Morgunblaðið - 29.12.1964, Page 16
18
MORCU N B LAÐIÐ
ÞriSjudagur 29. des. 1964
Samkeppni um bezt
gerða íslenzka muni
HEIMILISIÐNAÐARFÉLAG ís-
lands og sölufyrirtseki þess, ís-
lenzkur heimilisiðnaður, hafa
efnt til samkeppni um bezt gerða
ísienzka muni, bæði minjagripi,
setiaða ferðamönnum og þó sér-
stakiega aðra hagnýta og list-
ræna muni til sölu og notkunar
innanlands, og heitir verðlaun-
rai, svo sem nánar verður sagt
hér á eftir. — Þá verða einnig
eérstök verðlaun veitt fyrir
snjaliar hugmyndir, teikningar
eða framkvaemanlegar ábending-
ar, um framleiðslu góðra gripa,
þótt höfundar tillagna hafi ekki
aðstöðu til eða möguleika á að
sýna munina fullgerða.
Til nánari skýringar er það, að
hér skal fyrst og fremst keppa
um smíðavinnu alls konar, eða
það sem einkum er nefnd handa
vinna karla (mandlig slöjd —
þótt raunar megi alveg eins vera
unnin af konum) svo sem:
1. Allskonar hlutir, smærri og
stærri, úr tré, horni, beini eða
málmi, — renndir, telgdir, út-
skornir eða unnir á ahnan rátt.
2. Allskonar skinnvara, svo
sem hanzkar, skór, veski, töskur,
beiti, o^.frv.
Og í þriðja lagi koma svo til
greina hannyrðir, svo sem:
3. Alls konar útsaumur af ís-
lenzkum gerðum, gömlum og
nýjum, listvefnaður, veggteppi,
jafnvel fataefni o.fl. úr islenzkri
ull, hör eða öðru efni, en að öðru
leyti er að þessu sinni ekki ætl-
azt til að keppt verði um ullar-
vinnu, t.d. hverskonar prjónless.
Það er einnig ástæða til að
nefna, að æskiJegt væri að kepp-
endur gætu byggt hugmyndir sín
ar um gerð og form góðra gripa
að einhverju leyti á þjóðlegum
fyrirmyndum, svo sem þeim er
finnast í þjóðminjasafni og
byggðasöfnum víða um land. Er
hér ekki átt við beina stælingu
heldur hitt, að eitthvað af hin-
um mörgu sýnishornum hins alda
gamla menningararfs okkar gæti
orðið undirstaða eða hvatning
um gerð og form nýrra gripa,
jafnvel til nýrrar notkunar. —
Þetta er þó engan veginn skil-
yrði, heldur aðeins ábending.
Verfflaun:
1. verðlaun 15 þúsund krónur.
2. verðlaun 10 þúsund krónur.
3. verðíaun 5 þúsund krónur.
Gert er einnig ráð fyrir auka-
verðlaunum og innkaupum. Verð
laun fyrir hugmyndir (teikning
ar eða framkvæmanlegar ábend-
ingar) ákvarðast af dómnefnd.
Að dómi loknum og veitingu
verðlauna verður sýning"á sam-
keppnismunum í Bogasal Þjóð-
minjasafnsins, í lok marz 1965
(um páskana).
Afhending muna til
samkeppninnar:
Munírnir skulu merktir 5 stafa
tölu (t.d. 12345 eða 34152 o.s.frv.)
og nafn höfundar; heimili og
sími fylgi með í lokuðu umslagi,
er aðeins sé merkt sömu tölu
utaná. — Munir allir eru tryggð-
ir frá móttöku og þar til þeir
eru aftur í höndum höfunda (að
lokinni sýningu í Bogasal,
Stavanger svo og heimsendingu).
Samkeppnistími byrjaði 31.
marz 1964 og stendur í 11 mán-
uði, eða til 28. febrúar 1965,
kl. 6 að kvöldi.
Munina skal senda til fyrir-
tækisins:
íslenzkur heimilisiffmður
Laufásvegi 2, Reykjavik.
Fyrirspurnir skal gera skrif-
lega til sama fyrirtækis.
ÁRAMÓTASPILAKVÖLD
MIÐVIKUDAGINN 6. JANÚAR. —
SPILAKVÖLBIÐ VERÐUR í SJÁLFSTÆÐISHÚSINU. — Húsið opnað kl. 20. — Lokað kl. 20.30.
Forsætisráðherra dr.
Bjarni Benediktsson
flytur ávarp.
Veitt verða góð spilaverðlaun og happadrætti verður
að vanda. — Þá verða góð skemmtiatriði og dansað
að þeim Ioknum.
SJÁLFSTÆÐISFÓLK!
Takið þátt í hinum vinsælu spilakvöldum.
VÖRÐUR HVÖT
ÖÐINN HEIMDALLUR
SÆTAMIÐAR afhentir á skrifstofu Sjálf-
stæðisflokksins við Austurvöll 30. des.
á venjulegum skrifstofutíma. —
Skemmtinefndin.
sr-A
FL
LDA
* m í mestu úrvaj •»
Haflve-garstöðum
MARGLIT BLYS
SÓLIR, 3 tegundir
GLORTA, 5 lita blys.
BENGAL BLYS.
KÚLUBLYS.
RÓMVERSK BLYS.
STJÖRNUREGN.
STJÖRNULJÓS.
ELDFJÖLL.
SNÁKAR o. m. fl.
FJÖLBREYTTAST ÚRVAL. — GERIÐ INNKAUPIN MEÐAN ÚRVALIÐ
ER MEST. — SENDUM HEIM. SÍMI 16599.
9 9 9
Flugeldasala Einars
HALLVEIGARSTÖÐUM
Gorðostræti