Morgunblaðið - 31.10.1963, Síða 2

Morgunblaðið - 31.10.1963, Síða 2
z MORCU N BLAÐID Fimmtudagur 31. okt. 1963 Fyrsta söltunarsíldin til Reykjavíkur í gær GRANDARADÍÓ hafði ekki undan að tilkynna komu síld- arbáta til Reykjavíkur í gær, í fyrsta sinn á nýbyrjaðri Suðurlandsvertíð. Bátarnir sigldu hver á eftir öðrum inn höfnina sökkhlaðnir. Veð- ur var bjart, rjómalogn, og fjöllin handan við sundin fag- urblá. Bátarnir dreifðust um Höfn ina. Á þriðjudaginn var hún auð og lítið um að vera, ein- staka skip á stangli, og fáir menn við vinnu. — í gær lifnaði hún við, -skipin lögð- ust hvert upp að öðru, lönd- unarbílamir óku til og frá og höfðu ekki undan. Borgarbú- ar gengu um bryggjurnar og önduðu að sér söltu sjávar- lofti og áfengri lykt af nýrri síld, og silfrandi hreistur loddi við skóna þeirra, er þeir yfirgáfu bryggjurnar. Sem við stóðum á Faxa- garði og horfðum á uppskip- un úr Hannesi Hafstein 'og Vigra, sáum við hvar Jón Jónsson frá Ólafsvík risti djúpt lygnan sjóinn og stefndi að verbúðarbryggjunum gömlu. Við tókum á móti bátnum og klifruðum upp í brú til skipstjórans, Jósteins Halldórssonar. — Þú ert me"ð fullfermi? — Já, svo til. Þetta eru ein- ar 800 tunnur. Síldin er óvenju stór og falleg af Suð- urlandssíld að vera, og þeir sögðu áð fitumagnið væri milli 18 og 20%. Ásdís Kristinsdóttir, ellefu ára í síldarvinnu. -— Hvað þurftirðu að kasta oft? — Þetta kom mest í einu kasti. Við köstuðum um 50 mílur vestnorðvestur af Önd- verðarnesi, torfan var um 40 faðma þykk og lá fremurofar lega í éjónum. — Eruð þið búnir að vera lengi úti? — Við fórum út á sunnu- degi og kastið fengum við um hálf þrjú í nótt. Það er um það bil 13 tíma sigling frá miðunum hingað til Reykja- víkur og á þessum slóðum hélt megnið af síldarflotanum sig. Og hvar leggið þið upp? — Hjá Júpiter og Marz á Kirkjusandi. ★ .Það fyrsta sem við sáum, þegar við komum inn á Kirkju sand, var bakhlutinn á kven- manni 1 síldarpilsi, sem var önnum kafinn að leggja ofan ' í tunnu. Hvert sem litið/var sást í gul pils, marglita klúta, iðandi hendur og flugbeitta kuta. Sildin kom á færibandi inn í salinn og var henni dreift í kassana eftir þörfum. — Hvað vinna margar stúlk ur hér? spurðum við verk- stjórann, Braga Björnsson. — Þær eru 24 hér frammi f söltuninni og um 40 við Sigurveig leggur niður — og vekur óskipta athygli áhorf- enda. — (Ljósm. Mbl. Sv. Þ.). frjígtinguna. Síldin er sorter- uð frammi í nýrri vél, sem Gísli Friðbjarnarson í Súða- vogi fann upp, og er nú notuð í fyrsta sinn. — Er ekki nóg framboð á stúlkum? — Þær eru tæplega nógu margar á daginn, en þegar líða tekur á daginn bætast margar við, einkum húsmæð- ur, sem komast ekki að heim- an fyrr en degi tekur að halla. — Ég- stalst að heiman, sagði kona sú, sem næst okk- ur stóð, og maðurinn og krakkarnir verða sjálfsagt steinhissa, þegar þau koma að fómum kofanum . . . En ég gat ekki staðizt sildina. Skammt frá henni stóð yngsta söltunarstúlkan, Ásdis Kristinsdóttir, 11 ára gömul, í plássi með móður sinni. Hún var að hausskera og slóg- draga og vandaði sig hvað mest hún.mátti. Á móti henni var fljótasta stúlkan á stöð- inni, Sigúrveig Sigvaldadótt- ir frá Raufarhöfn, sem salt- ar 3—4 tunnur af Norður- landssíld á klukkustund, og gekk drjúgan úndan henni. Allar kepptust Við, enda nóg að gera. Verkstjórinn sagði, að liklega yrðu saltaðar milli 5—600 tunnur á stöðinni í dag, en samtals yrði unnið úr 2800 tunnum af síld þenn- an fyrsta dag. Þannig hleypti síldin nýju blóði inn í atvinnulíf borgar- búa í gær. Rafmagn j Snæfjallahreppi Sáttolundir SÁTTASEMJARAR ríkisins hófu í gærkvöldi sáttafundi með verzlunarmönnum, yfirmönnuim á síldarflotanum, prenturum og bókbindurum. Fundir stóðu enn, er blaðið frétti siðast í gærkvöldi hjá verzlunarmönnum o*» yfir- möniwm, en sáttafundir með prenturum og bókbindurum urðu stuttir og árangurslausir. — Forsetaheimsókn Framh. af bls. 24 morgni 18. nóv. Lent verður á Gatwick-flugvelli, sem er ná- lægt Lundúnum, en þaðan fara forsetahjónin með járnbrautar- lest til Viktoríu-brautarstöðvar- innar í Lundúnum. Þá um kvöldið sitja þau kvöld verðarboð heima hjá forsætis- ráðherra, Sir Alec Douglas- Home. Næsta dag snæða þau há- degisverð með Elísabetu drottn- ingu í Buckingham-höll. Meðan á heimsókninni stend- ur hittir forseti og fylgdarlið hans utanríkisráðherra Breta, R. A. Butler að máli. Kvöld- verður verður haldinn forseta íslands til heiðurs í Guildhall, í boði borgarstjóra Lundúna- borgar. Þá mun forsetinn heim- sækja brezka þingið, Tate GaU- ery listasafnið, British Museum og dómstóla í Lundúnum. For- setahjónin munu sjá leiksýningu í National »Theatre, þar sem „Hamlet“ verður leikinn. Einnig mun forsetinn fara til Oxford í boði háskólarektors þar. 20. nóv. taka forsetahjónin á móti íslendingum, búsettum í Bretlandi, og brezkum íslands- vinum í Dorchester Hotel. Utanríkisráðherra, Guðmund- ur í. Guðmundsson, og kona hans, frú Rósa Ingólfsdóttir, verða í fylgd með forsetahjón- unum ásamt forsetaritara, Þor- leifi Thorlaciusi, og konu hans, Guðrúnu E. Thorlaciusi. Orðu- veitingar FORSETI íslands hefir í dag, 30. okt., sæmt eftirgreinda riddara- krossi hinnar íslenzku fálkaorðu. Ársæl Sveinsson, útgerðar- mann, Vestmannaeyjum, fyrir störf að sjávarútvegs- og bæjar- málefnum. Guðmund Óskar Einarsson, fyrrv héraðslækni, Reykjavík, fyrir störf að menningar- og félagsmálum. Guðríði Jónsdóttur, forstöðu- konu geðsj úkrahússins að Kleppi, fyrir störf í þágu geðsjúkramála. Hall Þorleifsson, söngstjóra, Reykjavík, fyrir störf í þágu is- lenzkrar sönglistar. Hjálmar Vithjálmsson, xáðu- neytisstjóra, Reykjavík, fyrir embættisstörf. (Frá orðuritara). Sjálfstæðisfélag Carða- og Bessa- staðahrepps Sjálfstæðisfélag Garða- og Bessastaðahrepps efnir til fyrsta spilakvölds félagsins í Samkomu- húsind Garðaholti í kvöld kl. 8.30 Ók á ljósastaur AKRANESI, 30. okt. Svo ólánlega vildi til í morg- un, að bíllinn M 813 ók á ljósa- staur á móts við sjúkrahúsið. Vinstri fram-aurhlífin gereyði- lagðist, en hvorki haggaðist staur inn né sprakk peran. — Oddur. Þúfum, N.-ís., 30. okt. BTRJAÐerá byggingu raf- stöðvar í Snæfjallahreppi. Virkja á Mýrará, sem fellur ofan fjall- ið á milli Mýrar og Unaðsdals. — Talin eru góð virkjunarskilyrði þar. — 9 Daníel Kristjánsson, bygging- Anglíufundur FÉLAGIÐ Anglia heldur aðal- fund sinn og skemmtikvöld í Sjálfstæðishúsinu (Sigtúnum) í kvöld kl. 8,30. Fjölbreytt skemmtiatriði verða á kvöldinu, frú Álfheiður Björns son syngur einsöng, Ómar Ragn- arsson annast skemmtiþátt og Ingibjörg Björnsdóttir dansar listdans. Síðan verður dansað til kl. 2 eftir miðnætti. Smádrengir týn- ast og finnast UM kl. þrjú í gærdag fóru tveir yngissveinar að heiiman frá sér í Kópavogi, annar fiimrn ára, en hinn sjö ára. Þegar þeir voru ófcomnir aftur á tíunda tímanum í gærkvöldi, létu foreldrar þeirra Kópavogslögregluna vita. Leit var þegar hafin að þeim í Kópa- vogi, Hafnarfirði og Reykjavík. Auglýst var 'eftir þeim í útvarp- inu. Hjálparsveit sfcáta í Hafnar- firði var bvödd út, og brá hiún avo skjótt við, að fyrsti leitar- flokkur hennar var faTinn af stað innan tíu mínútna frá út- kalli. Náð var í sporhundinn Nonna, en um leið og hann átti að leggja upp í leitina, uim kl. háiLfellefu, tilkynnti Reykjavík- urlögreglan, að bún hefði fund- ið drengina nálægt Shell-stöð- inni við Suðurlandsbraut. armeistari á ísafirði, vinnur nú að smíði stöðvarhússins ásamt aðstoðarmönnum. Áætlað er "að ljúka byggingu hússins nú í haust og setja síðan vélar niður í vet- Næturvörður- inn átti frí í SAMBANDI við frétt í blað- inu í gær um innbrot í verzlun- ina Herraföt, Hafnarstræti 3, skal það tekið fram, að nætur- vörður er að jafnaði í húsinu. Hann átti hinsvegar frí þessa nótt, annars hefði þjófsins trú- lega orðið vart. ur, eftir því sem aðstæður leyfsu Áður var hafin lagning vegar upp að væntanlegri stíflu, en haf- izt verður handa um gerð henn- ar á næsta sumri. Stefnt er að þvf, að rafstöðin verði fullgerð fyrir veturinn 1964 eða haustið það ár. Að þessu verki standa allir bæir í hreppnum, sem só Mýri, Unaðsdalur, Lyngholt og Bæir, og gert er ráð fyrir því, að rafmagn verði leitt til Æðeyj- ar. Hér er um mikilsverða og merka framkvæmd að ræða, sem vonandi tekst vel og giftusam- lega. Það sýnir dugnað og stór- hug bændanna í Snæfjallahreppi, að þeir skuli ráðast í þetta fyr- irtæki. — P. P. /* NA /5 hniitr H SnjMtat I V Stúrir t 0S1 E Þrvmar '/////Rtjn- //y//traV KaUtM V HifttkR H H*l 1 L-íssiX “ T ■■ Yfög 10\0 1020 UNDANFARNA daga hafa verið hlýindi hér á landi og ekki einu sinni komið nætur- frost. í gær var kyrrt veður og blíðviðri með 7—9 stiga hita á Suður- og Austurlandi, en á Vestfjörðum og við Húna flóa var þokuslæðingur og 2—4 stiga hiti. Vestast á kortinu sér á lægð, sem hreyfist norð-aust- ur eftir af talsverðum kraft og fylgir bæði snjókoma c regn. Þetta er fellibylurin Ginny, sem hefur verið sveimi undan austurströn Ameríku síðustu daga. í kjö far hans kemur önnur læg og munu þessar tvær eig eftir að hafa áhrif á veðv hérlendis fljótlega.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.