Alþýðublaðið - 07.01.1930, Síða 4
4
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
'ári, ef þjóöpingið samþykkir
iaukninguna.
Frá Þjóðverjum.
Frá Haag er símað: Staðfest
hefir verið opinberlega, að dr.
Schacht, forstjóri pýzka ríkis-
bankans, sé væntanlégur til Haag
í vikulokin. Hann kemur að
beiðni þýzku fulltrúanna á Haag-
ráðstefnunni, til þess að vera
þeim til aðstoðar og leiðbeining-
ar við umræðurnar um 12 fjár-
hagsleg atriði, er koma Young-
sam'þyktinni við, en fulltrúamir
ú ráðstefnunni hafa ekki getað
komið sér saman um, hvernig
ráða skuli fram úr.
(Eftirprentun bönnuð.)
„F&rsælf ái*44.
1 áramótahugleiðingu sinni seg-
ir formaður Ihaldsflokksins, sem
eftir venju er fullur bölsýni og
trúleysis á framtíð lands og þjóð-
ar. að togaraútgerðin virðist vera
að fara á höfuðið, áð síldveiði
og síldarverkun sé „orðið að
sjúkum lim“, áo „myrkrahöfðingi
sveitanna“ sé nú dómsmálaráð-
herra Islands og áð „léleg stjórn,
fálm og mistök í framkvæmdun-
um“ muni einkenna árið 1930. En
þrátt fyrir alt þetta virðist Jón
hafa talsverða von um, að árið
geti orðið „farsælt ár“, ef lands-
menn bara herða sig og græða
nú duglega á gestunum, sem
hingað koma vegna alþingishá-
tiðurinnar. Um þetta segir Jón
svo í niðurlagi predikunarinn-
innar: „En margir vænta góðra
gesta, og enn fleiri vœnta sér
Iaívinnu og ágóoa af gestkom-
unni og hátíðahöldunum, og er
þess óskandi, að vonir manna
um petta rætist, svo að hátíða-
árið verði landsmönnum farsælt
ár“.
Hvað gerir það, þótt við höf-
um „lélega stjórn", þótt togara-
útgerðin fari á höfuðið, síldveiðin
verði „sjúkur limur“, þótt
„myrkrahöfðingi sveitanna“ sé
ráðherra, — hvað gerir alt þetta,
segir Jón, árið getur samt orðið
„farsælt ár“, ef vonirnar um að
græða á gestunum rætast.
Um d&fgii&ro og veginn,
Næturlæknir
verður í nótt Einar Ástráðs-
son, Smiðjustíg 13, sími 2014.
Stjórn E mskipafélag tslands
heíir beðið Emil Nielsen að
gegna framkvæmdarstjórastarfinu
áfram til marzmánaðarloka.
Slökkviiiðið
var kallað í gær um kl. 4 síð-
degis. Hafði kviknað í reykháfs-
mótum í fimleikahúsi L R. (ka-
þólsku kirkjuruii gömlu). Brann
nokkuð af mótatimbri og varð
cf allmikill blossi, en húsið sjálft
slremdist ekki. Tókst slökkvilið-
inu fljótlega að slökkva eldinn.
Eosningaskrifstofa Alþýðuflokks-
ins
í Reykjavik í Alþýðuhúsinu við
Hverfisgötu, sími .2394. 1 Hafnar-
firði á Linnetsstíg 1, sími 236.
Skrifstofurnar eru opnar alla
virka daga.
. , .VS' i
• • ,J '• :rrvíi i l:; í
Togararnir,
„Ólafar“ kom af veiðum í gær
með um 600 kassa ísfiskjar og
.Hannes ráðherra* í rnorgun með um
50 tunnur lifrar. Tveir þýzkir
togarar komu hingað í gær til
víðgerðar.
Jólatréshátið Sjömannafélags
Reykjavíkur
fyrir börn félagsmanna verður
haldin annað kvöld og á föstu-
dagskvöldið i alþýðuhúsinu Iðnó.
Til Strandarkirkju.
Frá A, 1 kr.
Veðrið.
Kl. 8 í morgun var 1 stigs hiti
hér í Reykjavík. en 3 stiga hiti i
Vestmannaeyjum, hvassviðri þar.
Annarstaðar að komu engin veður-
skeyti vegna símabilaná. Útlit hér
um slóðir: Allhvöss austan- og
norðaustan-átt, Úrkomulaust.
Frá Sandgerði.
Símað til Veðurstofunnar kl. 8 í
morgun: Slæmt sjóveður. Engir
bátar á sjó.
Símabílanir.
Algerlega símasambandslaustvar
i morgun til Norður- og Vestur-
landsins, ritsimasambandið líka
slitið. Náðist þá að eins til Esju-
bergs á norðurlínunum.
Knattspyrnufélag Reykjavikur.
Sökum veikinda fimleikakenn-
arans falla niður æfingar í kvöld
í 1. og 2. fimleikaflokki kvenna,
en æfing hjá 3. flokki karla verð-
ur í kvöld kL 71/2—81/2. — Menn
eru beðnir að athuga þessa
breytingu, sem gerð er í þetta
eina skifti — og mæta vel.
F. U. J.
Fyrsti fundur félagsins á árinu
1930 verður haldinn annað kvöld
kL. 8'/2 í Good-Templarahúsiny
við Temp'.arasund. Mörg merk
mál á dagskrá.
Yngstu kjósendurnir.
íhaldið hefir verið sjálfu sér
trútt, alt af verið á móti því, að
fólk á aldiinum 21—24 ára fengi
kosningarrétt, af þvi það veit að
ungt fólk er yfirleitt ekki aftur-
ha'dssamt, því afturhaldssemin, er
elliglöp. En í vetur treysti í-
haldið sér ekki lengur til þess
að greiða atkvæði á móti því,
að unga fólkið fengi atkvæðis-
rétt, og nú segir „Morgunblaðið"
í dag, að það sé íhaldinu að
þakka, að aldurstakmarkið hefir
vexið fært niður. Þetta er svo
sem vel í samræmi við það, að
Jón Þorláksson og ýmsir gamlir
innlimunarseggir kalia sig nú
,3jálfstæðismenn“. A.
.Visir" læzt i gær ufneita Knúti
sem borgarstjóraefni. Segir hann,
að engir samningar hafi verið
gerðir um það milli íhaldsins og
Möllers, þegar hann gekk í 1-
haldsflokkinn, hvort Knútur
skyldi vera borgarstjóri framveg-
is, ef bræðingurinn yrði til þess
að bjarga íhaldinu frá því að
verða í minni hluta í bæjar-
stjóm. Allir vita, að íhaldið þor-
ir ekki vegna kjósendanna að |
játa það, að það ætli að hafa
Knút fyrir borgarstjóra framveg-
is, og leggja þvi lítinn trúnað á
svona yfirlýsingar. Vilji „Vísir“,
að fólk trúi þessu, þá á hann
að birta skýlausa yfirlýsingu frá
Möller pess efnis, að hann muni
ekki greiða Knúti atkvœði sem
borgarstjóra. Ef „Vísir“ segir
satt, er sjálfsagt fyrir Möller að
gefa 'þessa yfirlýsingu nú þegar.
Möller þekkir Knút og Knútur
Möller. — Við skulum sjá hvort
yfirlýsingin kemur.
Almennan kjósendafund
halda stuðningsmenn B-listans
(Tímafrjálslyndið) í K. R.-húsinu
(Bámnni) kl. 9 í kvöld. Fram-
bjöðendum hinna listanna er boð-
Jð á fundinn.
Jafnaðarmannafélag íslands
Fundi þess, sem átti að vera í
kvöld, verður frestað vegna borg-
arafundarins.
Bifreiðafært
var ekki um hádegi í dag
lengra en suður í öskjuhlíð og
inn að vatnsþrónni, þar sem
Laugavegur og Hverfisgata mæt-
ast, en kl. að ganga 2 brauzt
mjólkurbifreið hingað af Álfta-
besi. Fjöldi bifreiða hefir tepst
iUndanfarið á vegunum hér í
kring vegna snjókomunnar.
Mjólk
til Alþýðubrauðgerðarinnar var
í morgun flutt á hestum og verð-
ur flutt á hestum og sleðum
þangað til bifreiðarfært verður.
Af Kjalarnesi verður mjólk flutt
á bátum hingað til Reykjavikur
á meðan ófærðin helzt.
Ihaldsvandræði.
„Moggi“ kvartar sáran undan
Jþví í fyrra dag, hversu afar-erfitt
,hafi verið að velja menn á í-
haldslistann vegna þess, hve
margir hæfir rnen,n — að eigin
áliti — séu í flokknum. Segir
„MgbL.“ að tala þeirra „skifti
hundruðum, ef ekki púsundum“,
^em töldu sig hæfa til og vildu
verða bæjarfulltrúar. — „En,“
bæiir svo Moggatetrið við, ves-
aldarlegur mjög, „menn munu
skilja, að þegar vonlítið er um
að koma meir en 10—11 [5—6]
piönnum að, pá er ekki hægt að
verða vio óskum hoers einstaks
flokksmanns— Þá verða Knút-
Jir, Claessen og peningarnir að
ráða, jafnvel þótt Einari og Guð-
paimdi svíði og sauðtryggum
inönnum eins og Hallgr. Ben. og
jJóni Ásbjörnssyni sé sparkað,
auk Líndals, Kjarans og Þórðar
tSveinssonar.
Hver ber ábyrgðina?
Einhver „N.“ skrifar í „Vísi“
í gær og læzt vera guðhræddur
mjög. Hneykslast hann afskap-
lega á því, að Alþýðublaðið skuli
vilja láta tala um hreinlegar göt-
ur, holl húsakynni og bætt kjör
alþýðu á nýjársdegi. Virðist „N.“
þessi vilja láta guð bera ábyrgð-
ina á kjallarakompunum röku og
loftlausu og köldu og súgmiklu
súðarherbergjunum, sem auð-
valdið hér neyðir fátæklinga með
fjölda barna til að hafast við í
fyrir okurleigu. Yfirleitt er svo
að sjá sem „Vísis-Ennið“ vilji
láta guð bera ábyrgðina á öll-
um óhæfuverkum íhaldsins, fé-
flettingu verkalýðsins, „PóLum“
bæjarstjórnarinnar, fátæktinni og
heilsuleysinu. Hátíðasníkjur og
ölmusubetl handa þeim á að vera
jólagleði fátækra. — Ekkert er
til svívirðilegra en að hafa guð
að skálkaskjóli og reyna að
koma á hann ábyrgðinni af ó-
hæfunum, sem menn fremja hver
við annan. Heldur „N.“, að meist-
aranum frá Nazaret myndi geðj-
ast vel að „Pólunum“ og kjall-
arakytrunum, sem bæjarstjórn og
broddborgarar úthluta fátækling-
um? Heldur „N.“, að Kristur
hefði verið sammála Knúti um
að lækka bamsmeðlögin niður i
270 krónur á ári og vilja taka á
sig ábyrgðina af þeirri óhæfu?
Lubbalegastir allra hræsnara eru
þeir, sem sífelt eru með nafn
Krists á vörunum, en breyta á-
valt þvert á móti kenningum
hans.
C-listinn
c er listi íhaldsins. Nafnið er les-
jð á marga vegu, t. d.: Cnuds-
listi, Claessens-listi, Capitalista-
listi, Cveldúlfs-listi, Conservativi
listinn.
Þrír íhaldibœjarfulltrúar
unnu að þvi með jafnaðar-
mönnum, að Sogsvirkjunin var
samþykt í bæjarstjórninni gegn
vilja Knúts: Þórður Sveinsson,
Magnús Kjaran og Theódór Lín-
dal. Ihaldið sþarkaði þeim öll-
um. Má af þessu marka hug þess
til Sogsvirkjunarinnar og hvað
það kostar í þeim herbúðum að
styggja Knút.
Ritstjóri ©g ábyrgðarmaður
Haraldur Guðmundss«n.
AíþýöupreMtsmiðjaa.