Morgunblaðið - 06.06.1963, Side 16
HÍBÝL.ARRÝÐI HF
.Halfa rm Gla »lml 38177
124. tbl. — Fimmtudagur 6. júní 1963
Jö>
[r þetta framlíðin?
Framsóknarmenn og komm-
únistar hafa boðað myndun
nýrrar „vinstri" stjórnar, ef
þeir hljóta þau 3 þingsaeti,
sem þessa flokka skortir til
þingmeirihiuta. Það yrði efni-
leg forysta í landsmálum og
utanríkismálum tslendinga.
Einingin yrði mikil og þá
ekki sízt stefnufestan. Hvor
yrði utanríkisráðhcrra Þór-
arinn á Tímanum eða Lúðvík
Jósefsson? Verður Eysteinn
forsætisráðherra eða fjármála
ráðherra? Verður Hannibal
dómsmálaráðherra eða for-
sætisráðherra? Verður Einar
Olgeirsson eða Gísli Guð-
mundsson menntamálaráð-
herra?
Þessi „væntanlega" ríkis-
stjórn er vissulega ekki gam-
anmál. Það munar aðeins
þremur þingsætum. Hér bregð
ur teiknari Mbl. upp mynd
af fyrsta fundi þessarar
stjórnar Framsóknarmanna og
kommúnista, nýju „vinstri"
stjórninni. , «
Drœtti
NÝJA , VINSTRI
STJORNIN f
frestað
V E G N A samgönguerfið-
leika, sem torveldað hafa,
að uppgjör bærist frá um-
boðsmönnum happdrættis
Sjálfstæðisflokksins í tæka
tíð, hefur verið ákveðið að
fresta drætti í happdrætt-
inu þar til föstudaginn 21.
júní. Allir, sem fengið
hafa miða, eru beðnir að
gera skil við fyrsta tæki-
færi.
Þeir fáu miðar, sem eftir
eru, verða seldir næstu
daga í skrifstofu Sjálf-
stæðisflokksins og í happ-
drættisbílunum sem standa
í Austurstræti.
Eysteinn höftiðandstæð
ingur einkaframtaks
— þykist nú styðja það
MÖRGUM hnykkti við, þegar
Eysteinn Jónsson nefndi í út-
varpsumræðunum stuðning
sinn við einkaframtak og tal-
aði um, að Framsóknarflokk-
urinn væri forsvari þess — og
var það að vonum.
Höft og þvinganir, skattrán
og skerðing athafnafrelsis hér
á landi er jafn gamalt áhrif-
tim Eysteins Jónssonar á ís-
Axel
Sverrir
Ólafur
Matthías
Einar
Hafsteinn
Kjósendafundur
i Hafnarfirði
KJOSENDAFUNDUR D-listans í Hafnarfirði verður í Hafnar-
fjarðarbíó i kvöld kl. 8.30. Avörp og ræður flytja: Ólafur Thors,
forsætisráðherra, Matthías A. Mathiesen, alþm., Sverrir Júlíusson,
útg.m., Axei Jónsson, fl.tr. og Einar Halldórsson bóndi. Fundar-
Stjóri verður Hafsteinn Baldvinsson, bæjarstjóri.
1 fundarbyrjun leikur Eyþór Þorláksson og félagar, en eftir
fundinn syngja Savanna-tríóið, svo og Kristinn Hallsson og Þórunn
Olafsdóttir.
lenzk stjórnmál. Ferill hans í
stjórnmálum er í stuttu máli
á þann veg, að hann hefur
ætíð beitt sér fyrir skerðingu
athafnafrelsis.
Eysteinn Jónsson hefur gengið
allra manna lengst í því að krefj-
ast skattráns. Skoðun hans hefur
verið sú að enginn væri færari
um það en hann sjálfur að ráð-
stafa fjármunum þjóðarinnar,
þess vegna væri réttlætanlegt að
taka sem mest fé af borgurunum
og fá það ríkisvaldinu í hendur
til ráðstöfunar, undir hans al-
vitru fjármálastjórn.
Þessi þáttur í starfsemi Ey-
steins Jónssonar er svo kunnur,
að um hann þarf ekki að hafa
mörg orð, enda hefur það lengi
verið almælt, að eymdin og Ey-
steinn væru óaðskiljanlegir föru-
nautar. En það er annar þáttur,
sem vert er að vekja athygli á,
þegar Framsóknarmenn taka að
tala um það, að borgararnir eigi
að hafa fjárhagslegt sjálfstæði og
yfirráð fjármunanna.
Síðustu áratugi hefur Eysteinn
Jónsson haft mest áhrif allra
manna á stjórn Sambands ís-
lenzkra samvinnufélaga. Sam-
vinnufélögin voru eins og kunn-
ugt er stofnuð til þess að létta
mönnum lífsbaráttuna og gera
þeim kleift að koma undir sig
fótunum. Þar ríkti lýðræði og
heilbrigður félagsandi framan af.
Eysteinn Jónsson hefur hins-
vegar beitt áhrifum sinum til
þess að þjappa öllu valdi í Sam-
bandi ísienzKra samvinnufélaga
saman a fáar hendur, þar sem
hann er hinn sterkasti þeirra
sterku. Hann hefur krafizt þess
að sambandskaupfélögin væru
undir beinni stjórn SÍS, að með-
limir samvinnufélaganna hefðu
engin áhrif á stjórn þeirra, held-
ur væri þeim stjórnað ofan frá.
Þessi þáttur í starfsemi Ey-
steins Jónssonar er í fullri and-
stöðu við þær frjálslyndishug-
I sjónir, sem ryðja sér nú til rúms
í lýðfrjálsum löndum og Sjálf-
stæðisflokkurinn hefur tekið inn
í stefnuskrá sína. Þessi stefna
hefur verið nefnd auðstjórn al-
mennings. Hún miðar að því að
sem mestur hluti þjóðarauðsins
sé á hendi borgaranna sjálfra,
þeim sé gert kleift að eignast
íbúðir, smáfyrirtæki, bifreiðir og
annað til eigin nota.
En auðstjórn almennings mið-
ast þó enn fremur að hinu, að
borgararnir verði virkir þátttak-
endur í stærri atvinnurekstri,
ekki á þann hátt að fáir menn
sölsi til sín yfirráð yfir fyrir-
tækjunum og noti þau í persónu-
legum eða pólitískum tilgangi,
heldur þannig að fólkið sjálft
ráði stjórn þeirra og njóti arð*
af rekstri þeirra.
Morgunblaðið mundi vissulega
fagna því, ef Eysteinn Jónsson
vildi styðja þessa stefnu, en fram
að þessu hefur ekki á því borið,
að hann væri henni fylgjandi,
hvað sem segja má um frjáls-
lyndari Framsóknarmenn.
Hermann ræðir
um pestina
HELDUR hefur borið lítið á
Ilermanni Jónassyni, fyrrver-
andi formanni Framsóknar-
flokksins, nú í kosningabar-
áttunni. í gær tekur hann þó
rögg á sig og birtir ávarp til
kjósenda. í því er að vísu
fátt nýtt eða athyglisvert, en
„ ar stendur hinsvegar þetta:
„Með lýðræðisþjóðum, sem
náð hafa sæmilegum þroska
hefur kommúnisminn fjarað
út eins og pest, sem menn
hafa orðið ómóttækilegir fyr-
ir. Kommúnistar hafa því
reynf að fela sig undir ýms-
um nöfnum og ýmsir lýðræð-
issinnar hafa látið hafa sig
til þess að fremja það illvlrttl
að hjálpa kommúnistura til
að villa á sér heimildir."
Var einhver að spyrja,
hvort „pestin“ hafi „fjarað út“
í huga Hermanns, hvort sjór
væri hálffallinn, hvort ekki
yrði aðfall aftur, ef hann
ætti, þott ekki væri nema
smávon um völdin. Eða getur
Hermann Jónasson nú í ver-
tíðarlokin bent á einhvern
þann, sem „hefur látið hafa
sig til þess að fremja það ill-
virki að hjálpa kommúnistum
til að villa á sér heimildir“
rækilegar en þessi sami Her-
mann Jónasson?
Kópavogur
SJÁLFSTÆÐISFÉLÖGIN í Kópavogi halda skemmt-
un í Sjálfstæðishúsinu, annað kvöld kl. 21.
Skemmtiatriði og síðan munu Jói og Skafti leika
fyrir dansi.