Morgunblaðið - 07.08.1964, Page 1
24 síður
tröttiwMsMli'
51. árgangur
182, tbl. — Föstudafíur 7. ágúst 1964
Prentsmiðja Morgunblaðsln*
Barizt um flugvöll-
inn i Stanleyville
Foringi uppreisnarmanna kveðst
vera nýr „Lumumba"
Leopoldville, 6. ágúst. (NTB)
0 ENN er barizt í Stan-
leyville,’ þriðju stærstu borg
Kongó, og virðist vegur upp-
reisnarmanna þar fara vax-
andi. Fregnir, sem bárust í
dag til Leopoldville frá banda
ríska ræðismanninum í Stan-
leyville, Michael Hoyt,
hermdu, að meginátökin í dag
og í gær hefðu verið um flug-
völl borgarinnar.
• Foringi uppreisnarmanna,
Gaston Soumial'ot, tilkynnti í út-
Mikill fjöldi lagffi leið sína
í Nauthólsvíkina í gær, enda
er þar hreinasta paradís,
þegar sólin skín. Á bls. 8
segir frá viðdvöl fréttamanns
og ljósmyndara Mbl. í Naut-
hólsvíkinni í gær.
Berlín, 6. ágúst. — NTB.
• Sextíu manns slösuðust
meira eða minna í Leipzig í
gær, er sporvagn fór af spor
inu og rann inn í gistihús eitt.
Þrettán þeirra meiddust alvar
iega.
Léf eftír sig
nól. 550 millj
St. John, New Brunswick,
6. ágúst — (NTB) —
0 BREZKI blaðakóng-
urinn Beaverbrook lávarð-
ur, sem lézt fyrir nokkrum
mánuðum, 85 ára að aldri,
lét eftir sig eignir, sem
nema nálægt 550 milljón-
um íslcnzkra króna. Mest-
ur hluti þessara eigna
ganga til kanadísks sjóðs,
er lávarðurinn kom á fót
fyrir nokkrum árum, en
hann var ættaður frá Kan-
ada. —
Stefna Pekingstjórnarinnar:
Árás á Norður - Vietnam
jafngildir árás á Kína
Allt með kyrrum kjörum i Vietnam
i gær. Bandariskt herlið viðbúið
Liðssafnaður striðsaðila i S-Vietnam
N-Vietnam. Megi búast við
meiri háttar átökum þar þá og
þegar, því ljóst sé að her komm-
únista biði aðeins fyrirskipana.
AP-fréttastofan skrifar, að
Bandaríkjastjórn fari ekki í nein
Framhald á bls. 23.
varpsávarpi í dag, að hann sé
hinn nýi „Lumumba" Kongo, sem
frelsi muni landið undan hvers
kyns áþján. „Áður en Lumumba
lézt sagði hann oft, að eftir hans
dag kæmi fram á sjónarsviðið.
annar maður, honum sterkari og
sá myndi ljúka því starfi, er
hann hefði hafið“, sagði Soumia-
lot og bætti við: „Þessi maður
er ég.“
Ávarpi Soumialot var útvarp-
að um útvarpsstöðina í Stanley-
ville, en ekki er vitað hvort hann
talaði beint eða af segulbandi.
Dvalarstað hans hefur að und-
anförnu verið haldið stranglega
leyndum. f ávarpi sínu hvatti
Soumialot hermenn stjórnarinn-
ar til þess að ganga í lið með
uppreisnarmönnum og varaði inn
fædda menn og evrópska í Stan-
leyville og nágrenni við að að-
stoða stjórnarherinn.
• Vilja ekki Tshombe
Á miðvikudagskvold höfðu
borizt fregnir til Leopoldville imi
að uppreisnarmenn hefðu náð
undirtökunum í Stanleyviíle og
stjórnarherinn lagt á skipulags-
lausan flótta. En af síðustu fregn
um er að sjá, sem þeir veiti enn
nokkra mótspyrnu. Talið er þó
víst, að uppreisnarmenn hafi tögl
öll og hagldir í u.þ.b. sjötta hluta
Stanleyville-svæðisins.
Fulltrúar Sameinuðu þjóðanna
í Leopoldville hafa reynt að ná
sambandi við Stanleyville og eru
reiðubúnir að senda þangað flug-
Framhald á bls. 23.
Washington, Saigon, Peking,
6. ágúst — (NTB-AP) —
^ EKKI hefur frekar bor-
ið til tíðinda í viðskiptum
Bandaríkjanna og N-Vietnam,
en fregnir frá Saigon herma,
að stríðsaðilar í S-Vietnam
hafi uppi mikinn liðssafnað
beggja vegna fljótsins Ben
Hai og megi búast við meiri
háttar átökum þar fyrr en
varir.
0 Bandaríkjaþing hefur
þegar gert ráðstafanir til að
lýsa fylgi við stefnu Banda-
ríkjastjórnar og ýmsar
erlendar ríkisstjórnir hafa
lýst fylgi við aðgerðir henn-
ar. Stjórnir N-Vietnam og Al-
þýðulýðveldisins Kína hafa
sent frá sér harðorðar yfir-
lýsingar vegna loftárása
Bandaríkjamanna og var
sendimönnum erlendra ríkja í
Peking afhent afrit af yfir-
lýsingu stjórnarinnar þar.
0 Óstaðfestur orðrómur
hermir, að leiðtogi kommún-
ista í Norður-Vietnam, Ho
Chi Minh, hafi sagt af sér
stjórnarforystu og við tekið
annar maður, hlynntari Kín-
verjum.
NTB-fréttastofan hafði síð-
degis í dag eftir talsmanni
Bandaríkjastjórnar í Saigon, að
ekki hefði dregið til frekari
átaka eftir árásirnar á hafnar-
bæina í N-Vietnam. Hinsvegar
hafi uggur verið í mönnum í
Saigon við hefndarráðstafanir
kommúnista. Og AP-fréttastof-
an hefur eftir áreiðanlegum
heimildum í borginni Quan Tri í
S-Vietnam að beggja vegna
fljótsins Ben Hai sé mikill liðs-
safnaður, annars vegar stjórnar-
hersins og hinsvegar kommún-
ískra skæruliða og hermanna frá
A. Lincoln.
J. F. Kennedy
Einkennilegur samanburður á
morðum tveggja forseta
Ótrúlega margt líkt með
Kennedy og Lincoln
BÁÐIR forsetarnir Lincoln a%
Kennedy létu til sín taka í
málum, sem snertu mannrétt-
indi Bandaríkjamanna.
Lincoln var kjörinn forseti
árið 1860. Kennedy var kjör-
inn 1960.
Báðir voru myrtir á föstu-
degi í viðurvist eiginkvenna
sinna.
Báðir voru skotnir aftan frá
og i höfuðið.
Eftirmenn þeirra, sem báð-
ir hétu Johnson, voru demó-
kratar frá Suðurríkjunum og
áttu báðir sæti í öldungadeild
inni.
Andrew Johnson fæddist ár-
ið 1808 og Lyndon Johnson
fæddist árið 1908.
John Wilkes Booth fæddist
árið 1839, Lee Harvey Oswald
fæddist árið 1939.
Booth og Oswald voru Suð-
Framh. á bls. 3.