Alþýðublaðið - 12.01.1930, Blaðsíða 3

Alþýðublaðið - 12.01.1930, Blaðsíða 3
ALÞÝÐUBLAÐÍÐ 3 ,S! Nýjar íyrsta flokks Virgmia cigarettur. Three Bells 20 stfc. pabfclua fcostar fci>. 1.25. — Búnar tlE h]á Brltlsta AmerScan Tobaeeo Co, London. Fást f heildsiHu tajás TóbaksverzL fslands h.f. Einkasalar á ísiandi. m ■ ÚTSALA. Silkisjöl, handsaumuð, pau fallegustu, sem hér hafa sézt, og sem áður hafa kostað: Kr. 280.00 nú 220,00 — 180,00 — 140,00 -- 130,00 — 95,00 Sðmuleiðis seljast allar leðurvðrur með 25 o/° afslætti. — Fallegt og vandað úrvai af siikisokkum. Allar aðrar vðrur verzlunarinnar seijast með 10% afslætti tii 20. p. m. KRAGH, Bankastræti 4. Sira! 330. Auglýsing dci Atsvarsskýrslnr Dtansveitarmanna. Samkvæmt lögum nr. 46, 15. júní 1926, um útsvör og reglur, 8. növ. 1927 um útsvarsskýrslur utansveitarmanna ber að senda bæjar- stjóminni skýrslur um atvinnu pá, er utansveitarmenn stunda í Reykja- vik. Þessir eru skyldir aö senda skýrslur um atvinnu sina í Reykja- uik: 1. Mver sá einstaklingur eða félag, sem ekki á heimilissveit i Reykja- vík, en a. hefir hér heimilisfasta atvinnustofnun, einkaatvinnu eða útibú, b. stundar fiskveiðar og leggur upp afla sinn i Reykjavik, c. rekur hér atvinnu, svo sem verzlun, sildarkaup, verksmiðju- iðnað eða slikt, d. flyzt hingað búferluin. 2. Þeir, sem eiga hér ekki heímilissveit, en stunda atvinnu í Reykja- vik að minsta kosti 3 mánuði samtals á gjaldárinu. 3. Þeír, sem eru lögskráðir á skip i Reykjavík að minsta kosti 3 mánuði samfleytt, en eiga hér ekki heimilissveit. Enn fremur allir peír vinnúveitendur í Reykjavík, og peir, sem hafa hér heimilisfasta atvinnustofnun, skyldir að senda skýrslur um atvínnu peirra utansveitarmanna, sem stvrfa í pjönustu peirra. Allar þessar skýrslur skal rita á eyðublöð, sem par til eru gerð og fást í skrifstofu borgarstjöra. Skýrslur fyrir árið 1929 ber að senda hingað í skrifstofuna nú pegar og ekki síðar en fyrir lók febrúarmánaðar. að viðlögðum dag- sektum eftir ákvörðun atvinnumála-ráðuneytisins. Borgarstjórinn í Reykjavík, 11. janúar 1930. E. Simsen. reiknuð með. Kjallaramir eru fullir af börnum. — Þeir, sem reyna að fá' fólkið til að gleyma þessum hörmungum, þessari bæjarskömm og bæjaxmeinsemd, og leiða huga pess frá henni með íburðarmiklu slirafi, — þeir gera gælur við ósómann. H. G. BæjanelrsUir og ihaldsmenn. Guðmundur kartöflufræðingur |skrifar i „MgbL“ um almennings- bifreiðar. Er þar ýmislegt af viti sagt, og er það alt fengið að láni úr tillögum jafnaðarmanna f bæjarstjórn. Hitt, sem Guðmund- ur sjálfur leggur til málanna, er auðþekt Skal hér fært eitt dæmi: Guðmundor telur, að um þrenns konar fyrirkomulag á rekstrinum geti verið að ræða og segir: „1. Bæjarrekstur: Um þá úr- lausn munu flestir Sjálfstæðis- menn sammála, að muni ekki vera heppileg.“ Hvers vegna? Því svarar Guðmundur í næstu málsgrein, segjandi: „2. Einkaleyfi. Um þá leið er það að segja, að bæjarstjórninnj munu hafa borist tilboð um slikar ferðir, og sýnir það, að ýmsir fésýslumenn álíta fyrirtæki sem þetta arðvænlegt" Þarna er frómt frá sagt. I- haldsmenn eru sammála um, ad bœfarrekstur sé ekki „heppileg úrlausn“ af pví, „að ýmsir fé- sýslumenn álíta fyrirtœki sem petta arðvænlegt.11 — Bærinn má aldrei hafa atvinnurekstur, sem einstaklingar geta grætt á. En hann má reka grjótnámið með margra tuga þúsunda tapi á ári; hann má tapa hundruðum þús- unda á mótöku Jóns Þorláks- sonar, kartöflurækt Guðmundar o g Pólabyggingum Knúts. — Þama talar ósvikinn íhaldsmaður. Um dagimt og vegiuBH. Næturlæknir er í nótt Ólafur Jónsson, simi 959. „FIónið“ verður leikíð kl. 8 i kvöld. Ritstjóraskilti eru orðin að »Timanum«. Hefir Jónas Þorbergsson látið af rit- stjórninni, en við tekið Gísli Guð- mundsson, ritstjóri »Ingólfs«, kosn- ingabl aðs >Framsóknar«-flokksins. Alþýðublað Hafnfirðlnga. í dag byrjar hafnfirzk alþýða að gefa út blað. Heitir það Alpýðu- blað Hafnfirðinga. Ritstjóri er Þor- valdur Árnason bæjarfulltrúi. Enn er óákveðið um framtíð blaðsins, en það væntir stuðnings alþýð- unnar og einkum hafnfirzkrar al- þýðu. Kosningaskrifstofa Aiþýðuflokks- ins. 1 Reykjavík í Alþýðuhúsinu við Hverfisgötu, sími 2394. I Hafnar- firði á Linnetsstíg 1, sími 236. Skrifstofurnar eru opnar alla virka daga. Togararnir. »Geir« kcm ai veiðum í gær með um 400 kassa ísiiskjar. Veðrið. í gærkveldi var norðaustan- hvassviðri um alt landið og hríð á öllu Norður- og Austur-landi, en yfirleitt léttskýjað á Suðvestur- landinu. Leit út fyrir, að áttin haldist óbreytt í dag, en dragi heldur úr veðri. (Frá Veðurstof- unni.) Alþýðublaðið er 6 síður í dag. Skipafréttir. »ísland« var væntanlegt hingai i morgun frá Kaupmannahöfn. Eriend símskeyti komu ekki í gærkveldi vegns simabiiana. Ungir jafnaðarmennf Komið í dág kl, 2 i Alþýðuhus- ið við Hverfisgötu. IþróttavöIIuiriiin. Sagt er, að íhaldið ætli sér a& flytja íþróttavöllinn aftur, til þess„ að hann sé ekki fyrir Claessen og uppeldissyni hans, er þeir fara út á Skildinganesið sitt. — »Aldrei að víkjal* sagði Jón Sigurðs'on, »Alt verður að vikjal* segir Claes- sen og skattflóttaliðið. — Ait verð- ur að vikja fyrir hagsmunura flóttamannanna. X. Fyrirspurn. Vill Alþýðublaðíð gefa mér upp- íýsingar um, hvort bæjarfulltrúar hafi nokkur laun fyrir setu sina i bæjarstjórn. SpurulL Svar: Bæjarfulltrúar hafa engin laun fyrir starf sitt. Ritstj. JórnsmiBanemafélag Reykjavikur heldur fund kl. I1/* í dag í Góð- templarahúsinu við Templarasund uppi. Merk mál á dagskró. Jára- smiðanemar! Mætið allirt Þ. Hverjlr voru á móti 21 árs kosningar- rétti? íhaldsmenn. Hverjir voru á móti þvi, að styrkþegar fengju kosningarétt? íhaldsmenn. Aftur- haldið hefir ætið spyrnt gegn öll- um framförum, og því hefir það tapað að fullu völdunum mjög víða. Jafnaðarmenn eru i hreinum meirihluta í Kaup- mannahöfn, Stokkhólmi og Osló. Reykjavik er eina höfuðborgin á Norðurlöndum, er gefið hefir aftur- haldinu grið. Bæjarstjórnarkosningaraar á Isa- firði. Af þeim bárust engar fregnir í gærftveldi vegna símsUta. Algerð símsHt voru beggja megin við

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.