Morgunblaðið - 05.02.1964, Blaðsíða 23
Miðvikudagur 5. feb'r. 1964
MORGU N BLAÐIÐ
23
Séð yfir háborðið í hófinu. Ásgeir Ásgreirsson flytur þakUarávarp til ríkisins, Reykjavíkurborg-
ar, starfsmanna mótsins og annarra, sem stuðlað hafa að framgngi þess.
Erfiðast að keppa
á heimavelli
— segir Gligoric — Verð-
launaofhending Reykjavíkur
mólsins í gærkvöldi
1 HÓFI í Þj óðleikhúskjallar-
anum í gæ-rkveldi voru veitt
verðlaun fyrir Reykjavíkur-
mótið í skák. Afhenti for-
seti Skáksambands Islands,
Ásgeir Þór Ásgeirss., 7 efstu
kependunum verðlaunin,
sem námu samtals 1300 doll-
urum (um 56 þús. kr.). Sig-
urvegarinn, Mikhail Tal,
hiaut 400 dollara. Heimsmeist
ara kvenna, Nonu Gabrinda-
svili, voru fserðar gjafir frá
Skáksambandinu. Viðstaddir
veizluna var meðal annars
borgarstjórinn í Reykjavík,
Geir Hallgrímsson.
Fréttamaður Morgunblaðs-
ins náði sem snöggvast tali af
júgóslavneska stórmeistaran-
um Svetozar Gligoric og
spurði, hvort hann væri á-
nsegður með mótið.
— Mér finnst mótið hafa
farið fram með miklum glaesi
brag, sagði Gligoric. Við höf-
um öll undrazt mjög áhuga
blaða og áhorfenda. Fram-
kvæmd mótsins og öll stjóm
hefur og verið íslendingum
til sóma. Ég er ánæigður með
eigin árangur og hef haft
gagn af þessari keppni fyrir
svæðamótið í vor.
Um árangur íslendinganna
vil ég segja það, að hann er
ekki slíkur sem vænta mætti
af skákstyrk þeirra, en það
má sennilega kenna því, að
oft er erfiðast að keppa á
heimavelli, það þekki ég af
eigin raun. Eg hef stundum
staðið mig hörmulega á mikil
vægum mótum í Júgóslavíu.
— Hafið þér komið til ís-
lands áður?
— Nei, því miður, en mér
var boðið að koma árið 1955.
í*á gat ég það ekki vegna at-
vinnu minnar, ég er blaða-
maður. Eg vann hjá dagblað-
inu Rorba um 9 ára skeið,
vikublaðinu NIN í 6 ár og nú
vinn ég hjá útvarps og sjón-
varpsstöðinni í Belgrad. Júgó
slavar eru mjög áhugasamir
um Reykjavíkurmótið, t.d.
hringdi dagblað nokikuð í Bel
grad til mín í gær og spurð-
ist frétta. Eg hef hins vegar
lofað að skrifa um mótið í
gamla blaðið mitt, Borba. —
Júgóslavar þekkja Friðrik vel,
hann er í miklr áliti þar.
Hann er reyndar alls staðar
álitinn einn fremstu skáik-
manna Evópu. Við hittumst
alltaf af og tiL
Það er svo með okkur þessa
skákmenn, sem höfum náð
stórmeistaratitli og fáumst
enn við að tefla, að við erum
orðnir eins og ein alþjóðleg
fjölskylda. Við sjáumst á
hverju skákmótinu eftir ann-
að á ólíkustu stöðum.
— Er það rétt, að þér hafið
verið skæruliði í heimsstyrj-
öldinni?
— Já, ég gekk í júgóslav-
nesku skæruliðasveitirnar ár-
ið 1943. Þá var ég aðeins tví-
tugur. Ég þyrjaði sem óbreytt
ur hermaður, en var gerður
að höfuðsmanni áður en stríð-
inu lauk og var þá auk þess
tveimur heiðursmerkjum ríik-
ari.
afhendir
Ásgeir Ásgeirsson, forseti Skáksambands íslands,
Svotozar Gligoric 2- verðlaun Reykjavíkurmátsins.
Rússa
Nýjar tillögur
vekja lítinn áhuga í Genf
Genf, 4. febr. (AP-NTB)
SEMYON K. TSARAPKIN, aðal
fulltrúi Sovétríkjanna á afvopn-
unarráðstefnunni í Genf, lagði í
dag fram tillögur um takmörkun
á fjölda eldflauga stórveldanna
og einnig tillögur um bann við
kjarnorkuvopnum í báðum hlut-
um Þýzkalands. Síðarnefndu til-
lögurnar eru í aðalatriðum byggð
ar á tillögum Austur-Þjóðverja,
en þeim tillögum hafa banda-
risku fulitrúarnir hafnað á
þeirri forsendu að þær komi frá
ríkisstjórn, sem þeir ekki viður-
kenna og á ekki fulltrúa á ráð-
stefnunni. — Talsmenn Vestur-
veldanua sögðu í dag að fundi
loknum að tillögur Sovétrikjanna
þyrfti að kanna ránar, en ýms
atriði í þeim eru ógreinileg og
torráðin.
Tsarapkin sagði að ætlazt væri
til að fyrst um sinn væri báðum
aðilum heimilt að hafa takmark
aðan fjölda langdrægra eldiflauga
en allar staðsettar á landi. Leggja
bæri niður allar eldflaugastöðv-
ar stórveldanna uta.n heimalands
ins, og banna eldfalugastöðvar á
hafi úti, þ.e. um borð í skipum.
Lokatakmarkið, eða þriðja sporið
í átt til afvopnunar, væri svo að
leggja niður allar eldflaugastöðv
ar, eyðileggja skotstöðvarnar og
kjamorkusprengjurnar. Eru til-
lögur þessar svipaðar tillögum
sern Gromyko, utanríkisráðherra
Sovétrikj anna, lagði fram á Alls
herjarþingi Sþ í sept. s.l.
Talsmaður Bandaríkjanna á
ráðstefnunni ræddi við frétta-
menn eftir fundinn og sagði að
ekkert nýtt hefði komið fram í
tillögum Tsarapkins, en þær yrðu
að sjálfsögðu teknar til athug-
unar.
Kaupmannahöfn,
4. febr. NTB.
DÖNSK orustuþota af gerð-
inni Hunter Hawk hrapaði í
dag á Suður Jótlandi. Flug-
maðurinn, sem var einn í
vélinni, fórst.
Fjölmörg mál rædd á
Fiskiþingi í gær
FUNDIR á Fiskiþingi hófust kl.
10.30 i morgun. Eftirfarandi mál
voru tekin fyrir og rædd:
1. Síldar- og fiskileit. Framsögu
maður Magnús Magnússon.
2. Veiðarfæramerkingar. Fram-
sögum. Níels Ingvarsson.
3. Tryggingamál (afla-, skipa-
og áhafnatryggingar). Fram-
sögum. Haraldur Guðmundss.
4. Dragnótaveiðar. Framsögum.
Helgi Benónýsson.
Bóndi meið-
ist illa á
höfði
Akranesi, 4. janúar.
UM miðjan dag í gær varð slys
á Ytri-Skeljabrekbu. Bóndinn
þar tekur traktorinn eftir að
hann hefur opnað dyr haughúss-
ins á gátt og hyggst aka mykju
á tún.
Bóndinn, sem heitir Sigurður
Sigurðsson, setur í gang og sezt
á traktorinn og ætlar að renna
honum inn um haughúsdyrnar.
Hörð klakaskel var komin á
skafl fyrir utan, bóndinn hyggst
renna traktornum gegn um snjó-
dyngjuna, en skaflinn heldur.
Lendir því höfuð Sigurðar af
afli miklu á dyraumbúnaðinum.
Símað var eftir sjúkrabílnum
héðan, en hann sat fastur í skafli
við Vogatungu. Var þá beðið um
sjúkrabílinn í Borgamesi, er
strax kom á vettvang. Ók hann
Sigurði bónda í sjúkrahúsið hér.
Páll Gíslason, yfirlæknir,
sagði mér í viðtali í kvöld, að
eitthvað af höfuðbeinum hans
muni hafa brákazt, en þó væri
líðan Sigurðar eftir öUum von-
um. Oddur.
— Lumumba
Framhald af 1. síðu.
Tshombe hefur dregið drápið að
nýju fram í dagsljósið, telur
Kongóstjórn sig lausa undan
fyrri ákvörðun SÞ um að hætta
frekari rannsóknum í málinu. —
Bomboko dómsmálaráðherra
Kongó sagði að bezt væri fyrir
Tshombe að afhenda ríkisstjórn-
inni öll þau gögn varðandi dráp-
ið, sem hann þykist hafa með
höndum. Hann benti á að rann-
sóknin hafi í upphafi verið mjög
erfið, því ríkissaksóknarinn í
Katanga, þar sem Tshombe réði
ríkjum, hafi neitað að hlýða fyr-
irmælum Kongóstjórnar. Þá hafi
ekki verið unnt að birta þær nið-
urstöður, sem fengust af rann-
sókninni, vegna fyrirmæla Sam-
einuðu þjóðanna.
5. Talstöðvar og talbrú. Fram-
sögum. Herm. Vilhjálmsson.
6. Fiskirækt. Framsögum. Ein-
ar Guðfinnsson.
7. Hafrannsóknaskip. Framsögu
maður Margeir Jónsson.
8. Síldarvinnsla og síldarútgerð.
Framsögum. Hallgr. Jónasson.
9. Veðurfregnir og isrannsóknir.
Framsögum. Ingim. Finn-
björnsson.
10. Skelfiskveiðar. Framsögum.
Óskar Kristjánsson.
11. Humarveiðar. Framsögum.
Jón Benediktsson.
12. Hagnýting sjávarafurða. —
Framsögum. Ársæll Sveins-
son. —
Að umræðum loknum var þess-
um málum vísað til þingnefnda.
Fundi lauk kl. 16.40.
í fyrramálið munu nefndir
þingsins sitja að störfum en kl.
13.30 hefst almennur fundur.
— Christine
Framhald af bls. 24.
gripum að verðmæti 11,000 pund,
eða sem svarar um 1,340,000 kr.
Var maður þessi talinn vera um
6 fet á hæð. Hann tók konuna,
lyfti henni upp, keyrði hana nið-
ur á rúm, batt hana og keflaði,
svo hún gæti ekki hrópað á hjálp.
Gekk hann síðan til verks og stal
skartgripunum.
Fréttamaður Mbl. spurði Eirík
Benedikz að lokum þessarar
spurningar: „Mundu vera marg-
ar konur í London, íslenzkar eða
af íslenzkum ættum, sem ættu
skartgripi fyrir 11,000 pund?“
Hann svaraði: „Við sendiherr-
ann vorum að velta þessu fyrir
okkur, og fannst það harla ólík-
legt.“
— Kýpur
Framhald af bls. 1.
að athuga nánar svar Makarroo*
ar forseta.
Lange sagði að i grundvallar-
atriðum væri ekkert því til fyr-
irstöðu að eftirlitsher þesisi væri
á einhvern hátt undi-r stjóm
Öryggisráðsins. En þó áleit ráð-
herrann að heppilegra væri í
þessu tilfelli að svo yrði ekki.
Hann benti þó á að Kýpurmálið
yrði að leysa, því að öðrum kosti
gæti það haft mjög alvarlegar
afleiðingar.
★
Frá Kýpur er símað að enn
hafi koimið til átaka í dag milli
grískra og tyrkneskra Kýpur-
búa. Var það í bænum Khoulou
á vesturhluta eyjunnar. Þama
búa rúmlega 800 manns, en þeg-
ar brezkir eftirlitsmenn komu á
vettvang vom allir tyrknesk-
ættaðir menn flúnir úr bænura.
Einn var þó eftir. Fundu Bretam
ir lík hans, en hann hafði verið
skotinn til bana.
yBLAÐBIJRÐAFOLK
\ ÓSKAST
í þessi blaðahvcrfi vantar Morgunblaðið nú
þegar unglinga, röska krakka eða eldra fólk,
tii þess að bera blaðlð til kaupenda þess.
wm
Bergstaðastrœti
Lynghagi
Gjörið svo vel að tala við afgreiðslu blaðsins
eða skrifstofu.