Morgunblaðið - 31.10.1963, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 31.10.1963, Blaðsíða 8
8 MORGU N BLAÐIÐ Fimmtudagur 31. okt. 1963 Maður vanur kynditækjaviðgerðum óskast. Upplýsingar í verzlun vorri, Suðurlandsbraut 4. Olíufélagið Skeljungur h.f. Mikið úrval / af eins manns svefnsófum. Verð frá kr. 2700,00. Sófaborð úr teak. Verð frá kr. 1250,00. Vandaðar vegghillur og símaborð. Húsgagnaverzl. Hverfisgötu 50. Sími 18830. Járngrindahús Okkur hefir borizt sérlega hagstætt tilboð um stór járngrindahús með beinum veggjum, sem fást af- greidd frá Englandi með stuttum fyrirvara. Myndin er af 100 feta löngu húsi, 45 feta breiðu. Veggjahæð er tvennskonar, 16 fet 'og 25 fet. Bygg- ingar þessar er hægt að fá í öðrum stærðum. Þeir, sem áhuga hafa fyrir þessum byggingum eru góðfúslega beðnir að hafa samband við okkur sem fyrat, þar sem búast má víð, að hús þessi verði ekki lengi á boðstólum, sökum þess, hve ódýr þau eru. * Sisli <5. éoRnsan i/ Túngötu 7. — Reykjavík. — Símar: 12747 og 16647. Skrifstofustarf Opinbera stofnpn vantar, þann 15. nóvember n.k., stúlku , sem gæti annast vélritun og bókarastörf. Þær, sem áhuga hefðu á slíku starfi sendi uppl. um menntun og fyrri störf til afgr. Mbl., merkt: „Skrifstofustarf — 5245“. FLU6VALLARLEIGAN SF. GÓNHÓL, YTR Í-NJARÐVÍK - - SÍMÍ 1950 Nau&synlegt að afurðalán verði veitt út á garðávexti Úr ræðu Ingólfs Jónssonar ráðherra Á FUNDI í Sameinuðu þingi í gær urðu nokkrar umræður um fyrirspurn írá Páli Þorsteins- syni Um framkvæmd þingsálykt- unar um afurðalán vegna garð- ávaxta. Upplýsti Ingólfur Jóns- son við þetta tækifæri að af- urðalán út á landbúnaðarvörur yrðu á þessu ári um 430 millj. kr. — v Páll Þorsteinsson (F) bar þingi. Kvað hann það lengi hafa fram fyrirspurn til landbúnaðar- málaráðherra um hvað liði framkvæmd þingsályktunar úm afurðalán vegna garð- ávaxta er sam- þykkt hefði ver- ið á síðasta verið áhugamál bænda að fá svipuð lán út á garðávexti og veitt væru út á sauðfjárafurðir. Ingólfur Jónsson, landbúnaðar- ráðherra, kvað það skoðun sína að eins nauðsynlegt væri að lána út á garðávexti eins og út á aðrar landbúnaðarafurðir, en lán út á garðávexti hafa aldrei verið veitt fram að þessu. Hann hefði átt viðræður við Seðlabankann um þessa þings- ályktun og ósk- að eftir að slík lán yrðu veitt en ekki fengið endanlegt svar frá bankanum. Hins vegar væri það ekki til baga, þótt þetta svar hefði ekki exm borizt, þar sem garðávextir hefðu ekki verið meðhöndlaðir þannig á þessu hausti að hægt væri að leggja fram skýrslu á- samt tilheyrandi vottorðum, sem slíkri lánbeiðni þyrfti að fylgja. Kvað ráðherrann að slík gögn mundu ekki vera fyrir hendi fýrr en seint í nóvember. Afurðalán á þessu árl 430 milljón Fyrst farið væri að ræða af- urðalán, taldi ráðherrann rétt að upplýsa það, að lán út á land- búnaðarafurðir mundu að þessu sinni aukazt mjög verulega. Á síðasta ári hefði Seðlabankinn lánað út á landbúnaðarvörur 294 millj. kr. Það hefði þó reynzt of lág upphæð iil þess að geta uppfyllt óskir framleiðenda. Lánsfjárupphæðin hefði ve'rið bundin við áætlað hámark en framleiðsluaukningin hefði orð- ið meiri en reiknað var með og verðlag hækkað og því hefði hámarkið verið of lítið. Hins vegar hefði þetta hámark nú verið afnumið og með því að lána 55% að þessu sinni út á Jandbúnaðarafurðir, gæti upp- hæðin farið upp í 430 millj. kr. Ráðherrann kvaðst hafa farið fram á að hlutfallstalan yrði hækkuð en Seðlabankinn teldi það nokkrum erfiðleikum bund- ið, að gera hvorttveggja í senn, að hækka hundraðstöluna ein- mitt þegar lánin hækka svo mikið vegna framleiðsluaukning- ar og hækkunar á verði. En það væri þó gert ráð fyrir að afurðalónin yrðu að þessu sinni ekki minni en 55% en þó því aðeins að Seðlabankinn fái auk- ið fé af sparifjármyndun þjóð- arinnar til varðveizlu. Tryggja gjaldeyrissjóð Tryggja gjaldeyrisvarasjóð iandsins Ráðherrann kvað þó Seðlabank ann hafa öðru veigamiklu hlut- verki að gegna en tryggja lán út á sjávar- eða landbúnaðar- afurðir. — Það væri að tryggja gjaldeyrisvarasjóð landsins, sem nú væri um 1100 millj. ter. Þessu tvíþætta hlutverki yrði Seðla- bankinn að geta gegnt og eina leiðin til að svo væri mögulegt, væri að auka fjármagn það sem Seðlabankinn hefði yfir að ráða. Landbúnaðarráðherra skýrði frá því að til viðbótar fjármagn- inu senr Seðlabankinn hefði yfir að ráða hefðu sjávarútvegur og landbúnaður fengið nokkur lán í viðskiptabönkum, sem væru yfirleitt um 12—15%. Því hefði verið hægt að greiða strax út á afurðirnar'um % hluta verðs- ins. Að lokum sagði ráðherrann að enda þótt ekki hefði verið unnt að veita meiri lán út á úfurðir en 55%, þá væri að því stefnt að hækka lánin, bæði út á sjáv- ar- og landbúnaðarafurðir. En til þess að svo gæti orðið þyrfti að auka það fjármagn sem Seðlabankinn hefur nú yfir að ráða. Páll Þorsteinsson (F) tók aft- ur til máls og kvaðst ekki hafa fengið nógu skýr svör hjó land- búnaðarráðherra. Eysteinn Jónsson (F) taldi að ráðherrann gæti mjög auðveld- lega greitt fyrir láninu, þar sem ríkisstjórnin réði algjörlega yíir Seðlabanka íslands. í sambandi við afurðalánin kvað hann Seðlabankann hafa áður lánað 67% út á afurðir en hins vegar væri talan nú komin niður í 55% og taldi ræðumaðurihi), það bera augljósan vott um öngþveitið, sem ríkir í efnahagsmálum þj óðarinnar. Ingólfur Jónsson landbúnað- arráðherra sagðist hafa álitið, að þær upplýsingar, sem hann hefði gefið í upphafi ræðu sinn- ar, hefðu verið nógu skýrar. Varðandi þær athugasemdir, sem E. J. hefði gert um, að Seðla- bankinn hefði veitt lán er næmu 67% af verðmæti afurða á dög- um vinstri stjórnarinnar, þá kvað landbúnaðaráðherra það hafa leitt til verðbólgu. Þá hefði ekki verið hugsað um að koma upp gjáldeyrissjóði heldur að- eins safnað skuldum. Þetta hefði hins vegar breytzt í núverandi stjórnartíð, þar sem unnið væri markvisst að því að styrkja gjaldeyrisvarasjóðinn. Það hefði tekizt með því að lána ekki meira út úr Seðlabankanum en raunverulega væri fyrir hendi, sagði landbúnaðaráðherra að lolcum. Sameinað þing í gær Ragrnar Jónsson 1. varamaður landskj. þm. Sjálfstæðisflokksins tók í gær sæti á Alþingi í fjar veru Matthías- ar Bjarnasonar, sem verður fjar verandi um nokkrar vikur. Ragnar hefur eigi áður setið á Alþingi og undirritaði því eiðstaf um að halda stjórnar- skrána. Endurskoðun laga um Bjargráðasjóð Jónas Pétursson (S) 3. þm. Austurlands fylgdi úr hlaði þingsálytkunartillögu um endur- skoðun laga um Bjargráðasjóð o. fl. sem hann flytur ásamt Magnúsi Jónssyni (S) 6. þm. Norðurlands eystra. Tillagan hljóðar svo: Alþingi álykt- ar að fela ríkis- stjófninni að láta endurskoða lög um Bjarg- ráðasjóð íslands í þvj skyni, að komið verði á fót tryggingarkerfi fyrir land- búnaðinn í heild, sem geti að mestu leyti mætt tjónum, sem koma fyrir af náttúruhamförum og annarri óáran. Bér þá að athugá, hvort Bjarg- ráðasjóður í þeirri mynd eða svipaðri, sem hann er nú, er eðlilegasta formið á lausn alls- herjartryggingarmála landbúnað arins, eða sjálfstæð tryggingar- stofnun, og á hvern hátt er fært og eðlilegt að afla aukinna tekna til þessara trygginga. Þessari endurskoðun og athugun verði hraðað eftir föngum, enda verði kvaddar til undirbúnings máls- ins þær sérstofnanir, er telja má málið skyldast. Tillaga þessi hefði verið flutt á síðasta þingi og taldi J. P. að mikill stuðningur væri fyrir samþykkt hennar meðal þing- manna, þar sem fram hefðu kom ið 3 aðrar þingsályktunartillögur um svipað efni. Taldi J. P. hér vera um aðkallandi nauðsynja- mál að ræða. Ekkert áhlaupa- verk væri að framkvæma þessa endurskoðun sem farið er fram á í tillögunni og því væri þýð- ingarmikið, að hún yrði afgreidd sem fyrst. Var tillagan að lokirfni ræðu flutningsmanns vísað til nefndar og umræðu frestað. Kaffisnittur — Coctailsnittur Smurt brauð, heilar og hálfar snexðar. Rauða Myllan Laugavegi 22. — Sími 13628 Málflutningsskrifstofa JOHANN BAGNABSSON héraðsdómslögmaður Vonarstræti 4. — Sími 19085. Sandgerði Vandað einbýlishús á góðum stað til sölu. Upplýsingar gefur: j EIGNA- og VEBÐBRÉFASALAN Keflavík. — Símar 1430 og 2094.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.