Morgunblaðið - 22.05.1963, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 22.05.1963, Blaðsíða 3
Miðvikudagur 22. maí 1963 M on CT’ \ R r. 4 ÐIO 3 KL.. 5 í dag efnrr Signrður Benediktsson til málverkaupp boðs í Þjóðleikbúskjallaran- um. Einnig verða boðnir upp silfurmunir, postulín og fleiri gripir. Á skránni eru 33 mál- verk og 26 aðrir listmunir. 15 málverkanna eru eftir Kjar- val. Sigurður Benediktsson Jóhannes S. 115x145 cm.). Kjarval: Ur Kárastaðanesi. (Olía á léreft t Verömætasta safn listaverka skýrði Morgunblaðinu svo frá í gær, að hann hafi aldrei áður haft eins mörg verðmæt listaverk að bjóða eins og á þessu uppboði. Kvað hann eina Kjarvalsmyndina, „Úr Kárastaðanesi", þá beztu, sem hann hefði haft á uppboði, og sagðist þó minnugur marga góðra listaverka eftir. hann, t. d. „Við Korpu“, sem einnig verður á uppboðinu í dag. Þessar tvær myndir ásamt „Úr Þingvallahrauni“, eftir Ás- grím Jónsson, og „Súlum“, eft ir Jón Stefánsson, bjóst Sigurð ur við að færu á geysiháu verði og einhverjar þeirra áreiðanlega á metverði. Hæst hafa málverk verið slegin á 40 þúsund krónur hjá Sigurði (eftir Ásgrím Jónsson og Þór- arin B. Þorláksson). Fjögur málverk eftir Gunn- laug Blöndal verða á upp- boðinu, m.. a. ein konumynd, en síðasta konumynd Blön- dals, sem boðin var upp, fór á 31 þús. kr. Einnig er ein blómamynd eftir Kristínu Jónsdóttur. Síðasta mynd hennar á uppboði fór á 21 þús. kr. og kvað Sigurður verk hennar hafa u.þ.b. fjórfaldast í verði á síðustu árum. Kjarvalsmyndirnar eru 15 talsins, og eru 11 þeirra í eigu listamannsins sjálfs. Af öðrum munum ber helzt að telja 6 manna mokkasett sem boðið hefur verið upp hér, segir Sigurður Benediktsson úr Royal Worcester postulíni, lögðu gulli. Sagði Sigurður, að Worcester postulín væri hið verðmætasta í heimi, og vildu t. d. þjóðhöfðingjar gefa sér- stakar virðingargjafir, yrði það oft fyrir valinu. Hann kvaðst hafa séð það á upp- boði erlendis, er gömul, brotin og sprengd mjólkurkanna úr Worcester postulíni var slegin á 1680 sterlingspund (kr. 191.600). Meðal munanna er rauðvíns kanna, sem Matthías Jochums son, skáld átti, og fylgir sú saga, að hann hafi unnið hana í skotkeppni á skólaárunum. Einnig er silfurbúinn rýtingur með áletruninni: „Betri er rýt ingur ofbeldismannsins en tunga rógberans". Ásgrímur Jónsson: Úr Þingvallahrauni. (80x100 cm.). Utank|urstaðakosning UTANKJÖRSTAÐAKOSNING er nú hafin. Þeir sem ekki verða heima á kjördegi geta kosið hjá sýslumönnum, bæjarfógetum og hreppstjórum og í Reykjavík hjá borgarfógeta. Erlendis er hægt að kjósa hjá íslenzkum sendiráðum og ræðis- mönnum sem tala íslenzku. Listi Sjálfstæðisflokksins er D-listi —•— Kosningaskrifstofa borgarfógeta í Reykjavík er í Melaskólan- um. Skrifstofan er opin sem hér segir: alla virka daga kl. 10—12, 2—6, 8—10, sunnudaga kl. 2—6 Kosningaskrifstofa Sjálfstæðisflokksins er í Valhöli við Suðurgötu, veitir hún allar upplýsingar og að- stoð í sambandi við utankjörstaðaatkvæðagreiðslu. — Upplýsingar um kjörskrárkærur eru veittar á sama stað. --«---- Stuðningsfólk Sjálfstæðisflokksins er beðið að gefa skrifstof- unni upplýsingar um fólk sem verður fjarverandi á kjördegi, inn- anlands og utanlands. --•---- Símar skrifstofunnar eru 23118 og 22136. — Viðreisnin Framh. af bls. 16. af þessum sökum jafnvel enn betri en tölurnar í yfirlitinu hér að framan benda til, því að mjög mikil birgðaaukning hefur orðið í landinu á undanförnum 3 ár- um, og mun ekki ofmælt, að birgðaaukningin svari til vöru kaupalánanna. Þegar málgögn og málsvarar andstöðuflokkanna bera saman stöðu landsins út á við, annars vegar nú og hins vegar í lok vinstri stjórnar tímabilsins miða þeir ætíð við árið 1958 og segja, að erlendar skuldir um- fram innstæður séu jafnmiklar nú og þá var. Þessi fullyrðing er nærri lagi, en hún skiptir ekki máli í sambandi við sam- anburð á viðreisnarstefnunni og vinstri stefnunni. Þegar bera á saman þessar tvær stefnur, verður auðvitað að miða við skuldaaukninguna á hvoru tímabilinu um sig, við- reisnartímabilinu og tímabilinu fram til 1960, þegar horfið var frá vinstri stefnunni. Allt stjórnartímabil vinstri stjórnarinnar fcru erlendar skuldir þjóðarinnar umfram inn stæður sífellt hækkandi, en eft- ir að viðreisnarráðstafanirnar fóru að segja til sín, hafa. þær farið sílækkandi. Það eru þessar grundvallar- staðreyndir, sem taka verður til- lit til. Það eru þær, sem sýna þann meginmun, sem er á hinum tveim stefnum, viðreisnarstefn- unni og vinstri stefnunni. Jón Stefánsson: Súlur. (51x63 cm.). Enn barizt í Laos Viantiane, 21. maí — NTB. Frá því er skýrt í fréttum frá Vientiane í dag, að enn geisi miklir bardagar á Krukkusléttu í Laos. Hafa harðir bardagar Verið þar undanfarna daga. Bardagarnir standa milli her- liða kommúnista, Patet, og her- liða hlutlausra, undir stjórn Kong Le. í stjórnaryfirlýsingu, sem gef- In var út í Vientiane í dag, segir ennfremur, að Patet Lao hafi nú borizt allmikill liðsauki. (Ekki er greint hvaðan). Eru norðan- menn sagðir búnir góðum vopn- um. í gær lýsti forsætisráðherrann, Souvanna Phouma, foringi hlut- lausra, því yfir, að hann væri þess reiðubúinn, hvenær sem er, að ræða við leiðtoga Patet Lao, og leita lausnar á deilumálunum. Kommúnistar halda því fram, að Bandaríkjamenn hafi tekið í sína þjónustu glæpamenn og ó- aldarlýð, í þeim tilgangi, að seil- ast til yfirráða í landinu. Því hafi orðið að grípa til vopna á nýjan leik. Framsókn vildi kaupbind- ingu og verkfalfsbann í 2 ár ALÞÝÐUBLAÐIÐ birtir í gær frumvarp Framsóknarflokks- ins að nýrri vinnulöggjöf, sem flokkurinn lagði fram í vinstri stjórninni árið 1957. Kemur þar m.a. fram, að flokkurinn vildi þá lögbinda verkfalls- bann og kaupbindingu í 2 ár. í frétt Alþýðublaðsins segir m.a.: „Stærsta atriði þessa fram- sóknarfrumvarps er þó í 15. grein þess, en hún hljóðar svo: „Aftan við lögin bætist á- kvæði til bráðabirgða svo- hljóðandi: Allir gildandi kjara samningar skulu framlengj- ast til 1. nóvember 1959.“ Samkvæmt þessu var það meining Framsóknarflokksins haustið 1957 að láta Alþingi lögfesta það, að allt kaupgjald yrði óbreytt til haustsins 1959. Verkalýðsfélögin áttu ekki einu sinni að fá að endur- skoða samninga sina áður en kaupbindingu yrði skellt á Það átti þegjandi og hijóða- laust að lögfesta alla gildandi kaup- og kjarasamninga í 2 ár, en það hefði að sjálfsögðu þýtt verkfallsbann á sama tíma. Þannig var hugur fram- sóknar til verkalýðsins haust- ið 1957“. Frumvarp þetta var samið af þriggja manna nefnd, sem starfaði á vegum Framsóknar- flokksins 1957. Skilaði hún á- liti sínu 11. nóvember það ár. í nefndinni áttu sæti þessir menn: Karl Kristjánsson, al- þingismaður, Vilhjálmur Jóns son, lögfræðingur og Svein- björn Dagfinnsson, lögfræð- ingur. Það hlýtur að vekja nokkra eftirtekt, að Karl Kristjáns- son móðuharðindaþingmaður framsóknar er meðal höfunda þessara verkfalls- og kaup- bindingafrumvarps Framsókn arflokksins. Svo sem kunnugt er, var hann meðal þeirra leiðtoga Framsóknarflokksins, sem hvað harðast gekk fram í svikasamningum SÍS og kommúnista sumarið 1961 um stórkostlega hækkun alls kaupgjalds i landinu, sem leiddi til gengisfellingarinnar á því ári. Það virðist því vera skammt öfganna á milli hjá þessum framsóknarþingmanni, eins og þeim reyndar fleirum. Þegar Framsóknarflokkur- inn situr í ríkisstjórn vill flokkurinn láta banna hinar minnstu kauphækkanir og verkföll sneð lögum. Þegar Framsóknarflokkur- inn er hins vegar utan ríkis- stjórnar, þá beitir hann sér fyrir langvinnum verkföllum og svo stórkostlegum kaup- hækkunum, að atvinnulífið fær með engu móti undir þeim risið!

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.