Morgunblaðið - 09.06.1963, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 09.06.1963, Qupperneq 2
18 MORCUISBLAÐIÐ Sunnudagur 9. júní 1963 Flughafnarbygging Loftleiða á Beykja víkurflugvelli rís af grunni. Allra bragða beitt KOSNINGABARÁTTA Fram- sóknarflokksins hefur verið forystumönnum hans til lítils sóma. Allra bragða hefur ver- ið beitt. Skrif dagblaðsins Tím ans, átroðningur á heimili Reykvíkinga og einkamál og nú síðast sendibréf nokkurt, sem Framsóknarfclag Reykja- víkur sendi aldraða fólkinu á Elliheimilinu Grund nýlega. Það er reynt að hræða þá, sem þar dvelja, til fylgis við Framsóknarflokkinn með „uppkastinu“ frá 1908 og með því fylgir slíkur helgislepju- væll, að undrun sætir. Flestum er enn í fersku minni, hvernig Framsóknar- menn reyndu að beita sam- bandslagafrumvarpinu frá 1908 fyrir sig í baráttunni gegn kjördæmamisréttinu. Nú er enn hafin baráttan gegn Hannesi Hafstein og Heima- stjórnarflokknum og nú í því skyni að tæla aldrað fólk á elliheimilinu til þess að kjósa gegn Viðreisninni. Ef fólki er ekki kligjugjarnt, er því ráðlagt að lesa sendi- bréf þetta, sem hér fer á eftir: ★ „Kæri vistmaður. í tilefni þess, að nú fara i hönd kosningar til Alþingis, viljum við minna á B-listann. Sennilega manst þú eftir ár- inu 1908, þegar alþýðufólkið reis á móti því, að ísland væri innlimað í Danmörku. Þannig hefur það oft verið, að ís- lenzk alþýða hefur staðið á móti frelsisskerðingu þjóðar- innar, ag varðveitt „ástkæra ylhýra málið“ í gegnum aldirn ar. Og ennþá er þörf á, að ís- lenzkur almenningur sé vel á verði fyrir erlendri ásókn. 1908 söng alþýðan oft viðvíkj andi ættjörðinni: „Aldrei, aldrei bindi þig bönd, nema bláfjötur ægir við klettótta strönd“. Þegar líður á ævina er un aðslegt að finna, að gert hefur verið rétt, eftir beztu vitund, og jafnan hlynnt „að eiga, þeg ar árin dvína eftir spor við tímans sjá“. „íslendingar viljum við all- ir vera“ og tækifæri i verki er hægt að sýna í alþingis- kosningunum með því að kjósa þann flokk, sem ávalit hefur staðið traustan vörð um frelsi okkar og sjálfstæði. Kjósum því B-listann.“ X/’NAISKniif I / SV SOSnutor H Sn/Héma * ÚSi V Shirir E Þrumur 'WHSL KuUotM ZS HilatM H Hmt L 1*4» ÞOKA var í gærmorgun víð- ast hvar norðan til á landinu Fjöldarannsöknir ■ sambandi við krabba- mein í leghálsi Stóraukin fræðsla um hættuna af sígarettureykingum AÐALFUNDUR Krabbameinsfél. íslands var haldinn þann 29. maí sl. í húsi félagsins í Suðurgötu 22. Formaður félagsins, próf. Niels Dungal setti fundinn og bauð fundarmenn velkomna, og flutti sl.ýrslu félagsstjórnar um starfið á sl. ári. Nú hefur félagið keypt alla húseignina Suðurg. 22, og hefur því rætzt úr húsnæðisvandræð- unum. Bfsta hæðin er fyrir maga krabbameinsrannsóknir sem hóf- ust í fyrra fyrir styrk frá Nation- al Institutes of Health í Washing- ton og eru í fullum gangi. Við þær vinna alls 7 manns. Neðri hæðin er fyrir daglegan skrif- stofurekstur Krabbameinsfélags ísl. og Rvíkur og kjallarinn er ætlaður fyrir leitarstöð og fjölda- rannsóknir í sambandi við krabbamein í leghálsi, sem félag- ið hefur ákveðið að hefja, helzt á þessu ári. Gerði prófessorinn ýtarlega grein fyrir þessum fyrir ætlunum félagsins og ræddi einn io um þessa tegund af krabba- meini, sem hann kvað auðvelt að þekkja áður en það yrði illkynj- aC þegar beitt væri frumurann- sóknum, og þannig væri hægt að koma í veg fyrir að meinið verði lífshættuleg meinsemd. Hann kvað hugmyndina að reyna að ná til allra kvenna á aldrinum 25—60 'ira, fyrst í Reykjavík en síðan á öllu landinu. Einnig hefir félagið ákveðið að stórauka fræðslu í barna- og unglingaskólum um þá hættu, sem stafar af sígarettureyking- um, og hafa þegar verið keyptar fræðslukvikmyndir og film-ræm- ur í þessum tilgangi. Auk þess hefur félagið keypt margar f eðslukvikmyndir um annað efni, meðal annars uim frumu rannsóknir og krabbamein í leg- hálsi. Á árinu gaf félagið út bækling fyrir konur um sjálfskoðun á brjóstum, sem hefur verið dreift allvíða, og fæst ókeypis í skrif- stofu félagsins. Alþingi sam- þykkti á síðasta þingi að skatt- leggja sígarettur til ágóða fyrir krabbameinsfélag íslands. Þakk- aði prófessorinn sérstaklega land lækni, ríkisstjórn og Alþingi fyr- ir þann skilning, sem þessir að- ilar sýndu á þessum málum. Hef ur þessi skattur komið fótum undir félagið fjárhagslega, og gert því kleift að leggja út í þær stórfenglegu rannsóknir, sem á- formað er að hefja í sambandi við krabbamein 1 leghálsi, auk fræðslustarfsemi o. fl. o. fL Framh. á bls. 27 -Jæja/ n“ V ~ L *bbí zA nerwi tq eUMi aá vera meí þeV len^uK Íyiieínn tnínn og einnig á stóru svæði á haf- inu umhverfis landið. Hún hefur myndast í hlýja megin- landsloftinu, sem undanfarna daga hefur sótt vestur um nyrzta hluta Atlantshafsins. Engar snöggar breytingar eru í aðsigi. Kosningaveðrið í dag verður með því bezta, sem orðið getur um allt land. KJÖSUM SNEMMA

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.