Morgunblaðið - 24.07.1964, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 24.07.1964, Blaðsíða 3
MORGU N BLAÐIÐ 3 Föstudagur 24. júlí 1964 VIÐ lögðum um daginn leið okkar að Vestra-Geldingaholti í Gnúpverjahreppi, þar sem Rosemarie Þorleifsdóttir hef- ur sett á stofn reiðskóla fyrir krakka. Hún flutti austur í vor, er maður hennar, Sig- fús Guðmundsson, búfræðing- ur, keypti býlið. Sem kunnugt er hefur Rosemarie kynnt sér hestamennsku í Þýzkalandi og kennt börnum hér í Reykjavík meðferð hrossa, en nú hefur hún sett upp skóla fyrir aust- an og þar hittum við 14 táp- miklar stelpur á aldrinum 8- 12 ára, sem voru fullar áhuga á að læra um hestinn, sem var Á æfingasvæðmu fyrir ofan Vestra-Geldingaholt. Hott, hott á hesti Rosemarie styttir í ístöðunum fyrir minnstu lmúturnar. þarfasti þjónninn á fslandi þar til barþjónar komu til söig unnar. Sú var tíðin, að hesturinn var jafn ómissandi á íslenzk- um heimilum og ísskápar og hrærivélar eru í nútíma eld- húsum. En svo kom bíllinn til sögunnar og hestarnir í Reykjavík demonstreruðu á Laugáveginum með alls kyns sparki og djöfulgangi, svo að dömur bæjarins trítluðu fyrir horn til að forða nýja cache- miresjalinu frá því að atast út í aur .Og hrossameirihlut- inn varð að lúta í lægra haldi fyrir mótorvaignaminnihluta, sem óx þó jafnt og þétt. Bíl- ar og önnur vélknúin tæki urðu landlæg plága og hrossa- veldið bar ekki sitt barr fram ar. Flugvélar sveimuðu um loftin blá og urðu mikilvægt samgöngutæki á markaði, sem var áður allur-undir yfirráð- um hinna ferfættu grasbíta, og jafnvel Pegasus kynbróðir þeirra fékk engu áorkað. Hest urinn varð að láta sér lynda það hlutskipti, að tölta með reykvíska æsku á berjamó inn við Bústaði og þar með voru örlög hans ráðin. •----- Á síðustu árum hefur færzt mjög í vöxt til bæja og sveita, að fólk eignaðist hesta eða leigði þá til að njóta útiveru og hvíldar frá dagsins önnum. Hestamennska virðist ekki ætla að verða skammvinnt tízkufyrirbriigði heldur benda allar líkur til að hún eigi vax- andi og langvarandi vinsæld- um að fagna meðal barna og unglinga jafnt sem hinna full orðnu. Ungu kynslóðinni er í blóð borið dálæti á dýrum, og því er ekki nema eðlilegt, að henni sé gefið tækifæri til að umgangast þau. Oft hefur vilj að bregða við, að vegna fá- fræði hafi dýrin ekki hlotið rétta meðferð, og hvað hestinn snertir sérstaklega, hafa marg ir svokallaðir hestamenn al- drei lært að sitja hann. En nú hefur hún Rosemarie í Vestra- Geldingaholti stofnað reið- skóla, þar sem ungu kynslóð- inni gefst kostur á að kynnast hestinum frá flipa og aftur í stert. Eins og áður segir eru 14 krakkar í hverjum hóp og sl. sunnudag, er okkur bar að garði, voru þar eingömgu stelp ur úr Reykjavík, Borgarnesi, Selfossi og Hveragerði. Fóru þær af námskeiðinu sl. þriðju dag og næst verður þar stráka íhópur. Til kennslunnar eru notaðir sjö hestar, og því er hópnum skipt í tvennt. Annar helmingur fer í útreiðartúra á morgnana frá kl. níu til há- degis, en hinn seinni upp úr hádegi og er þá á hestbaki fram að kaffi. •----- Þetgar við komum á æfinga- svæðið, skammt ofan við Vestra-Geldingaholt, vildu stelpurnar fyrir alla muni fara á hestbak og sýna okkur hvað þær gætu. Rosemarie gekk ’ á milli hestanna og grennslaðist fyrir um það, hvort öll reiðtygi væru í lagi og svo aðstoðaði hún þær minnstu við að stíga í ístaðið. — Eigið þið hesta, stelpur?, spurðum við. — Engin nema ég, svaraði Lóa Leósdóttir úr Reykjavík. Ég á hálfan. — Fram- eða afturpart? — Frampart. — Eruð þið vanar hestum? — Já, já, bæði rugguhestum og alvöru. Það er Þóra Ólafsdóttir frá Selfossi, sem verður fyrir svör um, og það er alveg greini- legt að hana langar til að koma máli sínu á framfæri við almenning. — Ég vildi nú bara helzt áegja það, að við höfum lært allt um hesta hérna- sko, bæði hvað allt heitir á hnakknum, ólarnar oig svoleiðis, og líka á hestinum sjálfum. — Lærið þið að járna hesta? — Nei, guð. Maður getur orðið svo svakalega skítugur á því. Við lærum bara að taka um löppina á þeim, eins og við ætluðum að fara að járna. — Eru hestarnir nok-kuð hrekkjóttir? — Nei, það er bara bleika hryssan eins og við köllum hana. Hún ‘heitir Fjóla og sparkar svolítið frá sér, þegar klárarnir nálgast hana, enda er hún orðin 22 vetra. — Fáið þið einkunnir fyrir kunnáttuna, Þóra? — Ég er ekki alveg viss. — En þú yrðir öruggleiga efst? — Nei, ég hugsa að ég yrði nú ekki nema önnur eða þriðja. Og svo bregða Þóra og allar hinar sér á bak og hest- arnir mynda röð og ganga svo af stað í hring um æfinigasvæð ið. Rosemarie gefur þeim skip anir um ganginn og hestarnir Framhald á bls. 23. Einn þáttur í kennslu Rosemarie eru leikfimiæfingar á hestbakL 8TAKSTEINAR Talnablekkingar Tilhneiging sumra blaða ©g stjórnmálamanna til þess að rugla með tölur og staðreyndir, sem máli skipta í stjórnmálabar- áttunni, er slæmur steinn í götu skynsamlegra skrifa og umræðna um stjórnmál. Orsakir slíks talnarugls geta verið tvennar. Misskilningur eða þekkingarskortur og blekkingar visvitandi. Ýmsar tölur og sam- anburður eru svo þýðingarmikl- ar um stjórnmálaástandið, að blekkingar geta varla talizt ann- að en vísvitandi truflun á þjóð- skipulaginu skv. stjórnarskránni. í lýðræðisþjóðfélagi er nauðsyn- legt fyrir hinn almenna borgara að hafa aðgang að slíkum heim- ildum til þess að geta dregið þær ályktanir um stjórnmálin, sem ætlast er til í frjálsu þjóðfélagi. Þessar talnablekkingar eru einkum tíðar, þegar fjallað er um skatta og tollamál, en þau málefni eru einmitt mjög þýð- ingarmikil, þegar meta skal stjórnmálaástandið. Þegar Tíminn reiknar 1 leiðara sl. miðvikudag er þvi haldið blákalt fram í Timanum, að álögurnar, sem ríkið leggur á þegnana hafi aukizt enn meira í tíð núverandi stjórnar en var á meðan vinstri stjórnin var við völd. Hið rétta er, að núverandi ríkis stjórn hefur beitt sér fyrir stór- felldum endurbótum í skatta og útsvarsmálum með lögum sam- þykktum á síðasta þingi, einnig í tollamálum með nýju tollskránni. Er Timanum bent á að kynna sér heimildir um þetta efni. Þá má geta þess, að viðbótarskattar vinstri stjórnarinnar voru 2200.00 kr. á minútu allt stjórnartímabil- ið. Þetta er ótrúleg tala, en sönn. Skattur einstaklinga eða heild arskattheimtan getur hækkað vegna aukinna tekna, en það eru ekki hækkaðir skattar í þeirri merkingu, sem lögð er í hugtakið í stjórnmálaumræðum. Heildartekjur ríkisins af tollum geta hækkað, þótt tollarnir hafi verið lækkaðir. Ástæðan er auk- inn innflutningur. Klippt eða skorið í eldhúsdagsumræðunum frá Alþingi í maí sl. fór Gunnar Thoroddsen, fjármálaráðherra, nokkrum orðum um rugling og blekkingar um þessi mál. Hann sagði in.a.: „En ósköp væri það æskilegt, ef stjórnarsinnar og stjórnarand- stæðingar gætu t.d. komið sér saman um hvað felst í hugtakinu að hækka tolla eða skatta og hvað felst í hugtakinu, að lækka tolla og skatta. Kerlingarnar körpuðu um það, hvort grasið á þúfunni væri klippt eða skorið. Og fólkið í landinu verður að hlusta á karp islenzkra stjórn- málamanna um það, hvort tiltek- in ráðstöfun í skatta eða tolla- málum sé hækkun eða Iækkun. Til skamms tíma hefur það að vísu verið viðurkennt, að þótt óbreyttir eða lækkaðir skattstig- ar skiluðu ríkissjóði eða sveitar- sjóðum hærri heildarupphæð vegna aukinna tekna manna héti það ekki skatta- eða útsvarshækk un. Á sama hátt hefur það verið kölluð tollalækkun, þegar hundr- aðshluti tolla hefur verið lækk- aður af vörueiningu, þó að heild- arupphæð tollsins í rikissjóð væri hærri, vegna þess að innflutn- ingurinn vex. Og til skamms tíma hefur það ekki verið talin hækk- un á söluskatti, þó að aukin velta I þjóðfélagihu skili með óbreyttri hundraðstölu söluskatts fleiri krónum í ríkissjóð og sveitasjóði. Á þessum skilningi byggi ég að sjálfsögðu það, sem ég segi um skatta- og to!lamál“.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.