Morgunblaðið - 29.12.1964, Síða 17
Þriðjudagur 29. des. 1964
MQRGUNBLAÐI1
17
Haraldur Boðvarsson, útgm.
Tækní, vísindi og
sjómannaverkfall
TJM þessar mundir er unnið af
miklum áhuga hjá ýmsum aðil-
um til að finna heppilega lausn
á flutningavandamálinu frá fiski
xniðum til fjarlægra landsfjórð-
unga. Hér hafa verið á ferð
nokkrir útlendir sérfræðingar, til
skrafs og ráðagerða, um tækni-
laga hentug skip til flutninganna,
útbúin sjókældum geymum í lest
arrúmi, sem geta flutt síld og
ennan fisk óskemmdan miklar
vegalengdir, ennfremur stærri
íiskiskip útbúin á sama hátt. til
flutnings á eigin afla. Þar að
auki hefur verið upplýst um
flutnirnga á bræðslusíld í tank-
skipum og ennfremur um mögu-
lega flutninga í gúmbelgjum,
sem rúma 320 til 1000 smálestir
hver, en belgir þessir eru dregn-
ir aftan í öðrum skipum og dælt
í þá og úr þeim aflanum. Þá má
geta þess, að unnið er af miklu
kappi hjá Rannsóknarstofu Fiski-
félags íslands, með dr. Þórð Þor-
bjarnarson í fararbroddi, með
sinn alkunna vísindalega áhuga,
Bjarni Jónsson
Málverka-
sýning í
Hafnarfirði
BJARNI Jónsson listmálari sýnir
um þessar mundir um 40 lakk-
málverk í Iðnskólanum í Hafn-
arfirði. Er sýningin opin kl. 2 til
10 síðd. og hafa þegar nokkur
málverk selzt. — Verður sýning-
in opin fram að nýári.
að auglýslng
í útbreiddasta blaðinu
borgar sig bezt.
en hann er m.a. að sannprófa
igeymsluþol síldarinnar í flutning
um. bæði sjókælda og ísaða, með
eða án salts o.s.frv. að kemur
vonandi eitthvað raunhæft út úr
þessum bollaleggingum og ráða-
gerðum, því til mikils er að
vinna.
Samtímis þessu, eða í dag, 21.
des. sendir Verkalýðsfélag Akra-
ness út tilkynningu til útgerðar-
manna svohljóðandi:
,.Fundur í trúnaðarmannaráði
Verkalýðsfélags Akraness, hald-
inn 19. des. 1964 samþykkti eftir
ósk sjómanna- og vélstjóradeilda
félagsins, að boða vinnustöðvun
á vélbátaflotanuin á Akranesi frá
og með 1. jan. 1965 hafi samning-
ar þá ekki tekizt. Þetta tilkynn-
ist yður hér með.
Verkalýðsfélag Akraness.“
Ég géri ráð fyrir, að þetta verk
fall sé boðað með það fyrir aug-
um, að fá hærri hlut eða skipta-
prósentu á bátunum. Það er leitt
til þess að hugsa, að ekki skuli
vera til önnur betri leið en verk-
föll. til þess að knýja fram kaup
hækkanir eða bætt kjör, því þeg
ar allt kemur fram, þá er það
staðreynd, að allir tapa á verk-
föllum, og höfum við hér á Akra-
nesi nærtækt dæmi, er fyrir
tæpu einu ári eða í desember í
fyrra, stöðvuðust allir síldarbát-
arnir á bezta hluta vertíðarinnar
og þar með öll vinna í lándi líka.
Það er þjóðarnauðsyn að koma í
veg fyrir verkföll, ef nokkur kpst
ur er, og til þess hljóta að vera
færar leiðir, ef málsaðilar ganga
til samninga með sanngirni.
Ég hygg að sjómenn á sæmi-
lega útgerðum mótorbátum hér á
yfirstandandi ári, séu ekki
óánægðir með kjör sín, enda er
hlutur þeirra alligóður, en sín-
um augum lítur hver á silfrið.
Til fróðleiks vil ég nefna tölur,
sem tala sínu máli. Fjórir stál-
bátar okkar feðga, 150-270 tonna.
gerðir út á síld og þorsk að með-
altali tæpa 11 mánuði. Á þeim
er meðalhlutur háseta, með orlofi
kr. 243.362.00, og þrír eikarbátar,
55-70 tonna, gerðir út á þorsk Oig
humar í 8 mánuði, en meðalhlut-
ur háseta á þeim er kr. 93.583.00.
Vélstjórar hafa 50% hærri hlut
og skipstjórar 100%.
Einu sinni, þegar ég var að
ræða um viðskipti við banka-
stjóra Útvegsbankans á erfiðum
tímum. þá var Jón Baldvinsson,
forseti Alþýðusambands fslands.
einn af þremur bankastjórum'
bankans, góðgjarn og vitur mað-
ur. Um þær mundir stóð yfir
þrálátt og erfitt verkfall á Akra-
nesi. Að viðræðum loknum, bað
Jón heitinn mig að tala við sig
einslega á skrifstofu sinni í bank-
anum, ag ræddum við saman
igóða stund um verkfallið o.fl.
Um leið og við kvöddumst, bað
hann mig í einlægni að gera allt,
sem ég megnaði til að stuðla að
því að verkfallið leystistT Og
hann klappaði á öxlina á mér að
skilnaði og sagði: Blessaðir reyn-
ið þið að koma ykkur saman.
Nú vil ég gera orð Jóns heit.
Baldvinssonar að mínum og segi:
Blesaðir reynið þið að koma ykk-
ur saman.
Gleðileg jól!
Akranesi, 24. des. 1964.
FOKKER
Framhald af bls. 12
ins miklu auðveldari en ella
— vegna þess að hreyflarnir
eru þeir sömu og í Viscount.
Að vísu svolítið aflmeiri enda
eru þeir ekki nema tveir á
Friendship 1.670 hestöfl hvor.
----w?
En búkurinn á Friendship
er ekki miklu minni en á
Viscount — og eitt og annað í
nýju vélinni er engu viða-
minna en í stærri vélum: Til
dæmis raflagnir. Þessi vél,
sem Flugfélagið fær — og nú
er verið að smíða í Hollandi
— á að geta rúmað 48 farþega.
Vélar af þessar gerð vega um
40.500 ensk pund fullhlaðnar.
Til samanburðar má nefna, að
„Douglasinn“ vegur 25.000
pund og Skymaster 67.000
pund. Harðinn á Friendship,
þ.e.a.s. meðal flughraði í 20
þús. feta hæð, er 430 km.
Hraði Skymaster er 335 km í
7—8 þús. feta hæð — og „Dou
glasinn* flýgur með 268 km.
meðalhraða. Friendship flýgur
því með fast að því helmingi
meiri hraða en Douglasinn —
og meira en helmingi hærra að
jafnaði, því Friendship er með
loftþrýstu farþegarúmi eins
og allar nýrri vélar. Farþeg
' arnir finna ekki jafnmikið fyr
ir hæðarmuninum og í gömlu
vélunum.
----**
í nóvember á næsta ári
verður Fokker Friendship 10
ára, því hún fór fyrst á loft
árið 1955. Fyrsta vélin af þess
ari gerð, sem seld var til notk
unar í almennu farþegaflugi,
var samt ekki afhent fyrr en
í marz árið eftir — og það
var írska flugfélagið Aer Ling
us, sem keypti þá vél. Nú á
Aer Lingus 7 slíkar vélar og
þær líka vel. Það félag, sem á
flestar Friendship-flugvélar,
er japanska flugfélagið All
Nippon Airways — og það á
25. Samtals eru nú 285 Friend
ship vélar í notkun og pönt
un og viðskiptavinir verk-
smiðjanna eru orðnir 87 4 31
landi. Friendship hefur nú
flogið 1.450.000 stundir — og
það er ekki svo lítið, þegar
þess er gætt, að vélin verður
ekki nema liðlega hálfa
klukkustund til Akureyrar.
Meðal þeirra, sem mikið
hafa notað Friendship, eru ná
grannar okkar Norðmenn, því
Braathen á 7 vélar af þessari
gerð, sem hann notar í innan
landsflugi. Annars eiga flug-
félög, sem annast almenna far
Viggó, Brandur og Gunnar í ó fullgerðum Friendship-búk í
verksmiöjunum í Amsterdam.
þegaflutninga, 218 Friendship
því 45 eru í eigu einstakra fé-
laga — og 22 í eigu ríkis-
stjórna. Meðal þeirra félaga,
sem hafa heila Friendship und
ir forstjóra sína og gesti
þeirra, eru Pepsi Cola, IBM;
Iranska olíufélagið, Minnesota
Mining and Mfg. Company,
Oasis olíufélagið í Libyu,
Reynolds tóbaksfyrirtækið og
Westinghouse, sem á tvær vél
ar. United States Steels á þrjár
slíkar, auðvitað allar með
„lúxus“ innréttingu.
Stærsta hluta Friendship-
véla í eigu ríkisstjórna, eiga
Hollendingar sjálfir, því flug
her þeirra hefur 12 slíkar í
notkun. Flugherinn í Sudan á
4, flugherinn á Filippseyjum
eina — og Iranskeisari hefur
líka eina fyrir sig og sitt
skyldulið — svo fátt eitt sé
nefnt. Og öllum líkar þeim
vel við Friendship.
----
Ekki er hagt að ljúka þess
um greinarstúf án þess að
láta það fljóta með, að Fokker
Friendship er sama vélin og
Fairchild í AmeríkU. Þegar
Fokker ákvað að hefja fram-
leiðslu Friendship í stórum
stíl — og jafnframt að reyna
að ná fótfestu í Ameríku —
var leitað til ýmissa flugvéla-
framleiðenda vestra: Þeim
boðið að framleiða Friendship
fyrir. Ameríkulönd, ef þeir
léðu Fokker eitt og annað, sem
þá skorti þá stundina.
Bæði Boeing og Douglas
voru meðal þeirra, sem ekki
höfðu trú á fyrirtækinu, en
Fairchild óskaði að taka verk
efnið að sér, þegar það fyrir-
tæki fékk veður af málinu.
Framleiðir Fairchild og selur
flugfélögum ög öðrum í öll-
um löndum Ameríku að Brazi
líu einni undanskilinni, en
þar hafði Fokker komið sér
upp dótturfyrirtæki áður —
og var fært um að annast sölu
starfsemina sjálft í því landi.
Ekki alls fyrir löngu var haf
in framleiðsla á örlítið stærri
Fairchild, hálfum öðrum
metra lengri en þeim fyrri —
og var nýja vélin auðvitað
kölluð Long Friendship.
Og nú er Fokker að hefja
framleiðslu á tveggja hreyfla
þotu, sem á að geta borið 65
manns — og verður nefnd
Fellowship. Hún er smíðuð
fyrir stuttar og meðallangar
flugleiðir eins og Friendshp,
— og er væntanlega ætlað að
taka að einhverju leyti við af
Friendship, þegar stundir líða
fram. En Brandur Tómasson
og félagar hans verða senni-
lega ekki spurðir ú.t úr um
Fellowship fyrst um sinn.
Khanh hcrshöfðingi
gagnrýnir
Bandaríkin
Saigon, 23. des. — (NTB-AP)
BANDARÍKJAMENN hafa
sett það skilyrði fyrir aukinni
aðstoð við stjórnarherinn í
Suður-Víetnam, að þjóðarráð-
ið, sem leyst var upp í stjórn-
arbyltingu hersins á sunnu-
daginn, verði stofnað aftur.
Khanh hershöfðingi, fyrrv. for-
sætisráðherra, sem hafði forystu
fyrir byltingarmönnum, gagn-
rýndi Bandaríkjamenn í dag fyr-
ir að setja hershöfðingjunum,
sem nú hafa öll völd í landinu í
sínum höndum, þetta skilyrði.
Khanh gagnrýndi éinnig stefnu
Bandaríkjanna varðandi Suður-
Vietnam í heild.
Fregnir herma, að á fundi
hershöfðingjanna í dag, hafi
Khanh lagt fram áætlun um mót-
mælaaðgerðir gegn stefnu Banda
ríkjanna. Ekki var ljóst hve mik-
ils stuðnings þessi áætlun naut
meðal hershöfðingjanna.
Áreiðanlegar heimildir herma,
að Khanh hershöfðingi vilji nú
gera innrás í Norður-Vietnam
með aðstoð Bandaríkjamanna og
segi, að vilji Bandaríkjamenn
ekki fallast á það, muni Suður-
Vietnam hætta að þiggja aðstoð
þeirra.
Stjörnuljós
lítil og stór.
BENGAL eldspýtur og blys 3 stærðir.
Kínverjar
Heildverzlun EIRÍKS KETILSSONAR
Garðastræti 2 — Sími 23472.