Morgunblaðið - 06.10.1963, Side 15

Morgunblaðið - 06.10.1963, Side 15
Sunnudagur 6. október 1963 MORGUNBLADID 15 Kirkjan í Innri-Njarðvík — Pípuorgel Framh. af bls. 2 og ofan af heiði og meitlað með einföldustu tækjum. Þeir höfðu vart annað en hendurn ar, blessaðir bændurnir sem byggðu hana. — Það hefur liklega margt breytzt hér á þessum sextíu árum Jórunn? — Já, það má nú segja, góða mín, að margt hefur „ breytzt og fólkinu fjölgað. Þá lifðu menn aðeins á sjón- um og dýrunum, höfðu þetta tvær til þrjár kýr og nokkrar kindur — og svo eitthvað í görðunum. En nú sýður vatnið og Jór- unn fer að renna á könnuna. Hún sýnir mér gömlu kola- vélina sína, því þótt tækni nútímans sé allt umkring, hefur hún haldið tryggð við sína gömlu vél „hún er svo skínandi góð og ofninn fram- úrskarandi. Hún er þýzk, þeir framleiða góðar vörur í Þýzkalandi — ég á líka þýzka saumavél, skínandi góða —, þess vegna þykir mér vænt um, að orgelið skuli vera það- an. Eg hef hérna í kringum mig þessa gömlu muni — það er gott að geta verið einn á sínum stað og hér líður mér svo undur vel“. Þeir hafa rennt á kaffiilm- inn, Geir og Guðmundur. Geir starfar í hraðfrystihúsi Kefla- víkur og hefur þar ærnu starfi að sinna, en orgelið er hans yndi og organistastarfið unnið í tómstundum. Guðmundur gefur mér þær upplýsingar, að kirkja hafi að öllum líkindum verið í Innri Njarðvík í 700 ár. — Fyrsti máldagi kirkju, sem vitað er um, er frá 1265. Sennilega hefur kirkja lagzt hér niður um siðaskipti og svo verið þar til Brynjólfur biskup í Skálholti lét reisa hér nýja kirkju. Allar munu þær hafa verið á þessum sama stað — þó ekki alveg á sama grunni, en þar munar ekki ýkja miklu. — Þetta er mikið átak hjá svo litlum söfnuði að halda svo fallega kirkju og koma upp pípuorgeli. Hefur söfnun fyrir því gengið vel? — Já það er óhætt að segja — og þar er svo mörgum fyr- ir að þakka, ekki aðeins Njarðvíkingum og nágrönn- um þeirra, heldur og Reyk- víkingum, einstaklingum og fyrirtækjum, kunnugum og ókunnugum, sam lögðu okk- ur lið. Vígt við messu Nokkru síðar var pípu- orgelið nýja tekið út við hátíðlega athöfn. Ávörp fluttu þeir Guðmundur, söngmála- stjóri, séra Garðar Þorsteins- son, prófastur í Hafnarfirði og sóknarpresturinn, séra Björn Jónsson. Páll Kr. Páls- son lék einleik á orgelið og að lokum var sunginn sálm- ur. Formlega verður orgelið svo vígt við messu eftir nokkrar vikur og þá er einn- ig áformað að vígja kirkju- klukku, sem söfnuðurinn í Keflavík hefur gefið til kirkj- unnar í Innri-Njarðvík. mbj. í skip einnig nauðsynlegir í heimahúsum miðstöðvarherb. eldhús verkstæði og allstaðar sem eldhætta er. VALOR slökkvitæki ASBEST hrunateppi Verzlun O. ELLINGSEN Kennsla Vélritunarkennsla Kristjana Jónsdóttir sími 35367 kl. 1—3 e. h. HAFNARFJORÐUR Börn vantar til að bera út til kaupenda. AFGREIÐSLAN Arnarhrauni 14 — Sími 50374. Verzlunarhús við Suðurlandsbraut í verzlunarhúsi á bezta stað við Suðurlandsbraut verða til sölu þrjár uppsteyptar hæðir, 400 fer- metra hver. — Þeir sem hefðu áhuga á kaupum leggi inn nafn og heimilisfang í umslagi á afgreiðslu Morgunblaðsins fyrir mánudagskvöld merkt: „Framtíðarstaður — 3780“. Verzlunin Fífa auglýsir Ný sending af japönskum, ódýrum 100% nylon Stretch buxum Stærðir 3 — 14. Verð frá kr: 155,— til kr: 250.— Kínverskar ullarpeysur fyrir dömur og herra. Verzlunin Fífa Laugavegi 99 — Sími 24975. Inngangur frá Snorrabraut. Sendisveinn óskast strax. Magnús Kjaran umboðs og heildverzlun Hafnarstræti 5, sími 24140. •* s# Eldhúsviftur Amerískar ELDHÚSVIFTUR með skerm og innbyggðu Ijósi. ALUMINIUM: stál- og Oxyd áferð. J, Þorláksson & Norðmann hf. Bankastræti 11. Morgunblaðið vantar nú þegar duglega krakka, unglinga eða eldra fólk til blaðadreifingar víðs vegar í Reykjavík. SORLASKJOL í þessi hverfi í Austurbænum: GRETTISGAT A hœgra númer — HVERFISGATA snnanverð — LAUFÁSVEG LAUGAVEGINN neðanverðan — ÓDINSGÖTU ÞINGHOLTSSTRÆTI 1 Ennfremur í þessi hverfi: ^ KLEPPSVEGUR - KLEIFARVEG - LAUGARÁSVEG 1 Talið við Morgunblaðið strax. Sími 22480.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.