Alþýðublaðið - 11.01.1930, Page 4
4
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
Cida
er viðurkent að vera bezta og jafníramt
ódýrasta suðu- og át-súkkulaði, sem selt er
hér á landi. Þegar þér kaupið súkkulaði, pá
takið fram, að það eigi að vera
Clda.
þrjú félagssystkini, fulltrúa, sem
hver um sig væru vel hæfír til
þess að skipa efsta sæti listans,
enda allir 'þektir meðal verkalýðs
þessa bæjar fyrir þekkingu og
skilning á pvl, sem alþýðu í þess-
,um bæ fyrir bestu. Þessir full-
trúar eru: Jens Guðbjömsson,
formaður glímufélagsins Ármann,
Helga Níelsdóttir ljósmóðir og
Þorvaldur Brynjólfsson, formað-
,tir stærsta iðnnemafélagsins í
bænum og yngsti frambjóðandinn
við þessar kosningar eða 23
ára gamall. En slíkt er
ekki aðalatriðið, enda eru allir
þeir, sem skipa lista alþýðunnar,
'iingir menn í anda, sem bera
með sér stórhug og baráttujprek
æskumannsins.
Aðalatriðið er það við þessar
kosningar, að alþýðufólkið komi
nógu mörgum af sínum góðu
frambjóðendum að til þess að
hægt sé að viðra út úr bælinu,
þar sem danski Knútur hefir
haldist við í 15 ár,
Að æskulýðnum sé þetta alvara
mun hann sýna með því, að fjöl-
menna að kjörborðinu 25. þ. m.
og krossa framan við A á lista
Alþýðuflokksins.
A. A.
Um dagino og veginaa.
I. O. G. T.
Tilkynnlngap.
Enginn fundur í DÍÖNU á morg-
um. Gæslum.
UNGLINGASTÚKAN BYI.GJA
fellir níður fund á morgun
(sunnudag). Næstí fundur næst-
komandi sunnudag á venjulegum
stað og titna,
STIGSTÚKAN. Fundur næsta
sunnudag kl. 5. Hannes Jónsson
flytur erindi.
Næturlæknir
er í nótt Halldór Stefánsson,
Laugavegi 49, sími 2234.
Bæjarstjórnaikotiuingarnar
á Isafirði fara fram í dag.
Kvæða kemtun
heldur kvæðamannafélagið „Ið-
unn“ á morgun kl, 2 í Nýja
Bíó. Er þar von á góðri skemtun,
sem vænta má að verði fjölsótL
Næturvö ður
er næstu viku í lyfjabúð
Laugavegar og Ingólfs-lyfjabúð.
Messur
á morgun: í dómkirkjunni kl.
11 séra Friðrik Hallgrímsson, kl.
5 séra Bjarni Jónsson. í fríkirkj-
íinni kl. 2 séra Ámi Sigurðsson.
í Landakotskirkju og Spítala-
kirkjunni í Hafnarfirði kL 9 f.
m. hámessa, kl. 6 e. m. guðsþjón-
usta með predikun, I Aðvent-
kirkjunni kl. 8 e. m. séra O. J.
Olsen. Umræðuefni: Þýðingar-
mikill draumur, sem rætist fyrir
augum vomm. — Samkomur: Sjó-
mannastofunnar kl. 6 e. m. í
Varðarhúsinu. Á NjáLsgötu 1 kl.
8 e. m.
Rauði krossinn ^
heldur námskeið I heimahjúkr-
un. Hefst það á mánudaginn í
Ijósmæðraskólanum við Tjamar-
götu. Sjá auglýsingu!
Til Strandarkirkju.
Áheit frá G. G. 2 kr. og frá
J. S. 10 kr.
Efnalaug Reykjavíkur.
er flutt í hið nýja hús Guð-
steins Eyjólfssonar, Laugavegi 34.
Varðskipið „Óðinn“
fór héðan kL 3 í gær vestur
og norður að sækja alþingis-
mennina.
Togararnir.
„Karlsefni“ kom af veiðum í
morgun með um 350 kassa ís-
fiskjar.
Veðrið.
Erfitt sjóveður síðustu daga. —
Kl. 8 I morgun var 1 stigs liiti
til 3 stiga frost, 0 í Reykjavík og
snarpur vindur.. Utlit hér um
slóðir: Allhvöss norðausta'nátL
Víðast úrkomulausL Hvöss norð-
austanátt í öðrum landsfjórðung-
um og víða bríð.
Fiá Saudgerði.
(Símað til Veðurstofunnar.) Kl.
8 í morgun: Allhvöss norðaust-
anátt. Mjög slæmt sjóveður.
Engir bátar á sjó.
Stminn
er bilaður á Vaðlaheiði. Rit-
símasamband næst lengst til Ak-
ureyrar.
Skíðafélag Reykjavíkur
efnir til skiðaferðar á morgun,
ef veður leyfir. Farið verður f
bifneiðum að Logbergi og gengið
að Selvatni; síðan'verður haldið
að Grafarholti, um Hafravatn og
Langavatn. Þeir byrjendur, sem
vilja, verða eftir á Lögbergi og
renna sér þar í brekkunum. Listi
til áskrifta er hjá formanni fé-
lagsins.
Bifreiðafæriö.
I gær var gerð tilraun til að
moka af veginum til Hafnar-
fjarðar, en það varð til einskis,
því að jafnóðmn skefldi aftur á
hann af foksnjó. Gat engin bif-
reiðastöð haldið uppi áætlunar-
ferðum þangað í gær. Þó komst
ein bifreið einu sinni fram og
aftur, en var á aðra klukkustund
á leiðinni hingað, og ein vöru-
bifreið hingað frá Hafnarfirði, en
ekki komst hún aftur lengra en
suður í öskjuhlíð. Bifreið-
ar B. S. R., sem fluttu
austanpóstinn upp að Sandskeiði,
teptust ofan við Baldurshaga á
leið hingað og sitja þar fastar.
— I dag hefir bifreiðum verið
alveg ófært út fyrir Revkjavík.
7 w ^
Skjaldarglima „Ármanns“
verður háð 31. þ. m. Má bú-
ast við góðri þátttöku.
Aðal-danzleikur
glímufélagsins „Ármanns" verð-
ur haldirtn laugardaginn 18. þ.
m.. í Tðnó og hefst kl. 9 e. h.
Ungir jafnaðainienii!
Komið í Alþýðuhúsið við
Hverfisgötu kl. 2 á morgun!
Guðm. Jóhannsson
ritar nú af miklum móð um
samgöngumál bæjarins í „MgbL“,
en hvorki hann né blaðið virðist
vita, að þetta mál hefir verið
borið fram i bæjarstjórn af Al-
þýðufulltrúunum þar, en verið
svæft í svo kallaðri „bæjarlaga-
nefnd“ af Knúti og íhaldinu, sem
hafa þessa nefnd til þess, að
svæfa í. þau mál, sem þeir kyn-
oka sér við að drepa hreinlega.
P.
Unglingastúkan „Æskan“
heldur jólafagnað á morgun kL
5 í G.-T.-húsinu. Sjá nánar í a.ug-
lýsingu!
Heí lsuf arsf réttir.
(Frá landlækninum.) Vikuna 29.
dez. til 4. jan. var kvefsóttin hér
í Reykjavík viðlíka og næstu viku
áður, veiktust 494, en lungna-
bólga minni, veiktust 79, en vik-
una áður 121. Aftur var hettu-
.sóttin nokkru útbreiddari, veikt-
ust 120, en 97 vikuna áður. Þá
viku dóu 8 manns héb í Reykja-
vík. — Hettusóttin gengur enn
þá svo að segja að eins hér
á Suðurlandi. Á Norðurlandi hafs*
að eins 7 veikst af henni, 1 á
Austurlandi og enginn á VestuT-
landi. Mest ber á kvefsóttinni á
Suðuriandi og Vesturlandi, en á
Norður- og Austur-landi er hún
miklu minni. (Eftir dezember-
skýrslum lækna.) í dezember hef-
ir verið óvenjulega mikið um
gigtsótt, bæði hér og annars
staðar á landinu. Veiktust alls
39 af henni, þar af 15 í Reykja-
Rjótnafe5kap fást allan dag-
inn í Alþýðubrauðgerðinni.
MUNIÐ: EI ykkur vantar hÚ3»
gögn ný og vönduð — einnig
notuð —, þá komið í fornsölurac,
Vatnsstíg 3, sími 1738.
NÝMJÓLK fæst allann daginn í
Alþýðubrauðgerðinni.
Tvisttau í svuntur og Kjóla.
Tækifærisverð, kvensokkar, buxur
og bolir, mikið úrval og afar- ódýrt
*
Vörubúðin, Laugavegi 53.
Vinnuföt á drengi og fullorðna,
aliar stærðir. Skyrtur, sokkar, vetl-
ingar, axlabönd og nærföt, vinnu-
fataefni, þrælsterk brúnt og blá-
grátt. Alt sérlega góðar, ódýrarog
haldgóðar vörur fyrir verkamenn
Vörubúðin, Laugavegi 53.
Sendisvein vantar strax. Upp-
lýsingar í Nýju fiskbúðínni, simi
1127, og hjá Sigurðí Gíslasyni,
Þingholtsstræti 8. •
i------- 1 ■ .............—-----
vík. Að þessum farsóttum frá-
töldum heflr verið lítið um önnur
umferðaveikindL
Kosningaskrifstofa'Alþýðuflokks-
ins.
í Reykjavík í Alþýðuhúsinu við
Hverfisgötu, sími 2394. 1 Hafnar-
firði á Linnet&stíg 1, sími 236.
Skrifstofurnar eru opnar alla
virka daga.
Ötvavarpsstjórí
hefir Jónas Þorbergsson, rit-
stjóri „Tímans", verið settur fyrst
um sinn. (
Alþýðublaðið
kemur út á morgun. Auglýsing-
ar i það þurfa að vera komnar,
fyrir kl. 8 í kvöld.
„Vesturland“
ihaldssnepillinn, sem gefinn er
út á Isafirði, kom út í gær fult
af skömmum og óþverra i
trausti þess, að ekki verði hægt
að svara þeim fyrir kosning-
arnaT þar; en orðbragðið er
þannig, að svo lítið, sem fylgi
íhaldsins var þar áður, mun það
þó enn hafa þorrið við þann
„kosningamat“.
Járnsmiðanemafélag Reykjavikur
heldur fund á morgun kL U/t
í Góðtemplarahúsniu við Templ-
arasund (uppi). Áríðandi, að all-
ir jámsmíðanemar mæti.
K.
Ritstjóri og ábyiigðarmaður:
Haraldur Guðmundsson.
Alþýðuprentsmiöjaa.