Morgunblaðið - 13.01.1965, Side 10

Morgunblaðið - 13.01.1965, Side 10
10 MORGUNBLADIÐ Miðvikudagur 13. janúar 1965 ::«f5íWí5!»?ííSS5Sí?íííMíW:|W5?^»s»í£ftSíA^^í^gS:^^jyííí$^í^55g^5^JSj^gí: Frá vertíðinni í Vestmannaeyjum. Ungar blómarósir við störí í einu frystihúsanna. Vetrarvsrtíð að hef jast í Eyjum 7 Af / r Góð síldveiði hefur verið við Vestmannaeyjar síðustu daga. Hér er unnið að síldarlöndun. „VESTMANNAEYINGAR vona allt hið bezta og eru bjartsýnir á góðan vertíðar- afla“, sagði fréttaritari Morg- unblaðsins í Vestmannaeyjum Björn Guðmundsson, er blað- ið átti tal við hann í gær. Vetrarvertíðin er nú að hefj ast og sagði Björn Guðmunds son, að aðkomufólk væri þeg- ar tekið að hópast til Eyja. Bjóst hann við að fjöldi þess yroi svipaður og á síðustu ár um, eða á annað þúsund manns. Alls reru 85 til 80 bátar frá Vestmannaeyjum í fyrra, og bjóst Björn við svipuðum fjölda í ár, nema hvað færri myndu líklega róa með línu. Mætti því búast við minm línufiski en oft áður. Hins vegar hefðu frystihúsin stór- bætt skilyrði til móttöku síld ar að þessu sinni og aðstaða til síldarbræðslu væri nú betri en nokkru sinni fyrr. Væru því allar horfur á betri nýtingu síldarafla nú en áður. I fyrradag bárust á land í Vestmannaeyjum 6—7 þús. tunnur síldar en ívið minna í gær. Allir bátar voru á sjó báða dagana, og var kappnóg að gera í öllum frystihúsun- um við að vinna aflann.“ En þetta er nú bara rétt að byrja“, sagði Björn að lok- um. „Það færist bráðum meira líf í tuskurnar hér“. Skákþing Reykjavíku Þ R I Ð J A umferð á Skákþingi Reykjavíkur var tefld á sunnu- dag. Leikar fóru þannig í meist- araflokki, að Haukur Angantýs- son vann Sigurð Kristjánsson, Jó- hann Sigurjónsson vann Hauk Hlöðver, Benóný Benediktsson vann Gylfa Magnússon og Jón Hálfdanarson vann Helga Hauks- son. Bragi Björnsson og Magnús Sólmundarson gerðu jafntefli, en skák Björns Þorsteinssonar og Jóns Kristinssonar fór í bið. Fjórða umferð var tefld, á mánudagskvöld og fóru leikar svo í meistaraflokki: Benóný vann Helga, Magnús vann Jó- hann, Björn vann Hauk, Jón Hálfdanarson vann Braga og Jón Kristinsson vann Gylfa Magnús- son. Skák Hauks Hlöðvers og Sig- urðar Kristjánssonar fór í bið. Biðskákir úr annarri umferð voru tefldar á laugardag. Leikar fóru þannig í meistaraflokki að Björn vann Benóný og Gylfi vann Helga Hauksson. Staðan er þá þannig eftir fjór- ar umferðir: í meistaraflokki eru efstir: Magnús Sólmundarson með 3% vinning. Björn Þorsteinsson og Jón Kristinsson með 3 og biðskák. Jón Hálfdanarson og Benóný Benediktsson með 3 vinninga hvor. Bragi Björnsson með IVz v. 1. flokkur: 1. Karl Sigurhjartarson með 4 vinninga. 2. Ólafur Ólafsson með 3 v. 2. flokkur: Bragi Halldórsson og Jóhannes júðvíksson með 3% vinning hvor. Biðskákir verða tefldar á mið- vikudagskvöld og fimmta umferð á fimmtudagskvöld en sjötta um- ferð á sunnudag kl. 2. Teflt er í Mírsalnum í Þingholtsstræti 27. * KUL.DAR Chicago, 12. jan, (AP) Miklir kuldar ríkja nú í mið- vesturríkjum Bandarikjanna. Komst frostið niður í 30 stig í Minnesota í dag. Á sama tíma var rúmlega 19 stiga hiti í Florida. S/S reísir nýja verk- smibju í USA ÁRIÐ 1951 stofnaði Samband ísl. samvinnufélaga sölufélag í Banda ríkjunum, Ic'eland Products. — Reyndist þetta nauðsynlegt vegna bandarískra skattalaga. Hlutafé Iceland Products er 62 þús. dollarar. Af þeirri upphæð á Sambandið $ 61.600.—, en $ 400.— eru á nafni íslenzkra starfsmanna Iceland Products, en þetta fyrirkomulag var nauðsyn- legt til að uppfylla bandarískar reglur um híutafélagið. Iceland Products hefur starf- rækt litla verksmiðju í Harris- burg í Pensylvaníu síðan 1959, en þá voru skrifstofur félagsins fluttar þangað frá New York. Verksmiðja þessi hefur framleitt tilbúna fiskrétti úr íslenzkum fiskblokkum. Hefur þessi fram- leiðsla þótt lítil væri gefið góða raun, sérstaklega síðustu árin. Það vill of oft brenna við að blokkir frá íslenzku frystihúsun- um eru ekki gallalausar og hefðu því ekki selzt til hinna stóru blokkakaupenda, nema með af- slætti. Með því að vinna þessar blokkir í verksmiðju Iceland Products hefur hinsvegar verið unnt að skila fullu andvirði til íslands. Á sl. 10 árum hefur sala Ice- land Products vaxið úr nálægt 4 millj. lbs. í 23,3 millj. lbs. sl. ár og hefur aldrei verið meiri en þá. Vegna hinnar auknu starfsemi Iceland Products undanfarin ár og vegna þess að eftirspurn eftir tilbúnum fiskréttum hefur farið ört vaxandi í Bandaríkjunum, ákvað stjórn og framkvæmda- stjórn Sambandsins á sl. sumri, að byggja nýja verksmiðju í Harrisburg, til að bæta og auka aðstöðu sölufélagsins. Framkvæmdastjóra Iceland Products, Sverri H. Magnússyni, var síðan falið að sjá um allar framkvæmdir, en hann hafði sam ráð við nýstofnaðan félagsskap í borginni Harrisburg Area Indust- rial Development Corp. um út- vegun fjár . til byggingar nýa verksmiðju- og shrifstofuhúss. Þessi fyrrnefndi félagsskapur hefur það markmið, að vinna að uppbyggingu atvinnufyrirtækja í borginni og nágrenni hennar og stuðla með því að jafnvægi í at- vinnumálum Bandaríkjanna. Fjár magn til byggingarinnar er lagt fram úr sjóði félagsins og er Ice- la.nd Products fyrsta fyrirtækið, sem nýtur þeirrar fyrirgreiðslu. Byggingaframkvæmdir hefjast í þessum mánuði og verður lokið á komandi sumri. Þetta nýja hús verður 3800 ferm að stærð og er gert ráð fyrir að það kosti um 350 þús. dollara. Vegna hárra innflutningstolla í Bandaríkjunum á tilbúnum fisk- réttum hefur ekki verið grund- völlur hér á landi fyrir verk- smiðju, slíka sem hér um ræðir. Harrisburg er höfuborg í Pen- sylvaníuríki og hefur þá sérstöðu, að vera á krossgötum meira en nokkur önnur borg í austurfylkj- um Bandaríkjanna. Um Harrisburg liggja allar aðalflutningabrautirnar frá austri til vesturs og norðri til suðurs. Er því mjög góð áðstaða fyrir verksmiðju Iceland Products til að koma framleiðslu sinni á markað vítt og breitt um Banda- ríkin. (Frá Sambandi ísl. sarn- vinnufélaga). Líkan af fyrrhugaðri verksmiðju- og skrifstofubyggingu Ice- land Products í Harrisburg. — Ný bók Framhald af bls. 1. ætti að skila handriti að 134 síðna bók eftir þrjár vikur. Möller segir bókina ritaða fyrir alla þá, sem heyra um málið og fá óhuga á því, en geta ekki t.d. lesið meiriháttar ritverk um sjónarmið varðandi eignarnám, um skoðanir vísindamanna, um lögfræðileg atriði varðandi erfða- skrár o. s. frv. „Þessvegna höfum við safnað í bókina öllu sem vita ber um mál- ið og allar hliðar þess til að mynda sér sjálfstæða skoðun. Við vildum að bókin yrði það sann- gjörn að hún næði einnig til les- enda á íslandi". Þingmaðurinn bætti því við að handrit hans sjálfs að bókinni yrði afhent íslendingum. „Ég lof- aði fjármálaráðherra íslands að senda honum handritið. Þetta lof- orð gaf ég í hádegisverðarboði, skömmu eftir að ég hafði tekið að mér að skrifa bókina. Og þetta loforð held ég“, sagði Poul Möll- er. — # \ Möller telur að ekki muni draga til neinna stórtíðinda í handritamálinu eftir að bók hans kemur út, það tryggi afgreiðsla málsins 1961, þegar þvinga átti fram afhendingu. — „Ég er viss um“, segir hann, „að núverandi menntamálaráð- herra, K. B. Andersen, er ákveð- inn í að láta ekki söguna frá 1961 endurtaka sig. Ég reikna með að staðið verði við loforð stjórnarinnar um að við fáum að ræða málið við vísindamenn á þessu sviði.“ Telur Möller að starfi hand- ritanefndar þingsins muni ljúka með skipun undirnefndar, er verði t.d. skipuð talsmönnum allra flokkanna og fimm eða sex sérfróðum vísindamönnum. Þar verði svo kannað á hvern hátt verði unnt að samrýma sjónarmið vísindamannanna og stjórnmála- mannanna. í sambandi við handritamálið heimsóttu allir þeir ráðherrar dönsku stjórnarinnar, sem heima eru, Árnasafn til að skoða hand- ritin og kynna sér vísindastarf stofnunarinnar, og á eftir heim- sóttu þeir einnig handritasafn Konunglegu bókhlöðunnar. Jón Helgason, prófesgor, sýndi ráðherrunum nokkra af dýrgrip- um safnsins, og lýsti því hvernig þessi gömlu handrit væru lag- færð og endurbætt. Sýndu ráð- herrarnir mikinn áhuga og þakk- læti fyrir fengnar upplýsingar, sem vissulega munu hafa áhrif á stefnu ríkisstjórnarinnar við á- framhaldandi afgreiðslu málsins á þingL Rytgárd.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.