Morgunblaðið - 31.10.1963, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 31.10.1963, Blaðsíða 24
FERDAÞJÚNUSTA OG FARMIDASALA ÍN AUKAGJALDS LOWD< ■ oa fs 238. tbl. — Fimmtudagur 31. október 1963 laugavegi 26 simi 206 7Ö Mikil síld- veiði sl. nótt Góðar horf ur í gærkvoldi ÁGÆT síldveiði var í fyrrinótt um 50 sjómílur VNV af Öndverð arnesi. Fengu* 36 skip alls 34.900 tunnur af góðri síld, sem fer ým- ist í salt eða frystingu. Aflahæst voru Árni Magnússon með 2.200 tunnur og Hannes Hafstein með 2.000 tunnur. — 12 skip komu í gær til Reykjavíkur með 15.050 tunnur. Lanst fyrir miðnætti í nótt voru veiðihorfur góðar á s.ömu miðum og nóttina áður. I*ar var gott veður. Vitað var um afla þessara skipa (í tunnum): Grótta 1.600, Hamravík 1.500—1.600, Víðir SU með fullfermi og Hrafn Sveinbjarnarson m. 500 tunnur. 7 þús. tunnur til Akraness Akranesi, 30. okt. MOK-SÍLDVEIÐI var hjá bát- um hér í. nótt 50-—60 sjóm. NV af Jökli. 7 þús. tunnur af síld bárust hingað í dag af sex bát- um. Skírnir var aflahæstur með 1.700 tunnur. — Síldarsöltun hófst í dag hjá Haraldi Böðv- arssyni & Co. og í Fiskiveri hf. Það, sem ekki er saltað, fer í hraðfrystingu.- Samhjálp á miðunum • Sigurður AK var búinn að kasta nótinni í nótt, en þá bil- aði spilið. Faxi úr Hafnarfirði var nærstaddur, kom og snurp- aði fyrir hann, og það, sem meira var, hann háfaðii 1000 tunnur fyrir Sigurð. Forsetaheimsókn- in í Bretlandi EINS og áður hefur verið skýrt frá, fara forseti íslands, Ásgeir Ásgeirsson, og frú hans, Dóra Þórhallsdóttir, í fjögurra daga opinbera heimsókn til Bret- lands í hoði brezku ríkisetjóm- arinnar. Heimsóknin verður 18. — 22. nóvember. Meðal þeirra, sem forsetahjónin hitta, er Elísabet drottning, forsætis- ráðherra Breta, utanríkisráð- herra Breta og borgarstjórinn í Lundúnum. Forsetahjónin fara héðan með flugvél frá Loftleiðum að Framh. á bls. 2. 12 bátar komu með 15.050 tunnur af síld til Reykjavíkur í gær. Síldin var ýmist söltuð eða fryst. — Hér er verið að skipa upp úr einum bátnum Jóni Jónssyni frá Ólafsvik. — Sjá frásögn á bls. 2. (Ljósm. Mbl. Sv. Þ.). Samiö um sölu á 16,600 tonnum af hraðfrystri Suðurlandssíld Svarar til 170,000 tunria af fersksíld SKV. frétt frá Sölumiðstöð hrað frystihúsanna og sjávarafurða- deild SÍS hefur verið samið um sölu á 16.600 tonnum af hrað- frystri Suðurlandssíld af kom- andi vertíðarafla. 16.600 tonn svara til um 170.000 tunna af síld uppmældri úr sjó. — Auk þess hefur verið samið um sölu saltsíldar og sérverkaðrar síldar, eins og sagt var frá í Mbl. í gær, og samsvarar það sölumagn um 90 þús. uppmældum tunnum. Bandaríkjamenn kaupa t. d. 12 þús. tunnur af sérverkuðum salt síldarflökum, Pólverjar 40 þús. tunnur af hausaðri og slógdreg- inni saltsíld og Ísraelítar 2 þús. tunnur af saltsíld. Fréttatilkynning SH og SÍS fer hér á eftir: Síðari hluta sumars og á þessu hausti hafa Sölumiðstöð hrað- frystihúsanna og Sjávarafurða- deild SÍS samið um sölur á hraðfrystri Suðurlandssíld af komandi vertíðarafla, sem hér segir: Til V-Þýzkalands — Sovétríkjanna — Póllands — A-Þýzkalands — Tékkóslóvakíu 4.600 tonn 4.800 — 2.500 — 2.700 — 2.000 — Samtals 16.600 tonn Svarar þetta til um 170.000 tunna al fersksíld. Allt þetta er stórsíld, þ.e.a.s., sem 3—6 stk. fara af í kílóið. Nokkrar líkur eru fyrir, að hægt sé að auka þetta magn allveru lega með viðbótarsöluijn til Mið- Bruna- rústir Eins og skýrf hefur verið fráj í Mbl. brann íbúðarhúsið í ( Hömluholtum í Eyjahreppi að faranótt sl. mánudags. Þessi ömurlega mynd er af bruna- rústunum og sýnir, að ekki var ofmælt, að húsið hefði brunnið til kaldra kola. (Ljósm.. Ásgrímur Stefánss.). Fékk yfir 12 kr. fyrir kg. DALVÍK, 30. okt. Togskipið Björgvin seldi 65 lestir af ísuð um fiski í Grímsby í dag fyr- ir 6.578 stgrlingspund. Feng- ust því rúmar tólf krónur fyrir kílógrammið, og er þetta með beztu sölum á þessu hausti. Togskipið Björgúlfur fiskar einnig fyrir erlendan markað, en fiskur sá, sem togskipin hafa fengið, er smár, og því mun betri markaðsvara í Bretlandi en ÞýzkalandL Fisk urinn er veiddur úti fyrir Norðurlandi. . Sjö þilfarsbátar eru nú gerðir út á línuveiðar héðan, og hefur afli verið sæmilegur síðustu daga, eða þrjár til fjórar lestir í róðri. Þá rnunu tvö skip héðan stunda síldveiðar við Suður- land í vetur. — Kári. og Austur-Évrópu; ennfremur - mun vera nokkur markaður enn ónotaður í löndum Vestur- Evrópu, enda þótt söluhorfur séu ekki sem beztar á þessum mörkuðum, vegna mikils fram- boðs af síld,. sem veiðzt hefur og veiðist enn í Norðursjónuíh Ennfremur standa yfir athug- anir á þvx að selja smærri síld en að ofan greinir og fryst síld- arflök. Ráðgert er að afgreiða helm-* ing ofangrends magns fyrir n.k, áramót og eftirstöðvarnar á 1, ársfjórðungi 1964. Morío Rogn- orsdóttii í „Miss Woríd“ keppni London, 30. okt. (AP). Fegurðardrottningar frá 49 löndum koma til London til að taka þátt í „Miss World“ samkeppninni, sem lýkur fimmtudagskvöldið 7. nóvem- ber n.k. Meðal þátttakenda er María Ragnarsdóttir frá Hafn arfirði. Sigurvegarinn í samkeppn- inni hlýtur 2.500 punda verð- laun (um kr. 300 þúsund), en næstu fimm stúlkur í röðinni hljóta einnig verðlaun. Kópavogur FUNDUR verður haidinn í Sjálf. stæðisfélagi Kópavogs fimmtu- daginn 31. okt, kl. 20,30 í Sjálf- stæðishúsi Kópa vogs. — Fundar- efni: Bæjarmál, Málshefjandi Sigurður Helga- son, hæjarstjóra arfulltrúi. Sjálf- stæðisfólk, fjöl- mennið á fimd- N

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.