Alþýðublaðið - 06.01.1930, Side 3

Alþýðublaðið - 06.01.1930, Side 3
 rp< m ALÞÝÐUBLAÐID Beztu egipzkn cigaretturnar í 20 stk, pökk- um, sem kosta kr. 1,25 pakkinn, eru: iSoussa Cigarettur frá Micolas Soussa fréres, Cairé. Einkasalar á íslandi: TétoaksTOrzBum jslands h.^f. E33 ES3 Í&Ái'fe. Íí 1 Postulfn- leir- og glervðrar. _______ ■wmmmm Alnminium búsáhöld, Dömutöskur^og ýmis kon- ar tækifærisgjafir. Barnaleikföng o. fl. i mesta úr- vali ávalt ódýrast hjá * ■ 1 í K. Einarsson & Björnsson. Fisklfélags íslands verður haldinn í kauppingsalnum í Eimskipa- félagshúsinu fimtudaginn 9. jan. og hefst kl. 1 e. h. DAGSKRA: 1. Forseti gerir grein fyrir störfum félagsins á liðnu ári. 2. Störf Fiskifélagsins (vélfræðingur, fiskifræð- ingur, verkleg og vísindaleg störf). 3. Lagabreytingar. 4. Húsbyggingarmál félagsins. 5. Ýms önnur mál, sem upp kunna að verða borin. Stjórn Fiskifélags íslands. ræöa refjar við sjómennina eða viljandi er reynt að ófrægja Síld- areinkasöluna og gera hana ó- vinsæla hjá sjómönnum með því að halda fyrir peinj fé þeirra og kenna Einkasölunni um dráttinn. Kanpið í bæjarvinnunni. TUIaga um hækknn pess. ^ð lokaumræðuna á síðasta bæjarstjórnarfundi um Eftir- launasjóð Reykjavíkurborgar fyr- ir fasta starfsmenn hennar (sem hafa skipunarbréf og taka mán- aðarlaun) benti, Haraldur Guð- mundsson á, að bæjarstjörnin parf einnig að muna eftir öðr- nm starfsmönnum bæjarfélagsins, *em hafa bæði enn lægra kaup og stopulli vinnu, stundakaups- mönnunum. Yfirleitt þyki flestum öðrum borgum sómi að því að gpra vel við verkamenn sína. T. ff. greiði Kaupmannahafnarborg sínum verkamönnum 5 aurum hærra kaup um kLstund en aðrir atvinnurekendur. Reykjavík hafi f>ar annað lag. Hér er kaupið 10 aurum lœgra um klst. en hjá öðrum atvinnurekendum yfirleitt Sóma síns vegna geti bærinn ekki haldið pví áfram að greiða verkamönnum sínum ver en aðr- ir atvinnurekendur. Að svo mæltu flutti Haraldur svofelda tillögu: „Bæjarstjórnin sampykkir að greiða fullgildum verkamönnum í bjónustii bæjarins, sem reglu- gerðin um Eftirlaunasjóð Reykja- víkurborgar nær ekki til, lág- markskaup samkvæmt kauptaxta verkamannafélagsins „Dagsbrún- ar“.“ Knútur borgarstjóri lét illa við fiessari tillögu. Hann vaT ekki kominn til að láta sannfærast og hélt því fram, að kjörin í bæjar- vinnunni væru sízt verri en hjá öðrum atvinnurekendum. Kvað hann „ótimabært" að bera tillög- una frami til samþyktár á þess- um fundi. Málið þyrfti að rann- saka, — o. s. frv. o. s. frv., eins og hans er vani, þegar hann vill draga eitthvert þjóðþrifamál á langinn. Ólafur Friðriksson hrakti firrur Knúts. Benti hann á, að yfirleitt greiða atvinnurekendur fullan kauptaxta, þótt þeir hafi menn í stöðugri vinnu, nema bærinn undir stjórn Knúts. Áður fyrr greiddi bæjarfélagið sama kaup og aðrir. En fyrir 2—3 árum gerðist það tvent á sama bæjar- stjórnarfundinum, að laun borg- arstjórans voru hækkuð að mun og að bæjarfulltrúunum var til- kynt, að búið væri aÖ lækka stundakaupið í bæjarvinnunnL Þá lækkun ákvað Knútur á bak viö bæjarstjórnina um leið og flokkur hans hækkaöi launin við hann sjálfan. Hallgrímur Benediktsson sá, hvað Knútur vildi vera láta og lagbi til, að tillögu Haralds værj vísað til fjárhagsnefndar. Haraldur benti á, að ágætlega færi saman aö gera þá samþykt, sem tillagan hljóðaði um, sam- tímis þvi að eftirlaunamál föstu starfsmannanna væri afgreitt. Hann hefði áður hreyft þessu máli á bæjarstjórnarfundi og óskað, að fjárhagsnefndin taékj það til athugunar, en það hefði hún ekki gert. Það væri því aug- sýnilega að stinga málinu undir stól að visa því til hennar, nema jafnframt væri svo ákveðið, að hún skyldi skila tillögum um það fyrir næsta bæjarstjórnarfund. — Það er næsti fundur fyrir kosn- ingar. Lagði Haraldur til, að því tímatakmarki væri bætt við til- j lögu Hallgrims, ef hann vildi halda fast við að leggja til, að málið færi til nefndar. Viðauka- tillaga Haralds var samþykt með 7 atkv. gegn 5, og tillaga Hallgríms um að visa aðaltillög- unni til nefndar samþykt svo breytt. Skal fjárhagsnefndin sam- kvæmt því skila tillögu Haralds um kauphækkunina í bæjarvinn- unni aftur fyrir næsta bæjar- stjórnarfund. _______ Erfiesid ssimskeyti. FB., 4. jan. Slysið á Shrewe. „United Press“ tilkynnir: Síðustu fregnir frá Shrewe í Ohio herma, að 5 piltar og bif- reiðarstjórinn hafi beðið bana, en 6 piltar og þrjár stúlkur meiðst hættulega. (Eftirprentnn bönnuð.) 'Frá sjómðnnanum. FB., 4. jan. Farnir til Englands. Vellíðan. Kveðjur til vina og vandamanha. Skipverjar á „Hafsteini“. ”„Hlutafélagið TarðarMsið". í næstsíðasta Lögbirtingi er birt tilkynning til firmaskrárinn- ar um stofnxm „Hlutafélagsins Vardarhúsid“. Tilkynningin er dagsett 15. maí 1929 og uþplýsir fyrst, að heimili félags þessa og vamarþing sé í Reykjavík. — Og enn fremur: „Félagið er myndað til pess að kaupa og slðan leigja út eða lána húseignina „Varðarhúsið“ við Kalkofnsveg l Reykjavík á peim grundvelli, að félagið með starf- semi sinni styðji og efli lands- málastefnu lhaldsflokksins.“ (Ekki Sjálfstæðisflokksins.) Meðal stofn- enda eru: Jón Þorláksson verk- fr., Guðmundur Jóhannsson kaup- maður, Bjarni Jónsson bíóstjóri, Magnús Guðmundsson og Sigur- gísli Guðnason. Þrir hinir síðast töldu eru í stjóminni og er Maghús fonnaður. Ojæja! Húsið á að leigja út ag lána á peim grundvelli, að félagið með starfsemi sinni styðji og efli fandsmálastefnu íhalclsflokksins. — Það er engu líkara en að höf- undur eða höfundar ávarpsins tff drottningarinnar hafi samið 'þessa’ tilkynningu. Þegar tilkynningin er dagsett og send lögreglustjóra, 15. máf s. 1., var búið að tilkynna öllum landslýð hátíðlega með blöðum, bréfum, simskeytum og ræðum, að Ihaldsflokkurinn væri dauður, 'steindauður með öllum syndum og vondum gimdum. En samt er„ samkv. tilkynningunni, tilganguxv inn að fremja útleigingamar „á þeim gmndvelli“ að „efla og styðja landsmálastefnu íhalds- flokksins". Þetta mun og standa óbreytt í lögum hlutafélagsins enn þá. Heima hjá sér halda íhalds- mennímir Ihaldsflokksnafninu, þeir kunna að vonum bezt vi9 það. — „Sjálfstæðinu" á svo að veifa framan i háttvirta kjósend- ur. Það er eins og að fara í hreinai skyrtu á hátíðiun utan yfir þá' skitugu. Til Strandarkirkju. Áheit frá konu 3 kr. og ann- að, frá J. G. 3 kr. Linuveiðararnir eru að fara á veiðar. Var lög- skráð á þrjá í gær, „Sigríði", „Fjölni" og „Pétursey". Hinir munu og fara næstu daga.

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.