Morgunblaðið - 29.12.1964, Síða 2

Morgunblaðið - 29.12.1964, Síða 2
 2 MORGU N BLAÐJÐ ÞríðjucfasíUr 29 des. 1964 Uóírungur III. kemur til Akraness með 220 tunnur síidar að austan fyrr í þessum mánuði. Aflaverömætið nemur rúm- lega tveimur skipsverðum eftir níu mánaða úthald Hásetahlutur á sama tíma um 400 þúsund krónur ÞAÐ ÞÓTTI tíðindum sæta sl. vor að vélskipið Höfrungur III. kom til landsins nýsmíðað ur frá Noregi búinn áður ó- þekktum siglingartækjum, sem gera skipinu kleift að sigla út á hlið eða snúast kringum sjálft sig. í viðtali við skipstjórann, Garðar Finnsson, sem birtist hér í blaðinu við komu skipsins, kom fram að miklar vonir voru bundnar við þessi nýju tæki, en engin reynsla feng- in þá. Nú er hinsvegar komin níu mánaða réynsla á þessi sigV ingartæki, og sneri Mbl. sér til útgerðarfélagsins, Haralds Böðvarssonar & Co. á Akra- nesi í gær og spurði frétta. Fyrir svörum varð Sturlaug- ur Böðvarsson, forstjóri, og sagði hann að með þessum tækjum hefði skipið stórkost- lega yfirburði yfir önnur skip, og ekki hvarflaði að hon um annað en að taka sams- konar tæki í næsta skip, er út gerðarfélagið léti smíða. Nú, eftir níu mánaða úthald væri útflutningsverðmæti afla Höfrungs III. komið -upp í 32 milljónir króna, eða rúmlega tvöfalt verð skipsins, sem kostaði fúllbúið um 15 millj. Ekki væri þetta að vísu tækj unum einum að þakka, því Gfirðar Finnsson væri afburða skipstjóri með úrvals áhöfn. Útgerðarmaðurinn tók það fram að það væri í rauninni útgerðarfélaginu að kenna að Garðar og áhöfn hans hefðu „aðeins“ skilað á land tæplega 50 þúsund málum og tunnum síldar og um 900 tonnum af þorski á þessum tíma. Þannig hafi nefnilega staðið á að vinnslustöð H. Böðvarssonar hafi oft vantað hráefni og kallað Höfrung III. heim nokkrum sinnum af síldveið- um fyrir norðan land og aust- an til að leggja upp afla á Akranesi. Auk þess hafi skip ið farið seint norður til sum- arsíldveiðanna vegna hráefn isskorts á Akranesi, og voru sum skipanna komin með um Garðar Finnsson, skipstjóri. 10 þúsund mál síldar þegar Höfrungur III. hóf veiðarnar. En þetta kom sér betur fyrir útgerðina, og þiátt fyrir allt er hásetahlutur orðinn um 400 þúsund krónur fyrir níu mánuði. Nýju siglingartækin eru tvær aukaskrúfur, önnur í þvergöngum undir framskipi, hin á stýrisblaði. Með því að leggja stýrið þvert á annað borð og láta báðar aukaskrúf urnar vinna saman má sigla skipinu út á hlið. En séu skrúfurnar látnar vinna hvor gegn annarri, snýst skipið um sjálft sig. Þessi útbúnaður sem fram- leiddur er af Hleuger-verk- smiðjunum í Þýzkalandi hef ur sparað hundruð þús. kr. í veiðarfærum, sagði Sturlaug- ur Böðvarsson, og gjörbreytir veiðunum. Venjulega þegar eitthvað er að veðri rekur skipið undan vindi og það dregur nótina á eftir sér. Verð ur þetta oft til þess að nótin rifnar eða springur. En Höfr- ungur III. getur haldið sig við nótina og fylgt henni eft- ir. Af þessu leiðir margfalt minna nótaslit. Auk þess er á höfnin fljótari með hvert kast en á skipum, sem ekki hafa þennan útbúnað. Tel ég því að þessi útbúnaður hafi meira en borgað sig nú þegar, sagði Sturlaugur. Það er ekki aðeins á sild- veiðum, sem skrúfuútbúnaður inn nýi kemur að notum. Sl. vor var Höfrungur III. á veið um á Selvogsbanka með þorskanót, og missti þá af ein hverjum ástæðum nótina nið- ur á hraunbotninn. Undir venjulegum kringumstæðum hefði nótin verið töpuð. En vegna nýju tækjanna tókst að halda skipinu kyrru beint yf- ir nótinni og ná henni lóð- rétt upp. Aragrúi sovézkra skipa enn fast við landið MIKILL fjöldi sovézkra skipa heldur sig enn hér við land. Morgunblaðið spurði Pétur Sigurðsson, forstjóra Land- helgisjæzlunnar, í gær um sovézka flotann. Sagði hann sex stór móðurskip vera út af Hrollaugseyjum undan Suður- sveit, og fylgdi þeim fjöldi smærri skipa. Önnur sex móðurskip eru undan Eystra- borni. Umhverfis þau hafa verið talin hvorki meira né minna en þrjátíu skip. Aragrúi sovézkra skipa er því enn víðs vegar undan suð- austanverðu landin'- Tankskip á Norðfirði Neskaupstað. 28. des. Yfir jólin lá hér inni sovézkt tankskip ag tók hér um þús- und lestir af vatni handa sovézka veiðiflotanum, sem enn er á veiðum úti fyrir Austfjörðum. — Ásgeir. Síldarmjöl til Englands HÉR liggur norskt flutningaskip, Joslind. í dag og á morgun verð- ur 1170 tonnum af síldarmjoli skipað út í það. Síldarmjölið fer til Engiands. — E. J. Hurð skall nærri hælum AKRANESI, 28. des. — Sex ára telpa varð næstum fyrir bíl sunnudaginn 3. í jólum. Hún var að koma frá kirkju og nýgengin út á Skólabrautina, er hún missir veski sitt. í því hún beygir sig niður, til að taka það upp, ekur fólksbíllinn E 157 niður götuna. Hann var nýbúinn að lenda í á- rekstri í Reykjavík og skemmd- ist við það önnur bílhliðin. — Sá ekillinn, hvað verða vildi, og snarbeygði frá og yfir götuna, til að bjarga lífi telpunnar. Lenti hann þá á umferðarskilti, og þá skemmdist hin hliðin á bílnum. Skiltisstöngin bognaði, en barnið I slapp heilt og óskaddað — Oddur. Tvær innrásir Indó- nesa fóru ú\ um þúfur Kuala Lumpur, 28. des. — NTB TVÆR siðustu innrásartilraunir Indónesa í Malaysíu hafa farið út um þúfur, að því er sagt var í Kuala Lumpur nú um helgina. Talsmaður stjórnar Malaysíu sagði á sunnudag, að önnur land- ganga Indónesa hefði átt sér stað 23. desember sl. í Pontian-hérað- inu, um 240 km. sunnan höfðuð- borgarinnar, Kuala Lumpur. Talið er að Indónesar hafi komið 28 hermönnum á land. hafa 24 þeirra verið handteknir en þrír verið vegnir. A aðfangadagskvöld gerðu Indónesar aðra landgöngutilraun, og var henni að þessu sinni stefnt að ströndinni 7 km. norð- vestur af Kuala Lumpur. Brezka freigátan Ajax kom sjö indónes- ískum innrásarbátum í opna Strandskip- ið á Rauf- arhöfn RAUFARHÖFN, 28. des. — Enn eru gerðar tilraunir til að ná þýzka skipinu Súsönnu Reith á flot hér á Raufarhöfn, og vonast menn til, að það takist næstu daga. Björgun hf. sér nú um til- raunirnar. Um jólin var skipið þétt að miklu leyti og dælt úr því, grjót tekið upp úr gatinu á botni skips ins og björgum rutt úr vegi til hliðar við skipið. Virtist það losna nokkuð við þetta, og kipptist það til sl. sunnudag — líklega um 5 metra, þegar reynt var að draga það á flot. Reynt hefur verið á hverju flóði að losa skipið. Björg unarmenn eru með þrjá trukka og talíur í landi. Taka einn eða tveir trukkarnir á í senn. Björg- unarmenn eru vongóðir um að skipið náist á flot, en vilja fara að öllu varlega. — E. J. Akureyri, 28. des. — Kafari héðan frá Akureyri, Jóhann Gauti Gestsson, hefur unnið við björgunartilraunir við þýzka strandskipið á Raufarhöfn. — Á jóladag slóst vír í flótlegg hans. Var læknir sóttur í flugvél til Þórshafnar samdægurs, en á 2. í jólum fór Jóhann í bíl til Akur- eyrar, og kom þá í ljós, að hann var fótbrotinn. — Sv. P. skjöldu á Malakkasundi. og réð- ist að þeim. Voru 22 innrásar- hermenn handteknir í þeirri viðureign, en innrásin sjálf fór út um þúfur. Stjórn Malaysíu vinnur nú afl þvi að semja skýrslu til Samein- uðu þjóðanna um árásaraðgerðir Indónesa. Brezkur togari tekinn vestrL ísafirði, 28. des.: — UM h>Þ>gi«Hiið á aðfangadag tók varðskipið Óðinn (skipherra Þórarinn Björnsson) brezka tog- arann Lord Rowallan frá Grima by að ólöglegum veiðum um tvær og hálfa sjómílu innan fisk veiðimarkanna norður af KögriL Leonard Cörtz, skipstjóri, ját- aði brot sitt þegar um borð i varðskipinu. Farið var með tog- arann til ísafjarðar. Réttarrann- sókn hófst þar hjá bæjarfógeta á annan jóladag, og dómur var kveðinn upp í málinu um kvöld ið. Var skipstjóri dæmdur í 260 þús. kr. sekt og afli og veiðar- færi gerð upptæk. Bæði ratstjártæki skipsina voru biluð, og hafði togarinn feng ið staðarákvörðun frá öðrum tog ara. — H. T. Drottning í sjúkrahúsi Stokkhólmi, 27. des. — NTB LOUISE Svíadrottning, sem nú er 75 ára gömul, var um jólin í sjúkrahúsi. Hún þjáist af hjarta- sjúkdómi, sem þó mun ekki talinn alvarlegs eðlis. Læknar segja þó að hún muni verða í sjúkrahús- inu um óákveðinn tíma. Köpavogur JÓLATRÉSSKEMMTUN Sjálf- stæðisfélaganna í Kópavogi verð- ur sunnudaginn 3. janúar í Fé- lagsheimili Kópavogs og hefst kL 3 síðdegis. Aðgöngumiðar fást hjá Ey- vindi Árnasyni, Löngubrekku 3, sími 41885, og Sigurði Þorkels- syni, Fifuhvammsvegi 23, sími 40922. í GÆR var stillt verður fram- an af degi, en síðan vaxandi austlæg átt. Mun sennilega snjóa um alit land af lægðinni, sem er á landabréfinu miðju vegu milli Hvarfs og íslands. Gert er ráð fyrir því, að lægð- in fari austur með suður- ströndinni. í gærmorgun var kalt í Evrópu, t.d. var 17 st. frost í Osló, 14 í Stokkhólmi; jafnvel suður í París var sex stiga frost. Veðurspá kl. 22 á mánudags- kvöld: — Spáð var stormi við suðurströndina í nótt. SV-mið: SA-stormur og síð ar A-stormur. Slydda. SV-Iand til Breiðafjarðar og Breiðafjarðarmið: SA og síðar A eða NA hvassviðri. Snjókoma. Vestfirðir og miðin: A og síðar NA hvassviðri. Snjó- koma. N-land og miðin: SA stinn ingskaldi. Síðar A hvass- viðri. Snjókoma. NA-land, Austf. og miðin: Vaxandi SA átt. Hvassviðri og snjókoma með morgninum. SA-land og miðin: A hvass- viðri eða stormur. Snjókoma eða slydda. Austurdjúp: Vaxandi SA átt, allhvasst og slydda á morg un. Veðurhorfur á miðvilaudag: NA átt. Snjókoma norðan- lands en úrkomulaust á Suð urlandi.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.