Alþýðublaðið - 12.01.1930, Page 5
6
Sunnadaginn 12. Jan. 1930.
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
tir landí aftnibaldsins.
ÞaS er ekki langt siðan það
þðtti með stærri tíðindum að
telja, að Mussolini og páfinn
hefði gert með sér frið. Svo var
að heyra á erlendum blöðum,
gem báðir aðiljar væntu sér af
jþví giftu og sæmdar. Og senni-
legast er, að hvorugum muni af
yeita, ef sliks væri köstur, en
íitlar vonir um að svo verði. Ka-
jþólska kirkjan getur ekki auð-
yeldlega lagst lægra en að þiggja
vegtyllur og fríðindi úr hendi
íáiks manns. Og æfisögur Musso-
llnis, þær, sem hlaðið er á bóka-
tnarkað Evrópu, munu naumlega
fá þvegið af honum þann blett,
að hann sé vanskapaðasta stjórn-
málafyrirbrigöi sinnar aldar, og
'þá rrdkiji sagt. Tvent er það,
®am einkum hefir verið talið til
sæmdar hinu ítalska einræði, og
átt hefir að. vega á móti
hryðjuverkunum, siðleysinu og
grimdinni. Hið fyrra er stundvísi
ítölsku járnbrautarlestanna, sem
nú loks þykja ganga nokkurnveg-
inn eftir áætlun á síðari árum.
Hitt er „blómgun atvinnuveg-
Fonnaður þessa sambands, de
Pivelli, er einn af stærstu iðnrek-
endum á ítalíu. Full vissa er fyrir
því, að Mussolini hefir hvað eftir
annað boðið honum fjármálaráð-
herraembættið, en hann jafnan
hafnað. i ræðu þeirri, sem Pirelli
hélt á sambandsfundinum, rakti
hann rök þeirra vandkvæða, sem
hvildi á ítalskri framleiðslu, og
ínat þau til samanburðar við til-
svarandi ástand annars staðar i
Evrópu.
Af ræðu de Pirelli verður það
ljóst, að framleidslukostnadur í
Italíu hefir nálega ekkert lœkk-
áö, ad verzlunarjöfnudurinn er
afar-óhagstœdur og ad skertir
hafa verið til muna varasjóðir
Banca d'ltalia.
Afleiðingin er sú, að eins og nú
standa sakir getur ítalía ekki kept
við önnur lönd á einu einasta
sviði. Engin tollvemd, hversu há
sem er, getur orðið iðnaði né
landbúnaði að liði. Hið eina, sem
hjálpað getur, er að þrýsta fram-
leiðslukostnaðinum niður. En til
þess þarf gagngerðar umbætur á
framleiðslutækjunum bæði í iðn-
aði og búnaði. Og til þess vantar
fé.
anna*' og aukin „efnaleg velmeg-
Un“ Þjóðarinnar, sem mikið hefir
vérið látið af.
Með einræði er þjóðin gerð ó-
tnyndug og áhrifalaus. Eins og
nú háttar högum verður því að
haldið við með því að varð-
veita og hlynna að fáfræði al-
Þýðu og þaulnýta fáfræðina í
Þjónustu stjómmálanna. Afleið-
ingin verður sú, að alment sinnu-
teysi legst á ,hugina, eins og
hlóðsuga, kæmleysi, hjátrú, for-
dómar og undirlægjuháttur dafn-
ar hröðum skrefum. Á slíku á-
■standi hvilir einræðið í ítalíu.
í orði kveðnu eru allir ítalir
svartliðar og enginn ömggur um
hf né limu nema hann játi þá
f^ú- öll blöð í ítalíu em svart-
Uðablöð, og ritskoðun ströng og
grimm. En það þarf ótrúlega lip-
arð til þess að ljúga svo til um
staðreyndir, að ekki grisji í gegn.
°g ööru hvoru gægist ástandið
f gegnum ritskoðun og blekking-
aT fascismans.
Hinn 15. nóv. síðastliðinn
samband ítalskra hlutafé
fund mikinn i Róm tíl þes;
ræða áhugamál sín, einkum
aðarhorfur. 1 sambandinu
15 920 féiög og nemur höfuð
þeirra um 48 milljörðum
Stærsta dagblað Rómaborgar
ornale d’Italia, skýrir frá f
inum og er svo að sjá, sem
hafi kveðiö nokkuð við annar
en hinn venjulega. Eigi að :
fann fundurinn ástæðfu til þe;
votta Mussoiini sérstaka hol
sína og róma þá blessun, er
og lýð hefði hlotnast af svan
stefnunni. En ekki er þeim f<
mælum treystandi um of. Þai
'úkattur, sem allar samlo
veröa að greiða Mussolin
þeim á ekki aÖ verða hfeyþt
Hve tilfinnanlegur sá fjárskort-
ur sé, og hve mjög sé sorfið að
Banca d’Italia má nokkuÖ ráða
af ýmsu þvi, sem staðið hefir í
frönskum blöðum um það mál,
og enn fremur Norðurlandablöð-
um (Politiken) og virðist styðjast
við allgóðar heimildir.
Flestir stórbæir ítalíu tóku
stærri og minni lán í Ameríku
fyrir nokkrum árum. Nú er því
svo háttað, að bæjarstjórnir eru
engar í ItaJíu, bæjunum er stjórn-
að af einvöldum svartliða, sem
stendur beint undir stjórninni.
Borgararnir vita því að jafnaði
ekkert um fjárhag bæjar síns.
Hið einasta, sem mönnum er
kunnugt um, er það, að útgjöldin
fara hækkandi og tekjuhalli er
nokkumveginn algengt orð um
fjárhagsafkomuna. Mussolini hef-
ir því séð sig neyddan til þess
upp á síðkastið, að áminna menn
um spamað og hvers kyns ráð-
deild í meðferð efna sinna, svo
af meiru verði að taka til út-
gjaldanna.
En það virðist ekki hrökkva til,
og bréf hins mikilláta foringja
hafa ekki megnað að skapa það
fé, sem ekki var tíl. Fyrsta októ-
ber síðast’.iðinn skyldi Genúa;
samkvæmt þar um gerðum samn-
ingi, endurgréiða til Ameriku 8V2
^nilljónar dollara lán. Genúa er
|nesta verzlunarborg á ítalíu, og
þessi upphæð virðist því ekki
hefði átt aö verða ofjarl hinnar
stóru borgar. En samt sem áður
gátu Genúamenn ekki greitt
skuldina og báðust ýtrari gjald-
frests. Pví var synjað. Þá skarst
stjómin í leikinn og lét þá am-
eríski bankinn til leiðast, ef hann,
sakir hinnar miktu áhœttu, fengi
traust veð og 9°/o í vexti. Þetta
var í rauninni sama sem synjun,
og lét þá stjómin Banca d’Italia
taka að sér lánið, og var það
greitt. En þetta atvik virðist
benda til þess, að lánstraust Ital-
íu erlendis sé mjög á þrotum.
Svartliðastefnan hefir einangrað
landið. Það hefir dagað uppi sem
framleiðsluland.
En margt virðist einnig benda
til þess, að æmar misfellur séu
á framkvæmd sjálfs stjómarfars-
ins, og miklu meiri en mönnum
sé kunnugt. Fjárdráttur og svik
eru daglegt brauð í ítaliu og
virðist furðu létt tekið á slíku, er
svartliðar eiga í hlut. Síðasti stór-
svikarinn, sem komist hefir upp
um, var stjórnari Milanoborgar,
þingmaðurinn Belloni. Hann tók
ekki aðrar refsingar fyrir klæki
sína en þær, að leggja niður
völd. Slíkir viðburðir eru ekkert
einsdæmi á ítalíu.
Sendimenn ítalíu héldu mjög
til streytu skaðabótakröfum lands
sins á fundinum sæla i Haag og
bám við fátækt landsins. Það
er mælt, að Snowden hinn brezki
hafi ýpt öxlum við barlómi þeirra
og mælt: „ítalía er auðugust allra
landa. Hún hefir ráð á að hafa
tvo heri undir vopnum. Slíkt get-
ur ekkert annað ríki."
Ómögulegt er að segja, hvenær
ítalska þjóðin þykist hafa full-
goldið^ stundvisi járnbrautarlest-
anna og það annað, er Mussolini
þykist einkum hafa afrekað þjóð
sinni til gagns. Friðarmálin við
kaþólsku kirkjuna hafa án efa
styrkt stöðu hans í vitund al-
mennings. Og það er afar-erfitt
að veita viðnám flokki, sem hrifs-
að hefir undir sig öll völd, emb-
ætti, dómstóla og fjárreiður, í
heilu ríki, og sem auk þess gerir
slíkar bamagælur við fáfræði og
hégómaskap sem MussolinL En
frjálslyndum rnönnum víðs vegar
um heim mun ekki þykja illa fara
á sáttum kaþólsku kirkjunnar og
hins ítalska ríkisvalds. Það eru
hagsmunasamtök tveggja aðilja,
sem hvor fyrir sig er dyggur út-
vörður afturhalds og fáfræði, til
þess að hagnýta sér mennina.
Annar okrar með föðurlandsást,
„minningar feðranna“, borgararétt
og ýmislegt hugmyndarusl, hinn
selur rándýra „sáluhjálp” þeim,
sem ekki er búið að rýja inn að
skyrtunni. Annar hefir útlegð og
dauðadóma ’handa sínum upp-
reisnarmönnum, hinn hefir Hel-
viti. — Og báðir þykjast hafa
umboð sitt frá „hærri stöðum".
En það, sem kátlegast er í
þessu sambandi og ástæða er til
þess að vekja athygli á, er sjálf-
stæðisþvaður Mussolini, sem
hann lætur rigna yfir þjóðina í
opinberum bréfum til þess, að
kitla hégómagirni hennar og góð-
borgaraléga drýldnL — Það eru
einu úrræðin, sem hann kann til
þess að ráða bót á menningar-
legum og félagslegum meinum,
sem eru að hrapa þjóðinni í í-
skyggilegan vesaldóm. Þetta er
algengt tiltæki ihaldsflokka, þeg-
Fonr Aces
cigarettur í 10 og 20 sl pk.
i lieildsölulhjá
Tóbaksverzlun
íslands h. f.
ar fokið e* í öll önnur skjól.
Gorgeirinn á að hylja getuleysið.
Það er gert í því yfirtáks traustj
á heimsku almennings, að slíkar
orðabrellur villi honum sýn. Þær
eiga að vera svöngum matur og
klæðlausum klæði — og huggun
þeim, sem misrétti líða og of-
sóknir. Og þyki einhverjum lágt í
aski sínum af öllu þessu, — þá
er kaþólska kirkjan við hendina
með himnesk gæði alls konar,
fleiri en ég kann að nefna.
I kjölfar hins ítalska „sjálfstæð-
is“ siglir „sjálfstæði" ýmissa ann- ,
ara landa, með vonaraugu sín
fest á Mussolini, — litlir spámenh
lítilla hópa og miklu seinheppi- .
legri í sjálfstæðis-skrifum, En
andleg einkenni eru hin sömu, —
sama hugmyndaruslið á boðstól-
um fyrir sama verð,
„Nú getur hver eitin skygnst í
sinni sveit“
S.
Ofviðri og skemdir
á Siglnfirði.
l>»k tekar at húsi og
brýtar tvö fihnar hús.
Siglufirði, FB., 11. jan.
Austan- og norðaustan-stórhriðar
hafa verið hér í meir en viku
undanfarandi með veðurofsa og
fannkomu. Um 11-leytið i gær-
kveldi fauk alveg þakið af húsi
Matthíasar Hallgrimssonar kaup-
manns. Fólkið bjargaðist nauðu-
lega út, án þess þó að slys yrði
af. Þakið lenti á Félagsbakariinu
og braut þar reykháfinn og þakið,
þaðan á hús Jóns Gunnlaugssonar
og braut stórt gat á norðurgaf!
efri hæðar. Auk þess urðu minni
skemdir á fleiri húsum, svo og á
simalínum og ljósaneti bæjarins.
Stórfenni hefir lagst yfir nokkur
fjárhús og geymsluhús, svo menn
hafa orðið að flytja úr þeim.
í dag er austan stórhrið. »Esja«
Iagð: af stað frá Hofsósi klukkan
2 í nótt, en er ókomin hingað og
hefir ekkert til hennar frézt.
(Esja lá á Skagafirði í dag
vegna óveðurs.)
Kseöla fiá , EsinMaiöeQm
FB„ 11. jaa.
Veðurteptir veltumst hér
víst á Skagafiröi.
Ðlindhrið á og brotsjór er,
*Bridge* er mikils virðL
Kveðjur. Velliðan.
Farpegar á KEsju*.