Morgunblaðið - 07.08.1964, Blaðsíða 2
MORGU N BLAÐIÐ
Föstudagur 7. ágúst 1964
• •
Fulltrúar Oryggisráðs S.Þ. skeggræða
hvort bjóða skuli fulltrúum
S- og N-Vietnam til New York
New York, 6. ágúst AP:NTB.
SIVERT Nielsen, íulltrúi Noregs,
sem þeanan mánuð hefur á hendi
forsæti í Öryggisráði Sameinuðu
Þjóðanna, ræddi í dag við full-
trúa úr ráðinu um það hvort
bjóða ætti stjórnum S- og N-
Vietnam að senda fulltrúa til
hækistöðva S.Þ. til þess að skýra
sjónarmið þeirra varðandi at-
burðina á Tonkin-flóa. Var það
eindregin krafa fulltrúa Sovét-
ríkjanna og Tékkóslóvakíu á
fundinum í öryggisráðinu í gær-
kveldi, að stjórn N-Vietnam yrði
boðið að senda fulltrúa, og full-
trúi Bandaríkjat na, Adlai Stev-
enson taldi rétt að einnig væri
boðið fulltrúa S-Vietnam.
Fundinum 1 gær lauk upp úr
miðnætti án þess að endanlega
væri ákveðið hvenær annar fund
ur yrði haldinn. Er ekki talið
óhugsandi að hann kunni tfT
dragast fram yfir helgi.
Upphaflega var boðað til fund-
arins í gær kl. 2 síðdegis (að
íslenzkum tíma) en honum var
frestað til kl. 4 og síðan til kL
7.30 að ósk fulltrúa Sovétríkj-
anna og Tékkóslóvakiu sem
biðu fyrirmæla stjóma sinna.
Fulltrúi Sovétríkjanna á fund-
inum var Platon D. Morozov, en
aðalfulltrúinn, Nikolai T. Fedor-
enko, er í sumarleyfi. Fulltrúi
Tékkóslóvakíu var Jiri Hajek.
Fyrir Bandaríkjanna hönd mætti
Adlai Stevenson.
Þegar fundurinn hófet var
hvert sæti skipað. Allir fulltrúar
voru mættir með ráðgjöfum sínr
um, og í áheyrendasal, sem tekur
800 manns og blaðamannastúku,
sem rúmar 100, var þéttsetið.
í upphafi skýrði Morozov frá
því að hann hefði engin fyrir-
mæli fengið frá Moskvu, og
óskaði eftír því að fundi yrði
frestað til morguns. Kvaðst hann
vonast til þess að allir fulltrúar,
sem óskuðu eftir að heyra um
málið frá báðum hliðum, styddu
tillöguna um frestún fundarins.
í sama streng tók
Tékkóslóvakíu, sem sagði að
hann væri ekki reiðubúinn til
að taka afetöðu til máisins að
svo komnu, þar sem aðeins lægi
fyrir skýrsla frá öðrum deiluað-
ilanum. Öryggisráðið þyrfti
fyrst að fá skýrslu um málið
frá hinum aðilanum þ. e. „lýð-
Norskir
afla vel
við
ísland
veldinu Viet Nam, sem fyrir
árásunum varð“, eins og hamn
komst að orði.
Fulltrúi Bretlands, Roger W.
Jackling, benti á, að það væri
skylda ráðsins að koma saman
til funda, þegar þeir væru boð-
aðir á hættustundu. Benti hann
á að fulltrúar allra aðildarríkja
væru mættir, og því ekki ástæða
til að tefja málið.
Tók þá Morozov aftur til máls
og lýsti því nú yfir, að þar sem
málið væri svo aðkallandi, væri
hann reiðubúinrr til að hlýða á
skýrslu fulltrúa Bandaríkjanna.
Féll þá einnig fulltrúi Tékkósló-
vakíu frá sínum mótmælum.
Morozov óskaði þó eftir þvi að
fá að taka til máls strax að lok-
inni skýrslu Stevensons.
Stevenson hóf mál sitt með því
að rekja sögu árásanna á banda-
rísku herskipin. Sagði hann að
árásirnar hafi verið gerðair af
yfirlögðu ráði á skip, sem verið
hefðu í fullum rétti við eftirlit
á alþjóða siglingaleiðum. Gagn-
aðgerðir Bandaríkjanna hafi
hinsvegar verið takmarkaðar og
til þe®s eins að sýna það svart
á hvítu, að þótt beitt væri hern-
aðaraðgerðum beindu þær ekki
huga Bandaríkjanna frá skyld-
um og skuldbindingum um að
aðstoða vinaþjóðir við að vernda
sjálfstæði sitt.
Benti Stevenson á að síðari
árásin á bandarísku herskipin
s.l. mánudag hafi verið
gerð þegar skipin voru rúm-
lega 60 sjómílur frá strönd
Norður-Vietnam. í það skipti
hafi mörgum tundurskeytum
verið skotið að herskipunum og
árásin staðið yfir í tvær klukku-
stundir. Ekki færi því á milli
mála að hér hafi verið að ræða
um árás af yfirlögðu ráði á skip
að lögmætum störfum á alþjóða
siglingaleið. Af þessu væri að-
eins unnt að draga þá ályktun
að þeir, sem stjórnuðu aðgerðun-
um hefðu aðeins eitt í huga: Að
beita valdi til að ná settu marki
f^l^rúi v ýn' nokkurs tillits til afleiðing-
anna. Vonaðist Stevenson til
þess áð gagnaðgerðirnar hefðu
sýnt þessum mönnum fram á að
hernaðarárásir á Tonkin-flóa
væru ekki Xátnar viðgangast
frekar en annars staðar. '
Stevenson lagði áherzlu á, að
aðgerðir Bandaríkjanna gegn
Norður Vietnam hafi verið mild-
ar miðað við það, sem gerzt
hefði áður, og þeim aðeins ætíað
að undirstrika það að áfram-
haldandi árásir á bandarísk skip
yrðu ekki látnar viðgangast.
Hann sagði að fljótt á litið væri
ekki unnt að skilja hvað stjóm-
in í Norður Vietnam ætlaðist til
með árásunum. En við nánari
athugun kæmi í ljós að þessar
árásir væru aðeins liður í að-
gerðum kommúnista í Suðaustur
Asíu síðastliðinn áratug.
„Ríkisstjórnir kommúnista
Einkaskeyti til Mbl'.
Nesbyen, 6. ágúst.
DAGURINN í gær varð hinn
bezti sem norski bræðslusíld-
Veiðiflotinn á í'slandsmiðum
hefur fengið á þesSari vertíð.
Fengú þá mörg norsk skip allt
að 3000 hektólítrum af síld.
Til verksmiðjanna hafa nú
borizt alls 567000 hektólítrar
af síld frá íslandsmiðum en
á sama tíma í fyrra nam
bræðslusíldarmagnið 300.000
hektólítrum. Reknetaveiðin
virðist ganga heldur dræmt,
en snurpibátarnir hafa margir
fengið fullfermi af saltsíld og
eru á heimleið
— Skúliskúla.
hafa áður reynt þessa árásar-
stefnu í framkvæmd og mistek-
izt,“ sagði Stevenson. „í hvert
skipti verða þeir að læra að nýju
af reynslunni. Hér á hlut að máli
ríkisstjórn, sem enn hefur ekki
lært, að árásarstefnan borgar
sig ekki, verður ekki fram-
kvæmd, og verður. ætíð hrúndið
af þjóðum, sem trúa því, eins og
við, að íbúarnir vilji frelsi og
sjálfetæði, en ekki kúgun í heims
veldi kommúnismans.“
Lítið varð um umræður að
lokinni ræðu Stevensons, en
Morozov og Hajek ítrekuðu fyrri
ummæli sín um nauðsyn þess
áð" fulltrúar Norður Vietnam
(sem ekki eiga aðild að S.Þ.)
fengju að leggja málið fyrir
eins ög það væri frá þeirra bæj-
ardyrum séð og tók Roger
Seydoux, fulltrúi Frakklands
undir það. Taldi hann að í mál-
um sem þessu væri nauðsynlegt
að heyra frá báðum aðilum, óg
'því sjálfsagt að bjóða Norður
Vietnam að senda fulltrúa á
næsta fund Öryggisráðsins.
Að þessum umræðum loknum
var fundi frestað, og kvaðst
Sievert, forseti ráðsins, hafa sam
ráð við fulltrúana á morgun
um það, hveaær næsti fundur
yrði haldinn.
„Færeyskir bítlar"
„THE FAROE BOYS“ heita svo ber undir. Þeir tjáðu
þessir fjörlegu piltar. Þeir eru fréttamanni Mbl. að vinsael-
frá Færeyjum og eru nú komn asta lagið í Faereyjum núna
ir til íslands í sumarleyfi sínu. héti „Hippy, hippy Shake", og
Þeir munu dveljast hér í átta væri Shake-dansinn mjög vin-
daga og leika og syngja í Þórs sæll meðal eyjaskeggja. Þess
kaffi, — ennfremur er fyrir- má líka geta, að þeir félagaru-
hugað, að þeir leggi land und- ir leika á skemmtilegt hljóð-
ir fót oii leiki í einhverju sam- færi, sem nefnist „Cymba-
komuhúsanna úti á lands- lette“ en það gefur frá sér
byggðinni ásamt islenzkri ung tóna, sem minna á ongel. Vafa
lingahljómsveit. Þeir leika og laust verður þessum ungu pilt
syngja öll þau dægurlög, sem um tekið vel á íslandi, enda
mestra vinsælda njóta meðal ekki á hverjum degi að erlend
unga fólksins um þessar mund ar unglingahljómsveitir koma
ir, einnig færeyska valsa. ef hingað til lands. ■
Barizt á Kýpur
Grivas heldur þangað aftur
Nicosia, Kýpur, 6. ágúst. AP.
• Kýpurstjórn skýrði svo frá
í dag, að fjórir grískir Kýpur-
búar hefðu beðið bapa í bardög-
um við tyrkneska á norð-vestur
hluta eyjarinnar. Hefðu bardag-
ar staðið þar í allan dag og verið
mjög harðir.
• í Nicosiu var allt með kyrr-
um kjörum í dag, en ólga undir
niðri eflir átökin er þar urðu í
gær. Féll þá einn grískur mað-
ur og fimm særðust. Ekki er vit-
að um manfall tyrkneskra, en
haft er eftir liðsmönnum Samein
uðu þjóðanna að nokirir a.m.k.
hafi særzt._____________________
Bardagarnir í dag munu haf*
verið með hinum harðari er orð
ið hafa írá því í desember s.L
Sænskir liðsmenn S.þ. hafa síð-
ustu daga reynt að koma þar
á vopn^hléi en ekki orðið ágengt.
Mest var barizt í útjaðri smá-
bæjar, um 5 km. frá ströndinni,
en þar búa nær eingöngu tyrk-
neskir menn.
Af hálfu leiðtoga tyrkneskra
eru þær fregnir sagðar frá
Ktima, að íbúarnir þar, um fimm
þúsund að tölu, séu illa haldnir
af vatnsskorti. Hafi grísk yfir-
völd lokað fyrir allar vatnsleiðsl
Framhald á bls. 3
Sibeliusar
víða
minnst
veröíd
um
Finnskir hljómlistarmenn munu koma
til Islands á næsta ári
Frú Leivo Larsson
T
Eimskip
leika
a
athugar
3 elztu
Á NÆSTA ári, hinn 8. desember,
verða 100 ár liðin frá fæðingu
Jean Sibelius, hins mikla finnska
tónskálds, sem nýtur heimsfrægð
ar fyrii' verk sín .Á þessu ári
verður tónskéildsins minnzt
víðsvegar um heim, og senni-
lega munu finnskir hljómlistar-
menn koma hingað til lands og
túlka verk hans.
sölumögu-
skipunum
Tröllafossi, Reykjafossi og Goðafossi
EINS og kunnugt er samdi Eim-
skipaféiag ísla«ds fyrir nokkru
, um smáði tveggja nýrra skipa,
systurskipa, hvort að stærð 2_660
D.W. tonn eða svipaðri og m.s.
i „Fjallfoss“. Áætlað er að< smiði
j fyrra skipsins ljúki á næsta
j vori og hinu síðara í ársihy rjun
1965. Skipin verða smíðuð af
I Áiborg Værft í Álborg í Dan-
mörku, sem hefur áðuf smíðað
tvö skip fyrir iélagiij, m.s. „Sei-
foss“ og m.s. „Brúarfoss". |
Þar sem nýsmíðar þessar eru
tM endurnýjunar á skipastól Eim
skipafélagsins hafa sölumögu-
leikar verið til athugúnar á elstu
skipum þess, m.s. „Tröllafoss"
sem snrnðaður var árið 1945 og
m.s. Reykjafoss sem smiðaður
var árið 1947, og eru
bæði skipin því orðin nokk-
uð gömul. Einnig hefur komið
til greina sala á m.s. „Goðafossi"
ef hagkvæmt tiliboð fengist, en
hann er smíðaður árið 1947 og
elzta frystiskip félagsins.
Einn liður í endúrnýjun á
skipastól félagsins voru kaup
tveggja skipa á s.l. ári af minni
gerðinni og hafa þau skip reynst
vel til/þess að bæta þjónustu fé-
lagsins.
Um þétta ræddi frú T. Leivo-
Larson, arnbaisadör Finna á Is-
landi, meðal annars við tíðinda-
menn frá blöðum og útvarpi t
hádegisverðarboði í gær. Frúia
komst m.a. að orði, að list Sib-
eliusar lifði í hugum mikils fjölda
fólks urti allan heiml Kvað hún
það von sína, að finnskir lista-
menn gætu komið til íslands á
næsta ári í sambandi við þau
hátíðahöld, sem, efnt yrði til i
tilefni af 100 ára ártið tón-
skáldsins.
í ýmsum löndum er gert ráð
fyrir að Sibelíusar-hátíðahöldin
hefjist snemma á árinu, þó sjálft
afmæii tónskáldsins sé ekki
fyrr en 8. desember. Sibelius
lézt eins og kunnugt er árið
1957 93 ára gamall.
Frú Leivo Larson hefur dval-
ist undanfarna daga hér á landi
og ferðast nokkuð út á land,
m.a. til Siglufjarðar. Hún hefur
komið hingað oft áður, en eins
og kunnugt er, er hún sendi-
herra Finna hér á landi með bú-
setu í Osló. Nú fyrir skömmu
var hún skipuð ambassadör
Finna á íslandi. Hún heldur utan
tM Osló á miorgun.
X