann setti á svið Hamlet i Iðnó fyrir nokkr- um árum. Móðir hennar er einn- ig kunnur leikstjóri í Danmörku Lena Tiemroth í skátastúlkuhlut- verki í revýu Clara Östö, hefur m.a. starfað mikið við danska sjónvarpið. Þess má geta, að Lárus Páls- ■son, leikari og Tiemroth voru saman á leikskóla 1 Danmörku á sínum tíma og eru góðir vin- ir, og er Lárus guðfaðir Lenu. togarann Milwood. Slíkar að- gerðir hefðu að líkindum kostað líkamsmeiðingar eða manndráp, því að Smith skip stjóri var augsjáanlega í þeim ham, að slík átök hefðu orðið illvíg. Ef togarinn Milwood hefði verið að sleppa frá Oðni hefðu málin að sjálfsögðu horft öðru vísi við. En spurn- ingin sem yfirmenn land- helgisgæzlunnar urðu að svara var á þessa leið: A að eyðileggja eignir eða stofna mannslífum í bráða hættu vegna þess að ekki er hægt að bíða? Þeirri spurningu svaraði landhelgisgæzlan réttilega neitandi. Spurning- unni um það hinsvegar, hvort ætti að láta togarann sleppa, hefði án efa verið svarað þannig, að það komi ekki til greina. En þá lá líka ljóst fyrir að engra annarra kosta var völ en að beita föstu skoti. Annars er það kátlegt að kommúnistar skulj nú heimta aukinn vopnabúnað land- helgisgæzlunnar. Fram að þessu hafa þeir haldið því fram, að íslendingar ættu sem minnst að koma nálægt vígbúnaði og vopnaburði og yfirleitt ekki verið neitt sér- lega hrifnir af því að land helgisgæzlan væri efld.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.