Morgunblaðið - 31.10.1963, Síða 1
50 árgangur
238. tbl. — Fimmtudagur 31. október 1963
PrentsmiSja MorgrnblaSsina
Njdsnarar teknir
í Bandaríkjunum
Þremur fulltrúum Rússa hjá
SÞ vísað úr landi
New York, 30. okt. (NTB-AP)
í DAG voru tveir menn hand-
teknir í New Jersey, sakaðir
um njósnir. Er annar þeirra
bandarískur verkfræðingur
af rússneskum ættum, en
hinn ökumaður rússneska
verzlunarfélagsins Amtorg.
Hefur Bandaríkjastjórn kraf-
izt þess að þrír af fulltrúum
Rússa hjá SÞ fari nú þegar
úr landi, þar sem þeir hafi
verið viðriðnir njósnirnar.
Menn þessir eru friðhelgir á
sama hátt og starfsmenn
sendiráða, en þeim hefur ver-
Framhald á hls. 23.
Á sunnudagskvöld var unnf að koma hljóðnema niffur til þýz ku námumannanna þriggja, sem
innilokaðir eru 80 metrum fyrir neffan yfirborff jarðar. Hér sézt Heinrich Momber frá þýzka
útvarpinu ræffa við þremenningana, en hann varð fyrstur til að hafa samband við þá.
Laxness
/ ísrael
í tlu daga boði
stjórnarinnar
Haifa, ísrael, '30. okt. (A).
ÍSLENZKA Nóbelsskáldið
Halldór Kiljan Laxness kom í
kvöld ásamt konú sinni til
Haifa í tíu daga heimsókn til
fsraels sem gestur ríkisstjórn
arinnar.
Meðan á dvölinni stendur
munu þau hjónin ferðast um
iandið. í Jerúsalem taka Zal-
man Shazar, forseti héraðs-
stjórnarinnar, og Abba Eban
á móti þeim. Hinn 5. nóvem-
ber flytur Halldór Laxness
fyrirlestur í Tel Aviv á veg-
um félagsins ísland—ísrael,
og nefnir hann fyrirlesturinn
„húmanismi gegn andhúman-
isma“. Aðalræðismaður ís-
lands í fsrael, F. Naschitz og
kona hans tóku á móti Lax-
neshjónunum er skip þeirra
lagðist að bryggju hér í
kvöld.
Alsír og Marokkd fallast á
Afríkuráðstefna um endanlega
lausn landamæradeilunnar
Bamako, Mali, 30. okt. — (AP-NTB) —
HASSAN n. konungur Marokkó og Ben Bella forsætisráð-
herra Alsír undirrituðu í dag samning um vopnahlé í landa-
mærastyrjöld landanna. Hefst vopnahléið á miðnætti á
föstudag.
Verður landamæradeilu Alsír og Marokkó vísað til sér-
Ktakrar ráðstefnu Bandalags Afríkjuríkja, sem stofnaö var í
Addis Abeba fyrr á þessu ári.
í vopnasamningnum er einnig
gert ráð fyrir að báðir leiðtog-
arnir beiti sér fyrir því að blöð
og útvarp beggja landa hætti án
tafar gagnkvæmum persónuleg-
um árásum og óhróðri. Marokkó-
stjórn fellst á að flytja herlið
sitt burt af landsvæði því, sem
Alsír gerir tilkall til, og verður
svæði þetta fyrst um sinn undir
eftirliti Mali og Eþíópíu þar til
gengið hefur verið frá endan-
Iegum samningum á ráðstefnu
Afríkjuríkjanna. Þar verður
Þeir Haile Selassie Eþíópíukeisari og Modibo Keita forseti
Mali undirrituðu einnig vopnahléssamninginn, og voru um
100 fréttamenn viðstaddir undirritunina í forsetahöllinni í
Bamako, höfuðborg Mali.
einnig reynt að komast að nið-
urstöðu um það hvor deiluaðil-
anna á sök á styrjöldinni og hvar
landamæri skuli vera.
Nást námumenn-
irnir í dag?
Vonazt til ab borun Ijúki um hádegid
Lengede, V.-Þýzkalandi,
30. okt. (AP-NTB).
ÞYZKU námumönnunum'
þremur, sem innilokaðir' hafa
verið frá því á fimmtudag í
síðustu viku, var tilkynnt í
dag að ekki yrði unnt að
bjarga þeim upp úr námunni
fyrr en í fyrsta lági á morg-
un. Segja talsmenn námufé-
lagsins að mennirnir þrír
hafi sofið vel í nótt og að
þeim líði eftir atvikum vel.
Þremenningarnir eru á sillu
um 80 metrum fyrir neðan yfir
borð jarðar, og verið er að bora
göng niður til þeirra. Hætta
varð borun um tima i dag til
að styrkja veggi borholunnar
með steinsteypu. Framkyæmda-
vopnahlé
stjóri námunnar, Rudolf Stein,
sagði að mjög mikillar varúðar
yrði að gæta síðasta áfangann
niður til mannanna. Loftþrýst-
ingur niðri í námunni er meiri
en uppi á yfirborðinu. Ef loft-
ið í námunni nær að komast út,
getur vatnsborðið 'hækkað, en
það nær nú upp að sillunni, sem
mennirnir eru á.
Eftir er að bora um 19 metra
niður til þremenninganna. Kom-
ið hefur verið fyrir sjálfvirkum
lokum í göngunum, sem eiga að
lokast um leið og borinn nær
niður í loftrúmið hjá mönn-
unum. Segir Stein að ef loftið
nái að komast út um göngin, sé
úti um námumennina. Ekkert
þýddi fyrir þá að reyna að hlaða
stíflu umhverfis silluna, hún yrði
aldrei nægilega rammbyggð til
að halda vatninu.
STRANDHÖGG í KÍNA.
Taipei, Formósu, 30. okt.
(AP).
SKÆRULIÐAR frá Formósn
gerðu innrás í Kina s.l. föstu-
dag, en eru nú komnir heilu
og höldnu heim. Segir Form-
ósustjórn að skæruliðarnir
hafi náð sambandi við kín-
verska andkommúnista, sem
halda uppi stöðugri baráttu
gegn Kínastjórn.
Flugslys
Munchen, 30. okt.' — NTB.
VESTUR-ÞÝZK orrustuþota
hrapaði í dag niður á þorp
eitt í Bayern og varð tveim-
ur konum og tveimur börn-
um að bana. Auk þess meidd-
ust tíu manns, átta þeirra
alvarlega. Flugmaðurinn gat
bjargað sér í fallhlif.
Þotan var á æfingaflugi
ásamt mörgum vélum öðrum.
Þegar hún var stödd inni í
skýjaþykkni bilaði hreyfill-
inn, og flugmaðurinn varð að
stökkva út í fallhlíf án þess
að vita hvar hann væri. Lenti
flugvélin á sveitabæ, þar
sem íbúarnir voru nýsetztir
að snæðingi. Kviknaði í bæn-
um og nálægu íbúðarhúsi,
sem bæði eyðilögðust.