Morgunblaðið - 05.05.1963, Side 23

Morgunblaðið - 05.05.1963, Side 23
Sunmidagur 5. maf 1963 m n r c r n n r4 r> 1 ð 23 Tryggvi Sigurðsson frá þlngeyri — Kveðja TRYGGVI Sigurðsson frá Þing- eyri verður jarðsunginn á morg- un frá Fossvogskapellu. Hann vaknaði að vanda árla til starfa sinna laugardaginn 27. apríl. >á er hann hafði unnið um hríð, fór hann upp í íbúð sína, og varð þá ekki séð, að hann kenndi sér meins. En eftir nokkrar mínút- lu- var hanm látinn. Tryggvi var fæddur á Þing- eyri í Dýrafirði, 6. ágúst árið 1913. Sigurður faðir hans, er enn á lífi og furðu ern og reifur. Hann er sonur Jóhannesar Ólafssonar frá Haukadal í Dýrafirði, en hann var lengi hreppstjóri og mestur ráðamaður í Þingeyrarhreppi og fyrsti alþingismaður Vestur-ísa- fjarðarsýslu eftir að hún var gerð að sérstöku kjördæmi. Sigurður stundaði sjómennsku, en hafði vökulan áhuga á almenmim mál- um og gerðist forystumaður í hagsmunamálum verkafólks og sjómanna í sveit sinni. Kona hans og móðir Tryggva var Sigurbjörg Einarsdóttir úr Reykjavík, mikil kona og móðir. Þau Sigurður áttu mörg börn, og var stundum ærið erfiður róðurinn fyrir afkomunni, en börn þeirra, sem upp komust og héldu heilsu, urðu myndar- legt fólk og dugandi. Sigurbjörg er látin fyrir allmörgum árum. Tryggvi var snemma fjörmikill og kappsamur, jafnt til vinnu sem leikja. Eins og flestir piltar í fjörð um vestur fór hann á sjóinn strax að lokinni fermingu, var fyrst á vélbátum og síðan togur um. Hann var allt í senn: lagvirk ur, hraðhentur, kappsamur við verk og öruggur til harðræða. Hann tók fiskiskipstjórapróf I Sjómannaskólanum árið 1938, varð fljótt stýrimaður á vélbát- um og tógurum og síðan skip- stjóri. Einkuin á síldveiðum. En haustið 1953 var heilsa hans tek in að bila, og varð hann að hætta sjómennsku, þótt ekki væri hon um það að skapi. Tryggvi kvæntist árið 1940 Jósefínu Kristjánsdóttur frá Móa- búð í Grundarfirði. Hún er af fólki vestur þar, sem hefur verið með afbrigðum tápmikið, duglegt og vel verki farið, og sjálf hefur hún hlotið drjúgan skerf þessara kosta. Þau Tryggvi hafa ávallt verið með fágætum samhent, og þó að hann bilaði á heilsu fertug ur, kenndl einskis víls hjá þeim hjónum. Þau höfðu árið 1952 kom ið sér upp húsi í Melgerði 15, og nú tók Tryggvi að stunda heima hjá sér netabætingar. Hann kunni vel til verka og var sam- vizkusamur og orðheldinn, og hlóðust nú á hann störf, sem hann sinnti af slíku kappi, að eftir fá ár hafði hann ofboðið heilsu sinni eins og á sjónum. En þau hjón dóu ekki ráðalaus. Þau seldu húsið í Melgerði og reistu annað miklum mun stærra í Búða gerði 9. Og nú tóku þau að stunda verzlun. Þau sinntu þeirri at- vinnu af dugnaði og árvekni og farnaðist með ágætum, enda var ekki ráð ráðið, nema bæði stæðu þau þar að, og að sama skapi var samstarfið. Nú skyldu menn ætla, að slík- ar manneskjur hefðu verið mjög aðsjálar og naumar á fé. En það hefur reynzt síður en svo. Þau hafa verið sérlega greiðvikin og gestrisni þeirra frábær. Það hef ur verið þeim sönn gleði að rétta öðrum hjálparhönd, og gestum hafa þau kunnað að fagna fágæt- lega vel, hafa verið um þetta jafnsamhent og um baráttuna fyr ir afkomunni og þær framkvæmd ir, sem þau hafa haft með hönd- um. um við þau kunningsskap, er hófst vorið 1949, og síðan urðum við vinir þeirra, höfum oft til þeirra komið og aldrei nema okk ur til sannrar ánægju. Börn þeirra hjóna eru tvö, Kristín, hárgreiðslukona, gift Þorsteini Þórðarsyni verzlunar- manni, og Jóhannes, sem stundar nám í Verzlunarskólanum. Með Tryggva Sigurðssyni er horfinn maður, sem mikil eftir- sjá er að. En hans er gott að minnast — meðal annars fyrir þær sakir, að heilsa hans bilaði ekki vegna bílífis, heldur af því, að kapp hans og samvizkusemi við störfin, hvort sem var á sjó eða landi, var meiri en hreysti hans þoldi. Menn geta sannar- lega hlotið stórum lakara hlut- skipti en að falla í valinn fyrir aldur fram sakir þess, að þeir kunni ekki að hJífa sér. Meðan það hendir marga íslendinga, hver sem er vettvangur starfs þeirra, ætti þjóðin ekki að þurfa að kvíða, hvorki um afkomu sína né menningu. Guðmundur Gíslason Hagalín. I.O.G.T — Hitaveituhréf Framhald af bls 24. Greiðslustaður vaxta og skuldabréfa er hjá borgar- gjaldkeranum í Reykjavík. Við innlausn bx'éfanna skal afhenda alla vaxtamiða, sem eru fallnir í gjalddaga og bréfunum eiga að fylgja. 4. Borgarstjórninni er heimilt hvenær sem er á lánstím- bilinu, að greiða lánið að fullu eða hluta þess, á hvaða gjalddaga vaxta og afborg- ana sem er, enda verði slíkt tilkynnt í Lögbirtinga- blaðinu, minnst sex mán- uðum fyrir gjalddaga. Til tryggingar láninu eru eignir Reykjavíkurborgar. — Bilainnflutningur Frh. af bls. 24. ið eitt meiri en hann hafði verið næsta árið eitt fyrir valdatöku bennar. Þegar eftir uppgjöf vinstri stjórnarinnar í árslok 1958 eykst innflutningurinn svo að nýju, og algjör þáttaskil verða á árinu 1961, þegar efnahagsmálastefna Viðreisnarstj órnarinnar gerir unnt að gefa innflutninginn frjálsan. Og það er ekki aðeins, að fjöldi innfluttra bifreiða hafi stóraukizt, heldur geta menn nú einnig flutt inn bifreiðar hvað an sem þeir vilja, í stað þess, að áður var innflutningurinn að mestu bundinn við ákveðin lönd — og þá þau lönd, sem menn sízt vildu skipta við. Þetta er aðeins eitt dænii af fjölmörgum um hinn þýðingar- mikla árangur viðreisnairáðstaf- ana núverandi ríkisstjórnar og þingmeirihluta. Þeir munu sjálf- eagt ekki margir, sem nú mundu vilja hverfa aftur til stjórnar- hátta haftastefnunnar og nefnda valdsins, með því óréttlæti- og ófrelsi, er þeim fylgd.u. Tryggvi var maður vel greind- ur og mjög athugull, einarður, hreinskilinn og hispurslaus, ör í skapi, en drengur góður og sér lega trygglyndur. Hann var manna glaðastur í hópi góðra vina og kunningja, skopskyggn og gamansamur, sagði vel frá og hafði yndi af lit- og lífríkum frá- sögnum. Og kona hans er svo skapi farin, að. sízt spillir hún gleði gesta sinna. Við hjónin höf Barnastúkan Æskan nr. 1 Mætum öll í dag kl. 2. Gæzlumenn. Hafnarfjörður St. Morgunstjaman nr. 11 Fundur mánudagskvöld kl. 8.30. St. Einingin úr Reykja- vík heimsækir. Félagslál England Gott tækifæri til að full- komna sig í ensku, gefst ungri stúlku að dvelja á góðu heimili í háskólabænum Leeds. Frítt fæði og húsnæði ásamt vasapeningum, gegn lítxlsháttar húshjálp með hús- móðurinni. Upplýsingar í sima' 16566. SkemmtiatriðL Kaffidrykkja. Fjölmennið — Æt. St. Víkingur nr. 104 Fundur mánud. kl. 8% e.h. Venjuleg fundarstörf. Eftir fund verður sameiginleg kaffi drykkja í tilefni merkis- afmæla Guðgeirs Jónssonar, Halldórs Pálssonar og Axels Clausen. iVIætið vel. Stúkan Framtíðin nr. 173 heldur fund annað kvöld (mánudag). Æt. KROSSVIÐUR Nýkominn finnskur birkikrossviður 3 — 4 — 5 og 12 mm. Einnig fyrirliggjandi: Furukrossviður 4 mm. UKOLA krossviður 4—5 mm í hurðarstærðum. Harðtex 4x8 fet. LUDVIG STORR Sími 1-33-33. feMHI TOMAS HALLGRIMSSON hreppstjóri, frá Grímsstöðum, Álftaneshreppi, andaðist á Landsspítal- anum 3. maí. Útförin verður ákveðin síðar. Systkinin og fóstursystkin. Robeson afneitar kommúnisma segir Parisarblaðib „Le Figaro" PARÍSARBLAÐIÐ „Le Fig- aro“ skýrði frá því á fimmtu- dag, að bandaríski negra- söngvarinn Poul Robeson hafi sagt skilið við kommún- ismann. Hefur blaðið það eft- ir söngvaranum, að hann hafi orðið var við mim hættu legri kúgun í Sovétríkjunum, en í nokkru öðru landi. Sú kúgun sé fyrst og fremst hættuleg, vegna þess, að hún sé framkvæmd 1 nafni frelsis- ins. - „Le Figaro“ skýrði enn frem- ur frá því, að Robeson sé farinn til Bandaríkjanna, og sé hann nú „niðurbrotinn, gamall mað- ur“. Sagði blaðið, að Robeson hafi trúað á kommúnsmann, eins og hann sé framkvæmdur í Sovétríkjunum. Hann hafd fórnað ættjörð sinni og frægð fyrir þá trú. Hins vegar hafi hann komizt að því, að hann hafi orðið fórnardýr „stórkost- legrar blekkingar". Hefur bíað- ið þessar setningar eftir Robe- son, orðrétt: „Ég var um langt skeið full- viss þess, að þjóðarbrot nytu fullkomins frelsis í Sovétríkjun- um, en ég komst að því, að þetta er ekki satt. Gyðingar, Armeníu- menn og þjóðarbrot frá Balkan- löndunum verða að vísu ekki fyrir líkamlegu ofbeldi. Þetta fólk er heldur ekki neitt til þess að sækja önnur veitingahús en venjulegir Sovétborgarar, en það er neytt til þess að taka upp sovézka lifnaðarhætti. Fólkinu var gert ljóst, að menning þess var álitin standa sovézkri menn- ingu að baki. Einu rithöfundarn- ir, sem eru nokkurs virði, séu þeir sovézku. Vestræn list er tal- in úrkynjuð og vestræn hljómlist sömuleiðis. Ég varð fyrir von- brigðum, þar sem ég komst að raun um þá kúgun, sem er hættu legri en öll önnur, af því að henni er beitt í nafni írelsis- ins“. Poul Robeson er fæddur 1898, en varð frægur 1925, fyrir söng sinn. Hann hefur leikið í mörg- um, frægum bandarískum söng- leikjum. tttd ÖMBDÐIÐ KR. KRISTJÁNSSON H.F SUDURLANDSBRAUT 2 v S.iMI 3 53 00

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.