Morgunblaðið - 13.07.1963, Blaðsíða 17
f Laugardagur 13. júlí 1963
MOKCVISBLAÐIÐ
17
ÚTGEFANDI: SAMBAND UNGRÁ SJÁLFSTÆÐISMANNA
l/Ol_
L£a
£ jiU
l;~'" .. ' .. j
BITSTJÓRAR: BIRGIR ÍSk GUNNARSSON OG ÓLAFUR EGILSSON
Unga félkið er
ekki með okkur
— segir brezki ráðherrann Maudling
-j
1 .
„ÍHALDSFLOKKUHINN hef-
ur misst fótfestu vegna þess
að unga fólkiff styffur ‘ekki
stjórnina og kjósendur vilja
breytingu og þaff á hvorki
rætur sínar aff rekja til Pro-
fumo-málsins né affgerffa
stjórnarandstöffunnar." Þessi
orff hefur brezka blaðiff „Ob-
server" eftir Reginald Maudl-
ing, brezka fjármálaráffherr-
anum, en aff sögn blaffsins er
hann yngstur þeirra manna,
er nú keppa eftir því að taka
viff forystu flokksins.
Þessi ummæli komu fram í
ræffu, er Maudling hélt fyrir
nokkrum dögum. Þar hélt
hann því fram m.a., aff íhalds-
flokkurinn brezki hefffi ekki
ennþá fundiff leiff til aff tala
viff yngstu kjósendurnir á
máli, sem þeir skildu.
„Ef viff íhaldsmenn höfum
dregizt aftur úr, þá er þaff
ekki vegna þess, aff andstæff-
ingar okkar hafi valdiff því,
heldur höfum viff sjálfir misst
tökin. Landsmenn voru ekki
hrifnir af sósíalisma og höfffu
enga trú á Frjálslynda flokkn
um. Þaff erum viff sjálfir, sem
eigum sökina."
. Þessi ummæli sýna vissu-
lega, aff brezki fjármálaráff-
herrann gerir sér grein fyrir
því, aff fylgi unga fólksins
skiptir hvern stjórnmálaflokk
miklu máli.
Sé t.d. litiff til íslands í
þessu sambandi, lætur nærri,
aff þeir sem kusu í fyrsta sinn
sl. vor hafi veriff um 10% kjós
enda. Þetta unga fólk hefur
aff mörgu leyti óbundnari af-
stöffu en þeir kjósendur, sem
eldri eru. Ungir kjósendur
kjósa því frekar unga fram-
bjóffendur og þá flokka, sem
hafa á stefnuskrá sinni mál,
sem sérstaklega snerta hags-
muni unga fólksins.
Þaff verffur frófflegt aff sjá,
hvort brezki íhaldsflokkurinn
lætur varnaffarorff Reginald
Maudlings sér að kenningu
verffa.
Tveir erlendir stúdentahópar
á vegum Ferðaskrifstofu stúdenta
— Spja’Iað við Þói Hagalín stud. jur„ urm
starfsemi Ferðaskrifstofunnar
FERÐAÞJÓNUSTA STÚDENTA
hefur nú starfaff með vaxandi
blóma í allmörg ár — effa allt frá
sumrinu 1958, aff meirihluti
Vöku í Stúdentaráði beitti sér
fyrir því, aff tekiff var upp sam-
starf viff norrænu stúdentaferffa-
skrifstofuna, SSTS, og ferffalög
skipulögff fyrir íslenzka stúdenta,
sem utan vildu halda. Á síffast-
liffnu sumri kom svo hingaff í
fyrsta skipti hópur erlendra stúd-
enta á vegum Ferffaskrifstofunn-
ar. —
Tíðindamaður siðunnar hitti á
fimmtudaginn var að máli Þór
Hagalín, stud. jur., sem veitir
Ferðaskrifstofunnar forstöðu í
sumar, og innti hann þá eftir
starfseminni um þessar mundir.
— Þessa dagana eru staddir
hér 2 hópar erlendra stúdenta,
niu í öðrum og 13 í hinum, sagði
Þór. — Fyrri hópurinn korri hing-
að með „Dronning Alexandrine"
um miðja siðustu viku, og sá síð-
ari með „Gullfossi" nú í morgun.
Hvor hópur dvelst hér í rúman
hálfan mánuð, skoðar sig um
bæði í byggð og óbyggðum. Aðal-
ferðalag annars hópsins er um
Fjallabaksleið nyx-ðri, en hinn
fer héðan norður Kjöl og sem
leið liggur að Mývatni. Þar verð-
ur haldið kyrru fyrir að mestu í
2 daga, en síðan haldið suður á
bóg aftur og þá um Sprengisand.
— Hvaðan eru stúdentarnir
helzt?
— f fyrri hópnum eru nær all-
ir Svíar; aðeins einn Finni með
þeim. Af hinum eru 7 Þjóðverj-
ar, en hitt einnig Svíar. Það er
athyglisvert, að stúlkur eru í
miklum meirihluta. í hópnum
eru stúdentar í ólíkustu náms-
greinum, tannlækningum, fugla-
fræði o. s. frv. Ymsir hafa all-
lengi haft í huga að bregða sér til
íslands og viðað að sér ýmsum
fróðleik um land og þjóð, allmis-
Nýstofnað /Eskulýðsráj Evrópu
undirbýr starfsemi sína
Fyrsti fundur framkvæmdanefndar sarn-
takanna halainn í Vín fyrir skömmu
DAGANA 6. og 7. júní s.l.
kom framkvæmdanefnd
Æskulýðsráðs Evrópu (Coun-
il of European National
Youth Committees-CENYC
saman í Vín til fyrsta fund-
ar síns, en ráðið var stofnað
síðla í marz-mánuði, svo sem
sagt hefur verið frá hér á síð-
unni. Á fundinum voru tekn-
ar ýmsar þýðingarmiklar á-
kvarðanir varðandi framtið-
arstarfsemi hinna nýju sam-
taka, en starfsemin sjálf mun
fyrir alvöru hlaupa af stokk-
unum í haust.
I íramkvæmdaneíndinni eiga
sæti fastafulltrúar allra aðildar-
ríkja ráðsins, 1 frá hverju, auk
forseta, sem kjörinn er sérstak-
lega. Er hann nú Heinz-Georg
Binder, formaður þýzka æskulýðs
sambandsins, sem einróma var
kosinn forseti á stofnfundinum
í Lundúnum. — Af íslands hálfu
er Æskulýðssamband íslands
(ÆSÍ) aðili að ráðinu, enda eitt
ef meginverkefnum þess að gæta
•ameiginlegra hagsmuna ís-
lenzki'ar æsku út á við.
Á fundi framkvæmdanefndar-
innar var formlega gengið frá
aðild æskulýðssambanda 12 ríkja
að ráðinu, þ.e. Austurrikis, Belgíu
Bretlands, Danmerkur, Hollands,
íslands, Italíu, Noregs, Svíþjóð-
ar, Sviss, Tyrklands og Þýzka-
lands; auk þess áttu Frakkar
fulltrúa á fundinum, en vegna
klofnings frönsku æskulýðssam-
takanna var eigi unnt að veita
þeim inngöngu að sinni. Frakk-
ar, ásamt Luxemborgurum, sem
ekki gátu sótt fundinn í Vín, telj
ast þó til stofnaðila ráðsins, enda
báðir þátttakendur í Lundúna-
fundinum í marz sl. — Aðildar
fleiri evrópskra æskulýðssam-
banda má vænta áður en langt
líður.
Á Affsetur verffur I Brússel —
Breti framkvæmdarstjóri
Meðal meiriháttar ákvarðana,
sem teknar voru á fundi fram-
kvæmdanefndarinnar í Vín, var
val aðsetursstaðar fyrir skrifstofu
samtakanna. Höifðu borizt 4 til-
lögur þar að lútandi, en af þeim
stóð valið einkum milli Brússel
og Strassbourg. Varð sú fyrr-
nefnda hlutskarpari og naut
stuðnings % hluta fulltrúanna.
Framkvæmdastjóri var ráðinn
Graham R. Bunting, 24 ára gam-
all Breti; en Austurríkismaður,
sem einnig hafði verið gerð til-
laga um, hlaut og verulegt fylgi.
Við kosningu varaforseta ráðs-
ins, sem fram fór á fundinum,
höfðu norrænu fulltrúarnir kom-
ið sér saman um að sty.ðja for-
mann danska æskulýðssam-
bandsins, Knud Enggárd, og var
hann kjörinn; annar varaforseti
var ennfremur kjörinn og hlaut
ítalski fulltrúinn, Franco Chiar-
enza, kosningu. Með nokkurri
hliðsjón af væntanlegu aðsetri
ráðsins var fulltrúi, Belgíu
Louis Maniquet, valinn í stöðu
^jaldkera.
Á Affalvettvangur evrópskrar
æsku
Fjárhagsáætlun ráðsins, sem
Bretinn William McGowan hafði
haft forgöngu um undirbúning á
var tekin til meðferðar og í því
sambandi rætt allýtarlega um
fjáröflun til starfseminnar. Ei^
áætlað, að fastakostnaður við
rekstur skrifstofu ráðsins verði
nú í byrjun 12,250 dalir á ári og
mun rúmlega helming þess fjár
verða aflað með framlögum frá
áðurnefndum aðildarsambönd-
unum, en einstök framlög nema
50-1000 dölum. Ennfremur hefur
Evrópuráðið, WAY (World Ass-
embly of Youth) og fleiri aðilar
lofað eða gefið vilyrði fyrir fjár-
stuðningi. — Var forseta og gjald
kera falið að kanna til hlýtar
hugsanlegar fjáraflaleiðir og gefa
yfirlit um þær á næsta fundi
framkvæmdanefndarinnar.
Á fundinum fóru fram nokkr-
ar umræður um byrjunarverk-
efni Æskulýðsráðs Evrópu, en
því er ætlað að verða eins konar
heildarsamtök eða aðalvettvang-
ur evrópskrar æsku og hefur að
markmiði að stuðla að fram-
gangi hvers kyns hagsmunamála
hennar. Verður m.a. leitast við
að efla innbyrðis kynni æsku-
fólks í álfunni með samstarfi á
sem allra flestum sviðum — í
þeirri von, að aukið samstarf
geti styrkt vináttuböndin og
veitt æskunni afl til að hrinda
í framkvæmd nýjum stórvirkj-
um, sem til þessa hefur skort
skilyrði til. — Einstakir þættir
starfseminnar verða nánar rædd
ir, þegar framkvæmdanefndin
kemur næst saman, en það mun
a.ö.l. verða í Osló í október-
mánuði n.k.
Fullskipaðan fund Æskulýðs-
ráðs Evrópu, þar sem hvert að-
ildarsamband hefur rétt til að
eiga 3 fulltrúa, er áformað að
halda í apríl-mánuði næsta ór.
Fundarstaður hefur ekki verið
ákveðinn.
Á f tengslum viff WAY—heims-
samtök æskunnar
Meðal áheyrnafulltrúa á fyrsta
fundi framkvæmdanefndarinnar
í Vín var David Wirmark, fram-
kvæmdastjóri World Assembly of
Youth, og David Baad frá sömu
samtökum, en Æskulýðsráð Evr-
ópu starfar einnig sem sérstak-
ur ráðgjafaraðili þessara heims-
samtaka æskunnar varðandi mál-
efni Evrópu.
jöfnum reyndar. Sumir hafa sótt
í alfræðibækur, stórar eða smáar,
aðrir orðið sér úti um Islendinga-
sögurnar og setið yfir þeim á síð-
kvöldum. í öðrum hópnum eru
sænsk hjón, sem tala og skrifa
allra þokkalegustu íslenzku:
„Fyrirgefið þér mína vondur ís-
lenzka". Svo mikið gæti ég ekki
sjálfur sagt á sænsku.
— Þessar heimsóknir hafa
krafizt drjúgs undirbúnings?
— Víst má stgja það. Ferða-
þjónustan hefur komið sér upþ
viðleguútbúnaði og er hann not-
aður í óbyggðaferðunum. Nesti í
þær ferðir hefur Ferðaskrifstofan
líka séð um að útvega, en hins
vegar ekki „nýja skó“ — þó að
varla hefði veitt af slíku, því að
fararstjórinn í óbyggðaferðun-
um, Árni Stefánsson, skólastjóri
frá Selfossi, leggur mikið upp úr
gönguferðum, fer með stúdent-
ana um fjöll og firnindi — og
þræðir gjár þess í milli.
Ýmsir aðilar hafa verið okkur
hjálplegir í sambandi við undir-
búninginn. Stúdentarnir gista í
heimavist Sjómannaskólans, með
an þeir eru hér í bænum: Sæng-
ui-föt og sitthvað annað, sem við
höfum þurft á að halda, hefur
verið fengið að láni hjá ýmsum
aðilum, sem mjög góðfúslega
hafa látið það í té. Við stöndum
því í þakkar skuld við marga.
— Hvað er um utanfarir ís-
lenzkx-a stúdenta að segja?
— Að afloknum stúdentspróf-
um fór utan á vegum Ferðaskrif-
stofunnar hópur 14 nýstúdenta úr
Verzlunarskólanum. Þeir komu
heim aftur með „Gullfossi" nú í
vikunni, eftir að hafa farið til
margra staða á meginlandinu,
allt frá Danmörku til Frakklands
og þar fyrir utan um England og
Skotland. Sú ferð var furðulega
ódýr, áreiðanlega ódýrari en
nokkur annar hefði getað boðið
upp á. Slíkt má raunar segja um
flestar eða allar þær ferðir, sem
Ferðaþjónustan getur útvegað
stúdentum og háskólaborgurum
— og er það að þakka góðu sam-
starfi við stúdentaferðaskrifstof-
ur annarra landa, einkum nor-
rænu stúdentaferðaskrifstofuna
SSTS. Sú ferðaskrifstofa hefur
á boðstólum f sumar nærri 400
hópferðir um þvera og endilanga
Evrópu, bæði austantjalds og
vestan — og að auki ótal leigu-
flug og lestarferðir í allar áttir.
Þó að allmargir íslenzkir stúdent-
ar hafi notfært sér þetta síðustu
árin, mega þeir heita furðufáir
— miðað við þau kostakjör, sem
á boðstólum eru.
Draumar okkar og framtíðar-
áform eru, að Ferðaskrifstofan
hér annist allar ferðir stúdenta
og háskólaborgara, innlendra sem
erlendra, bæði hingað og héðan.
Þannig er því farið /íðast í ná-
grannalöndunum. Vonandi rætist
þessi draumur sem allra fyrst
Þess má að lokum geta, að
auk Þórs Hagalxn eru í stjórn
Ferðaskrifstofunnar þetta árið
þeir Helgi H. Jónsson og Svanur
Þór Guðmundsson — og er sá
síðastnefndi formaður hennar.
— Ó.