Morgunblaðið - 29.12.1964, Síða 15

Morgunblaðið - 29.12.1964, Síða 15
í»riðjuclagur 29. Ses. 1964 MORGUNBLAÐIÐ 15 Jörgen Schle’mann: STJÓRNMÁLAMENN hafa oft verið hafðir að skotspæni í þess- um dálkum og svo mun enn verða. En ekki í dag, Öðru nær, því að í dag höfum við komizt að því, okkur til mik- illar ánægju, að ríkisstjórn Dan- imerkur oig Fólksþingið hafa sýnt sig betur hæfa til að greina stórt frá smáu, aðalatriði frá auka- atriðum, en sá hópur háværra vísindamanna, sem á síðasta stigi handritamálsins hafa beitt ofsa, til þess að hindra afhendingu handritanna til íslendinga. Rök skulu færð fyrir þessari fullyrðingu, og látum oss því líta dálítið nánar á röksemda- færsluna í handritamálinu. Fyrst af öllu hinar lagalegu hliðar málsins. Það er að setja umræðurnar út af sporinu að fara að koma með röksemdir með eða mnóti lagalegum rétti íslendinga til handritanna. Óskir og kröfur um afhendingu handrita, sem geymd eru í Danmörku. hafa íkomið fram öðru hverju af hálfu íslendinga, en það er ekki laga- gildi slíkra, sem nú á að ákveða um. Það sem danskir stjórnmála- menn — eða kjósendur, ef til þjóðaratkvæðis kemur — eiga að taka afstöðu til, er frumvarp ríkisstjórnarinnar um að færa ísiendingum tiltekinn fjölda handrita, sem hér eru geymd, að gjöf. I umræðunum, sem yfir standa «r því lagahlið málsins ekki önn- ur en sú hvort afhendingin leiði það af sér. að bæta skuli Árna- sjóði skaðann, og það atriði er aðeins hagfræðilegt. Þá rís sú spurning, hvort því aðeins sé hægt að igefa þessa gjöf; að það sé tiltölulega ódýrt, þ.e. án kostn- aðar í sambandi við eignarnám. En svo hafa líka komið fram ifræðilegar mótbárur gegn af- hendiragunni. Yerður þessi af- hending óréttmæt árás á frelsið við rannsóknarstörfin? Ekki er oss unnt að skilja, hvernig rann- sóknarfrelsinu gæti verið ógnað, þó að nokkur handrit flytjist frá Danmörku til fslands. Hlutaðeig- andi handrit verða áfram að- Igengileg til vísindalegra rann- sókna, aðeins á öðrum stað eh áður. Ekki liggja fyrir neinar upplýsingar um það, að íslend- íngar hafi í hyggju að 1) að eyðileglgja handritin, né 2) að hanna frjáls afnot af þeim. Aðstæður rannsókna — eink- um hér i landi — verða fyrir áhrifum af afhendingunni, og að því atriði mun komið siðar, en þar er aðeins um að ræða #ðstöðumun en ekki um frjáls- #n aðgang að þeim, fræðilega *éð. Vér þorum óhræddir að full- yrða, að íslendingar muni ekki i framtíðinni segja vísindamönn- um fyrir um ákveðnar skoðanir viðvíkjandi handritunum, og heldur ekki leggja nein höft á vísindamenn um afnot þeirra, hvernig svo sem hlutaðeigandi er að lit, kynferði, átrúnaði, þjóð- erni eða stjórnmálaskoðunum. Og hvað hina fræðilegu mót- háruna snertir, þá er það viður- 'kennt af opintoerri hálfu hér í landi — og sennilega einnig á íslandi — viðurkennd til fulln- ustu hin alþjóðlega regla, að rannsóknarefnin skuli vera þar •em þau eru og þar sem arfgeng fkilyrði eru fyrir hendi til að vinna að þeim. Það er einmitt til þess að taka tillit til þessarar reglu, að báðir málsaðilar hafa samþykkt gjafarformið. Gjöf gefur ekkert fordæmi til að verða við afhendingarkröfum. Þar við bætist. að þjóðleg þýðing handritanna fyrir ísland má ekki verða tekin sem hliðstæða við þýðingu rannsóknarefna almennt lyrir upprunaiandið. At rokum andstæðinga afhend- tngarinnar gæti mönnum vel skiiizt, að staðsetninig handrit- anna væri meginatriðið. En það er hún ekki. Við s'kulum taka til- búið dæmi. Hugsum okkur, að það yrði sannað, án alls vafa, að í StokkhóLmi, Uppsölum, Lund- únum, Edinborg, Oxford, Bost- on, París, Vín, Vestur-Berlín eða Wolfentoúttel væri.til, eins og stendur, betri tæknileg tæki tíl að rannsaka, laga og geyma handrit heldur en í Kaupmanna- Jörgen Schleimann ann um hína hneykslanlegu með- ferð Danmerkur á íslandi á ein- okunaröldunum? Að fylla þetta gat í fróðleik okkar væri betur viðeigandi verkefni fyrir danska sagnfræði- nema en hitt að koma fram sem klapplið fyrir sm.áþjóðarrembing inn og talsmenn hans, við sjón- varpsumræðurnar í Studenter- foreningin, sem frægar eru orðnar að endemu.m. Við sama tækifæri gátu menn orðið þess varir, sér tit undrunar og skapraunar, að vís- indamenn, gem höfðu eytt drjúg- um hluta ævi sinnar við nám norrænna bókmennta og tungna. ekki sízt Islands, virtust hafa tagt á sig þetta árlanga erfiði með nauðalitlum árangri hvað snerti skilning á samskiptum þjóða. Að minnsta kosti virtust þeir og ástriðumenn höfn. haldið þið þá kannski, að sú staðreynd gæfi tilefni til ftutn- ings handritanna? Við vitjum gjarna trúa and- stæðingum afhendingarinnar, er þeir sagja, að eins og er séu betri tæki fyrir hendi í Kaupmanna- höfn en í Reykjavík til rann- sókna á handritunum, og okkur er líka vel ljóst. að í Kaup- mannahöfn séu stærri og betri bókasöfn en víða í heiminum, þar með talið á fslandi. En fyrir okkur er hagkvæmnis- atriðið. hvort 1) hægt er yfirleitt að halda áfram rannsókn hand- ritanna í Reykjavík. og hvort 2) nokkur ástæða sé til að halda, að Island muni um alla framtíð standa Danmörku að baki um tæknileg hjálparmeðöl, sem nota þarf við þessar sérstöku rann- sóknir. Það kann vel að vera, að ekki hafi verið sannað af íslendinga hálfu, að rannsóknir eigi við eins góð skilyrði að búa í dag í Reykjavík eins og í Kaupmanna- höfn. En hitt er sannað, að handritarannsóknir fara fram á íslandi og því getur slík rann- sókn farið fram norðar á hnett- inum en heima hjá okkur í Dan- mörku, Og þegar hér er komið rök- semdarfærslunni, igripum við með góðri samvizku til stærri skotvopna. því að nú komum við að kjarna málsins — að öllu samsafninu af tilfinnanlegum, siðferðilegum, sögulegum og stjórnmálalegum röksemdum fyrir afhendingu handritanna. Vita menn ekki, að stöðugt er Verið að koma á fót nýjum vís- indastofnunum, um allan heim, þar sem ekki voru áður stjórn- málaleg, efnaleg og tæknileg skilyrði til að reka vísindarann- sóknir? Hafa menn ekki hæfileika til þess að gera sér í hugarlund, að þessar nýju lærdómsstöðvar. jafnvel þótt áð baki standi mörg- um gömlum og grónum háskól- um, geti eftir nokkur ár orðið jafnokar þeirra? Margt er það, sem b^tur er hægt að læra í Evrópu og Banda- ríkjunum en í háskólum smá- tandanna í Afríku, Asíu og róm- önsku Ameríku. En þessi mis- munur er á undanhaldi. Þetta er sögulegur mismunur, sem stafar ekki af lélegri hæfi- leikum eða gáfnafari hjá þjóð- unum í litlu löndunum. Mis- munurinn stafar fyrst og fremst af nýlenduskipulaginu. Vísindamennirnir með mót- mælin hafa ef til vill ekki gert sér það ljóst, að þjóðlegt sjálf- stæði og efnahagsþróun er hvort- tveggja mikilvægt, einnig fyrir rannsóknirnar. sem þeir eru sjálfir að fást við. Þegar handritunum var safnað saman á Islandi — og ftestum af Islendingnum Árna Magnússyni —, voru engin skilyrði í hinhi dönsku nýtendu til að geyma þau eða rannsaka vísindalega. Þessvegna fóru handritin til Kaupmannahafnar forðum, en þar hafa íslenzkir vísindamenn stöðugt og í verulegum mæli átt þátt í rannsókn þeirra. Það er fyrst nú á þessari öld, þegar ísland hefur losnað undan hinni dönsku útlendirígastjórn, að tandið hefur þróazt, stjórn- málatega og efnaleg. svo að það hefði skilyrði til vísindarann- sókna. Það er í framhaldi af þessari þróun, að menn eru í þessari fyrrverandi hjálendu komnir á það stig, að þeir finna, að, að nú eiigi eigin vísinda- stofnanir landsins að takast á hendur nokkurn hluta sóknanna á sögulegum og menn- ingarlegum arfi landsins. íslenzkir vísindamenn óska eftir efni til að vinna að heima á Islandi og íslenzka þjóðin óskar að heimta heim minnis- varðann yfir þjóðfrelsi sitt og mikla menningu. Þessi er þýðing handritanna fyrir íslendimga. Það er villandi að vera að líkja þessu við gullhornin, Hammershúsrústirnar, eða hvað það nú allt heitir, sem hefur verið dregið fram af danskri hálfu. ísland á að vísu menning- arlegar og sögulegar minjar um fortíðina. en þær eru fáar og dreifðar, og vilji menn skilja það heiðurssæti sem handritin skipa meðal þessara minja og í meðvitund þjóðarinnar, þá hugsi þeir aðeins til allra okkar marg- víslegu minja í byggir\gariist, myndlist og bókmenntum — hugsi sér, að allt þetta væri orðið að fyrirferðinni til á borð við handritasafnið. Þarna kemst enginn samjöfnuður að, hvað Danmörk snertir, og það er vafasamt, hvort nokkur þjóð í heimi hefur í jafnmiklum mæli verið rænd öllum áþreifanlegum merkjum um fortíð sína. jafn- framt hinu, að þýðingarmikill hluti menningarinnar hefur varðveitzt. En það er ekki einungis vegna þess, hve mikill hluti menningararfsins handritin eru, að þau eru eins mikilvægur hluti þjóðlífsns og raun er á. Hinn bókmenntalegi sköpunarmáttur, sem handritin bera vott um, hef- ur látið eftir sig varanleg merki. Varla er til nokkur þjóð í heimi, sem skapar svo miklar bók- menntir. framleiðir, selur og notar jafnmargar bækur, miðað við fólksfjölda, sem sú íslenzka. Fornnorrænu bókmenntirnar eru staðreynd í huga fslendinga enn í dag, og ef gefa ætti stuttorða lýsingu á fslendingum, yrði hún: „sú þjóð heims. sem les og skrifar mest“. Um alit þetta hefðu danskir vjgindamenn átt að vera búnir að fræða okkur fyrir ævalöngu. En með skömm frá að segja og eins og tekið hefur verið fram í handritadeilunni, þá er ekki til eitt einasta danskt sögulegt rit úm fsland undir nýlenduveldi Dana. Hversu lengi eigum við að 'bíða eftir því, að danskir sagn- fræðingar færi okkur sannleik- ekki hafa áunnið sér neiná teljandi samúð með fslending- um, né heldur minnsta snefil áheyrnarvilja við -menningar- legum óskum þeirra. Það sem sagt var á fáum klukkustundum í Studenterfor- eningen af móðgandi, óháttvís- um og skilningsvana orðu-m um ísland og íslendinga, leiddi því miður í ljós það, sem oss hafði lenigi grunað, en aldrei áður fengið svona áþreifanlega sönn- un á: að það er ekki hægt að reyna mikilð á þessa ,.samúð“ okkar með hjálendum, til þess rann- ag þag sýnj ag hún er ekki nema í nösunum. Úr ýmsum áttum hefur það heyrzt, að taka verði tillit til, tilfinninga, ekki íslendinga einna, heldur og Dana. þegar handritamálið verður útkljáð. Tilfinningum Dana fyrir la- lenzku handrituml! Ætli þaer takmarkist nú ekki við heldur lítinn blett, eins og t.d. Árna- stofnunina? Að minnsta kosti hefur danska þjóðin til skamms tíma og að mestu leyti lifað £ og algjöru glöðu vitundarleysi um tilveru handritanna, og í rás aldanna hefur framkoma Dana við íslendinga áreiðanlega ekki gefið hinum síðarnefndu tilefni til að halda, að okkur þætti sér- lega vænt um þá. Er ekki blákaldur sannleikur- inn um tilfinningar okkar sá, að við Danir, sem þjóð, sýnum ís- Iendingum sama hofmóðuga afskiptaleysi sem öðrum nálæig- um þjóðum. eins og t.d. Hollend- iní Staðreynd er það, að minnsta kosti, að bæði á fslandi og í Hollandi vita menn tals- vert meira um Danmörk og Dani en við um þessar þjóðir og að í íslenzkum og hollenzkum blöð- um koma miklu fleiri greinar um dönsk málefni, en hjá okkur um íslenzk eða hollenzk. Það er þessvegna dálítið gróf- gerð gamansemi að halda því fram, að hægt sé að gera þjóð- ernislegar tilfinningar að rök- semdum gegn afhendingu hand- ritanna íslenzku. í hæsta lægi væri hægt að tala um þjóðremb- ing í þessu sambandi, og hefð- u.m við ekki aðrar ástæður til þess að vera hlynntir afhending- unni, þá væri að minnsta kosti sú, að reyna að vinna gegn upp- vaxandi dönskum þjóðrembingi. næg ástæða, ein út af fyrir. sig. Því að það er væntanlega ekki ætlunin, að fslendingarnir eigi með kyrrsetnimgu handritanna að gjalda fyrir missinn á Skáni, Hallandi, Bleking, Slésvxk, Holtsetalandi, Stórmæri. Þétt- merski, Láenborg og Aldinborg, Noregi, Englandi og — ístandi? Ungiiir Dani af íslenzk- um ættum hlýtur verðlaun Gyldendals fyrir handrit að bók um hernámsárin BÓKAFORLAGIÐ Gylden- öðru eins gleyma börn ekki. dal efndi í fyrra til sam-' Þó hefur það kannske öllu keppni um bezta handritið að fremur verið eins og eitthvað bók úm hernámsárin í Dan- sem lá í loftinu þá . . .“ mörku og hét 10.000 krónum Markús hefur áður unnið dönskum í verðlaun. Nú hefur að ýmsu um ævina, þó ekki dómnefnd sú, sem skera átti sé hún ýkja löng. Hann lærði úr um verðlaunaveitinguna til bankamanns, gegndi her- farið yfir handritin 32 sem þjónustu tilskilinn tíma og bárust og urðu nefndarmenn, hélt áfram í hernum að því (sem eru Ole Barfoed, lektor, loknu og fór til Líbanon með dr. phil Jörgen Hæstrup, liði því sem Danir léð'u Sam- lektor og Erik Jensen, yfir- einuðu Þjóðunum til friðar- kennari) ásáttir um að veita gæzlu á sínum síma. Síðan verðlaun þessi Markúsi hætti hann hermennskunni Bjarnasyni, 28 ára gömlúm og hóf starf við Handelsbank- kennara, sem nú starfar við en í Kaupmannahöfn en hætti þar líka og fór siðan að læra til kennaraprófs, og lauk því skóla í Grænlandi. Markús er af íslenzku bergi í fyrra, og fór þá þegar til brotinn, sonur Eyjolfs Bjarna _ J , ’ 6 . , , ^ £ . , Grænlands asamt konu sinm, sonar, er eitt sinn reði fyrir sjómannaheimili í Hirthals og sem er þar starfandi hjúkr- unarkona. „Og það er svo sem ekki í fyrsta skipti, sem Markús skrifar eitthvað", sagði frú ,, , ._ _ , Amalie. „Meðan hann gekk í , , ... , , kennaraskolann skritaði hann starfað síðan fyrir heimatrú- boðið víða í Danmörku. Eyjólfur Bjarnason lézt árið 1962. Fjölskyldan fluttist til áttu þau heima öll hernáms árin. ritgerð um skiptingu jarð- næðis á Færeyjum og á ís- „Hann var ekki nema fjög- landi, og hlaut fyrir ferð tii urra ára þegar stríðið skall á“, bæði íslands og Færeyja. segir frú Amalie Bjarnason, Seinna fór hann til Parísar móðir Markúsar í viðtali við vegna greinar, sem hann skrif „Politiken“ sl. miðvikudag — aði um NATO. Hann er bóka- og níu ára þegar því var lok- ormur, eins og hin börnin ið. En ég held samt að það mín tvö, Jóhannes, sem er hafi allt haft mikil áhrif á verkfræðingur og vinnur á hann. Frændi hans stundaðii Risö og Karin, sem er kenn- sjóinn á þessum árum og var ári á Djursland. Það ér eina einn þeirra sem oft skaut og nám og lestur séu landlæg- mönnum undan eftirleit og laegur veikleiki í ættinna“. ýfir til Svíþjóðar. Við vorum segir móðir Markúsar Bjarna- oft með lífið í lúkunum — og son að lokum.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.