Morgunblaðið - 03.04.1964, Page 27

Morgunblaðið - 03.04.1964, Page 27
MORCU NBLABiÐ 27 Föstudagur 3. apríl 1964 Kommúnistadaður Goul- arts varð honum að falli ENN er ekki fyllilega ljóst hver verSa úrslitin í átökun- um í Brasilíu, hvort Joao Goulart forseti verður hrak- inn frá völdum eða hvort hon um tekst að vinna sigur á upp reisnarmönnum. Goulart á marga óvini meðal hægri sinna í landinu, en hann hef- ur notið stuðnings verkalýðs- hreyfinganna og vinstri afl- anna. Hvort pað nægir hon- um nú er óráðin gáta. Þó bendir allt til þess að hann hafi endanlega verið hrakinn frá völdum. Það var hálfgerð tilviljun sem olli því að Goulart varð forseti Brasilíu, því hann hafði aldrei verið í framboði sem forsetaefni. En hann varð varaforseti 1955, og endur- kjörinn 1960 þegar Janio Quadros var kjörinn forseti, og þurfti að breyta stjórnar- skrá landsins áður en þingið samþykkti að Goulart yfir- tæki forsetaembættið þegar Quadro sagði af sér í ágúst 1961. Goulart er fæddur í Sáo Borja í fylkinu Rio Grande do Sul árið 1918. Faðir hans var stórbóndi, og tók Goul- art við búi á unga aldri. Ar- ið 1945 sneri hann sér að stjórnmálpm og varð þing- maður Verkamannaflokksins. Fékk hann þar skjótan frama, var árið 1953 kipaður verka- málaráðherra og árið 1955 kjörinn varaforseti þegar Juscelino Kubitschek var kos inn forseti. Forseti er kjörinn til fimm ára, og er honum bannað sam kvæmt stjórnarskrá að sitja nema eitt kjörtimabil. Við forseta kosningarnar í októ- ber 1960 var Quadros, fram- bjóðandi þjóðlega demókrata flokksins, kjörinn forseti, eins og áður segir, með, 5,6 millj- ónum atkvæða, en frambjóð- andi stjórnarflokkanna, Henri que Teixteira Lott, hlaut að- eins 3,8 millj. atkvæða. Hins vegar féll varaforsetaefni þjóðl. demókrata fyrir Goul- art. Hlaut Goulart 4,6 millj- ónir atkvæða, en frambjóð- andi Quadros 4,2 millj. Eftir nokkurra mánaða setu í forsetaembættinu kvart aði Quadros yfir miklum erfiðleikum í sambandi við samstarf sitt við þing og stjórn. Lauk því svo að Qua- dros sagði af sér 25. ágúst 1961. Goulart varaforseti var þá staddur í Peking í verzl- unarerindum á vegum stjórn arinnar. Forsetakosningar áttu ekki að fara fram fyrr en í októ- ber 1965, og bar því að skipa varaforsetann í forsætisem- bættið. En strax gætti mikill- ar andúðar i garð Goularts, og gekk það svo langt að ráð- herrar þeir, sem fóru með mál landhers, flughers og flota, skrifuðu þinginu áskor un um að banna Goulart að snúa heim frá Kína. En fylk- isstjórinn í Rio Grande de Sul, heimfylki Goularts, og þriðji herinn, sem þar er staðsettur, kröfðust þess að Coulart yrði skipaður forseti. Voru víða um land haldnir fjöldafundir og farnar hóp- göngur, ýmist til stuðnings Coularts eða móti honum. STJÖh- ARSKRÁNNI BREYTT Á meðan hafði Goulart snúið heim á leið um París og New York og kom hann til Montevideo í Uruguay hinn 1. september. Þingið í Brasilíu kom saman um þessar mund- ir til að leita að lausn í deil- unum um forsetaembættið. Var þar lögð fram tillaga til breytingar á stjórnarskránni á þá lund að mjög var dregið úr völdum forsetans, en þau fengin í hendur forsætisráð- herra, sem forsetinn skipaði í samráði við þingið. Var til- laga þessi samþykkt með yfir gnæígndi meirihluta at- kvæða. Fór þá þingnefnd á fund Goularts í Montevideo, og féllst hann á breytingarn- ar. Tók Goulart síðan við forsetaembættinu hinn 8. september 1961, og skipaði Tancredo de Almeida Neves forsætisrá 1 herra með sam- þykki þingsins. Þessi skipan mála varð ekki langlíf. Neves sagði af sér eftir níu mánaða setu í embætti og spunnust út af af- sögninni langar deilur milli Goularts og þingsins um eftirmann Neves. Felldi þing- ið tvo þá menn sem Goulart vildi skipa í embættið, en samþykktu íoks þann þriðja, Brochado da Rocha, þing- mann Sósíaldemókrata. Ekki tolldi da Rocha í embættinu, heldur sagði hann af sér tveimur mánuðum síðar, hinn 13. september 1962. Ástæðan var sú að hann vildi að for- sætisráðherraembætið yrði lagt nðiur, en forsetanum fengin að nýju fyrri völd. Vildu da Rocha og Goulart forseti að þjóðaratkvæða- greiðla færi fram um mál- ið urn leið og þingkosning- ar, em fram áttu að fara í október. Það vildi þingið hinsvegar ekki fallast á, en hinsvegar láta þjóðaratkvæða greiðsluna bíða þar til í apríl 1963. Vinstri flokkarnir, sem studdu Goulart, gengust fyrir víðtækum verkföllum til stuðnings við stefnu forset- ans, og lauk þessum deilum með því að þingið féllst á að láta þjóðaratkvæðagreiðsluna fara fram 6. janúar 1963. Jafn framt var forsetanum falið að skipa bráðabirgða ríkis- stjórn fram yfir kosningarn- ar í október. Skipaði Goul- art þá flokksbróður sinn, dr. Hermes Lima, forsætisráð- herra, og gegndi hann jafn- framt embætti utanríkisráð- herra. Þau urðu öriög da Rocha, fráfarandi forsætis- ráðherra, að hann lézt af heiiablóðfalli nokkrum dög- um seinna. KOSNINGAR OG ÞJÓÐAR- ATKVÆÐAGREIÐSLA Kosningar fóru fram 1 Brasilíu 7. október 1962. Úr- slit urðu þau að sósíaldemó- kratar, sem eru hægri flokk- ur, hlutu 15 þingsæti af 470, flokkur Goularts, Verka- mannaflokkurinn, hlaut 115 sæti og þjóðlegir demókrat- ar 113. Tíu flokkar aðrir skiptu svo með sér þeim 97 koma í veg fvrir að borgara- styrjöld í Brasilíu. • Síðasta vígið féll Skömmu eftir að flugvél Goul- art hóf sig til flugs frá Porto Alegre, héldu herir byltingar- manna inn í borgina án þess að þeim væri veitt mótspyrna. Þar með var síðasta vígi Goularts fallið. í Ríó de Janeiro höfðu bylt- ingarmenn hrósað sigri yfir hin- um fráfarandi forseta mörgum klukkustundum áður en hann hélt úr landi. Var því lýst yfir í útvarpi borgarinnar og sagt, að með sigrinum hefði tekizt að bægja frá þeirri hættu, að Brasilía, stærsta land í Suður- Ameríku yrði önnur Kúba. Bylt- ingarm. sökuðu Goulart um að sýna kommúnistum of mikla lin- kind og kváðu fullvíst að komm únistar hefðu náð undirtökum ef Goulart hefði setið lengur við völd. Mazzilli, hinn nýji forseti Brasilíu, er 53 ára, lögfræðingur að atvinnu. Sem forseti fulltrúa- deildar þingsins átti hann sam- kvæmt stjórnarskránni að taka við forsetaembætti, ef Goulart — Brasilla Framh. af bls. 1. • Allir nema þriðji herinn 1 morgun höfðu öll hertylki Brasilíu utan þriðja hersins, sem aðsetur hefur í Rio Grande de Sul, heimafyliki Goularts forseta í suðvesturhluta landsins, lýst stuðningi við byltingarmenn, en leiðtogi byltingarmanna innan hersins er Amaury Kruel. Kruel er yfirmaður annars hersins. — iðji herinn lýsti í morgun stuðn- ingi við Goulart forseta og for- setinn hélt til Rio Grande de Sul frá höfuðborginni, Brasilíu, en Iþangað fór hann í gærkvöldi, er byltingarmenn sóttu til Ríó de Janeiro. Þegar Goulart kom til Porto Alegre hélt hann beint til höfuðstöðva hersins. Þar hvíldist hann í tvær kluikkustundir, en (hélt síðan fund með fréttamönn- um. Hann var mjög rólegur og kvaðst þess fullviss að íbúar Brasilíu myndu grípa til nauð- synlegra aðgerða gegn byltingar- mönnum. Kvaðst hann vilja (hvetja stuðningsmenn sína til þess að koma til Rio Grande de SuL • Nýr forseti Sköinmu áður en Goulart ræddi við fréttamenn höfðu bor- izt fregnir um að Ranieri Mazz- illi, forseti fulltrúadeildar þings ins, hefði svarið embættiseið sinn sem forseti Brasilíu að við- stöddum leiðtogum byltingar- manna, þar á meðal Adhemar de Barros, fylkisstjóra í Sao Paolo. De Barros er talinn upphafsmað- ur byltingarinnar. Goulart sagði við- fréttamenn, að engu máli skipti þótt Mazzilli ynni em- bættiseið. Meðan hann sjálfur væri enn í landinu væri hann lög legur forseti nema því aðeins að hann segði af sér, og það hyggð ist hann ekki gera. Goulart virt- ist bjartsýnn á að takast mundi að brjóta byltingarmenn á bak aftur. Skömmu eftir fundihn með fréttamönnum bárust fregnir um að innan þriðja hersins hefði verið gerð bylting gegn Leonel Brizola, sem er mágur Goularts, en hann var einn yfirmanna hers ins. Síðar var talið fullvíst að allur þriðji herinn hefði snúizt á sveif með byltingarmönnum og yfirlýsingar þess efnis var heldur ekki langl að bíða. Þegar svo var komið fiýði Goulart til Monteviedo í Uruguy ásamt 15 herforingjum og nokkrum stjórn málamönnum, sem honum eru hliðhollir. Mun hann senniiega biðjast hælis í iandinu sem póli- tískur flóttamaður. Kvaðst Goul- art fara úr landi til þess að þingsætum, sem eftir voru. Gegndi dr. Lima áfram em- bætti forsætisráðherra fram að þjóðaratkvæðagreiðslunni 6. janúar 1963. Við þá at- kvæðagreiðslu hlaut stefna Goulart yfirgnæfandi stuðn- ing þjóðarinnar, þar sem 6,8 milljónir kjósenda sam- þykktu að veita forsetanum aftur sín fyrri völd, en 1,1 milljón kjósenda voru því mótfallnir. Þegar þessi úrslit urðu kunn sagði dr. Lima af sér og Goulart forseti mynd- aði sjálfur nýja stjórn, sem hann svo endurskipulagði í júní í fyrra. En andstaðan gegn Goulart og stefnu hans hélt áfram að þróast, og hjálpaði þar til að mikil verðbólga var í land- inu. Hægri menn höfðu auk þess illan bifur á þjóðnýting- arstefnu forsetans og þótti hann hlaða um of undir kommúnista. Ekki var Goul- art sjálfur þó sakaður um að vera kommúnisti, en hann skipaði yfirlýsta kommú.nista í ýmsar áhrifastöður. Þótti hægrimönnum þetta ill tíð- indi, ekki sízt með tilliti til þess að starfsemi kommúnista flokksins í landinu hafði-ver- ið bönnuð með dómsúrskurði árið 1947. NEITAB UM ALRÆÐIS V ALD í ágúst í fyrra var Ijóst að áform Goularts um endur bætur á fjárhagskerfi lands- ins höfðu farið út um þúfur, og verðbólgan fór sí-vaxandi. Fór forsetinn þess þá á leit að þingið veitti honum nokk- urskonar alræðisvald til að vinna bug á erfiðleikunum. Þessu neitaði þingið. í byrj- un þessa árs endurtók Goul- art kröfur sínar, efndi til fjöldafunda til stuðnings kröf um sínum og undirritaði for- setaúrskurð um þjóðnýtingu á stórum landsvæðum og þeim sjö olíuvinnslustöðvum, sem enn voru í einkaeign. Olli þetta miklum ágreiningL og efndu andstæðingar for- setans til útifunda víða um land til mótmæla. Ekki bætti það úr skák þegar svo Goul- art krafðist þess að komm- únistaflokkurinn yrði viður- kenndur að nýju og fengi óáreittur að starfa eins og aðrir flokkar. f öllum stór- borgum Brasilíu var efnt til hópgangna til að mótmæla að gerðum forsetans, og voru þær víða mjög fjölmennar. Þannig fóru t. d. um 500 þús- und manns hópgöngu um Sao Paulo hinn 19- marz s.l. og um 150 þúsund í borginni Santos. Voru uppi háværar raddir um að Goulart væri að afhenda kommúnistum yfir- ráð i landinu. Leiddi síðan hvað af öðru þar til á miðvikudag og and- stæðingar Goularts gerðu upp reisn. Og andúðin gegn for- setanum virðist hafa verið orðin það mikil að hann eigi varla afturkomu auðið. færi frá, því að enginn varafor- seti er nú í Brasilíu. Ekki er enn vitað hvar kona Goularts og börn þeirra tvö eru niðurkomin. Fregnin um dvalar- stað þeirra ber ekki saman. Segja sumir að fjölskylda foretans hafi farið flugleiðis til Spánar í gær, en aðrir, að hún sé enn á búgarði sínum í Rio Grande de Sul. Slökkviliðið gabbað LAUST eftir kl. hálf níu í gær- morgun var brotinn brunaboði við Sunnutorg. Er slökkviliðið kom á staðinn, var þar engan mann að sjá né eld að finna BLAÐBURÐAFOLK ÓSKAST f þessi blaðahverfi vantar Morgunblaðið nú þegar unglinga, röska krakka eða eldra fólk, til þess að bera blaðið til kaupenda þcss. HJALLAVEGUR Gjörið svo vel að tala við afgreiðslu blaðsins eða skrifsíofu. V SIMI 2 2 4 80

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.