Morgunblaðið - 22.05.1963, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 22.05.1963, Blaðsíða 9
Miðvíkuctagur 22. maí 1963 M O R C V V B r. 4 n 1 o 9 Bjarni Benediktsson, dóms málaiáíherra: Kokhreysti leiöir til undan VIÐ fáa menn er íslenzka þjóð- in í meiri þakkarskuld en gæzlu- menn landhelginnar. Mestur vandi var þeim á herðar lagður í „þorskastríðinu", þegar þeir með varúð og festu áttu ómet- anlegan þátt í að afla okkur þeirr ar viðurkenningar á hinni nýju fiskveiðilandhelgi, sem stjórn- málamönnunum mistókst að fá 1958. Og er þó raunar hæpið að segja, að öllum þáverandi valda- mönnum hafi mistekizt, því að sumir hirtu alls ekki um viður- kenningu, .ældur vildu efna til ófriðar. Vandi gæzlumanna landhelg- innar var að vísu mestux á ár- unum 1958—1961, en starf þeirra hefur þó bæði fyrr og síðar ver- ið viðurhlutamikið og hættu- samt. Mikið veltur á nákvæmni þeirra og hófsemi í starfi. Að- stæður til nákvæmni um öflun sönnunargagna eru oft erfiðar og eðlileg löngun til að ná ætluðum lögbrjótum kann áður en varir að leiða til ofurkapps með ófyr- irsjáanle„ jm afleiðingum. Yfirstjórnendur landhelgisgæzl unnar verða að sjá fyrir viðhlít- andi farkosti til gæzlunnar og velja hæfa menn til forystu. í henni þarf sívakandi áhuga og óbilandi áræðni, ásamt gerhygli og varúð. Fyrir þá, sem í landi sitja, er lítill vandi að egna aðra til stórræða og skella síðan sök á þá, ef út af ber. Hitt er sæmi- legra að hvetja ekki til þess að teflt sé í tvísýnu fyrr en í fulla hnefa en standa óbrigðull með þeim, sem unnið hefur eftir beztu samvizku, þó að stofuspekingar geti eftir á sýnt fram á, að eitt- hvað kunni að orka tvímælis af því, sem gerðist þegar skjótar ákvarðanir þurfti að taka. Vegna undankomu Smiths skipstjóra á Milwood hefur verið höfð uppi gagnrýni á landhelgis- gæzluna fyrir of mikla linkind. í þeim efnum verður hver að dæma eftir sinni sannfæringu. Ber þá að sjálfsögðu fyrst og fremst að sakast við mig, því að það var með mínu samþykki, að gætt var þeirrar varúðar, sem hlotið hefur sumra gagnrýni. Enn hefur ekkert komið fram, sem bendir til þess, að önnur 'að- ferð en sú, sem beitt var, hefði orðið árangursríkari hvað þá heillavænlegri. Togarinn náðist og gat enginn séo fyrir, að skip- stjórinn hefði þann hátt á að yf- irgéfa skip sitt á undan sumum skipverjanna. Þvílíka sjó- mennsku þekkja menn ekki við íslands strendur, þó að íslend- ingar minnist þess, að skip- stjóri þjóðarskútunnar hljóp fyrstur fyrir borð, þegar verð- bólgualdan var risin í desember 1958. Hin ófrækilega undankoma Smiths skipstjóra hefði og ekki heppnazt nema fyrir hjálp brezks skipherra, sem þar með gekk á bak orða sinna og framdi réttar- brot gegn íslenJingum. Brezka ríkisstjórnin hefur n beðið af- sökunar á þessu og viðurkennt á- byrgð sína. Þessari tvímælalausu viðurkenningu snúa stjórnarand- stöðublöðin við og segja brezku ríkisstjórnina halda fram sak- leysi varðskipherra síns, þegar hún berum orðum viðurkennir ábyrgð sína á mistökum hans. Erfitt er að ræða við þá, sem þannig snúa augljósum stað- reyndum við. Og áður hafði ver- ið sagt í Tímanum, að um fram- ferði hins brezka skipherra, sem hans eigin stjórn hefur nú viðurkent, að hún beri ábyrgð á, væri ekki að sakast við Eng- lendinga heldur undanláts- semi yfirstjórnenda landhelgis- gæzlunnar. Vegna þeirra ásak- ana er rétt að íhuga, hverjir starfshættir séu líklegastir til raunverulegrar undanlátssem við Breta og aðra útlendinga. Af fenginni reynslu við landhelgis- gæzluna r á mikið læra. Á sínum tíma var þar skip- herra að nafni Einar M. Einars- son. Allir viðurkenndu, að hann væri maður knár og hugumstór, en ýmsir bæði innanlands og ut- an gagnrýndu hann fyrir að fara stundum óvarlega í störfum. Framsóknarmenn, sem þá réðu mestu í ríkisstjórn og fóru með landhelgismál, máttu þó aldrei heyra ó þær aðfinningar minnzt, svo að þeir kæmu ekki Einari til varnar. Þeir hófu hann þvert á móti til skýjanna, töldu hann bezta mann landhelgisgæzlunn- ar og hvöttu hann til áframhald- andi stórræða. Fór svo fram þangað til hinn 11. nóvember 1937. Þá kom brezki aðalræðismaðurinn hér til fundar við Hermann Jónasson, þáverandi forsætisráðherra, sem jafnframt annaðist dómsmála- stjórn og þ með landhelgis- gæzlu. í viðtali þessu afhenti að- alræðismaðurinn Hermanni minn isblað um meðferð brezkra tog- araskipstjóra, sem fiskuðu í ná- grenni íslands, „Memorandum on Treatment of Skippers of Brit- ish Trawlers fishing in the Vic- inity of Iceland", ásamt ágripi, Hermann Jónasson „Summary", og eru þessi plögg enn til í Stjórnarráðinu. Ágripið hefst með þessum orð- um í íslenzkri þýðingu: „Kíkisstjórn Hans Hátignar hefur enga löngun til að setja ís- lenzku ríkisstjórnina í vandræði með því að ráðast opinberlega á hegðun hvort heldur íslenzkra dómstóla eða íslenzku landhelg- isgæzlunnar.“ í framhaldi þessa eru taldar ýmsar sakir á íslendinga og sett- ar fram kröfur gegn íslenzku rík- isstjórninni. Þeirra á meðal er þessi: „Til þess að yða þeim grun- semdum, sem uppi eru, og forða frá hættunni af frekari óhöppum, er mikilvægt að til viðbótar sé stigið það skref, að Einarsson skipherra sé vikið úr stöðu, þar sem hann hefur samskipti við brezka skipstjóra." . Síðan fylgir rökstuðningur fyr- ir þessari kröfu, sem þá var og enn mun einstæð af hálfu er- erlends ríki um frávikningu ís- lenzks embættismanns. Brezka „ágripinu" lauk með ósk um, að þar um ræddar „ráðstafanir yrðu gerðar tafarlaust". Ekki fara sögur af því, hvern- ig Hermann Jónassön brást við á meðan á heimsókninni stóð. En svarið, sem hann gaf 11 dögum síðar er enn til og er geymt í afriti í Stjórnarráðinu. Það nefn- ist einnig „Summary", ágrip, og er á það ritað, vafalaust af Stef- áni heitnum Þorvarðssyni: „Samrit. Afhent brezka aðalkonsúln- um í Reykjavík í lok viðtals, sem forsætisráðherra (H. J.) átti við hann um þessi efni á skrif- stofu sinni í stjórnarráðinu, mánu daginn 22. nóv. 1937, kl. 10,30 f. h.“ VarSskipið Ægir Undir eru stafirnir „S.Þ.“ í upphafi ágripsins er vísað til samt Isins hinn 11. nóv. og í fyrsta lagi tekið fram, I íslenzkri þýðingu: „Ríkisstjórnin metur mikils, að kvartanir þær, sem ríkisstjórn yðar segist hafa fram að færa, eru af yðar hálfu settar fram óopinberlega og á þann veg, að hægt er að ræða málin hrein- skilnislega og gera með vinsam- legu móti tilraun til að leysa ó- samkomulagið, sem risið hefur milli íslenzku og brezku þjóð- anna vegna togaravandamáls- ins.“ Síðan er vikið að öllum sak- aratriðum, sem talin höfðu ver- ið í brezka ágripinu, þau skýrð frá íslenzku sjónarmiði og kröf- um Breta yfirleitt hafnað. AU- ar kröfur Breta eru nefndar nema ein, — sú óvenjulegasta, krafan um, að íslenzkum skip- herra skyldi vikið frá störfum- Á þá kröfu minnis. Hermann Jón- asson ekki einu orði. Hann nefn- ir hvergi Einar M. Einarsson, hvorki til varnar né ásökunar. Þessa þögn var þó ekki svo að skilja, að íslenzki forsætisráð- herrann forsmáði kröfu brezku stjórnarinnar um, að íslenzkum skipherra skyldi vikið frá, því að í ágripinu segir Hermann Jónasson, að „samtal okkar hinn 11. þ. m. gefur mér einnig tækifæri til að segja þetta: a) -------- b) Stjórnir hefur ákveðið að gera vissar ráðstafanir sem ég treysti að muni alveg endur- vekja traust ríkisstjórnar yðar á, að ströngustu samvizkusemi muni ætíð gætt, þegar staðreynt er, hvort hægt sé að fullyrða að erlent skip hafi brotið fiskveiði- löggjöfina, og auðvitað er það mesta áhugamál íslenzkra yfir- valda, að enska þjóðin geti fylli- lega treyst sanngirni íslenzku þjóðarinnar í framkvæmd land- helgisgæzlunnar." Síðar í ágripinu segir Her- mann Jónasson: „í stuttu móli vil ég enn á ný fullvissa yður um eindreginn ásetning íslenzku stjórnarinnar í að hindra, að svo miklu leyti, sem á hennar valdi er, framtíð- armöguleika til kvörtunar um stöðvun togara, ónákvæma stað- setningu og að málsókn á hendur togaraskipstjórum öeti ekki stað- izt hlutlausa gagnrýni siglinga- fræðinga. Og ég vona, að þér munuð af reynslunni sannfærast um, hversu eindreginn ásetning- ur íslenzku ríkisstjórnarinnar er í þessu efni.“ Bretinn hafði óskað eftir „taf- arlausum ráðstöfunum". Her- mann Jónasson lét og ekki lang- an úma l. ~a eftir samtalið kl. 10,30 f.h. hinn 22. nóv. 1937 til að sannfæra Breta með reynsl- unni og gera þá ráðstöfun, sem hann treysti að mundi „endur- vekja“ traust brezku stjórnarinn ar, því að samkvæmt dagbók varðskipsins Ægis stöðvaði hann á ytri höfninni í Reykjavík kl. 24 hinn 22. nóvember 1937 og sigldi síðan í höfn. Þar var hann skjótlega „vel bundinn“ við Hauksbryggju og var þar þangað til mánudaginn 27. des. 1937, -ð Einar M. Einarsson fór af skip- inu og Jóhann P. Jónsson tók við skipstjórninni í staðinn. Um nánari atvik þess, að Einar M. Einarsson var með beinni skipun Hermanns Jónassonar rekinn frá borði aðfaranótt hins 27. des. má les í Reykjavíkur- bréfi hér í blaðinu hinn 12. maí. Þar var vitnað til þessarra um- mæla Hermanns Jónassonar í Al- þýðublaðinu hinn 27. des. 1937: „Einar M. Einarsson hefur fengið frí um stundarsakir, en heldur launum sínum, og Jóhann P. Jónsson hefur aðeins verið fenginn til að fara út með skipið í þetta sinn. Ástæðan fyrir þessu er sú,“ sagði forsætisráðherra enn- fremur, „að álitið er, að Einar M. Einarsson hafi farið nokkuð óvarlega við töku togara, og má benda á það, að nýlega haí_. þrír hæstaréttardómar gengið á móti honum.“ Hermann Jónasson treysti því, að samtöl hans og brezka aðal- ræðisr. nnsins höfðu farið fram „óopinberlega“. Þess vegna gátu þeir „hreinskilnislega“ og „með vinsamleru móti“ komið sér sam an um, að íslenzkum skipherra Vík, 12. 5. ’63. UM ÞESSAR mundir er mikið um það rætt, hvort gerður verði varnargarður austur á Mýrdals- sandi nokkru fyrir austan Vík. Hugmyndin með þessu mann- virki mun vera sú, að vatnsflóð frá Kötlugosi skelli ekki á Vík- urkauptúni. Brandur Stefánsson vegavinnu verkstjóri fór nýlega ásamt verk fræðingi frá Vegamálaskrifstof- unni til þess að athuga aðstæð- ur í sambandi við þessar fram- kvæmdir. Brandur segir svo um þetta mál: „Verkfræðingurinn skoðaði allar aðstæður og gerði mæling- ar og leizt vel á framkvæmd þessa mannvirkis. Meiningin er, ef af framkvæmdum verður, að fylla skarðið milli svokallaðs Höfðabrekkujökuls og Höfða- brekkuháls. Yrði þá ýtt þarna upp garði með jarðýtum og á það að vera mjög auðvelt, en ekki sérlega kostnaðarsamt. — Varnargarðurinn yrði tæplega 300 m langur og 5—7 m hár. Bílvegurinn mundi svo liggja yf- ir þennan garð. Líkurnar fyrir því að vatns- flóð frá Kötlu stefni í áttina til Víkur, eru miklu meiri núna en í síðasta gosi árið 1918. Þessu veldur einkum tvennt: Múla- kvíslarfarvegurinn er nú mun víðari ofan til en þá. Djúpur skyldi vikið frá starfi samkvæmt kröfu brezku rÚ_„_tjór..arinnar. í stað þess að greii— frá hinu sanna samhengi fór Hermann Jónasson opinberlega undan í flæmingi og skaut sér bak við Hæstarétt íslands til að komast hjá að skýra frá, að það var und- anltássemi við „ríkisstjórn Hans Hátignar", sem hér birtist í fram- kvæmd. Einar M. Einarsson hélt fullum skipherralaunun. í nær 5% ár eftir að hann var rekinn frá borði og hefur nú með sam- þykki Alþingis hlc úð eftirlaun á 18. gr. fjárlaga. Enginn fékk „opinberlega“ að vita, hvaða sakir voru á hann bornar, dóm- stól áttu ekki kost á að dæma í máli hans og almenningur fær ekki fyrr en nú staðfestingu á, að Einar er eini fslendingurinn í mikilvægri trúnaðarstöðu, sem vikið hefur verið úr henni vegna kröfu erlendrar ríkisstjórnar. Sá atbu’-Ú-. er út af fyrir sig frásagnarverður, og hefði hann þó mín v. _na legið í þagnargildi, ef hérlendir ábyrgðarraenn hans hefði ekki gefið ríkt efni til, að frá honu. - væri skýrt. Þet'. dæmi sýnir, hvernig kok- hreysti leiðir til auvirðilegrar undanlátssi--- or hlýtur um alla framtíð að minha menn á nauð- syn þess að gæta festu og varúð- ar í landhelgisgæzlunni. Bjarni Benediktsson. farvegur, sem Sandvatnið mynd- aði milli Seljafjalls og Hafurs- eyjar, er nú ekki lengur til. Allt stuðlar þetta að því, að vatns- gangur á þessum slóðum leiti nú frekar vestur á bóginn. Hinn fyrirhugaði varnargarður við Höfðabrekkujökul er hið mesta nauðsynjamál og mjög að- kallandi. Hann ætti að geta var- ið nýbýlið, sem reist er frá Höfðabrekku niðri við sandinn og ekki fékkst byggt áður vegna hættu af Kötluhlaupum. Einnig ætti garðurinn að verjá nýrækt neðan við Fagradal og seinast en ekki sízt, ætti hann að verja Vík- urkauptún. En af þessu, sem nefnt hefur verið, sést, að mörg mannslíf geta verið í húfi auk milljóna verðmæta í mannvirkj- um. í næstsíðasta Kötlugosi og þremur gosum þar á undan kom vatnsflóðið í gegn um þetta skarð, sem sjálfsagt er að fylla upp með áðurnefndum varnar- garði. Svo er líka auðvelt og sjálf- sagt að gera varnargarða aust- ur hjá Álftaveri. Annan hjá flug vellinum þar, svo að hann verði öruggur og hinn ofan við miðja byggðina". Þannig fórust Brandi Steíáns- syni orð um þetta mál, sem nú er mjög umræit. Fréttaritari. Kötlugarður

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.