Morgunblaðið - 07.08.1964, Blaðsíða 13
Föstudagur ?• águst 1964
MORGUNBLADID
13
SÖLUMIÐSTÓÐ hraðfrystihús-
anna, SH, og einstakir forystu-
menn hennar hafa að undanförnu
verið sérstakt bitbein sumra
hlaða í Reykjavík. Blöðin hafa
mcð skrifum sínum reynt að
magna almenningsálitið gegn
SH, og hefur tilgangurinn að baki
þessara skrifa verið jafn fjöl-
breytilegur og skrifin sjálf.
í langri, en hressilegri grein,
gerði varaformaður SH, Einar
Sigurðsson, ýmsum ádeiluefnum
góð skil, og skulu þau atriði eigi
tíunduð í þeim greinaflokki, sem
mun birtast á næstunni í Mbl.
um SH og nokkur hliðarfyrir-
tæki, sem sömu aðilar standa að.
Með því tekst væntanlega að upp
lýsa allan almenning enn betur
nm, hvað Sölumiðstöð hraðfrysti-
húsanna er og hvert fyrirtækið
stefnir.
Haraldur Böðvarsson, einn af forystumönnum í sjávarútvegi og fiskiðnaði Islendinga. Hrað-
frystihús hans er meðal sextíu hraðfrystihúsa, sem eru innan vébanda SH.
Hvað er Sölumiðstöð
Hraðfrystihúsanna?
Eflir Guðmund H. Garðarsson, viðskiptafræðing
STOFNUN SH
Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna
var endanlega stofnuð af 15 hrað-
frystihúsum í febrúar 1942. Að
stofnun SH stóðu fyrst og fremst
ungir, en framsæknir einkarekst-
ursmenn, sem gátu ekki sætt sig
við forsjá pólitískt skipaðrar
nefndar, Fiskimálanefndar, sem
setti að vinna að framgangi hrað-
frystiiðnaðar í landinu og annast
sölur hraðfrystra sjávarafurða.
Þetta framtak leysti úr læðingi
hinn mikla kraft, sem býr í heil-
brigðu samstarfi einkareksturs-
manna í atvinnulífinu. Var það
upphafið að hraðri uppbyggingu
hraðfrystiiðnaðarins heíma fyrir
og markaðanna erlendis. Þeir,
sem einkum stóðu að stofnun SH,
voru: Einar Sigurðsson, Vest-
mannaeyjum, Ólafur Þórðarson,
Siglufirði, Jón Auðunn Jónsson,
ísafirði, Elías Þorsteinsson, Kefla
vík, Jóhann Fr. Guðmundsson,
Seyðisfirði. Skrifuðu öll hrað-
frystihús, sem ekki voru innan
SÍS, undir stofnsamninginn.
Allir þessir aðilar áttu þá lítil
og ófullkomin hraðfrystihús á
okkar tíma mælikvarða. Markað-
ir voru takmarkaðir, en eitt áttu
þeir sameiginlegt, og það í ríkum
mæli — það var trúin á fram-
tíðarmöguleika íslenzks hrað-
frystiiðnaðar og uppbyggingu
hans og markaðanna í samein-
uðu átaki.
Það væri öfugmæli að segja
nú, að þeir hefðu ekki valið rétta
leið og hugsjónirnar um að
byggja upp sterkan og öflugan
hraðfrystiiðnað, hefðu ekki rætzt.
í dag, rúmum 20 árum síðar,
eru um 90 hraðfrystihús starf-
rækt víðs vegar með ströndum
landsins. Þar af eru 60 innan vé-
banda SH. Þessi heild sem slík
mun vera með stærstu sinnar teg-
undar í heiminum, og hefur SH
sem framleiðsluheild þýðingu fyr
ir suma mikilvæga markaði, sem
íslendingar vilja skipta við.
TILGANGUR
Samkvæmt fyrstu lö^um SH,
sem hafa litlum breytingiim tek-
ið, hvað tilgang snertir, er hann
sá að selja sjávarafurðir, sem
ætlaðar eru til sölu á erlendum
markaði og framleiddar eru i
hraðfrystihúsum félagsmanna.
annast innkaup nauðsynja til
hraðfrystihúsanna, leita eftir nýj
um mörkuðum fyrir afurðir hús-
anna og gera tilraunir með nýja
framleiðslu og framleiðsluaðferð-
ir í hraðfrystihúsunum.
í lögunum segir m.a., að stjórn
félagsins sé heimilt að hafa eftir-
lit með framleiðslu frystihúsanna
í þeim tilgangi að tryggja það,
að sem bezt sé vandað til fram-
leiðslunnar og ennfremur, að fé-
lagsstjórn beri að annast sölu af-
urða frystihúsa félagsmanna, og
skal á allan hátt haga sölumeð-
ferð og afskipunum þánnig, að
gætt sé sem bezt hagsmuna fé-
lagsmanna. Skylt er að greiða fé-
lagsmönnum sama verð fyrir alla
framleiðslu sömu tegundar og
jafna að gæðum, tilbúna til sölu
á sama tíma, eða á tímabili, sem
félagsfundir eða félagsstjórn á-
kveða.
Á grundvelli þessara stefnu-
miða hefur SH starfað í rúm
tuttugu ár, sem fyrr segir. Samn-
ing þeirra og lag'a SH árið 1942
annaðist í samráði við stofnend-
ur, Guðmundur í. Guðmundsson,
núverandi utanríkisráðherra, sem
er landskunnur fyrir hæfni við
lagasmíðar. Núverandi lögfræð-
ingur SH er Einar B. Guðmunds-
son, hrl.
AÐILD
Félagsmenn SH geta þeir einir
orðið, sem reka hraðfrystihús,
annaðhyort sem eigendur eða
leigutakar. Inntökugjald í félagið
er kr. 500,00 fyrir hvert hrað-
frystihús og ennfremur Z%„ af and
virði seldra afurða gegnum SH.
Inntökugjaldið rennur í sjóð, er
nefnist Stofnsjóður og er séreign
hvers félags.
Til þess að standast kostnað af
rekstri félagsins og starfsemi þess
allri er heimilt að halda eftir 2%
af fob. söluverði seldra afurða.
Þá er heimilt að leggja allt að
15% á kostnaðarverð þeirra nauð
synja, sem félagið selur félags-
mönnum.
Verði rekstursafgangur, getur
aðalfundur ákveðið að leggja
hann, eða hluta af honum, í sér-
stakan sjóð, er nefnist Arðjöfn-
unarsjóður. Að öðru leyti skiptist
rekstursafgangur á milli félags-
manna í réttu hlutfalli við út-
flutningsverðmæti hvers og eins
á árinu og færist á sérstakan
reikning hvers félagsmanns.
Sérstök áherzla er jafnan lögð
á að hafa útborgunarverð afurð-
anna til frystihúsanna sem næst
raunverulegu verði, sem fæst fyr
ir þær. Verðí afgangur, er hann
að loknu rekstursári greiddur
sem viðbót til félagsmanna.
Fyrsta grein
Segja má, að lög SH séu
sniðin eftir hlutafélags- og
samvinnufélagslögunum, en
þó var og er félagið sam-
eignarfélag. — Athyglisvert er,
að sérhver félagsaðili fer með
eitt atkvæði, án tillits til stærðar
eða framleiðslu viðkomandi
frystihúss.
FÉLAGSAÐILAR
Hverjir eru einkum félagsaðil-
ar SH (eða „pukrararnir“, eins- og
sagt var í einu Reykjavíkurblað-
anna fyrir skömmu)? Það eru
einkum og sér í lagi einkarekst-
ursmenn víðs vegar um landið.
í hátíðlegum ræðum eru þeir
stundum nefndir máttarstólpar
síns byggðarlags eða forvígis-
menn flokks einkaframtaksins í
sjávarútvegi og fiskiðnaði. Meðal
þekktra manna mætti nefna Har-
ald Böðvarsson, útgerðarmann,
Akranesi, og Sturlaug, son hans.
Ennfremur Jón Árnason, alþingis
mann, Akranesi, Sigurð Ágústs-
son, alþingismann, Stykkishólmi,
Rafn Pétursson, Flateyri, Óskar
Kristjánsson og Pál Friðbertsson,
Suðureyri, Einar Guðfinnsson,
Bolungarvík, Einar Steindórsson,
Hnífsdfel, Baldur Jónsson og
Maríus Guðmundsson, fsafirði,
Aðalstein Jónsson, Eskifirði, Sig-
hvat Bjarnason, Vestmannaeyj-
um, Þorgrím Eyjólfsson, Kefla-
vík, Guðmund Jónsson, Sand-
gerði, og Ingólf Flygenring, Hafn
arfirði. Hér eru aðeins tekin nokk
ur nöfn, en bæta má því við, að í
varastjórn SH situr m.a. Gunnar
Guðjónsson, fyrrverandi formað-
ur Verzlunarráðs íslands. Allt eru
þetta hinir mætustu menn, og
munu flestir taka undir það, hvar
í flokki, sem þeir standa.
Eignaraðild að einstökum frysti
húsum innan SH er dreifð á öll
hugsanleg félagsform: Bæjarút-
gerðir, samvinnufélög, hlutafé-
lög, samlags- og sameignarfélög
og fyrirtæki í hreinni einkaeign.
Það má því með sanni segja, að
þúsundir manna séu raunveru-
lega eigéndur að SH í gegnum
hina fjölbreytilegu félagsaðila,
sem að frystihúsunum standa. Er
það víðs fjarri og gjörsamlega
tilhæfulaust að segja, að að SH
standi fámenn og þröng sérhags-
munaklíka, sem þurfi á ströngu
ríkiseftirliti (pólitíkusa) að halda,
ef vel eigi að fara. Er vonandi,
að fyrirtækinu verði þyrmt frá
hinni dauðu hönd ríkisafskipta
eða atvinnustjórnmálamanna,
sem hafa ekki þekkingu á vanda-
málum atvinnulífsins, né vilja
skilja grundvallarlögmál atvirmu
reksturs.
SKIPULAG
Skipulagslega séð er SH þannig
uppbyggt, að aðalfundur fer með
æðsta vald í öllum félagsmálum.
Almenna félagsfundi er unnt að
boða millí aðalfunda, ef nauðsyn
krefur.
Milli aðalfunda, sem haldnir
eru einu sinni ár hvert, fer 9
manna félagsstjórn með málefni
SH. Þessa stjórn skipa nú: Elías
Þorsteinsson, • útgerðarmaður,
Keflavík, formaður; Einar Sig-
urðsson, útgerðarmaður Reykja-
vík; Sigurður Ágústsson, alþingis
maður, Stykkishólmi, ritari;
Ingvar Vilhjálmsson, útgerðar-
maður, Reykjavík; Einar Sigur-
jónsson, framkvæmdastjóri, Vest-
mannaeyjum, Gísli Konráðsson,
framkvæmdastjóri, Akureyri;
Guðfinnur Einarsson, fram-
kvæmdastjóri, Bolungarvík; Ól-
afur Jónsson, útgerðarmaður,
Sandgerði; Tryggvi Ófeigsson, út
gerðarmaður, Reykjavík, sem var
varamaður. Jóns heitins Gíslason-
ar, sem lézt 23. júlí sl.
Eins og sjá má af þessari stjórn
arskipan, er þess gætt, að í stjórn
SH sitji fulltrúar hinna einstöku
landssvæða. Það er m.a. gert í
þeim tilgangi að tryggja eðlileg
tengsl milli SH og þessara svæða,
svo að þau verði eigi afskipt um
stjórn fyrirtækisins og gang mála.
Stjórnin kemur jafnan saman
einu sinni í mánuði, en oftar ef
nauðsyn krefur. Geta stjórnar-
fundir tekið 2—3 daga.
Um daglegan rekstur SH fjall-
ar framkvæmdaráð, sem í eiga
sæti 5 manns, auk sölustjóra og
ritara. I framkvæmdaráði eiga
sæti af hálfu stjórnar SH þeir
Elías Þorsteinsson og Einar Sig-
urðsson og framkvæmdastjórarn-
ir, Björn Halldórsson (sölumál),
Einar G. Kvaran (framleiðslu-
mál) og Eyjólfur í. Eyjólfsson
Cfjármál). Ennfremur Árni Finn-
björnsson, sölustjóri, og Guð-
mundur H. Garðarsson, viðskipta
fræðingur. ÖIl mál, sem fram-
kvæmdaráð fjallar um, eru lögð
fyrir stjórnina.
Út frá framkvæmdaráði starfa
síðan sérstakar deildir:
Afskipunar-, innkaupa-, tækni-,
framleiðni-, gæða-, eftirlits- og
hagdeild, svo nokkuð sé nefnt.
Mun því gerð nánari skil í síðari
grein. í beinu sambandi við stjóm
SH og framkvæmdaráð starfa
dótturfyrirtæki og söluskrifstof-
ur erlendis. í Bandaríkjunum er
dótturfyrirtæki SH, Coldwater
Seafood Corp., framkvæmdastjóri
er Þorsteinn Gíslason og verk-
smiðjustjóri Guðni Gunnarsson;
í Bretlandi er rekið fyrirtækið
Framh. á bls. 16
St
Hraðfrystihús innan SH eru dreifð um landið. Myndin sýnir þau frystihús, sem framleiddu
hraðfrystar sjávarafurðir á sl. ári.