Morgunblaðið - 17.10.1963, Síða 3
MORGUNBLAÐIÐ
3
Fimmtudagur 17. oíct. 1963
Á BÓKAUPPBOÐINU, sem
Sigurður Benediktsson hélt í
Þjóðleikhúskjallaranum í
gær, var mjög léttur andi og
gaman hent á lofti, en boðin
voru í daufara lagi. Fyrsta
númer á skrá var Almanak
Þjóðvinafélagsins 1875 til
1957, sem Jónas Aðalsteins-
son keypti á 1600 kr. Sjöunda
var kassi af ýmsum nótna-
bókum. Var lengi tregða á
boðum, en Sigurður lýsti því
yfir, að í kassanum kenndi
margra grasa og vseri í hon-
um fengur fyrir þá, sem
músíkalskir eru. Tóku menn
þá að bjóða og hreppti Guð-
mundur Þorsteinsson hann
loks fyrir 275 . krónur. Ula
gekk að fá boð í íslenzk-
Öll ritverk Laxness ■ frumprenti
seld fyrir 30100 kr. á uppboði
Séff aftur eftir salnum meðan á uppboðinu stóff.
franska samtalsbók, prentaða
í Kaupmannahöfn 1893. Benti
Sigurður þá á það, að hún
kynni að koma sér vel á
ferðalögum, og var hún keypt
á 50 krónur.
Bjarni Guðmundsson keypti
Gátur, þulur etc. eftir Jón
Árnason og Ólaf Davíðsson
á 1750 krónur. Biskupasögum
Bókmenntafélagsins fylgdi úr
hlaði 2500 króna boð og varð
þá löng þögn í salnum. Loks
bauð einhver .2550 krónur.
„Það er greinilega yfirboð",
sagði Sigurður. Biskupasög-
urnar voru slegnar Jakobi
Benediktssyni á 3000 krónur.
Þá keypti Magnús Ólafsson
Biskupasögur Sögufélagsins á
1050 krónur. Næst í röðinni
var öll Árbók Ferðafélagsins
í frumprenti, sem Viggó Jóns-
son keypti eftir mörg boð og
yfirboð.
Var nú komið að öllum rit-
verkum Halldórs Kiljans Lax-
ness í frumútgáfu, alls 42
bindi í geitarskinni. Eigand-
inn lét 30 þús. króna boð
fylgja verkinu. Leit lengi svo
út sem ekki yrði boðið í
Laxness, þótt Sigurður lýsti
því yfir, að ekki væri völ á
honurn í betra ásigkomulagi.
Guðmundur Benediktsson
bauð þá 30100 kr.. og fékk
verkið á því verðL
Bandaríkjamenn ogRúss-
ar eru sammála
um bann v/ð kjarnorkuvopnum i
geimnum — „Nýtt skref i átt til
afvopnunar", segir Stevenson
New York, 16. okt. — (NTB-AP)
í D A G samþykkti stjórn-
málanefnd Sameinuðu þjóð-
anna tillögu um bann við því,
að kjarnorkuvopn verði send
út í geiminn. Var skorað á
allar þjóðir heims að styðja
tillöguna. — Sovtéríkin og
tillöguna. — Sovétríkin og
Bandaríkin voru meðal þeirra
sem samþykktu tillöguna, og
verður hún rædd á fundi
Allsherjarþings SÞ á morgun.
Ríkin 17, sem sæti eiga á
afvopnunarráðstefnunni í
Genf, höfðu forgöngu um til-
löguna og flutti fulltrúi
Mexíkó hana íyrir þeirra
hönd. Tillögunni var vel fagn
að í stjórnmálanefndinni.
Eftir að tillagan hafði verið
borin fram tók Adlai Stevenson,
fastafulltrúi Bahdarikjanna hjá
SÞ, til máls. Kvað hann tillöguna
vera mikilvægt skref í átt til af-
vopnunar og sagðist telja, að hún
gæti orðið til þess að fleiii skref
yrðu stigin í sömu átt. Steven-
son endurtók fyrri yfirlýsingu
Bandaríkjastjórnar þess efnis, að
hún hygðist ekki senda kjarn-
orkuvopn á braut umhverfis
jörðu eða gera tilraunir með þau
utan gufuhvolfsins, svo framar-
lega sem aðrar þjóðir hefðu ekki
forgöngu um slíkt.
Fulltrúi Sovtéríkjanna, Niko-
laj Federenko, lýsti einnig
ánægju sinni með tillöguna og
sagðist vona, að hún yrði sam-
þykkt á Allsherjarþinginu.
Geimfarar Sovétríkjanna, Júrí
Gagarín og Valentína Tereskova,
sátu fund Alisherjarþings Sam-
einuðu þjóðanna í dag. Voru þau
ákaft hyllt, er þau gengu í sal-
inn. Geimfararnir komu til New
York í boði U Thants, fram-
kvæmdastjóra samtakanna.
Kasta í Kolluál
SEX síldarbátar fóru út á veiðar
héðan í dag, en margir munu
bætast í hópinn næstu daga.
Bátarnir héldu vestur á Kollu-
ál. Seint £ kvöld voru þeir að
byrja að kasta, en ekki er vitað
um aflabrögð. Þarna eru og
fleiri bátar úr öðrum verstöðv-
um.
STAKSTEINAR
Betra þjóðfé’ag
ALÞÝÐUBLAÐIÐ gerir í gæ T
aff umtalsefni í forystugrein.
sinni hina stórfelldu eflingu al-
mannatrygginga undir forystu
Viffreisnarstjórnarinnar. Blaðið
minnist á fjárlagafrumvarpið
fyrir 1964 og segir aff þaff leiffi
í Ijós aff ríkisstjórnin hyggist
halda áfram að auka ýmiss kon-
ar þjónustu við almenning. Lýst
sé yfir aff bætur almannatrygg-
inga eigi að hækka til samræm-
is viff launahækkanir undanfar-
inna mánaða og sé von á frum-
varpi með nánari ákvæffum um
þau mál.
Alþýffublaffiff kemst síðan að
orði á þessa leið:
„I heild er variff til félagsmála
yfir 600 millj. kr. og til skóla
og annarra menntamála yfir 400
millj. Fara til þessara tveggja
málaflokka 40 aurar af hverri
krónu ríkisútgjalda. Hefur orðið
voldug aukning á fjárframlögum
á þessum sviffum í tíff núver-
andi stjórnar og stefnir það mjög
til betra þjóðfélags."
Kommúnistar
báglega staddir
Kommúnistar töpuðu eins og
kunnugt er einu þingsæti í al-
þingiskosningunum í sumar og
eiga nú 9 þingmenn á Alþingi.
Afleiffing taps þeirra er m.a. sú,
aff nú fá þeir ekki fulltrúa kosna
í fimm manna nefndir i Sam-
einuffu þingi effa Neffri deild.
Stjórnarflokkarnir fá þar þrjá
fulltrúa en Framsóknarflokkur-
inn tvo.
í Efri deild höfffu kommúnist-
ar hins vegar möguleika á að fá
mann kosinn í fimm manna nefnd
ir með hlutkesti á móti öðrum
manni á framboðslista Framsókn
arflokksins viff nefndarkjör. í
fyrradag fóru svo fram átta hlut
kesti viff nefndarkjör í Efri
deild. Voru þá kommúnistar þar
mjög óheppnir. Framsóknar-
menn unnu sex hlutkesti, en
kommar aðeins tvö. Var það
Gils Guðmundsson, fyrrverandi
þingmaffur Þjóffvarnarflokksins,
sem vann bæffi þessi hlutkesti
og komst í tvær þingnefndir.
Nýr flugvöllur
í Önundarfirði
„Vesturland," blaff Sjálfstæð-
ismanna á ísafirffi, birtir nýlega
samtal viff oddvitann í Flateyr-
A. Pétursson í
tilefni af því, að
byggffur hefur
veriff í sumar
nýr flugvöllur
í Önundarfirffi.
Skýrir oddvit-
inn frá því að
framkvæmdir
viff hinn nýja
flugvöll, sem er
í landi hins
merka prestseturs Hoits i Ön-
undarfirði, hafi hafizt síðast i
júlí. Byggff hefur veriff 600 m
flugvallarbraut, sem er 30 metra
breiff. Rafn Pétursson kemst m.
a. að orffi á þessa leið í samtali
sínu viff Vesturiand:
„— Affstæffur viff hinn nýja
flugvöli eru einstaklega góffar.
Affflugiff er mjög gott, því fjörð
urinn er þarna mjög víffur og
flugmenn telja þetta eitthvert
bezta flugvallarstæði á Vest-
fjörðum.
„— Viff Önfirffingar teljum að
þessi flugvöllur verffi okkur
mikil samgöngubót, bæði sumar
og vetur, og þarna getur 16
manna flugvél Björns Pálssonar
hæglega lent.
Flugvallargerffin í önundar-
firffi er eitt af þeim stóm átök-
um sem þingmenn okkar Sjálf-
stæðismanna hafa hrundið i
framkvæmd á þessu nýbyrjaffa
kjörtímabili," segir Rafn A.
Pétursson, oddviti Flateyrar-
hrepps aff lokum.
arhreppi, Rafn
Rafn Péturss.