Morgunblaðið - 29.12.1964, Síða 27

Morgunblaðið - 29.12.1964, Síða 27
MORCUNBLAÐIB 27 Þriðjudagur 29. des. 1964 Óvenju margt skipa var í Reykjavíkurhöfn um jólin. Þessi mynd var tekin í austur frá Hafnar- húðum á annan dag jóla. (Ljósm. Mbl.: Sv. >.) — Verkfall Frh. af bls. 28 — Hr'ib og hvassviðri Framhald af bls. 28 að hér hafi verið um versta ástand að ræða, sem skapazt hefur af þessu tagi í mörg ár. Fært í Kópavog Síðustu fréttir frá lögreglunni í Reykj.avík hermdu, að tekizt hefði að opna leiðina suður í Kópávog og losa þá bíla, sem voru fastir á leiðinni þangað og að 'verið væri að ryðja leiðina suður í Arnarnes, en þar voru tugir bíla fastir og sumir mann- lausir. Stóðu vonir til þess að losa mætti þessar bifreiðar og opna leiðina suður í Hafnarfjörð. Samkvæmt frásögn lögreglunn ar í Kópavogi tókst að halda uppi umferð að nokkru leyti inn- anbæjar, enda var snjóléttara á Reykjanesbraut þar en viða ann- ars staðar. Einnig var kröftugur snjóhefill stöðugt önnum kafinn við það að halda helztu leiðum þar opnum. Aðstoðarleiðangur frá Hafnar- firði. Seint í gærkvöldi hafði ekki enn tekizt að opna leiðina frá Hafnarfirði inn í Arnarnes. Lög- reglan í Hafnarfirði hafði þá sent Rifið innan úr lúkarnum í bv. tvo bíla mannaða lögregluþjón- um og sjálfboðaliðum til aðstoð- ar fóiki, sem var á smábilum. Átti að reyna að greiða fyrir strætisvögnum með ýtum frá Vegagerð ríkisins, og fólk úr smábílum var flutt að nokkru leyti yfir í strætjsvagná, því að miklu erfiðara var acS greiða fyr- ir smábílum, þar eða víða þurfti að bera þá til í fönninni til þess að losa þá. Bílar fastir á götum borgarinnar. Frá Slýsavanrafélagi íslands voru hjálparflokkar að verki með bifréið til aðstoðar fólki, sem víða var teppt í bif- reiðum í úthverfum og beðið var um aðstoð til handa fólki jafnvel inni í sjálfri Reykja vík. I sumum hverfum var á- standið þannig, að við hverja götu voru fleiri eða færri bif- reiðir fastar í snjónum. Björgunarfélagið Vaka hf. hélt uppi aðstoðarstarfsemi og sinntu starfsmenn þaðan milli 50—60 útköllum. Gátu þeir hvergi nærri fullnægt þeim beiðnum, sem þangað bárust. Um miðnættið var enn ekkert lát á aðstoðarbeiðn- um þangað. Slysavarðstofan skýrði frá því seint í gærkvöldi, að þá hefðu ekki orðið nein slys af völdum umferðarvandræðanna, svo að vitað væri. haldið hefði einn fund áður, hinn 18. desember. Ekki kvaðst Jón vera mjög bjartsýnn á, að samn- ingar tækjust fljótlega. Kristján Ragnarsson, fulltrúi hjá LÍÚ, sagði blaðinu, að vart hefði orðið við þann misskilning, að útgerðarmenn hefðu boðað verkfall á síldarflotanum, en svo væri ekki. Hins vegar hefðu út- vegsmenn sagt- upp síldveiðisamn ingum í þrem verstöðvum af níu, en sjómenn hefðu hins vegar boð að þau verkföll, sem boðuð hafa verið frá áramótum. Kristján sagði, að vertíðar- samningar væru nú aðeins í gildi í Vestmannaeyjum og Austfjörð- um, en síldveiðisamningar væru hins vegar í gildi í Vestmanna- eyjum, á Austfjörðum, Norður- landi og Vestfjörðum. Þá sagði Kristján, að útvegs- menn hefðu orðið fyrir miklum útgjöldum vegna júnísamkomu- lagsins þótt þeir væru ekki bein- ir aðilar að því, en hefðu hins vegar gert ráð fyrir að hafa vinnufrið á meðan það samkomu lag gilti, enda á þá lagður launa- skattur og orlofshækkun með væntanlegum orlofslögum, en þessir tveir liðir næmu tug- milljóna króna útgjöldum á ári fyrir útgerðina. Þá tók hann fram, að útgerðar- menn telji, að engin sú breyting hafi átt sér stað er geri þeim kleift að greiða stærri hluta af afla bátanna til sjómanna, held- I ur væri útvegsmönnum og sjó- mönnum sameiginlegt að fá hærra verð fyrir fiskinn til þesa að mæta auknum útgjöldum. Simahapp- drættið DREGIÐ var í símahappdrættl Styrktarfélags lamaðra og fatl- aðra á Þorláksmessu. Hæsti vina ingurinn, Volvo Amazon bíll, kom á miða nr. 38458, sem María Helgadóttir, Kleppsvegi 26, hafði keypt. Annar aðalvinnigur, Völka wagen-bíll, kom á óseldan Hafn arfjarðarmiða, nr. 51231. Fiskibátur tekiuu við Inp;ólfshöfða VARÐSKIPIÐ Ægir tók Vest- mannaeyjabát að meintum, élög- legum veiðum undan Ingólfs- höfða aðfaranótt mánudags. Bát- urinn er Leó VE 400, 94ra tonna bátur. Samkvæmt mælingum varðskipsmanna var hann tvær sjómílur fy ir innan fiskveiða- mörk. Málið verður tekið fyrir í Vestmannaeyjum. Marz í gær. — (Ljósm. MbL: Ól. K. Mag.). Eldur í bv Marz vegum í nágrenni Reykjavíkur. Hvít jol nema á Suð-Austurlandi KL. 20:14 í sunnudagskvöld var slökkviliðið kvatt að bv. Marz, sem lá við Togarabryggjuna í Keramik- og batik- sýning í Callery SÝNING þeirra Sigrúnar Jóns- dóttur og Hedi Guðmundsson á keramik-munum og batik-vefn- aði í Gallery 16 á Klapparstíg 16 verður framlengd til áramóta vegna áskorana, en annars átti henni að ljúka á Þorláksmessu. Sýningin hefur vakið mikla at- hygli, talsvert selzt og margar pantanir borizt á sérstökum hlut um. Leitfrétting í GREININNI „Um Skattalög" eftir Þormóð Runólfsson, sem 'birtist í blaðinu 19. desember sl., urðu tvær villur. í greininni stendur: ..Frádrátt- ur samkvæmt skattalögum er kr. 2.700“, en á að vera kr. 27. þús- und. Þá segir: „Ég reikna ferða- kostnað í sambandi við þetta kr. 25 þúsund“, en á að véra 2.500 krónur. Reykjavíkurhöfn, en tæpum tveim tímum siðar átti skipið að fara á veiðar. Eldurinn var í lúk ar og erfitt að komast að hon- um vegna hita og reykjar. — Reyndu slökkviliðsmenn fyrst að komast reykgrímubúnir niður, en urðu frá að hverfa. Um tvær klukkustundir tók að slökkva eldinn að fullu. — Allmiklar skemmdir urðu á skipinu, og mun taka nokkra daga að gera við þær. Orsakir eldsins voru ó- kunnar. Messúvíni stolið úr Stokkseyrar- kirkju NÓTTINA milli annars og þriðja í jólum var brotizt inn í kirkj- una á Stokkseyri, og messuvín- inu öllu stolið úr altarinu. Annað var látið vera óhreyft. Þjófurinn gat opnað ytri kirkjudyrnar, því að þær munu hafa verið hviklæstar. Úr for- dyrinu komst hann upp á loft og fram á svalir. Síðan hefur hann látið sig síga fram af þeim, hald ið rakleitt að altarinu og tekið messuvínið. Sömu leið komst hann ekki út, svo að hann braut innri kirkjudyrnar. ^ Málið er í rannsókn. „ SAMKVÆMT frásögn veður- stofunnar voru hvít jól nema í Austur-Skaftafellssýslu og syðst á Austfjörðum. Þar var auð jörð á aðfangadag. Á aðfangadag gekk norðanátt- in niður og veður varð stillt og bjart um allt land á jólanótt með 5—18 stiga frosti. Kaldast var á Þingvöllum, 18 stiga frost. I A- Skaftafellssýslu og syðst á Aust- fjörðum var auð jörð en nokkur snjór í öðrum landshlutum, en þó ekki svo mikilt, að hann stöðv aði samgöngur. Á jóladag var suðaustanátt og nokkur snjókoma á Vesturlandi fram eftir degi, en á annan ú jól- um var komin norðan átt um allt land með 1—8 stiga frosti. Þá var snjókoma á Austfjörðum og. Norðausturlandi en hrein- viðri sunnanlands.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.