Alþýðublaðið - 03.01.1930, Qupperneq 2

Alþýðublaðið - 03.01.1930, Qupperneq 2
2 ' T!-r% 1929. Enn er ár liðið. Annað nýtt byrjað. — , Liðná árið hófst með kaup- deilu, einni hinni stórfeldustu, er háð hefir verið hér á landi. Eig- endur , botnvörpuskipaflotans kröfðust nokkurrar lækkunar á kaupi sjómanna. Sjómenn neit- uðu, vildu ,fá hækkun. Eigend- umix létu binda skipin og af- skrá sjómennina. ' Meira en 2 mánuði lágu skipin bundin. At- vinnuleysið og fylgjur þess kreptu að sjömönnum, en Jþeir hvikuðu hvergi. Allra bragða var leitað til f>ess að rjúfa samtök- in — árangurslaust. Meiri hluti stjórnar Eimskipafélags íslands dró Eimskipafélagið inn í deiluna og voru nokkur skip pess stöðv- uð um hríð til pess að reyna að hjálpa útgerðarmönnum. Að yfirvarpi'var haft ágreiningur um að eins 11000 krónu kaupupp- hæð á flota pess öllum. En, sam- tök sjómanna vstóðust hverjá raun. Loks ,urðu útgerðarmenn að sætta sig við að hækka kaupið um 15—17o/o. Höfðu þeir þá mist af 2 beztu aflamánuðum ársins og bakað sjálfum sér og þjóð- inni stórtjón með offorsi og ó- bilgirni. Samningi þeim, sem gerður var við togaraeig- endur er deilunni lauk, var eigi sagt upp í haust, og gildir hann því óbreyttur þetta ár út. Þetta var byrjunin. Fleiri fóru á eftir. Um alt land hafa stéttar- samtök alþýðu, yerklýðsfélögin, eflst og styrkst á árinu, og víða hafa þau komið fram veruleg- um kauphækkunum , og hags- bótum fyrir hinn vinnandi lýð. Á sviði stjómmálanna hafa al- þýðusamtökin einnig unnið á. Tilraun ihaldsins til þess að lög- festa vinnudóm, þrælalögin, var hnekkt. Á liðnu ári viðurkendi alþingi loks þá skyldu hins op- inbera, ríkis og bæjarfélaga, að létta af eignaleysingjunum böli okurleigu og illra húsakynna. Á þessu ári deggja ríkissjóður og bæjarsjóðir í (fyrsta sinn fram fé til þess að styrkja verkamenn j, kaupstöðum ©g kauptúnum til þess að eignast sæmilega ódýr húsakynni, svo jrúmgóð og búin þægindum, að $iðuðu fólki sé samboðið. Of igkamt var stigið, framlagið skorið §vo naumt við neglur, að tekki verður bætt nema iað litlu iúr bölinu í bráð. En viðurkenningin er fengin. Brátt mun næsta iskrefið, stærra, verða stigið. Ungir menn ,pg ungar konur á aldrinum £1 til 25 ára hafa tij þessa af |öggjöfum þjóðarinnar verið sett á bekk með fábján- um og pieinað með öllu að hafa áhrif á qneðferð opinberra mála- Fátæklingarnir, sem yeyöst hafa til þess, -vegna óhæfilega lágra launa og ^lélegrar atvinnu, veik- inda eða öðrum ástæðum, að fá örlítinn istyrk af almannafé til framfærslu börnum |SÍnum, hafa orðið að iborga styrkinn með verið sviftir , kosningarrétti og kjörgengi eins og glæpamenn. Á síðasta alþingi var loks nokkuð bætt úr hinu herfilega ranglæti, er þetta ,fólk hefir verið beitt. Næstu daga fara fram bæjar- stjórnarkosningar um land alt Þá greiðir ,unga fólkið og fátæk- lingarnir, er styrk hafa þegið, í fyrsta sinn atkvæði, kjósa sér fulltrúa. Alþýðúfélögin hér hafa á liðnu ári eignast hús, stórt og veglegt. í Vestmannaeyujm . hafa þau bygt stórhýsi. , Liðna árið yar „hagstætt" ár. Tíðarfar var milt, aflabrögð á- gæt, skepnuhöld góð og hey- fengur í betra lagi. Landsmenn hafa framleitt .vörur og selt til útlanda fyrir ;um 70 milljónir króna. Mun láta nærri, að verð aðkeyptrar vöru ,nemi svipaðri upphæð; liklega þó heldur lægri. En þess ber vel áð gæta, að stór- mikill hluti .af aðkeyptum vam- ingi er ekki eyðslufé, heldur varanlegar eignir , og verðmæt framleiðslutæki. Enginn , minsti vafi er á því, að eignir íslend- inga hafa aukist mjög á síð- asta ári. Jaröabætur, símar, brýr, vegir og þess háttar mannvirkj hafa verið gerð fyrir milljónir króna; vélar, skip og önnur framleiðslutæki keypt Jyrir millj- ónir, og hús verið reist fyrir hátt upp í milljónatug. Alt eru þetta varanlegar og verðmætar eignir, eignaaukning. , Þrjú árin síðustu hafa verið stórkostleg gróðaár. , Mun láta nærri, að verð útfluttrar vöru hafi þessi ár numið 20—30 millj- ónum króna rneiru en verð inn- flutningsins. Þó hefir á þessunj 3 árum meira verið gert að kostnaðarsömum framkvæmdum og eignaauknnigu en nokkru sinni fyr á jafnstuttum tíma. Er nú svo komið, að hver einasta vinnandi hönd hér á landi getur skapað margfalt verðmæti á við það, sem unt var fyrir tæpum mannsaldri. Hver einasti íslend- ingur ætti því nú að geta notið margfaldra lífsgæða, margfalds öryggis um .afkomu sína og sinna, á yið það, sem þá var. Svo er þó ekki. Enn býr .allur þorri íslendinga við fátækt og fullkomið öiygg- isleysi. Enn , hafast þúsundir karla, kvenna og barna við i viöbjóðslegum kompum, , stór- hættulegum allri ,heilbrigði og proska. Enn , skortir þúsundir manna nauðsynlegt Jæöi og fatn- að. Enn ,greiðir hið opinbera, sem fátækrastyrk, hart nær 2 milljónum króna ár hvert, að mestu vegna þess, hve atvinnu- rekendur vangjalda .vinnu verka- lýðsins. Enn (skortir allan þorra þjóðarinnar nauðsynlegan bóka- kost, og menningartæki. Hvers, vegna ? Vegna þess, að „gróðinn", það, sem fólkið í landinu hefir fram- leitt og ,selt umfram það, sem keypt hefir verið að og eytt, hefir runnið , til nokkurra ör- fárra manna. , Alþýðan, sem veiddi og verkaði fiskinn, rækt- aði jörðina, sló og rakaði og hirti um skepnurnar, sem bygðj húsin og vegina, brýrnar og sím- ana, hefir pkki fengið „gróðann“ í sinn hlut. Hann hefir áð mestu runnið til þeirra, sem „eiga“ framleiðslutækin, ráða yfir veltu- fé þjóðarinnar og skattleggja viðskifti hennar stór og smá. Fyrir 3 árum áttu einir 120 menn fullan þriðjung af öllum skattskyldum eignum í landinu. 13 menn áttu samtals nærri 11 milljónir samkvæmt eigin fram- tali. Fullir 4/5 hlutar þjóðarinnar áttu alls ekkert. Þeim skal gefið, sem eiga. Gróði þessara þriggja síðustu ára hefir að langmestu leytj runnið til 'þessara 120 manna, sem áttu íyrir fullan, þriðjung af öllum þjóðarauðnum. Því er pem er, að meira en 4/5 hlutar þjóðarinnar hafa tæp- ast til hnífs og skeiðar þrátt fyrir „góðærið", og þúsundir búa við sáran skort, ná hvorki and- legum né líkamlegum þroska og deyja fyrir aldur fram. „Þúsunda lif þarf í eins manns auð,“ segir góðskáldið spaka, Einar Benadiktsson. Bæjarstiórnaikosninoamar á Seyðisfirði. FB,, 2. jan. Frá SeyðisfirÖi er símað: Bæj- arstjórnarkosning fer fram hér 16. þ. m. FramboÖsfrestur rann út í dag. Þrír listar eru fram, komnir. Nánar á morgun. Bæ j arstjórnarkosning- arnar á Akureyri. Akureyri, FB., 2. jan. Þrír listar eru fram komnir við bæjarstjórnarkosninguna hér. — Efstu menn Mstanna eru: Á Msta jafnaðarmanna: Erlingur Friðjónsson alþm., Elísabet Eiríksdóttir kenslukona, Einar Olgeirsson framkv.stj. Karl Magnússon sjómaður, Steiriþór Guðmundsson kfennari, Þorsteinn Þorsteinsson verzl.m. Halldór Friðjónsson ritstjóri, Á Msta íhaldsins: Sigurður Hlíðar dýralæknir, Hallgrímur Davíðsson verzlunarstjóri, Ólafur Jónsson, framkv.stj. Ræktunarf. Nl., Tómas Björnsson kaupm., GísM Magnússon bókhaldari, Páll Einarsson fiskikaupm., Ste- fán Jónasson skipstjórí. Á lista , Framsóknar“-manna: Ingimar Eydal skólastjóri, Bryn- leifur Tobíasson kennari, Jón Guðlaugsson bæjargjaldk., Böðv- ar Bjarkan lögfr., Jóhannes Jóns-< son verkstjóri, Vilhjálmur Guð-i mundsson verkam., Jónas Þóí verksmiðjustjóri. Slysið á „Dratipni", Slysið á togaranum „Draupni“? sem sagt var frá hér í blaðinií I gær, varð með þeim hætti, að sjór kom á skipið aftanvert og gekk yfir það, er það var að toga, og tók Hallgrím heátinni Jónsson út með sér. Var þó all- hijög dregið úr veðrinu þegais slysið varð, móts við það, sem. verið hafði þá undanfarið. HainarljgrBnr. Jólatrés-hátíð. Verkakvennafélagið „Framtíö^ in“ heldur jólatrés-fagnað fyrir börn félagskvenna á morgun ■#. bæjarþingsalnum (gamla barna- skólanum). Félagskonur eru beðm ar að vitja um aðgöngumiða' kl, 12—4 á morgun , Erlengl símskeyti*. Lundúnum, FB., 2. jan. „United Press“ tilkynnir: Slys í Suður-Ameríku. Slys varð með þeim hætti í Olivos, einni útjaðraborg Buenos Ayres, að farþegabifreið rakst á járnbrautarlest. Sjö menn. biðu bana, þar af 6 úr sömu fjölskyld- unni, en einn maður hlaut alvar- leg meiðsli. Frá Indverjum. Frá Lahore er símað, að sam* þykt hafí. verið á þingi indverska þjóðernissinna, að þingið kom* næst saman í Karachi í febrúar. eða marz 193L — Á lokáþing- fundi, seinni hluta dags á mánui dag, hvatti Moailal Nehru alla þá, sem þátt höfðu tekið í þing-< störfunum, til þess að stuðla að því, að allir Indverjarj sem hafa störf á hendi fyrif, hið opinbera, segi af sér störfunj sínum og tilkynni landsstjóranum það þegar formlega. Frelsishreyflng i nýlendum Hollendinga í Asíu. Frá Amsterdam er símað, að' fregnir hafi borist þangað frá! Batavíu, þess efnis, að komist hafi upp um samtök þjóðernis* sinna gegn yfirráðum Hollend- inga i nýlendum þeirra í Asíu, Þátttakendur í samtökum þessunti eru fjölda margir og virðast þeir eiga sér fylgismenn út um allar nýlendurnar, Nokkur hundruð þeirra hafa verið handteknir. Fregnum 'þessum fylgir, að ,'á bækistöðvum samtaksmannanna hafi fundist skjöl, sem sanni, áð þeir háfi staðið í sambandi við starfsmenn rússnesku stjórnarinn- ar. — (Batavia er höfuðborgin á Java.)

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.