Morgunblaðið - 30.01.1964, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 30.01.1964, Blaðsíða 8
8 MORGUNBLÁDIÐ Fimmtudagm- 30. Jan. 1064 Frá umræðum á Alþiugi í gær Fiskverðið Söluskatturinn ÍJr ræðu forsætisráðlierra 1. UMR. um ráðstafanir vegna sjávarútvegsins og fl. fór fram í efri ðeild Alþ. í gær. Forsætis- ráðherra, Bjarni Benediktsson, fylgdi fry. úr hlaði. Forsætisráðherra kvað nokk- urn ágreining hafa orðið um frv. i n. deild, en þó ekki deilt um það meginatriði, að sjávar- útvegurinn þyrfti á aðstoð að halda, og eftir atvikum væri að- stoðarformið eðlilegt. Hins veg- ar hefðu sumir talið útveginn þurfa á meiri aðstoð að halda. Þetta frv. væri engin fullnaðar- lausn, heldur óhjákvæmileg úr- bót, eins og sakir stæðu, eftir kauphælkkanirnar í desemiber. Samningar gengu fyrst samán Frá Alþingi Á dagskrá efri deildar Alþingis á þriðjudag vai eitt mál, frum- varp til laga um heimild fyrir ríkisstjórnina til að selja hluta úr landi Miðhúsa í Egidsstaða- hrepp ábúandanum, Halldóri Sigurðssyni. Frumvarpið er frá landbúnaðarnefnd. Bjartmar Guðmundsson flutti málið úr hlaði. f greinargerð segir, að málið sé flutt að baiðni landbúnaðar- ráðuneytisins vegna tilmæla Skógræktar ríkisins, sem er eigandi jarðarinnar. Hefur skóg- ræktarstjóri, Hákon Bjarnason, skýrt svo frá, að skógræktin vilji gjarnan selja ábúandanum þann hluta jarðarinnar, sem um ræðir, flatt land með smáholtum og mýrasundúm, sem enga þýð- ingu hafi fyrir skógræktina. Samþykkt var að vísa málinu til 2. umræðu. Frumvarp um samyrkjubú, rétt- hærri en einstaklingsbú í neðri deild mælti Lúðvík Jósepsson (K) fyrir frumvarpi, sem hann flytur ásamt Hannibal Valdimarssyni (K), um breyt- ing á lögum um Stofnlánadeild landbúnaðarins. Er lagt til, að nýr kafli bætist í lögin, sem heiti „Um félagsbúskap". Segir þar, að vilji tveir eða fleiri bænd- ur stofna til féiagsbúskapar á jörð í stað þess að stofna á henni nýbýli eða reka félagsbúskap í byggðahverfi, sem landnám rík- isins hefur undirbúið, skuii þeir tHkynna það nýbýlastjórn, er veiti til þess samþykki sitt, að fullnægðum nánar tilteknum skilyrðum. Síðan segir, að stofnendur félagsbús skuli hafa rétt til hærri lána úr Stofnlánadeild landbún- aðarins en gildir um einstaklings búskap. Nemi sú hækkun 20% af kostnaðarverði, og lán og framlag nemi samtals 80%. Lán- in skuli veitt til ailt að þriðjungi lengri iánstíma en önnur sam- bærileg lán. Greiðslur vinnuveitenda í sjúkra- sjóði verði lögtakshæfar í neðri deild mælti Benedikt Gröndal (A) fyrir frumvarpi til laga, sem hann flytur ásamt tveimur öðrum flokksbræðrum sínum. Er þar lagt til, að bætt verði við ákvæði í lögtakslögin frá 1885, um að umsamdar greiðsl ur atvinnuveitenda í sjúkra- og styrktarsjóði veckalýðsfélaga verði lögtakshæfar. Segir í grein argerð, að komið hafi í ljós ýms- ir erfiðleikar á innheimtu þessara gjalda, og til þess að leysa úr þeim vanda sé þetta frumvarp fram komið skv- tilmælum nokk- urra forráðamanna verkalýðs- íélaga. Málinu var vísað til 2. umræðu og allsherjarnefndar- í des. er ríkisstj. hefði heitið að beita sér fyrir því, að hrað- frystihús fengju bætta 15% kaup hæklkunina. Sú upphæð nemur 43 millj. kr. Nú vildu sumir að- stoða aðrar greinir fiskframleiðslu með sama hætti og freðfiskframldiðsluna, svo sem saltfisk- og skreiðar- framleiðslu. Verð á þesusm vör- um er mun hagstæðara, og meiri hækkanir hafa orðið á verði þeirra en freðfisks að undan- förnu, svo að ekki hefur þótt fært að verða við óskum í fyrr- greinda átt. Hins vegar njóta bæði saltfiskur og skreið þeirra hlunninda, sem í frv. felst, að útflutningsgjald á þeim er lækk að úr 6% í 4.2%. Lögmæti fiskverðsúrskurðarins Ráðherra kvað lögmæti úr- skurðarins, sem kvað á um fisk- verðið, hafa verið dreginn í efa. Sagðist hann persónulega ekki efast um, að úrskurðurinn væri fullkomlega lögmætur og kveð- inn upp með þeim eina hætti, sem fylgja yrði, ef tryggja ætti, að lögmæt niðuirstaða slíks gerð- ardóms fengist. Fylgt hefði ver- ið sömu aðferð og viðurkennd væri í dómskaparétti okkar, og engum hefði komið til hugar að bera brigður á. Hins vegar væri ekkert út á það að setja, að mál- ið yrði borið undir dómstóla, ef einhver teldi ástæðu til þess. Ákvörðun fiskverffsins. Forsætisráðherra sagði síðan: „Hitt er svo allt annað mál, '-vort menn telja, að efni úr- skurðarins sé sanngjarnt. Því hefur verið fleygt, að oddamað- urinn hafi fylgt þar fyrirmæl- um rfkisstj.. Ég vil nota þetta tækifæri til þess að lýsa það með öllu fangt. Að sjálfsögðu kom ríkisstj. ekki til hugar að gefa nein slík fyrirmæli né odda manninum að ieita fyrirmæl- anna og ekki einu sinni leiðbein- ingár eða álits ríkisstj. um hvert fiskverðið skyldi vera. Hann kveður það upp, dómkvaddur maður, eftir sinni eigin beztu samvizku, eftir að hafa aflað sér allra þeirra gagna, sem hann 'hefúr talið sj'g þurfa á að halda. Þá er einnig á það að líta, að eftir ákvæðum gildandi laga, ber að miða fiskverðið við út- flutningsverð vörunnar. Þessi gerðardómur, sem á að ákveða fiskverðið, á að byggja úrskurð sinn á allt öðrum forsendum 'heldur en t. d. nefndin sem á- kveður landbúnaðarverð. Þar er 'byggt á því, að bændur hafi sambærilegar tekjur við til- teknar stéttir, sem upp eru taldar. Af hækkandi tekjum þeirra og hækkandi kostnaði við framleiðslu landbúnaðarvara leiðir það, að bændur eiga rétt á hækkandi verðlagi til sín. Um þetta eru ákvæði laganna vairðandi ákvörðun fiskverðs gersamlega ólík. Þar er fyrst og fremst byggt á útflutnings- verðinu. Það er leiðabeining- in, sem gefin er, og gagnrýn- endur þessa úrskurðar odda- manns hafa ekki sýnt fram á og ekki að því er ég hef heyrt einu sinni leitazt við að sýna fram á, að oddamaðurin hafi í ávörð- un sinni mistalið með eða mis- metig útflufningsverðið eða áhrif þess á fiskverðið nú. Þvert á móti hygg ég, að hann hafi með því að ákveðá fiskverðið óbreytt frá því sem var í fyrra, teygt sig eins langt og unnt er útgerðarmönnum og sjómönn- um til hags, vegna þess að eftir gildandi lögum þá hlýfcur aukinn tilkostaður, hvort sem hann er af innlendum rótum eða erlendum rótum, að koma út- gerðarmönmum og sjómönnum til kostnaðar. Það var rækilega bent á það í umræðunum hér fyrir áramótin, a. m. k. af mér og ég hygg raunar fleirum, að hæfckandi kaupgjald í landi hlyti eftir gildandi lögum að verða til þess, að fiskverðið til sjómanna lækkaði. Ég varpaði aftur á móti fram þeirri spurn- ingu, hvort menn hefðd trú á því, að slík lækkun á fiskverði væri framkvæmanleg, þegar til- kostnaður ykist og aðrar stéttir fengu kauphækkanir. Ég minnist þesis ekki, að þessari spurningu fengist þó svarað, en ég reik þetta nú, vegna þess að odda- maðurinn hefur orðið fyrir-' ómaklegu aðkasti fyrir sinn úr- skurð og til þess að gera það alveg ljóst, að í þeirri till., sem samþ. var í Nd. 4lm hækkun á fiskverði, felst síður en svo nokk ur ómerkimg eða vanrnat á úr- skurði oddamamnsins. Það er einungis byggt á þeirri stað- reymd, sem fyrir höjidum er, að úr því að fiskverðið gat ekki hækkað, þrátt fyrir aukimn til- kostnað og þrátt fýrir hækkun á kaupi annarra stétta, þá er óumflýjanlegt að verðið hækki einnig. Það er sjálfstæð ákvörð- un, s^m byggir á þeirri stað- reynd, sem nú liggur fyrir, en í því felst engan veginn, að þar með sé sagt, að úrskurður odda- mannsins sé rangur, því að það er fjarri lagí að mínu viti“. Á aff tefla hag ríkissjóffs í hættu? Söluskattur og greiffsluafgangur Síþar í ræðu sinni sagði for- sætisráðherra: „Afla þarf fjár umfram það, sem ríkissjóður hefur þegar yfir að ráða, og skv. frv. upphaflega var ráðgert, að fjárþörfin yrði í kringum 210 millj. kr. Eftir að framiögin til hækkunar fisk- verðs bætast við, koma þar rúm ar 50 millj. hér um bil, svo þá verða þetta nokkuð yfir 280 ipillj. kr., sem afla þarf fjár til að greiða, og eru ákvæði 5. gr. þess efnis að hækka söluskattinn til að tryggja þgð, að ríkissjóður fái staðið við þessar skuldbind ingar. Þetta ákvæði frv. hefur sætt verulegri gagnrýni. Að mínu viti er sú gagnrýni þó ekki sann gjörn né fær staðizt. Alþingi hef ur þegar samþ. fjárl. fyrir árið 1964 og að sjálfsögðu áætlað þau eftir því, sem þá þótti eðlilegt og sanngjarnt, og mun það margra manna mál, að þar sé teflt á nokkuð tæpt vað um tekjuöflun, þó að vonamdi fái þar allt staðizt, áður en yfir lýkur. Víst er, að á slíkum þenjslutím- um, sem nú eru hér á landi, þá væri það hið mesta óráð að tefla hag ríkissjóðs í hætt og láta hann verða fyrir greiðsluhalla eða tefla mjög í tvísýnu um slíkt. Það væri ekki aðeins hættulegt fyrir fjármál ríkissjóðsins sjálfs held ur skv. allra skyni bærra manna skoðun mjög til þess að auka á verðbólgu, fá þá þenslu, sem all ir eru a.m.k. öðru hvoru sam- mála um, að forðast beri. Enda sjáum við þess dæmi, að í öðr- um löndum hafa, þegar svipað hefur staðið á eins og hér, bein línis veri lagðir á sérstakir skatt ar til þess að draga fé úr um- ferð til þess að vinna á. móti þenslu og verðbólgu og féð lagt til hliðar. Það er engan veginn ætlunin að gera slíkt að þessu sinni af hálfu ríkisstjórnarinnar. en húri telur óverjandi annað en að afla fjár til þeirra útgjalda, sem hún telur óhjákvæmilegt að taka á ríkissjóð. Þessu máli er það óskylt, þó að nokkur og allríflegur greiðslu afgangur hafi orðið á árinu 1962 og verði sennilega einnig, þó nokkur- og allríflegur greiðsluaf gangur hafi orðið á árinu 1962 og verði senniilega einnigr þó nokkru minni, á árinu 1963. Tekj afgangurinn 1962 hefur að mestu verið lagður í jöfnunarsjóð lög um samkvæmt, og vonandi verð úr unnt að gera slíkt einnig að nokkru fyrir árið 1963. Ef þetta fé > væri nú þegar tekið og því eytt, mundi það verka verðbólgu aukandi, verka til þess að auka á þenslu, magna þau vandræði sem við erum að reyna að berj ast gegn með þessu frv. og öðr- um hliðstæðum ráðstöfunum. Enda er það eins og hæstv. fjár málaráðherra sýndi glögglega fram á í hv. Nd. ólíkf skynsam- legra að leggja til hliðar fé á þeim tímum, þegar yfirfljótanleg atvinna er, til þess síðan að geta gripið til þess fjár, ef til hins verra horfir um atvinnu og geta þá ráðist í framkvæmdir til þess að forðast hið mesta böl, sem at vinnuleysið er“. Söluskatturinn gatiúigum komiff á óvart „Þá hefur stjórninni einnig ver ið brugðið um það, að hún væri að koma aftan að verkalýðnum með því að gera nú tillögur um að hækka söluskattinn og að slík hækkun hlyti að leiða til frekari kauphækkana síðar. Af þessu til efni er rétt að það sé enn rifjað upp, sem raunar öllum er kunn ugt, að í sambandi við verkfall ið var því margyfirlýst baéði hér á Alþingi og við rétta aðila af hálfu ríkisstjórnarinnar, að ef verkfallinu lyki svo, að ríkissjóð ur yrði að hflaupa undir bagga að einhverju leyti með atvinnuveg um, taka á sig aukin útgjöld, þá yrði það ekki gert nema með hækkun á tekjum ríkissjóðs, og var söluskattur þar beinlínis tal færður, eins og einnig nú nýlega hefur verið rifjað upp af and- stæðingum stjórnarinnar, svo að slíkt getur engum komið á óvart. Mér er einnig nær að halda, að þegar kauphækkunin var ákveð in svo mikil, sem raun ber vitni, þá hafi verið haft í huga það sem allir vissu og urðu að gera sér grein fyrir, að ýmsar hækkamr hlutu að leiða af kauphækkun inni og m.a. hækkun á sölu- skatti, ef ríkið þyrfti að skerast í málið með þeim hætti, sem ég áður drap á“. Karl Kristjánsson (F) rakti sögu seinustu ára. Kvað hann illa komið stjórn arstefnunni, en Framsóknar- ' mönnum kæml það ekki á óvart jafn oft og þeir hefðu mælt við vörunororðum. Nú væri dimmt Ogr Framsóknar- sammáia ríkis- stjórninni um það, að nú þyrfti skjófca ráða við. Taldi hann síð- an upp sömu athugasemdir við frv. og Framsókarmenn flutfcu í neðri deild. Vel væri hægt að Frh. á bls. 23 fyrir augum, menn væru Þingsályktunartillaga: Athugun á auknum iðnrekstri í atvinnu- litlum kauptúnum og kaupstöðum 3. des. sl. var útbýtt á Alþingi tilögu til þmgsályktunar um athugun á auknum iðnrekstri í kauptúnum og kaupstöðum, þar sem atvinna er ónóg. Flutningsmenn tillögunnar eru Björn Pálsson, Gunnar Gísla- son og Benedikt Gröndal. Tillagan hljóðar svo ásamt greinargerð: AlÞingi ályktar að fela 5 manna nefnd að athuga, hvað hægt sé 'að gera til að auka iðnað í þeim kauptúnum og kaupstöð- um úti á landi, þar sem ónóg er atvinna. Alþingi kýs tvo menn í þessa nefnd, en ríkisstjórnin skipar þrjá, og skulu þeir vera sérfróðir í iðnaðarmálum. Störf nefndarinnar skulu véra: 1. Athugun á því, hvar mest er þörf fyrir gukinn iðnað vegna ónógrar atvinnu. 2. Athugun á því, hvaffa iffn- greinar er hagkvæmast aff starfrækja á hverjum stað. 3. Aff gera tillögur um, á hvern hátt eigi aff útvega fjár- magn, svo aff hægt sé aff starfrækja iffnfyrirtækin. 4. Að gefa upplýsingar um þá faglegu þekkingu, sem nauff synleg er, til þess aff hægt sé að starfrækja þau iffn- fyrirtæki, sem nefndin legg Iðnaðurinn er að minnsta kosti enn að mestu leyti miðaður við að vinna úr íslenzkum hráefn- um. Sjávaraflinn er breytilegur. Síldin riefur einkum haldið sig úti fyrir Austfjörðum tvö síðast- liðin sumur, en ekki er víst, að svo verði um alla framtíð. Kaupfcún og kaupstaðir úti á landsbyggðíhni hafa þýðingar- miklu hlutverki að gegna í lífs- baráttu þjóðarinnar, svo að hægt sé að nýta auðlindir sjávar og sveita. Til þess að fólkið vilji og geti búið þar og unga fólkið ur til að stofnuff verffi. Greinargerð. Þess hefur gætt nokkuð undan farin ár, að atvinna hafi verið misjöfn hér á landi. Á Faxaflóa- svæðinu hefur atvinna verið nægileg og jafnvel vantað vinnu afl. Hins vegar hefur ekki verið nægileg vinna allt árið í vissum kauptúnum og kaupstöðum úti á landi. Víða er aðalatvinnan sjó sókn og vinna við sjávarafla í landi. Þegar afli bregzt, mynd- ast meira eða minna atvinnu- . . .. .- .. .- flytjist ekki burt, um leið og ieys1 Atvinnuoryggið er of btað^ j þag er vinnufært þarf að auka lil að bæta ur þvi verður a j atvinnuöryggið og gera átvinnu- gera atvinnulifið fjölbreyttara, og yrði þá einkum um aukinn iðnað að ræða. Til þess að hægt sé að auka iðnaðinn, Þarf fjár- magn og tæknikunnáttu. Nauð- syn ber til, að úndirbúningurinn sé sem beztur, svo að um sem minnst mistök verði að ræða. Þörf er því á, að sklpleg og fagleg athugun fari fram á pví, hvaða iðngreinar sé hagkvæm- ast að starfrækja á hverjum stað og hvar þörf á aukinni atvinnu sé mest, til þess að vinnuafl þjóð arinnar nýtist sem bezt og at- vinnuöryggi ' borganna sé sem jafnast og tryggast. Hráefnafram leiðsla íslenzku þjóðarinnar bygg ist á sjávarútvegi og landbúnaði. lífið fjölbreyttara. Það tekst ekki, nema iðnaðurinn sé auk- inn. Ýmiss konar iðngreinar geta komið til greína, svo sem skipa- smíði, yfirbygging bíla, fatagerð, sælgætisgerð, ullariðnaður, sút- un skinna, húsgagnasmíði, efna. iðnaður, smíði á síldartunnum, aukin nýting sjávarafurða o.fi. Meiri tilfærsla á fólki og fjár- magni í landinu en þegar er orðin er meir en vafasöm, Frek- ari þróun í þá átt ber að hindra með því að efla atvinnulífið þar, sem þess er Þörf. Það verður tæp ast gert nema þjóðfélagið í heild stuðli að því með útvegun fjár- fnagns og tækniaðstoð.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.