Morgunblaðið - 13.07.1963, Síða 11
Laugardagur 13. júli 1963
1MORCU1VBLAÐ1Ð
I!
Jóhann Vilhjálmsson
frú Selalæk sjötugur
SJÖTUGUE er í dag Jóhann
Vilhjálmsson, íyrrverandi út-
gerðarmaður, frá Selalæk í Vest
mannaeyjum. Þrátt fyrir erfið
uppvaxtarár og annasama ævi,
þá ber Jóhann aldurinn vel og
er ennþá kappsamur vinnumað-
ur og mikið þrekmenni.
Síðan Jóharm varð fulltíða
maður, hefur honum fáa daga um
ævina fallið verk úr hendi, nema
helgidaga. Hann hefur frá æsku
borið virðingu fyrir helgidögum
og notað þá, eins og vera bér, til
hvíldar og andlegrar uppbygging
ar. Sjálfsagt eiga þær hollu venj
ur hans, sinn þátt í því nú, hve
hraustur hann er ennþá og and-
ar létt.
Jóhann er einstæður reglu og
skilamaður. Ein er sú regla, sem
hann mun aldrei hafa brotið, og
er hún sú að sækja kirkju á
helgidögum. Jóhann er dulur trú-
maður. f sálmum Hallgríms hefur
hann, í örbirgð og vanda, gleði
og sorgum, leitað orða til styrks
og fundið þau þar.
Jóhann er Rángæingur að upp-
runa, fæddur í Þykkvabænum.
Áður en hann fæddist, varð móð-
ir hans fyrir þeirri sorg, að
horfa á föður hans drukkna í
lendingu, við hina hafnarlausu
strönd, úti fyrir Þykkvabæ. Fað-
ir hans var þá að koma úr róðri
ásamt fleiri Þykkvabæingum.
Jóhanni var ungum komið í
fóstur til Sveins í Vatnskoti.
Hjá Sveini og konu hans, naut
hann góðrar umönnunar og mik-
ils kærleika. Fóstur foreldrana
elskaði Jóhann og virti og sýndi
þeim í .mörgu, mikla ræktarsemi.
Sérstaklega var kært á milli Jó-
hanns og Jóns, sonar þeirra hjóna
sem nú er látinn. Þeirra fóst-
bræðraband var einlægt og
traust, það sá ég ljóst er ég á
ferðalagi með Jóhanni, konu hans
og dóttur, kom að Vatnskoti til
Jóns og horfði á þá eins
og litla drengi fagna hvorum
öðrum. Æskuárin stóðu þeim ljós
fyrir hugskotssjónum. Margt var
rifjað upp frá hinum gömlu góðu
dögum, uppvaxtaráranna.
Snemma leitaði hugur Jóhanns
frá flatneskjunni í Þykkvabæn-
um, til fjallanna og eyjanna úti
fyrir, sem hillti undir á góðviðr-
isdögum. Eyjarnar út á hinum
bláa sæ, toguðu fastar en fjöll-
in og til þeirra sigldi Jóhann 17
ára gamall, á fermingarfötunum,
með eitt trippisverð í vasanum.
Trippisverðið var ekki stór upp-
hæð fyrir 53 árum. Hinn ungi
drengur á fermingar-buxunum,
gerðist harðfylginn sjómaður og
síðan formaður. Hagurinn varð
brátt betri. Sjómannslaunin,
þótt lítil væru, bættust við tripp
isverðið og mynduðu talsverðan
sjóð. Gæfan bjó á næsta leiti..
Hann kynntist ungri og glæsi-
legri stúlku, konunni sinni, Lilju
Hannesdóttur frá Roðgúl á
Stokkseyri. Þau byrjuðu búskap
með litinn sjóð, en auður, ást
Smurt brauð, Snittur, öl, Gos
og Sælgæti. — Opið frá kl.
9—23.30.
Brauðstofan
Sími 16012
Vesturgötu 25.
Poppkornsgerd
í fullum gangi, ásamt vélum
og efni, er til sölu strax. Jppl.
í síma 10107,
og farsæld, hefur einkennt heim-
ili þeirra, og alla sambúð. Dæt-
urnar tvær, Hanna sem gift er
Sigurði Guðmundssyni, trésmið
og Gerður Hulda, kennari við
Húsmæðraskóla Suðurlands, bera
ljósan vott þess kærleika og
einlægni, sem ríkjandi var á Sela
læk, en það hét húsið sem Jó-
hann og Lilja reistu sér í Vest-
mannaeyjum.
Fáir staðir á þessu lanui, eru
betur fallnir til góðrar afkomu
fyrir atorkumenn, heldur en
Vestmannaéyjar. Því fór vel að
Jóhann valdi fremur Vestmanna-
eyjar, heldur en fjöllin,. Frá Vest
mannaeyjum er stutt að sækja
björg í brunn auðæfa — hafið
sjálft. Þar blæs að vísu oft
köldu og löðrandi brimið ógnar
og dregur kjark úr sumum. Jó-
hann Vilhjálmsson hefur boðið
ógnunum byrginn og komizt þar
vel áfram.
í fimmtíu og þrjú ár hefur Jó-
hann verið einn af þeim sem
lagt hefur hönd á plóg framtaks
„heima í Eyjum“, eins og inn-
hyggjendur kalla það, þegar þeir
eru komnir til lands. Lengst af
var Jóhann við útgerð með Sæ-
mundi Jónssyni Gimli. Þeir gerðu
út saman, á sínum tíma, aflasæla
skipið „Gulltopp“. Þeir höfðu þá
í þjónustu sinni ýmsa fisksæla
menn, t.d. aflakónginn fræga
Binna í Gröf. Þá var hart unnið
á sjó og landi og vinnustundirn-
ar aukaatriði.
Síðustu tuttugu árin, eða síðan
Jóhann dró sig til baka, í sam-
bandi við útgerð hefur hann unn
ið í Hraðfrystistöð Vestmanna-
eyja og á þar meðal starfsfélaga
marga vini og kunningja. Nú
rétt fyrir þennan merka afmælis
dag, hefur hann kvatt sína góðu
félaga og Vestmannaeyjar og
flutt búferlum til Reykjavíkur.
Til Vestmannaeyja mun nú í dag
hugur hans leita, frá hans nýja
heimili í Safamýri 52. Þetta nýja
heimili hefur hann og kona hans
með aðstoð dætranna og
tengdasonarins, á nýtízkuleg
an hátt, undangengna daga
verið að ljúka við að
byggja upp. Dótturdætumar,
Lala og Gunna, afa og ömmu
börnin munu að nokkxu leyti
verða ljósgeisli Jóhanns á hans
nýja heimili, og bera birtu og
yl inn í sál sjötuga heiðursmanns
ins, þegar gömlu vinnufélaganna
og Eyjanna er saknað.
Ég flyt afmælisbarninu, Jó-
hanni Vilhjálmssyni og íjöl-
skyldu hans, alúðarfyllstu árn-
aðaróskir með afmælisdaginn og
nýja fallega heimilið að Safa-
mýri 52.
Jensína Halldórsdóttir
Steindór vill selja:
Chevrolet langferðabifreiðir. 18 manna og
26 manna. — Seljast ódýrt.
Ennfremur Kaiser fólksbifreiðir. —
Seljast ódýrt.
Chevrolet fólksbifreið model 1955, 6 manna
í góðu standi.
Peugeot fólksbifreið — 5 manna, model
1962. Ekið 7 þúsund kílómetra.
Mercedes Benz diesel 190, árg. 1961.
Bifreiðastöð Steindórs
Sími 18585.
Ráðskona
vön, þrifin og reglusöm, óskast á komandi hausti. —
Tilboð merkt: „Hátt kaup — 5168“ sendist Mbl.
fyrir 31. júlL
Vinna
Okkur vantar 2 duglega og reglusama menn.
Hátt kaup.
Byðhreinsun og Hiálmhúðun sf.
Sími 35400 og 35643 utan vinnutíma.
Aðstoðarforstöðukonustaða
Staða aðstoðarforstöðukonu í Kleppsspítalanum er
laus til umsóknar frá 1. september 1963. Laun sam-
kvæmt 18. fl. í launareglum fyrir ríkisstarfsmenn.
Umsóltnir með upplýsingum um aldur, nám og fyrri
störf sendist til Skrifstofu ríkisspítalanna fyrir
15. ágúst 1963.
Reykjavík, 11. júlí 1963.
Skrifstofa ríkisspítalanna.
U p p b o ð
að beiðni skiptaráðandans í Gullbringu- og Kjósar-
sýslu verður íbúðarskúr að Austurgötu 14, Kefla-
vík eign dánarbús Guðmundar Guðmundssonar frá
Hóli seldur til niðurrifs eða brottflutnings á opin-
beru uppboði er fram fer á eigninni sjálfri laug-
ardaginn 20. júlí kl. 10. f.h. Greiðsla við hamars-
Keflavík, 11. júlí 1963.
Bæjarfógetinn í Keflavík.
U p p b o ð
að beiðni skiptaráðandans í Gullbringu- og Kjósar-
sýslu verður bifteiðin G-2667, Skoda station 1955
eign dánarbús Guðmundar Guðmundssonar frá Hóli
seld á opinberu uppboði sem fram fer á bifreiða-
verkstæði Tómasar Tómassonar í Keflavík laugar-
daginn 20. júlí 1963 kl. 11 f.h.
Greiðsla við hamarshögg.
Keflavík, 11. júlí 1963.
Bæjarfógetinn í Keflavík.
U p p b o ð
verður haldið í Lögregluvarðstofunni í Keflavík
laugardaginn 20. júlí 1963 kl. 2 e.h. Verða þar seldir
munir úr dánarbúi Salvadore Massaro er andaðist
1960, m.a. nokkur kven- og karlmannsarmbands-
úr. Úrsmíðaverkfæri margs konar, ferðaritvél, út-
vörp o. fl. Greiðsla við hamarshögg.
Keflavík, 11. júlí 1963.
Skiptaráðandinn í Keflavík.
GENERAL® ELEGTRIC
btærstu og þekktustu raftækjaverksmiðjur
heimsins bjóða yður nýjar og endurbættar
gerðir.
KÆLISKÁPA
★ Bieð helmingi stærra frystihólfi
en eldri gerðin
★ með tveimur hurðum
Electric hf.
Túngötu 6. — Sími 15355.