Morgunblaðið - 22.05.1963, Qupperneq 6

Morgunblaðið - 22.05.1963, Qupperneq 6
0 M O R C l'TS Ji T 4 Ð 1 Ð MiSvikudagur 22. maí 1963 Fjárhagsgrundvöll- ur leiklístarstarf- semi áhugamanna MENNTAMÁLAP.ÁÐHERRA Gylfi Þ. Gíslason boðaði til fund- ar i Reykjavík dagana 16. og 17. maí um leikhúsmál. Sátu fund- inn fyrst og fremst fulltrúar leik- félaga víðsvegar að af landinu. Aðalverkefnin voru annars veg- ar að ræða skiptingu fjárveiting- ar í fjárlögum fyrir árið 1963 milli hinna ýmsu leikfólaga, en Alþingi hafði falið menntamála- ráðuneytinu það verk, og hins vegar að ræða almennt um fjár- hagsgrundvöll leiklistarstarfsemi áhugamanna í landinu og sam- starf leikfélaga við Þjóðleikhús og Ríkisútvarp. Fyrir hádegi fyrri fundardaginn fóru fram almennar umræður, en eftir há- degi störfuðu fimm nefndir, sem hver um sig skilaði áliti. Síðari daginn fóru fram almennar um- ræður, og var einróma samþykkt ályktun um eftirgreind atriði: ■■t 1) að æskilegt sé, að sett verði löggjöf um fjárhagslegan stuðn- ing við leiklistarstarfsemi, 2) að menntamálaráðuneytið komi á fót nefnd, sem í sambandi við undirbúning fjárlagafrum- varps hverju sinni geri tillögur um styrki til leikfélaga og Banda lags þeirra, 3 að fjárveitingar séu öðru fremur við það miðaðar, að fé- lögum, sem leikstarfsemi hafa með höndum, sé gert kleift að afla sér aðstoðar við leikstjórn og tæknileg atriði, þegar þau taka erfið verkefni til meðferð- ar, t. d. á þann hátt, að ráðu- neytið launaði leikstjóra, sem félögin fái til starfa án þess að þau þurfi að greiða annað en ferða- og dvalarkostnað, en þau félög, sem ekki gætu notið að- stoðar hinna föstu leikstjóra, fengju greidda af opinberri hálfu t. d. % hluta af launum þeirra leikstjóra, sem þau sjálf réðu, 4) að veitt verði fé til þess að verðlauna ný íslenzk leikrit og Síld og humar Akranesi, 20. maí. Austan stormur var á miðum í nótt og komu inn hinir fáu síldar bátar, sem úti voru í gær. Skipa- skagi einn fékk síld í gærkvöldi, 445 tunnur. Á sunnudagsmorgun lönduðu Sveinn Guðmundsson (250 tunnum) og Sigurfari 100 tunnum. Humarbátarnir lönduðu í morg un, Fram 3.7 tonn, Ásbjörn 3.8 tonn og Ásmundur 5.5 tonnum. Anna ein á þorskanet í sjó, og er í róðri í dag. — Oddur. Kemur hljóm- sveitarstjóri? Ámi Kristjánsson, tónlistar- stjóri Ríkisútvarpsins, dvelst nú vestur í Bandariikjunum, en þaingað var honum boðið til um tveggja mánaða dvalar. Hingað aftur er hann væntanlegur 3. júní Kynnir hann sér bandarískt tón- listarlíf. Um leið kannar hann möguleika á >ví að ráða hingað bandarískan hljómsveitarstjóra handa Sinifóníuhljómsveit ís- landis. einnig þýðingar erlendra leikrita á íslenzku, sem m. a. séu sér- staklega miðuð við áhugamanna- leikhús, enda hafi sérstök dóm- nefnd fjallað um málið, 5) að veitt verði fé til þess sérstaklega að styrkja sýningar barnaleikrita, 6) að komið verði á fót bún- inga-, leiktjalda- og leikmuna- safni til afnota fyrir leikfélög. Safnið hafi í þjónustu sinni leik- tjalda- og búningateiknara. Mál þetta verði undirbúið af nefnd, skipaðri einum fulltrúa frá hverjum þessara aðila: Þjóðleik- húsinu, Leikfélagi Reykjavíkur og Bandalagi íslenzkra leikfé- 1: ga, 7) að gera fjárhaglega kleift að auka leikritaútgáfu í landinu, 8) að fulltrúa fyrir leiklistar- starfsemi verði bætt í stjórn fé- lagsheimilasjóðs, 9) að athugaðir verði mögu- leikar á því, að leikfélög úti um land, sem tök hefðu á að flytja útvarpsleikrit, fengju aðstöðu til þess, 10) að leiikfélögin fái betri að- stöðu til leikritavals en verið hefur, 11) að athugandi sé að fela sérstökum leiklistarfulltrúa að annast um samskipti ríkis og leikfélaga, 12) að ríkisvaldið stuðli að því að efla leiklistarfræðslu og leik- 0j Eysteinn^ af hYerju viltu endilejd alltafveraí hafta- skömmtunar’leik ? listaráhuga í skólum, sérstaklega í hinu frjálsa félagsstarfi skóla, 13) að leiklistarkynning yrði rík ari þáttur í „listkynningu í skól- um“ en nú er, — 14) að séð verði fyrir fjár- mununum til þess að hlaupa und ir bagga með leikfélögum, sem kunna að verða fyrir fjárhags- legum áföllum við sýning dýrra og vandasamra verkefna. (Frá Menntamálaráðunaytinu). Alvarleg slagsmál Vínarborg, 14. maí. — NTB — ÞÆR fregnir bárust til Vínar í dag, að til alvarlegra götuslags- mála hefði komið í Prag síðast- liðinn laugardag milli afrík- anskra stúdenta og tékkneskra ungmenna. Hafi átök þessi stað- ið yfir í rúman stundarfjórðung. Áttust við nokkrir Afríkumenn og um það bil 300 tékkneskir. Nokkrir Afríkumannanna munu, hafa særzt illilega. Fregn þessi er höfð eftir nokkrum ferðamönnum, sem komu frá Prag í gær. Segja þeir, að lögregla hafi ekki blandað sér í þessi átök. Hins vegar hafi hún komið á vettvang er til slags mála kom milli þriggja ungra Tékka og tveggja afrískra stud- enta fyrir utan Hótel Ambassa- dor í Prag. Hafði ónafngreindur afrískur sendiráðsstarfsmaður komið þar að í bifreið sinni og reynt að stilla til friðar. Áður en lögregla greip í taumana höfðu Tékkarnir eyðilagt hjól- in undir bíl Afríkumannsins. Að sögn sjónarvotta fengu Tékkarnir þrír rækilega að kenna á hnefum lögreglumann- • Bréfaruslið á götunum „Vesturbæingur skrifar: „Fyrirskipanir um lóðahreins un eru birtar á vorin í blöðum og útvarpi, og auk þess mæl- ast blöðin til þess við og við, að fólk fleygi ekki bréfarusli á göturnar. Þó er alls staðar fullt af bréf- um og alls konar umbúðum. Ekki er kannske að undra, þótt smákrakkar fleygi slíku á göt- urnar, en þó dettur manni í hug, að væri brýnt fyrir þeim á heimilunum að gera það ekki, mundu mörg þeirra hlýða því. „En það eru ekki allar syndir guði að kenna.“ Ég hefi t.d. margoft horft á hópa af stórum strákum úr skóla hér vestur- frá, sem skreppa i frítíma upp í búðir og koma svo æðandi eftir miðri götunni með mjólk- urhyrnur í annarri hendi, en einhvern brauðmat í pappír í hinni. Svo þegar búið er að láta innihaldið ofan í sig, er umbúðunum fleygt á götuna. Hyrnurnar eru áberandi vegna litskrúðsins. Einu sinni taldi ég 20—30 á bletti á götunni. Mér datt í hug, hvort piltarnir hefðu verið í tíma í umgengni. Þetta bréfarusl kemur víða að, þegar hvessir, sem auðvit- að stafar af því, að því er sleppt lausu, en ekki sett í sorpílátin. Sunnudagsmorgun einn fyrir skömmu var austurhluti Aust- urstræti alþakinn pappírsrusli, sem fauk þar um allt í storm- inum. Hvaðan kom það? Stund um missa krakkar, sem bera út blöð, eitthvað af þeim á götuna, en er það ekki af því að illa sé um búið? Orsakirnar eru víst margar, en bréfaruslið í bænum er bæði óþrifalegt og leiðinlegt, og ættu blöðin að reyna að skapa sterkt almenningsálit til varnar þess- um ófögnuði. — Vesturbæing- ur.“ Velvakandi er „Vesturbæ- ingi“ sammála um það, að aldrei verður að gagni komið í veg fyrir rusl á götunum, fyrr en skapað hefur verið sterkt almenningsálit. í sumum borg- um erlendis þykir það slík goð- gá að kasta rusli á götur, að vegfarendur áminna sóðann og hika ekki við að kalla á lög- regluþjóna, sem geta sektað hann á staðnum. Hér hefur á- standið batnað, en til skamms tíma hafa sorpílát í ljósastaur- um verið skemmd jafnharðan af næturfuglum, sem þurfa að reyna krafta sína á einhverju. • Himnastrompurinn Fýlubani Vegna tíðra skrifa í dálkum Velvakanda um lyktina, sem lagt hefur frá Síldar og fiski- mjölsverksmiðjunni á Kletti við Köllunarklettsveg, þykir Vel- vakanda hlýða að birta hér mynd af smíði strompsins mikla, sem á að eyða allri. ó- lykt. Myndina tók Sveinn Þor- móðsson síðastliðinn sunnudag. Var Fýlubani þá orðinn 36—37 metra hár, en fullsmíðaður verður hann 70 metra hár. Kostnaður við hann verður ekki undir tveimur milljónum króna, svo að hið fíngerða lyktarskyn Reykvíkinga verð- ur verksmiðjunni dýrt. Stromp- urinn hækkar um þrjá metra á sólarhring, svo að þegar þetta birtist verður hann orðinn um níu metrum hærri. Stigi liggur upp í turninn, sem tiltölulega auðvelt á að vera að klífa, og efst verður pallur með hand- riði, svo að ólofthræddir Reyk- víkingar geta skoðað borgina úr 70 metra hæð, þegar stromp- urinn verður fullgerður. % ^ COPEMHAGtH AEG Raftæki Útsölustaðir: Verzl. Stapafell, Keflavik. Verzl. Staðarfell, Akranesi. Kjartan R. Guðmundsson, ísafirði. Elís Guðnason, Eskifirði. Verzlunarfélag Austurlands, Egilsstöðum. Leifur Haraldsson, Seyðisfirði.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.